Morgunblaðið - 13.11.1997, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forhagkvæmniathugun á byggingu olíuhreinsunarstöðvar hér á landi
Fyrstu mðurstöður vænt-
anlegar um áramótin
FULLTRÚAR á vegum fyrirtækis í eigu rúss-
neskra og bandarískra aðila, sem vinnur nú að
forhagkvæmniathugun á því að reisa olíu-
hreinsunarstöð hér á landi, voru staddir hér-
lendis í þessari viku á vegum Fjárfestingar-
skrifstofu íslands og ræddu þeir við fulltrúa
stjórnvalda og sveitarstjórnarmenn um verk-
efnið. Hugmyndir eru uppi um að reisa hér 1-4
milljóna tonna olíuhreinsistöð og ef af því verð-
ur myndu 200-400 manns starfa við hana.
Fyrirtækið sem um ræðir heitir MD-SEIS
og er ráðgjafarfyrirtæki í olíuiðnaði og starfar
það bæði í Rússlandi og í Bandaríkjunum. Að
sögn Inga Ingasonar, skrifstofustjóra Fjárfest-
ingarskrifstofu íslands, ræddu fulltrúar þess
við iðnaðarráðherra og þá sem að umhverfis-
málum koma, auk þess sem þeir ræddu við
sveitarstjómarmenn á Austíjörðum, en í áætl-
unum er gert ráð fyrir að olíuhreinsunarstöðin
verði reist á Reyðarfirði.
Ingi sagði í samtali við Morgunblaðið að þeir
sem að forhagkvæmniathuguninni standi geri
sér fulla grein fyrir því að gæta þarf fyllstu var-
úðar varðandi umhverfismál og að uppfylla
þurfi kröfur íslenskra stjómvalda í þeim efnum,
auk þess sem uppfylla þuríí mjög ströng skil-
yrði lánastofnana til að tryggja rekstur hreins-
unarstöðvar af þessu tagi.
„Þetta fyrirtæki starfar bæði í Rússlandi þar
sem það er í eigu Rússa og í Bandaríkjunum
þar sem það er í eigu Rússa og Bandaríkja-
manna. Auk þess em þeir að vinna að þessari
athugun með ráðgjöf frá Price-Waterhouse
ráðgjafarfyrirtækinu í Bandaríkjunum. Þeir
áætla að ljúka forathugun í kringum næstu ára-
mót og þá ætti að liggja fyrir hvort hagkvæmn-
in sé á því stigi að menn séu sáttir við það,“
sagði Ingi.
Fyrir mánuði kom rússnesk tækninefnd
hingað til lands og kannaði aðstæður vítt og
breitt um landið og skoðaði meðal annars að-
stæður á Reyðarfirði.
„Þeir sem að þessu standa em fyrst og
fremst að skoða Reyðarfjörð og miða þeir sínar
athuganir út frá því en það verður að hafa í
huga að mál þetta er allt á algjöra forathugun-
arstigi,“ sagði Ingi.
Aðildin að Barentsráðinu
vakti hugmyndina
Eins og fram kom í Morgunblaðinu í júlí síð-
astliðnum er það aðild íslands að Barentsráð-
inu sem hefur orðið til þess að hugmyndin að
því að reisa olíuhreinsunarstöð hér á landi varð
til. Kveikjan að hugmyndinni er vitneskja um
að í undirbúningi er olíuvinnsla á nýjum olíu-
svæðum nyrst í Rússlandi þar sem m.a. banda-
rísk olíufélög hafa efnt til samstarfs við Rússa
um vinnsluna.
Hugmyndin um olíuhreinsunarstöð hér á
landi gerir ráð fyrir að um samstarf íslendinga,
Rússa og Bandaríkjamanna verði að ræða og
afurðirnar fari aðallega á markað í Bandaríkj-
unum, en líklegt þykir að verð á olíuvömm hér
á landi myndi lækka mikið með tilkomu stöðv-
arinnar.
