Morgunblaðið - 13.11.1997, Page 4

Morgunblaðið - 13.11.1997, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STÆRSTU gatnamót landsins fyrir neðan Ártúnsbrekkuna hafa nú tekið á sig lokamynd. Morgunblaðið/Árni Sæberg Forstjóri VISA fslands telur fólki mismunað með Sérkorti Stöðvar 2 VISA ætlar að bjóða „margfalt betri kost“ HÖRÐ samkeppni er nú í uppsigl- ingu milli kreditkortafyrirtækj- anna í kjölfar samnings Kredit- korta hf. og íslenska útvarpsfé- lagsins hf. um útgáfu á nýju kredit- korti, svokölluðu Sérkorti Stöðvar 2, sem þeir korthafar sem eru áskrifendur Stöðvar 2, fá sér að kostnaðarlausu. Með notkun þess geta korthafar fengið afslátt á áskriftargjaldi Stöðvar 2. Um 25 fyrirtæki eru að- ilar að samstarfínu og veita hand- höfum afslátt. VISA ísland ætlar að svara fyrir sig með því að bjóða korthöfum VISA nýjan kost innan tíðar, sem mun fela í sér ýmis fríð- indi, skv. upplýsingum Einars S. Einarssonar, forstjóra VISA ís- land. „Fríðindi sem munu lækka kortareikninginn" „Við munum bjóða upp á marg- falt betri kost innan tíðar og höfum verið með í undirbúningi að haga viðskiptunum með öðrum hætti. Sá kostur mun bjóðast öllum 110 þús- und korthöfum VISA, en þeir eru þrír af hverjum fjórum handhöfum kreditkorta á íslandi. Greint verður nánar frá þessum nýjungum eftir næstu mánaðamót. Þær munu fela í sér að ýmis fríðindi sem munu lækka kortareikninginn hjá hverj- um og einum,“ segir Einar. Einar segist fagna allri sam- keppni en hefur þó miklar efasemd- ir að með þessu nýja tilboði Stöðvar 2 og Kreditkorta sé um eðlilega samkeppni að ræða og telur að um ákveðna mismunun sé að ræða milli handhafa VISA og Euroeard- kreditkorta. „Allir hlutir kosta sitt og við teljum það ekki eðlilegt að veita fólki kreditkort sér að kostn- aðarlausu til æviloka, þó það sé með því skilyrði gert að þeir séu áskrif- endur að áskriftarsjónvarpi. Okkur finnst heldur ekki eðlilegt að áskriftarsjónvarp mismuni sínum áskrifendum frekar en aðrir fjöl- miðlar. Þar eiga allri að sitja við sama borð,“ segir Einar. Einar telur einnig varhugavert af áskriftarsjónvarpi að mismuna korthöfum sínum með svo áberandi hætti. „Ef þeir hefðu viljað veita öll- um þennan afslátt, hefðu verið hægt með einfóldu móti að láta alla kort- hafa njóta hans, án þess að gefa út sérstakt kort og án þess að þeir væru að hafa áhrif á viðskiptasam- bönd korthafa sinna,“ segir Einar. Að sögn Einars hefur VISA ís- land ekki hug á að afhenda kredit- kort korthöfum að kostnaðarlausu. „Við teljum að við séum með gæða- vöru sem fólk vill borga fyrir og þau fríðindi og hlunnindi sem þvi fylgir. Við teljum ekki forsvaranlegt að láta aðra borga það, því allt hefur sinn kostnað," segir hann. Einar sagði það einnig umhugs- unarvert fýrir þau fyrirtæki, sem hefðu þarna bundist samtökum, að þrir af hverjum fjórum viðskipta- vinum sem greiða með kreditkorti væru handhafar VISA-kreditkorta, „Þar eru margir grónir og traustir viðskiptamenn, sem hafa nú verið settir í annan flokk. í því felst líka ákveðin mismunun," segir Einar. Fyrsta kreditkortið sem hand- hafí greiðir ekki fyrir Bergsveinn Samsted, markaðs- stjóri Kreditkorta, segir að Sér- kort Stöðvar 2, hafí þegar fengið mjög góðar viðtökur. Um er að ræða fullgilt Eurocard kreditkort sem handhafar geta notað hvar sem er, skv. þeim skilmálum sem þeim kortum fylgja. Mun þetta vera í fyrsta skipti hér á landi sem handhafar kreditkorta fá kort sér að kostnaðarlausu. Aðspurður hvort ekki sé verið að mismuna handhöfum Eurocard-korta eftir því hvort þeir eru áskrifendur að Stöð 2 eða ekki sagðist Bergsveinn ekki telja svo vera. Um væri að ræða svokallað tryggðarkort sem Stöð 2 hefði ákveðið að bjóða sínum áskrifendum. Bergsveinn sagði að fjöldi handhafa almennra Euro- card-kreditkorta hefði þegar ákveðið að skipta og fá hið nýja sérkort og eins hefðu margir hand- hafar Atlas- og Gullkorta