Morgunblaðið - 13.11.1997, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þingsályktunartillaga Péturs H. Blöndal
Afnotarétti
skipt á milli
íbúa landsins
Morgunblaðið/Þorkell
PÉTUR H. Blöndal og Kristín Halldórsdóttir lesa yfir þinggögn
og i bakgrunni má sjá Friðrik Sophusson þungt hugsi.
PÉTUR H. Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, hefur lagt fram á
Alþingi þingsályktunartillögu um að
skipta árlegum afnotarétti nytja-
stofna á íslandsmiðum miili íbúa
landsins. Megi-
nefni tillögunnar
er að Alþingi
álykti að fela rík-
isstjórninni að
kanna kosti og
galla þess að ár-
legum afnotarétti
nytjastofna á ís-
landsmiðum verði
skipt jafnt milli
allra íbúa lands-
ins. Enn fremur
verði kannaðir
kostir og gallar annarra mögulegra
ieiða sem tryggi varanlegt eignar-
hald þjóðarinnar á nytjastofnum á
Islandsmiðum. Forsætisráðherra
hafi forgöngu um að gera þessa
könnun og að henni verði lokið í
mars 1998.
í greinargerð tillögunnar segir að
iagt sé til að allir íbúar landsins,
þ.e. þeir sem eigi lögheimili hér á
landi, íslendingar jafnt sem erlent
fólk, fái jafna hlutdeild í árlegum
afrakstri auðlindarinnar. „Þó má
hugsa sér að það fólk, sem flytur
lögheimili sitt til landsins, fái ekki
hlut í árlegum veiðirétti fyrr en það
hefur búið hér á landi í þijú eða fimm
ár til að koma í veg fyrir hvata til
að flytja til landsins. Börn öðlist hlut
í árlegum veiðirétti við fæðingu enda
eigi foreldrar þeirra hlut. Auðlind-
inni sjálfri, hinum varanlega veiði-
rétti, verði ekki skipt eða hún fram-
seld,“ segir í greinargerð tillögunnar.
„Slíkt kerfi
gæti litið þannig
út,“ segir í grein-
argerð, „að í
byijun hvers árs,
t.d. í sambandi
við skattframtöl,
fengi hver sá sem
búsettur var á
landinu t.d. 1.
desember árið á
undan senda
ávísun á sinn hlut
í kvóta fiskveiði-
ársins sem hefst 1. september þrem-
ur árum síðar.“
Eitt hundrað þúsund á
fjögurra manna fjölskyldu
I greinargerð er vitnað til orða Ragn-
ars 'Árnasonar hagfræðings á aðal-
fundi LÍÚ fyrir ári um að fiskveiði-
arðurinn væri mjög líklega á bilinu
15-30 milljarðar á ári, sem væru
55-110 þúsund krónur á hvem íbúa.
„Sé gert ráð fyrir að eignin flytjist
yfir á 20 árum, 5% á ári, héldu nú-
verandi handhafar kvóta 95% fyrsta
árið, 90% næsta ár, 85% o.s.frv. Það
þýðir, ef kerfið tæki gildi 1. janúar
1999, að í byijun þess árs fengju
allir þeir sem verða á þjóðskrá 1.
desember 1998 senda ávísun á 5%
af veiðiheimildum kvótaársins sem
hefst 1. september 1999, 10% af
veiðiheimildum kvótaársins sem
hefst 1. september 2000 og 15% af
veiðiheimildum kvótaársins sem
hefst 1. september 2001. Alls yrðu
þá söluhæf 30% af árlegum kvóta
en hann dreifðist á þijú ár. Margt
fólk mun ekki selja kvótann sinn
fyrr en seinna en þó má búast við
að um helmingur muni selja strax.
Hver einstaklingur fengi um 25 þús-
und krónur eða um 100 þúsund krón-
ur hver fjögurra manna fjölskylda
miðað við 60 krónur á kíló,“ segir í
greinargerð.
Málefni líf-
n
eyrissjóða;
undir eitt
ráðuneyti d“
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, þingt
maður Alþýðubandalags og óháðra,
hefur lagt fram á Alþingi þings-j
ályktunartillögu þess efnis að Al-
þingi álykti að fela ríkisstjórninni
að kanna hvort rétt sé að færa.
saman undir eitt ráðuneyti málefni
lífeyrissjóða og lífeyrissparnaðar,;
almannatrygginga, félagslegrar
framfærslu og vinnumarkaðsmála,
a.m.k. það sem lýtur að atvinnu-
leysisbótum og málefnum atvinnu-
lausra.
„Sérstaklega verði hugað að
kostum þess og göllum að gera slíka
breytingu á verkaskiptingu innan
Stjórnarráðsins með hliðsjón af
þörfum fyrir samræmingu á þessú
sviði,“ segir í tillögunni.
