Morgunblaðið - 03.10.1997, Page 58
58 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/SAMBÍÓIN og Háskólabíó hafa tekið til sýninga
hamfara- og spennumyndina Volcano með leikurunum Tommy Lee Jones
3-. og Anne Heche í aðalhlutverkum
FRUMSÝNING
ÞÓTT íbúar í Kaliforníu séu
vanir jarðskjálftum og alls
kyns náttúruhamfórum, eins
Og aurskriðum, skógareldum, felli-
byljum og flóðum, hafa þeir hingað
til talið sig óhulta fyrir eldgosum.
En ekki lengur. í borginni þar sem
menn halda áfram að sofa meðan
jarðskjálftar upp á 5 á Richter ríða
yfir fer allt á annan endann þegar
gat myndast í jarðskorpunni undir
borginni og leysir úr læðingu nátt-
úruöflin í öllu sínu veldi. Glóandi
hraun kemur upp úr jörðu á miðju
Los Angeles svæðinu, streymir um
umferðargötur, neðanjarðargöng
og holræsi og sópar með sér háhýs-
um eins og laufblöðum.
Það kemur í hlut framkvæmda-
stjóra almannavama í borginni,
Jdike Roark (Tommy Lee Jones) að
takast á við vandann. Roark er eng-
inn blýantanagari og honum dettur
ekki í hug að biðja hjálparliðið um
að gera eitthvað sem hann er ekki
til í að reyna sjálfur. Þótt honum sé
brugðið lætur hann ekki slá sig út
af laginu og leggur af stað til þess
að horfast í augu við hraungíginn
með innsæi sitt og meðfæddan
töffaraskap að vopni.
Auk þess tekur hann með sér
Amy Barnes (Anne Heche) jarð-
_ fræðilegan talsmann Cal Tech há-
' íkólans, sem hefur þá vísindaþekk-
ELDTUNGUR gleypa stórborgina.
ingu á eldgosum sem Roark vantar.
Þau keyra um borgina á Hummer-
jeppanum sem Amy á en hún hefur
lengi verið baráttukona fyrir var-
kárni í umgengni við náttúruna.
Hún barðist m.a. gegn áformum
um að bora jarðgöng fyrir neðan-
jarðarlest í gegnum borgina. Við
upphaf eldgossins kemur á daginn
að hún hafði á réttu að standa.
Af því að Rork er almannavarna-
maðurinn beinast spjót almennings
að honum. Vissi hann af þessari
BENZfN
érw
Olis byður viðskiptavinum
sínum á stórdansleik í kvöld
kl. 22-03. Allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Gríptu boðsmiða á næstu
þjónustustöð Olís.
FOSTUDAGINN 3. 0KT0BER
Á HÓTEL ÍSLANDI
GEIRMUNDUR
VALTÝSSON
og hljómsveit
Aldurstakmark 20 ar
hættu? „Heldurðu að ég hefði boðið
dóttur minni í heimsókn til mín um
þessa helgi ef ég hefði átt von á
þessu,“ svarar Mike Roark reiði-
lega þegar blaðamaður spyr hann
þessarar fáránlegu spurningar.
Þegar Volcano var frumsýnd
vestanhafs beindist athygli fjöl-
miðla mjög að aðalleikkonu mynd-
arinnar, Anne Heche, en ástarsam-
band hennar og sjónvarpsstjörn-
unnar Ellen DeGeneres úr þáttun-
um um Ellen, þótti krassandi efni
fyrir slúðurblöð vestanhafs fyrr á
árinu.
Þetta er stærsta kvikmyndahlut-
verk Anne Heche til þessa en hún
hefur m.a. leikið í Donnie Brasaco
með Johnny Depp og A1 Pacino,
The Juror, If These Walls Could
Talk, Milk Money og síðast gaman-
mynd sem heitir Walking and
Talking. Auk þess hefur hún komið
fram í ýmsum sjónvarpsmyndum
og -þáttum.
Leikstjóri myndarinnar er Mick
Jackson, 64 ára gamall Breti, sem
TOMMY Lee Jones í hlutverki
Mike Roark.
fékkst við að leikstýra sjónvarps-
og heimildarmyndum í Bretlandi
allt frá árunum í kringum 1970 og
þar til hann fluttist til Bandaríkj-
anna fyrir um 10 árum. Meðal
fyrstu mynda hans var verðlauna-
heimildarþátturinn The Ascent of
Man, sem fjallaði um vegferð
mannsins, og var sýndur um víða
veröld um miðjan áttunda áratug-
inn.
Fyrsta leikna myndin sem hann
gerði var hins vegar Chattahoochee
árið 1990. Arið eftir gerði hann
L.A. Story með Steve Martin. Síð-
an hefur Jackson m.a. gert hina
geysivinsælu The Bodyguard með
Kevin Costner og Whitney Hou-
ston og Clean Slate með Dana Car-
vey. Einnig hefur hann notið vel-
gengni sem leikstjóri leikinna sjón-
varpsmynda, bæði í Bretlandi og
Bandaríkjunum.
Tommy Lee Jones er óþarfi að
kynna, jafnvinsæll og hann hefur
verið í kvikmyndaheiminum síðan
1993 þegar hann hlaut óskarinn
ANNE Heche leikur jarðfræð-
inginn Amy Barnes.
fyrir aukahlutverk í Flóttamannin-
um með Harrison Ford. Tommy
Lee hefur verið að leika í kvik-
myndum frá því 1970 og gerði m.a.
góða hluti í Coal Miner’s Daughter
árið 1980 og hinni frægu The Exe-
eutioner’s Song árið 1982.
Þótt hann væri þekktur sem
fyrsta flokks leikari sló hann fyrst í
gegn sem kvikmyndastjarna þegar
hann stal senunni af Steven Seagal
í myndinni Under Siege. I kjölfarið
fylgdi aðalhlutverk í mynd Oliver
Stones, Heaven and Earth, Flótta-
maðurinn og óskarsverðláunin og
svo The Client, Natural Born Kill-
ers og Batman.
Tommy Lee er fæddur í Texas
en er með próf frá hinum fræga
Harvard-háskóla. Þegar hann er
ekki að leika í bíómyndum unir
hann sér heima í Texas þar sem
hann á búgarð og hefur kúreka í
vinnu. Þar ríður hann út með hatt-
inn sinn og keyrir pallbíl, klæddur í
gallabuxur, kúrekastígvél og
köflótta skyrtu.
PíÍl^yÍHH í ^kÍHH
Stein / Bock / Harnick
aseiss:
Sýningar BYRJAÐAR AFTUR!
Sýningar í október:
3. - 4. - 10. - 18. - 25. - 26. - 31.
Kortagestir Þjóðleikhússins:
Munið afsláttinn á fyrstu fjóru sýningunum
WÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími: 551 1200
Hiti í Hollywood