ákveðið að bæta Sérkortinu við. Kortagjald sem handhafar almennra Euro- card-kreditkorta þurfa að greiða er 1.800 kr. á ári og greiða þarf 900 kr. fyrir aukakort. Fram- kvæmdum lokið í Ar- túnsbrekku FRAMKVÆMDUM er nú lokið að kalla við breikkun Vesturlands- vegar frá Elliðaám að Skeiðar- vogi. Vegna tíðarfars verður hluta landmótunar þó frestað til vors. Heildarkostnaður við fram- kvæmdir sumarsins er 330 millj- ónir króna og er hann greiddur úr ríkissjóði því um er að ræða þjóðveg í þéttbýli. Framkvæmdirnar eru þriðji og síðasti áfangi þeirra vegafram- kvæmda í Reykjavík sem voru á vegaáætlun fyrir 1995 til 1998, að sögn Magnúsar Einarssonar hjá Vegagerðinni, sem hafði umsjón með framkvæmdunum. í fyrsta áfanga, árið 1995, voru gerð mislæg gatnamót á mótum Höfðabakka og Vesturlandsvegar. I öðrum áfanga, 1996, var Artúns- brekka breikkuð. Heildarkostnað- ur við þessa þijá áfanga er um 1.400 milljónir króna. Þessa dagana er verið að ljúka við ýmis frágangsatriði við þriðja áfanga, t.d. er verið að gera girð- ingu við leikskólann Steinahlíð og unnið að hleðslu og frágangi und- ir brúnni. Vegna bleytu hefúr hins vegar ekki tekist að ljúka landmótun við norðausturhluta vinnusvæðisins og segir Magnús að Jm' verði frestað til vors. Áætlanir hafa staðist við fram- kvæmdina og var umferð hleypt á veginn fyrir 1. október. Svein- björn Sigurðsson og Völur hf. önnuðust framkvæmdir, mann- virkin eru hönnuð af Línuhönnun og VSÓ-ráðgjöf annaðist eftirlit. Miklabraut/Skeiðarvogur næsta framkvæmd Næstu stórframkvæmdir í þjóð- vegagerð á höfuðborgarsvæðinu verða á gatnamótum Miklubraut- ar og Skeiðarvogar, að sögn Magnúsar Einarssonar. Þar er verið að bjóða út hönnun mis- lægra gatnamóta, sem gert er ráð fyrir að verði tígullaga, líkt og gatnamót Höfðabakka og Vestur- landsvegar. Ráðgert er að fram- kvæmdir heíjist næsta ár og ljúki 1999. Kostnaður er lauslega áætl- aður um 400 m.kr. ---------------- Hestlaust í Arneshreppi Árneshrepp. Morgvnblaðið. NÚ er orðið hestlaust í Árnes- hreppi því Hjalti Guðmundsson í Bæ í Trékyllisvík seldi síðasta hest- inn sinn á dögunum. Alltaf hafa verið hestar á hverj- um bæ og síðustu árin voru hestar á þremur bæjum. Þykir fréttnæmt að hestlaust sé orðið í þessari landbúnaðarsveit. Bókanir: 570 8090 gerir fleirum fært aö fljúga Vestmannaeyjar, Síglufjörður, Vesturbyggð, ísafjörður, Sauðárkrókur & Egilsstaðir. ÍSLANDSFLUG Mjólkurreglugerð hefur áhrif á kvótaverð Kúabændum fækkar enn GUÐMUNDUR Lárusson, for- maður Landssambands kúabænda, segir að ein af ástæðum þess að verð á mjólkurkvóta hefur lækkað unanfarið sé sú að hópur kúa- bænda treysti sér ekki til að halda áfram kúabúskap vegna hertra reglna um frumutalningu í mjólk. Um 40-50 kúabændur hafa hætt mjólkurframleiðslu á ári síðustu ár. Um síðustu áramót voru mjólkur- framleiðendur á landinu 1.291, en árið 1980 voru þeir 2.262. Meðal- innlegg hvers framleiðenda hefur á þessu tímabili aukist úr 47.300 lítr- um á ári í 78.700 lítra. Guðmundur sagði að nýja mjólk- urreglugerðin leiddi til þess að hópur bænda hætti framleiðslu fyrr en hann hefði annars gert. Hann sagði þó varhugavert að tala um að menn væru að hverfa frá mjólkurframleiðslu í miklu ríkari mæli en verði hefði á síðustu árum. Að undanförnu hefur verð á mjólkurkvóta lækkað. Kvótinn kostaði í vor 145-166 kr. á lítra, en að undanförnu hefur hann verið seldur á 130-140 kr. á lítra. Guð- mundur sagðist eiga von á að verð á mjólkurkvóta héldi áfram að lækka. Flestir hefðu gert sér grein fyrir að verðið væri óraunhæft- Það þyrfti þó að hafa í huga að verð á kvóta væri að jafnaði lægst á haustin. Auk þess hefði mörgum bændum ekki tekist að framleiða upp í kvótann og þess vegna hefði verið borgað íýrir umframmjólk á síðasta verðlagsári. Þetta hefði ein- hver áhrif á verð fyrir mjólkur- kvóta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.