í greinargerð tillögunnar segir
ennfremur að ljóst sé að veruleg
skörun sé á verksviði ráðuneyta í
málum er snerta lífeyristryggingar,
almannatryggingar, stuðning við
atvinnulausa, framfærslustuðning
sveitarfélaga og fleira. Segir flutn-
ingsmaður í greinargerð að til
greina komi að stofna nýtt ráðu-
neyti sem tæki við verkefnum á
þessu sviði frá fjármálaráðuneyti,
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neyti og félagsmálaráðuneyti eða
að þessi mál verði öll saman færð
til eins af ráðuneytunum, til dæmis
félagsmálaráðuneytisins.
„Sameining þessa mikilvæga en
um leið vandasama málaflokks i
eitt ráðuneyti ætti að auðvelda sam-
ræmingu löggjafar og stjórnsýslu á
þessu sviði en á því er mikil þörf,
ekki síst með tilliti til sívaxandi
umfangs málaflokksins," segir í
greinargerð.
m ' X'1! B
ALÞINGI
Úttektá
hávaða-
og hljóð-
mengun
HJÖRLEIFUR Guttormsson, þing-
maður Alþýðubandalags og óháðra,
mælti á þriðjudag fyrir tillögu til
þingsályktunar um úttekt á hávaða-
og hljóðmengun. Er með tillögunni
lagt til að Alþingi álykti að skora
á ríkisstjómina að láta fara fram
víðtæka úttekt á hávaða- og hljóð-
mengun hérlendis og leggja fyrir
næsta þing niðurstöður hennar og
tillögur til úrbóta.
Segir Hjörleifur brýnt að af opin-
berri hálfu sé unnið skipulega gegn
óþörfum og truflandi hávaða til
vemdar heilsu manna og til að
tryggja rétt einstaklingsins til
ómengaðs umhverfis. Hljóðmengun
yfír ákveðnum mörkum geti verið
heilsuspillandi, valdið skemmdum á
heym auk tmflunar og margvís-
legra sálrænna áhrifa sem valdið
geti andlegri vanlíðan.
Þá segir Hjörleifur að samkvæmt
upplýsingum frá Hollustuvernd rík-
isins hafi aldrei verið gerð heildar-
úttekt á hávaða á íslandi, en talið
sé víst að hérlendis búi margir við
hávaða sem sé langt yfír settum
viðmiðunarmörkum, til dæmis háv-
aða frá umferð. Telja verði því brýnt
að gerð verði úttekt á hávaða þann-
ig að unnt sé að leggja grunn að
úrbótum. Þar við bætist þörfín á
að settar verði reglur til að vernda
fólk fyrir hávaða á almannafæri,
en í því skyni geti einnig verið þörf
á könnun á ríkjandi aðstæðum.
Tillaga til þingsályktunar
Mótmælt lokun
Goethe-stofnunar
HJÖRLEIFUR Guttormsson, þing-
maður Alþýðubandalags og
óháðra, hefur lagt fram á Alþingi
tillögu til þingsályktunar um Goet-
he-stofnunina í Reykjavík.
Meginefni tillögunnar er að Al-
þingi telji mikilvægt fyrir áfram-
haldandi góð samskipti íslands og
Þýskalands að útibú Goethe-stofn-
unarinnar í Reykjavík verði starf-
rækt áfram og álykti að fela ríkis-
stjórninni að leita eftir því við þýsk
stjómvöld að svo geti orðið. „Jafn-
framt hvetur Alþingi ríkisstjórnina
til að stuðla að því að af Islands
hálfu verði aukin kynning á ís-
lenskri menningu í Þýskalandi,"
segir í tillögunni. Meðflutnings-
menn eru fulltrúar allra þingflokka
á Alþingi.
í greinargerð með tillögunni
segir að það hafí verið verulegt.
áfall þegar kunngerð var í septem-
ber sl. ákvörðun þýskra stjómvalda
um að loka útibúi Goethe-stofnun-
arinnar í Reykjavík ásamt átta
öðrum hliðstæðum stofnunum.
„Yfirleitt er þar um að ræða Goet-
he-stofnanir þar sem fleiri en ein
eru í sama landi,“ segir í greinar-
gerðinni. „Komi þessi ákvörðun til
framkvæmdar yrði ísland hins veg-
ar eina Evrópulandið þar sem eng-
in siík miðstöð yrði til staðar. Það
er mat þeirra sem til þekkja og
hafa átt samskipti við Goethe-
stofnunina í Reykjavík að lokun
hennar yrði til óbætanlegs tjóns
fyrir menningartengsl íslands og
Þýskalands.“
Þá er þess getið í greinargerð
að nær allir þýskukennarar lands-
ins hafí mótmælt lokun stofnunar-
innar, allir stúdentar í þýskunámi
við Háskóla íslands og 32 þekktir
einstaklingar úr menningar- og
viðskiptalífi. Auk þess hafi legið
frammi á nokkram stöðum mót-
mælalistar fyrir almenning til und-
irskriftar og 10. nóvember sl.
höfðu um 2.300 manns ritað nöfn
sín á þá lista. „í Þýskalandi hefur
einnig verið hreyft andmælum.