Samráð R-lista
Borgar-
stjórinn í
8. sæti
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri mun skipa áttunda
sæti Reykjavíkurlistans í komandi
borgarstjórnarkosningum en
prófkjör verður haldið um efstu
sjö sæti listans í lok janúar nk.
Á fundi samráðs Reykjavíkur-
listans í gær kynnti framkvæmda-
nefnd samráðsins tillögu sína um
fyrirkomulag prófkjörsins, sem
var samþykkt einróma, en hún
verður kynnt á næstunni innan
flokkanna sem standa að listanum.
Samþykkt var að hver flokk-
anna fjögurra skilaði fyrir 14. des-
ember nk. inn tillögu um sjö ein-
staklinga. Af þessu 28 manna úr-
vali er svo ætlunin að þátttakend-
ur í prófkjörinu forgangsraði
fimm einstaklingum. Vegið fylgi
flokkanna í prófkjörinu mun svo
ráða úthlutun sæta. „Meginreglan
er sú að það fær enginn þessara
fjögurra flokka annan fulltrúa inn
fyrr en allir hafa fengið einn,“
segir Kristín A. Árnadóttir, í
framkvæmdastjóm samráðsins.
Tómas Ingi Olrich á Alþingi um
markaðshlutdeild fyrirtækja
Samþjöppun í sjáv-
arútvegi mun minni
en annars staðar
TÓMAS Ingi Olrich, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, sagði í fyrirspurn-
artíma á Alþingi í gær að ljóst væri
að samþjöppun í eignaraðild fyrir-
tækja á mörgum sviðum atvinnulífs-
ins væri margfóld sú samþjöppun
sem ætti sér stað innan sjávarút-
vegsins.
Hann sagði jafnframt að ef hætta
væri á yfirþyrmandi áhrifum á þjóð-
félagið vegna samþjöppunar á afla-
kvóta virtist nú vera sýnu meiri
hætta á yfirþyrmandi áhrifum á
samfélagið vegna þeirrar samþjöpp-
unar sem hefði til dæmis orðið í
blaðaútgáfu í landinu.
Þetta sagði Tómas Ingi eftir að
hafa lagt fram og hlýtt á svör iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra við átta fyr-
irspumum um markaðshlutdeild
stærstu fyrirtækja landsins á ýms-
um sviðum atvinnulífsins. Innti
Tómas Ingi ráðherra ennfremur eft-
ir því hvort hann teldi ástæðu til,
með tilliti til markaðshlutdeildar
þessara fyrirtækja, að setja lög sem
takmörkuðu umsvif þeirra umfram
það sem samkeppnislög segðu til um.
Svaraði ráðherra því jafnan til að
ekki væri ástæða til lagasetningar.
Tómas tók fram að með fyrir-
spurnum sínum væri ekki verið að
mælast til þess að farið verði að
þrengja að stærri fyrirtækjum á Is-
landi vegna fyrirferðar þeirra á
markaði. „Samfélag okkar er svo
smátt í sniðum að fyrirtæki sem ná
því að verða samkeppnishæf á al-
þjóðlegum markaði hvort sem það er
í matvælaframleiðslu, verktaka-
vinnu, flugrekstri eða á öðrum svið-
um atvinnulífsins verða auðveldlega
mjög stór hlutfallslega í íslensku at-
vinnulífi, þótt þau séu smá á alþjóð-
legan mælikvarða," sagði hann.
„Við verðum því að gæta hófs í um-
fjöllun um markaðsráðandi fyrirtæki
og áhrif þeirra á stjómvöld. Þjóðin á
mikið undir því að eignast fyrirtæki
sem í aukinni alþjóðlegri samkeppni
þurfa að nýta sér hagkvæmni stærð-
arinnar til að geta lifað af og til að
geta bætt afkomu þjóðarinnar í
heild,“ sagði Tómas Ingi.
Kom fram
SÖLVI Levi Pétursson, 24 ára
Reykvíkingur sem leitað hefur ver-
ið að frá því á sunnudag, kom fram
í gærkvöld á heimili föður síns.
