Morgunblaðið - 02.10.1997, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ_______________
AÐSENDAR GREIIMAR
Glapræði umhverf-
isráðuneytis
NÝLEGA mátti lesa
í dagblöðum um stór-
merkilegar tillögur um
uppgræðslu og skóg-
rækt í Önundarfirði,
og í gærkveldi kom
svo hin mæta kona
Sigrún Gísladóttir á
Sólbakka í sjónvarpi
til að styðja þessi já-
kvæðu áform. Þetta
var vel af sér vikið hjá
henni, því að í baksýn
mátti sjá hin stórfelldu
umhverfísspjöll, sem
VST og NGI hafa
staðið fyrir að gerð
hafa verið ofan Flat-
eyrar og ranglega eru nefnd snjó-
flóðavarnargarðar. Þetta eru
mestu umhverfísspjöll, sem unnin
hafa verið í byggð á íslandi, og
kaldhæðni að þau skuli vera gerð
Flateyringar eiga rétt
Tm
á, segir Onundur
—
Asgeirsson, að fá leið-
réttingu sinna mála.
að undirlagi umhverfísráðuneytis-
ins. Sjá mátti að ekki er enn búið
að loka heimkeyrslunni að Sól-
bakka, enda er það óþarfí, því að
aðeins þarf lítilsháttar víxlun á
görðunum ofan og neðan vegarins
til að ná fullri stýringu á hugsan-
legum snjóflóðum án þess að
skerða heimkeyrsluna að Sólbakka
eða loka veginum þangað. Þetta
geta allir séð nema blindingjar í
stjómsýslunni. Þeim verður seint
hjálpað.
Ég sá, að gert er ráð fyrir að
allt láglendi í Önundarfírði verði
lagt undir skógrækt, sem þýðir
væntanlega að allur fjárbúskapur
verði þar lagður niður. Ekki var
þó gert ráð fyrir skógrækt í Kol-
viðarhlíðinni, sem var þó eina kjarri
vaxna svæðið í firðinum í mínu
ungdæmi. Ekki heldur á Hvan-
nökrunum, en þar voru kjarnmestu
slægjurnar á sinni tíð. Trúlega er
þetta fjarstýrt af NGI/VST líka?
Hvort skyldi borga, umhverfís-
ráðuneytið eða landbúnaðarráðu-
neytið? Það er ekki alltaf létt að
greina þama á milli.
En hver skyldi vera ástæðan
fyrir þesum skyndilega áhuga
umhverfisráðuneytisins á skóg-
rækt í Önundarfirði? Með grein
minni í Mbl. 27.08. 97 birti eg
minnisblað frá ráðuneytisstjóra
umhverfisráðuneytisins til um-
hverfisráðherra, þar sem hafnað
er boði Vegagerðarinnar um at-
hugun á snjóflóða-
brautum í Eyrarfjalli.
Þetta var hin endan-
lega stjómsýslu-
ákvörðun, gerð af
tveim mönnum í skjóli
embætta þeirra um
málefni, sem þeir
höfðu enga þekkingu
á. Svona stjórnsýsla
er refsiverð og varðar
embættismissi. Trú-
girni þeirra er ekki
röksemd heldur áfell-
isdómur í málinu.
Ástæðan fyrir skóg-
ræktaráhuganum er
augljóslega sú, að
þessir menn eru að reyna að fela
sporin sín. Tekst þeim það?
Eftirfarandi beytingar hafa nú
verið gerðar á framkvæmdunum á
Flateyri:
1. Hætt er við að byggja 20 m
(eins og 7-8 hæða blokkhús) háan
efsta hluta varnargarðanna utan í
brattri hlíðinni ofan Merar-
hvamms. Þetta var aldrei hægt,
og aðeins fram komið vegna kröfu
og ókunnugleika NGI, sem sögðu
í bréfí 20.08. 96 að „vollene maa
være saa store som foreskrevet i
rapporten." Fékk VST undanþágu
frá NGI? Eða var það frá stjóm-
sýslunni? Skýringar liggja ekki
fyrir. Almenningi eða Flateyring-
um kemur þetta ekki við?
2. Ákveðið er að flytja burt um
200.000 rúmmetra af mold úr
Eyrarhrygg. Þetta er áþekkt magn
og ýta þurfti burt úr báðum
hryggjunum, ef gerðar hefðu verið
snjóflóðabrautir neðan giljanna
efst í fjallinu. Nú skal þessu ekið
burt á bílum með ærnum kostnað-
arauka. Það mætti nota þetta til
að fylla upp Lónið ofan nýju inn-
keyrslunnar úr bænum, og gera
þar hentugan fótboltavöll.
3. Hætt er við að gera snjó-
flóðafleyga ofan Sólbakka, þar sem
það myndi auka álag á varnargarð-
inn á Hryggnum neðan Skolla-
hvilftar, sem hönnuðimir hafa sjá-
anlega ekki of mikla trú á. NGI
hefír hafnað gerð leiðigarðs til
varnar ofan Sólbakka af sömu
ástæðu.
Það ætti ekki aðvera mitt hlut-
verk að skýra framkvæmdirnar á
Flateyri, en bæði NGI/VST og
stjórnsýslan þegja um þetta gagn-
vart almenningi og Flateyringum.
Það er engum til sóma að hafa
þennan hátt á. Klúðrinu er ekki
lokið enn. Flateyringar eiga rétt á
leiðréttingu sinna mála. Þeir hafa
aldrei verið spurðir um neitt.
HSfundur erfyrrv. forstj. OLÍS.
Önundur
Ásgeirsson
Gréta Boða, förðunar-
meistari verður hjá okkur
í dag, á morgun og
á laugardag, og veitir
ráðgjöf um val á nýju
haust- og vetrarlitunum.
A meðan á kynningu
stendur bjóðum við
á Fruit Jeunesse og
Firming Eye & Lip kremunum.
Hægt er að panta tíma í förðun,
Verið velkomin.
Y\/1 .^ÁlNI/AUkJ N!
Haiistlitiríiir oiru komnir
Glæsilegri en nokkru sinni fyrr
25% kynningarafslátt
FIMMTUDAGUR 2. ÓKTÓBÉÍR 1997'43>
Stórhöföa 17, viö GuiHnbrú,
sími 567 4844
/iévi//)A/\\\k\V - Gœðavara
GjaídVdid - nidldi og kdínslell Heim
Allirveióflokkdi. m.a.l
5\lvhg//)K\\oV. VF.RSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Heimsíræcjir hönnuóir
m.d.Gidiini Versace.
Viltu styrkja stöðu þína ?
wm
11
MODEri
raaaa
____ a ai______
flOO□QQOQOQ
..... /'flOaOOQQ QUU
/ /Vhugavert .
, og spennand' ,
* nam ♦
Markmið námsins er að útskrifa
nemendur með hagnýta þekkingu
á tölvunotkun og veita þeim
innsýn í notkunarmöguleika
í tölvu- og upplýsingaumhverfinu.
Námið er tvær námseiningar
(60 kennslustundir).
Skráning og upplýsingar
í síma 568 5010
Rafiðnaðarskólinn
Skeifunni 11B • Sími 568 5010
Blab allra landsmanna! , ,
- kjarm malsins!