Sendinefnd þýskra þingmanna frá
Bundestag sem var í heimsókn á
íslandi um miðjan október sl.
kynnti sér málið og sendi 16. októ-
ber frá sér fréttatilkynningu þar
sem lýst er þungum áhyggjum
sendinefndarinnar vegna áform-
aðrar lokunar Goethe-stofnunar-
innar á íslandi og að nefndin muni
beita sér fyrir þinglegum aðgerð-
um til að reyna að fá ákvörðuninni
hnekkt,“ segir í greinargerð.
Varðar einnig
viðskipti milli landanna
„Rík ástæða er til að benda á
að mál þetta varðar ekki aðeins
samskipti landanna á menningar-
sviði heldur grípur jafnframt inn á
almenn tengsl og viðskipti þeirra
í milli. Það væri því mikið óheilla-
spor ef lokað yrði Goethe-stofnun-
inni sem tekist hefur af litlum efn-
um að auka veg þýskrar tungu og
menningar og greiða götu fjöl-
þættra samskipta milli Islands og
Þýskalands," segir að síðustu í
greinargerð tillögunnar.
Alþingi
Styrktarsjóður námsmanna
verði stofnaður
LÖGÐ hefur verið fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar þess
efnis að Alþingi álykti að fela menntamálaráðherra að undirbúa
stofnun styrktarsjóðs námsmanna í samstarfi við ríki, sveitarfé-
lög, félagasamtök, vinnuveitendur, launþegasamtök og samtök
námsfólks. Lagt er til að ráðherra leggi fram frumvarp þessa
efnis fyrir Alþingi eigi síðar en 1. mars 1998. Fyrsti flutningsmað-
ur tillögunnar er Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokks.
I greinargerð tillögunnar segir að tilgangur styrktarsjóðsins
skuli vera sá að veita efnilegu námsfólki styrki til náms eftir regl-
um sem sjóðurinn setur. Fjármögnun sjóðsins skal byggjast á fram-
lögum ríkis, sveitarfélaga, opinberra stofnana, fyrirtækja og ein-
staklinga. „Ríkið leggi til fasta upphæð á fjárlögum en aðrir með
frjálsum framlögum. Framlög fyrirtækja og einstaklinga verði
frádráttarbær til skatts," segir í greinargerð.
„Með styrktarsjóði námsmanna er leitast við að opna fyrir efni-
legt námsfólk leið til náms sem telja má mikilvægt fyrir þjóðfélag-
ið. Með styrkjunum sýnir hið opinbera og aðrir aðilar samfélagsins
í verki vilja sinn til að fjárfesta í menntun," segir ennfremur í
greinargerð. Þá er þess getið að sjóðnum sé ekki á neinn hátt
ætlað að koma í stað þess sem veitt er til Lánasjóðs íslenskra
námsmanna heldur sé hann hugsaður sem hrein viðbót fyrir efni-
legt námsfólk.
Tilraunaveiðar á ref og mink
á Hornströndum
EINAR K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, mælti fyrir
tillögu til þingsályktunar um tilraunaveiðar á ref og mink í frið-
landinu á Hornströndum, á Alþingi á þriðjudag.
Tillagan felur í sér að umhverfisráðherra veiti tímabundið leyfi
til þessara tilraunaveiða og að Náttúrustofnun Vestfjarða hafi
eftirlit með þeim og gefi ráðherra skýrslu þar sem fram komi
niðurstöður tilraunarinnar. Að tilraunatímabilinu loknu verði mat
lagt á nauðsyn á framhaldi veiða á ref og mink á svæðinu.
, Einar sagði í framsögunni brýnt að aflétta banni við veiðum á
mink og ref í friðlandi á Hornströndum, vegna gríðarlegrar fjölg-
unar þessara tegunda. Ferðamenn og aðrir sem hefðu átt leið um
svæðið hefðu veitt því eftirtekt að mófufuglar sæjust þar tæplega
og að augljóst þætti að þeir hefðu orðið ref og mink að bráð.
Skynsamleg veiði á þessum tegundum myndi því auðga lífríkið
og söngur mófuglanna myndi hefjast að nýju.
Þá sagði Einar að íbúar nærliggjandi byggða, jafnt á Ströndum
sem við Isafjarðardjúp, hefðu og bent á að gegndarlaus fjölgun
á ref og mink í friðlandinu ylli miklum búsifjum utan friðlands-
ins. Hjarðir minka og refa streymi suður Strandir og inn í Djúp
og leggist á búfénað, grandi fuglum og eyðileggi veiðiár. Hlunn-
indabændur hafi þannig vakið athygli á að mikil fjölgun refa og
minka hafi leitt af sér stórtjón í æðarvörpum og laxveiðiám og
skaðað þannig bændur og rýrt afkomu þeirra.