Björgunarsveitarmenn höfðu
í gærkvöld
leitað Sölva í þrjá daga og komu í
gær fram vísbendingar sem bentu
til mannaferða í sumarbústöðum á
Kjalamesi og var leitað þar í
gær.
Séra Ulfar
prófastur
Arnesinga
ÞORSTEINN Pálsson kirkjumála-
ráðherra hefur skipað séra Úlfar
Guðmundsson, sóknarprest á Eyrar-
bakka, prófast í
Ái-nesprófasts-
dæmi til næstu
fimrn ára. Séra
Úlfar tekur við af
séra Guðmundi
Óla Ólafssyni í
Skálholti. Séra
Úlfar er fæddur í
Reykjavík árið
1940. Hann var um tíma prestur í
Ólafsfirði en hefur þjónað Eyrar-
bakkaprestakalli frá árinu 1980.
BLAÐINU í dag fylgir fjögurra
síðna auglýsingablað frá Nóatúni.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
SKYDDEREN gnæfir yfir önnur skip í flotkvínni í Hafnarfírði.
Danskt varðskip á
þurru í Hafnarfirði
DANSKA varðskipið Skydd-
eren er nú til viðgerðar í flot-
kví Vélsmiðju Orms og Víg-
lundar í Hafnarfirði. „Ég held
að þetta sé í fyrsta skipti sem
danskt varðskip kemur á
þurrt land á Islandi," segir
Guðmundur Víglundsson,
framkvæmdastjóri. „Við höf-
um fengið þrjú erlend skip til
viðgerðar í röð. Það er sér-
staklega ánægjulegt að fá er-
lend varðskip til viðgerðar á
sama tíma og íslensku varð-
skipunum er siglt til Pól-
lands.“
Guðmundur segir að
skemmdir hafi orðið á stýris-
búnaði Skydderen í óhappi við
Grænland. Skipið beið í rúma
viku í Reykjavíkurhöfn meðan
þess var beðið að flotkvfin
losnaði og varahlutir kæmu til
landsins. Fyrir var danskt
kaupskip, Mermaid Eagle, þar
til viðgerða og þar áður togari
sem Mecklenburger Hochsee-
fischerei hefur selt íslenskum
fiskafurðum.
Auk þess að lagfæra
skemmdirnar á varðskipinu er
tækifærið notað tii að sinna
viðhaldi skipsins að öðru leyti.
Skipið verður líklega uppi
fram yfir helgi.
Guðmundur þakkar þessi
viðskipti velheppnaðri mark-
aðssetningu fyrirtækisins en
flotkvfin hefur verið mjög vel
nýtt frá því hún var tekin í
notkun í upphafi síðasta árs.
„Það er góð búbót að fá er-
lend skip til okkar í viðbót við
þessi íslensku og það sannar
að þessi starfsemi er komin til
að vera. Þetta er heilmikill
sigur,“ segir Guðmundur.
20-25 iðnaðarmenn vinna við
viðgerðina á skipinu, sem er
82 metra langt og 12,5 metra
breitt. Að sögn Guðmundar
fara dönsku varðskipin aldrei
í veiyulegan slipp heldur
ávallt í þurrkvíar.
Bætist við íbúatölu
Hafnarfj arðar
Sextíu danskir sjóliðar búa
um borð í Skydderen í flot-
kvinni í Hafnarfírði. „Það hef-
ur bæst svolítið við íbúatölu
HafnarQarðar," segir Guð-
mundur sem segir að landhelg-
isgæsla hafi sjaldan verið öfl-
ugri í Hafnarfjarðarhöfn en
núna. Hann vill ekki gefa upp
um hve mikil viðskipti er að
ræða en segir að veru sjólið-
anna og skipsins fylgi margvís-
leg önnur viðskipti fyrir fyrir-
tæki í Hafnarfírði og láti sjólið-
arnir vel af sér.