Morgunblaðið - 02.10.1997, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
X.
LISTAKOKKAR
OG PÁSAMLEGUR MATURI
auRi
AÐSENDAR GREINAR
TilbodsréttiR
Baibcquegrilluð Grillaður
GRÍSA- LAMBA-
LUND VOÐVI
meö kaldri grillsósu
03 rauðlauksmarmelaöi
AÐENSKR. 1390,-
Glóðuð
KJÚKLINGA
BRINGA
meö engifer
og hunangi
AÐBNS KR. 1390,-
meö bakaðri kartöfiu
og bernaisesósu
AÐEINS KR. 1490,-
Hún er engri lík þessi
LÚÐU-
PIPARSTEIK
með hvítlauks-
og Pemod-rjóma
AÐEINS KR. 1390,-
f/nnifúliti í pfiuufreindum rélliun er rjómalötjuS
iiH-þfMi.'iíjHi JfíilluH’ijUur suIuIÍmuhiui mj hlnn
ómóUtltxáilaji óJnu'á eflir.
| Tilboð öll kvöld POTTURINN
! um helgar. OG
PflNI
Bamamatseðill
fyrir smáfólkið!
c/.
BRflUTRRHOLTI 22
SÍMI551-1690
Stjórntækniskóli Islands
Bíldshöfða 18 • Sími 5671466
MARKAÐSFRÆÐI
Stjórntækmiskóli íslands
gefur þér kost á beinskeyttu 250 stunda námi í markaðs-
fræðum. Náminu er ætlað að koma til móts við sívaxandi
kröfur atvinnulífsins um hæfari starfskrafta. Námið er ætlað
fólki, sem vill bæta við sig þekkingu og fá innsýn í heim
markaðsfræðanna.
Markmið
námsins er meðal annars að þátttakendur tileinki sér
markaðshugsun í íslensku viðskipta- og athafnalífi og nái
þannig betri árangri.
Námið
er í formi fyrirlestra og verkefnavinnu og tekin eru próf
í einstökum greinum.
Kennarar
eru allir háskólamenntaðir og eiga að baki góða reynslu við
kennslu og í viðskiptalífinu.
Námsgreinar:
Markaðsfræði.
Sölustjórnun og sölutækni.
Vöruþróun.
Vörustjórnun.
Stjórnun og sjálfstyrking.
Auglýsingar.
Tölvunotkun í áætlanagerð.
Viðskiptasiðferði.
„Ég mæli með
náminu fyrir alla
þá, er starfa við
markaðs- og
sölustörf. Ég
hef verið í sölu-
mennsku í 6 ár
og námskeiðið hefur nýst mér
vel í starfi. Fjölbreytt og
áhugavert námskeið."
Elísabet Ólafsdóttir,
Eggert Kristjánsson hf.
„Ég mæli tví-
mælalaust
með þessu
námi fyrir alla
þá sem eitthvað
eru tengdir
markaðs-, sölu-,
upplýsinga-, skipulags-, og/
eða framleiðslumálum sinna
fyrirtækja."
Hendricus Bjarnason,
Skýrr
Starfsmenntun. Fjárfesting til framtíðar.
Sími 567 1466. Opið til kl. 22.00.
Blab allra landsmanna!
- kjarni máhinv!
Alþjóðleg staða
Atlantshafslaxins
NÚ ER lokið veiðisumrinu 1997
og brátt liggja fyrir niðurstöður úr
laxveiðiám landsins. Miðað við
batnandi árferði til lands og sjávar
og aukningu í framleiðslu í fersku
vatni voru flestir sérfræðingar
þeirrar skoðunar að íslenskar lax-
veiðiár mundu ná sér upp úr þeirri
lægð sem þær hafa verið í í all-
mörg ár. Endanleg uppkaup á laxa-
lögnum á Vesturlandi í byijun sum-
ars drógu ekki úr þessum vænting-
um.
Niðurstöður munu sennilega gefa
til kynna að nokkur bati hafi orðið
frá fyrra ári en þó ekki í samræmi
við væntingar sérfræðinga jafnt
sem áreigenda og stangaveiði-
manna.
Á undanförnum árum hefur verið
unnið mikilvægt rannsóknarstarf
varðandi framleiðslu á laxi í fersku
vatni og talin hafa verið gönguseiði
í lykilám í mörgum landshlutum.
Lítil framleiðsla á seiðum í fersku
vatni er að jafnaði allgóð vísbending
um rýra eftirtekju síðar á lífsferli
laxins en þó hefur legið fyrir að
sveiflur í afkomu laxins í hafinu
eru sennilega margfaldar á við
sveiflur í fersku vatni. Hins vegar
hefur vantað skýringar á eðli þeirra
þátta sem mest áhrif hafa á afkomu
laxa í sjó.
Nýlega var haldinn alþjóðafund-
ur um stöðu Atlantshafslaxins í
Galway á írlandi. Aðstandendur
fundarins voru hagsmunasamtök
um velferð Atlantshafslaxins
beggja vegna Atlantshafsins, Atl-
antic Salmon Federation (ASF) í
Norður-Ameríku og Atlantic Salm-
on Trust (AST) á Bretlandseyjum,
en slíkir fundir hafa verið haldnir
á um það bil 5 ára fresti allt frá
1973.
Áhrifaþættir
Á fundinum komu fram áhyggjur
vegna þeirrar lægðar sem laxa-
stofnar í flestum löndum hafa verið
í. Flutt voru erindi um þá þætti,
sem sennilega hafa mest áhrif á
afkomu laxins, bæði í
ferskvatni og sjó. Eft-
irfarandi þættir eru
taldir mikilvægastir:
• Mengun, súrt regn,
skógarhögg og lan-
deyðing, sem valda
verulegum búsifjum í
þéttbýlli löndum á
hveiju ári.
