Morgunblaðið - 03.10.1997, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 23
Leikfélag
Kópavogs
sýnir ein-
þáttunga
Tsjekhovs
LEIKFÉLAG Kópavogs frum-
sýnir þrjá einþáttunga eftir
Anton Tsjekhov á morgun,
laugardag, kl. 20. Þættirnir
heita Bónorðið, Skaðsemi tób-
aksins og Björninn. Yfirskrift
sýningarinnar er Með kveðju
frá Yalta.
Anton Tsjekhov fæddist í
Tagonrog í Rússlandi árið
1860 og lést í Badweiler í
Þýskalandi árið 1904. Öll
helstu verk hans hafa verið
sýnd hér á landi og er um
þessar mundir verið að sýna
verk hans, Þijár systur, í
Þjóðleikhúsinu. Einþátt-
ungarnir, sem Leikfélag
Kópavogs sýnir, eru meðal
bernskuverka höfundarins, og
kallaði hann þá „brandara í
einum þætti".
Leikfélag Kópavogs er að
hefja sitt 41. starfsár og er
þessi sýning 70. viðfangsefni
þess. Sex áhugaleikarar koma
fram í uppfærslunni, Bjarni
Guðmarsson, Frosti Friðriks-
son, Jóhanna Pálsdóttir, Skúli
Rúnar Hilmarsson, Ragnhild-
ur Þórhallsdóttir og Örn Alex-
andersson.
Fræðslu-
erindi um
dulúð
í OKTÓ-
BER mun
dr. Gunnar
Kristjáns-
son, prófast-
ur Kjal-
ames-
prófasts-
dæmis,
halda röð
fyrirlestra í
safnaðar-
heimilinu Kirkjuhvoli í
Garðabæ um dulúð í bók-
menntum og myndlist. Fyrir-
lestrarnir verða á laugardög-
um kl. 13-14. Fyrsti fyrirlest-
urinn verður á morgun, laug-
ardag, og fjallar um Jón prím-
us og heilaga Theresu. Annar
fyrirlesturinn verður 11. októ-
ber og fjallar um Heimsljós
og myndir Georgs Guðna:
Land í þoku. Þriðji fyrirlest-
urinn verður 18. október og
fjallar Gunnar um myndlist
Magnúsar Kjartanssonar:
Dimmblár Kirkjusandur og
lokaerindið verður 25. október
og nefnist Dulúð.
Egill sýnir
svartan
þúsundkall
NÝTT gallerí, Gallerý Geysir,
í Hinu húsinu við Ingólfstorg,
verður opnað á morgun, laug-
ardag, kl. 16. Sá sem ríður á
vaðið með fyrstu sýninguna í
galleríinu er Egill. Þetta er
hans fyrsta einkasýning, en
hann útskrifaðist úr Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
sl. vor. Sýning hans stendur
til 20. október og verður opin
virka daga frá kl. 10-22 og
um helgar frá kl. 13-18.
Gunnar
Kristjánsson
LISTIR
„Furðufuglar“
í Stöðlakoti
SIGRÍÐUR Anna E. Nikulásdóttir opnar sýn-
ingu á morgun, laugardag, kl. 15 í Stöðlakoti,
Bókhlöðustíg 6. A sýningunni eru grafíkmyndir
unnar með ætingu og blandaðri tækni og ber
sýningin yfirskriftina „Furðufuglar".
Sigríður Anna stundaði listnám við Myndlista-
skóla Reykjavíkur og Myndlista- og handíða-
skóla íslands. Hún hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga en þetta er hennar fyrsta einkasýning.
Anna er með vinnustofu í Þingholtsstræti 5
ásamt sex öðrum listakonum. Hópurinn nefnir
sig Áfram veginn.
Sýningin í Stöðlakoti stendur til 19. október
og er opin daglega frá kl. 14-18.
EINN furðufugla Önnu í Stöðlakoti.
Nýjar bækur
• IS OG Skanda, um orðið „IS“ í
ísland er eftir séra Kolbein Þorleifs-
son. Bókin er samantekt á blaða-
greinum sem birst
hafa eftir höfund-
inn. Greinamar eru
endurbættar og við
bætast greinar um
Skanda. í formála
lætur höfundur
þess getið að les-
endur muni fljót-
Kolbeinn lega sjá að þetta
Þorleifsson er ögrandi bók:
„Hún á að vera það, til þess að mönn-
um verði ljóst, hvílík ógrynni þekk-
ingar nútími okkar hefur að geyma
varðandi merkingu orðsins ísland.“
Höfundur er útgefandi. Háskóla-
fjölritun Ijósritaði. Bókin er 41. bls.
DAGSKRA
Tæknival Skeifunni
kl. 10.30-11.30:
Internetiö,
sýnikennsla.
uinn!
■ ■
Skemmtilegar
kynningar fyrir
byrjendur sem
lengra komna
á hverjum
laugardegi
Reykjavíkurvegi 64
220 Hafnarfirði
Simi 550 4020
Netfang:
fjordur@taeknival.is
Tæknival
Skeifunni 17
108 Reykjavík
Sfmi 550 4000
Netfang:
mottaka@taeknival.is
Verið ekkifeimin við nð kíkjn innf
Tæknival Hafnarfiröi
kl. 12.30-13.30:
Internetiö,
sýnikennsla.
I|1 Tæknival í Skeifunni og Hafnarfirði býður þér til
■ f® skemmtilegrar og fróðlegrarsýnikennslu á hvers
kyns hugbúnaði og öðru tölvutengdu efni á
laugardögum í vetur. Hver laugardagur hefur
sitt viðfangsefni og þá koma sérfræðingar hver
sviði.
Við eigum von á mörgum fróðlegum kynningum
sú fyrsta, sem verður á rnorgun, fjallar um Internetið og
hvernig fólk getur nýtt sér það í leik og starfi.