• Skortur á hrygn-
ingarfiski vegna of-
veiði einstakra stofna,
einkum þar sem sjáv-
arveiði er stunduð.
• Rýrari skilyrði fyrir
lax í sjó vegna lægra ^rn;
hitastigs í norðanverðu ísaksson
Atlantshafi.
• Samkeppni um fæðu við veiðar
mannsins og aðrar lífverur hafsins.
• Óheft fjölgun sela og hvala í
Norður-Atlantshafi, sem haft geta
óþekkt áhrif á nytjastofna.
Aðstæður til laxarækt-
unar í ám, segir Arni
Isaksson, hafa verið
betri hér en annars
staðar, vegna banns
við laxveiðum í sjó.
• Aukin notkun flotvarpa til veiða
á ýmsum sjávarfiskum, sem leitt
gæti til blóraveiði á laxi af ýmsum
stærðum.
• Óskilgreind áhrif aukinnar fram-
leiðslu á eldislaxi í kvíum við strend-
ur Atlantshafsins, sem nú er hund-
rað sinnum meiri en framleiðsla á
Atlantshafslaxi í ám á svæðinu.
Áhrifin gætu tengst bæði sjúkdóm-
um, vistfræði og erfðafræðilegum
þáttum.
Eins og þessi upptalning ber með
sér eru vandamálin flókin og mis-
munandi eftir svæðum og löndum.
Hér á landi hefur ástand sem betur
9íatuCver^smar(qiður
á Eiðistorgi, Seltjarnarnesi
Kvenfélagið Seltjörn á Seltjarnarnesi stendur fyrir handverksmark-
aði laugardaginn 4. okt. frá kl. 10-18.
Um 50 aðilar víðs vegar að landinu sýna og selja fjölbreytta og glæsi-
lega nytjalist. Börn úr Tónlistarskóla Seltjarnarness spila kl. 13.00.
Kvenfélagið verður með kaffi- og vöfflusölu.
Nánari uppl. í síma 892 9340.
84% ALOE VERA
hand- og líkams-
áburðurinn frá
JASON
á engan sinn líka.
Gæðin tandurhrein
og ótrúleg.
Fæst meðal annars f
öllum apótekum á landínu.
HEILDARNÆRING SF.
sfmar 567 8595
*
fer verið þannig að
hægt hefur verið að
rekja sveiflur í lax-
gengd milli ára að
mestu leyti til breyti-
legra umhverfisskil-
yrða með þeirri undan-
tekningu að lítið er vit-
að um afdrif laxins í
hafinu. Einnig hafa
aðstæður til ræktunar
á ám verið betri hér en
annarsstaðar vegna
banns við laxveiðum í
sjó, eins og árangur í
laxarækt í Rangánum
ber með sér.
Aðgerðir
Fundurinn lýsti yfir ánægju sinni
með lækkun á kvótum í úthafsveið-
um í samræmi við NASCO samn-
inginn og á framtaki Norðuratlants-
hafssjóðsins í kaupum og leigu á
slíkum kvótum. Hinsvegar var lögð
megináhersla á að vinna gegn
fækkun Atlantshafslaxins á sem
flestum vígstöðvum. Þar voru eftir-
talin verkefni talin brýnust:
• Endurheimtur á búsvæðum og
umbætur á skilyrðum fyrir lax í
fersku vatni.
• Auknar rannsóknir á laxi í sjó
og þeim umhverfisþáttum sem
snerta laxgengd.
• Auknar rannsóknir á áhrifum
laxeldis á villta lax- og silungs-
stofna.
• Auknar rannsóknir á áhrifum
sjávarspendýra á laxastofna.
• Stöðvun úthafsveiða á laxi nema
innan ramma NASCO samningsins.
• Minnkun eða stöðvun á strand-
veiðum á laxi, einkum þar sem
hætta steðjar að villtum stofnum.
• Áframhaldandi samstarf um
verndun Atlantshafslaxins á al-
þjóðavettvangi.
• Fullnægjandi eftirlit með lögum
og reglum.
• Sleppingar á stangveiddum laxi,
þar sem hætta steðjar að stofnum.
Áberandi var hversu mikla
áherslu fundarmenn lögðu á aukn-
ingu rannsókna á iaxi í sjó og sam-
spili við aðrar lífverur hafsins, en
sá þáttur hefur helst staðið því fyr-
ir þrifum að hægt væri að spá
óyggjandi fyrir um laxgengd.
Vegna kostnaðar við slíkar rann-
sóknir var talið eðlilegt að þær
færu að verulegu leyti fram sem
samstarf milli þjóða.
Ljóst er að ýmsar nágrannaþjóð-
anna, svo sem Norðmenn og Skot-
ar, hafa þegar hafið rannsóknir á
laxaseiðum í sjó með hjálp sérútbú-
inna flotvarpa. Hér á landi hafa
starfsmenn Veiðimálastofnunar í
samvinnu við Hafrannsóknastofnun
unnið mikilvægar rannsóknir á
fyrstu sjávardögum hafbeitarseiða
við Breiðafjörð og hegðun göngu-
laxa á sama svæði með notkun
mælimerkja. Betur má ef duga skal
og auka þarf verulega skilning okk-
ar á göngum og hegðun laxins í
hafinu með aukningu á þessu sam-
starfi auk samstarfs við erlendar
stofnanir. Þátttaka laxasérfræð-
inga í fjölstofnaverkefnum á vegum
Hafrannsóknastofnunar væri mikil-
vægur áfangi í þessu máli.
Höfundur er veiðimálastjóri.
i Olfusi
Garöyrkjitfólk !
Stertcar víðiplöntur
i pottuwn fyrir
haustgróðursetningar.
Hagstætt verö.
Sími 483 4840