Morgunblaðið - 13.11.1997, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.11.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER1997 23 ÚR VERINU „Verið lánsamur í minni útgerð“ Pétur Stefánsson kominn með nýtt og fullkomið rækjuskip til landsins „ÉG hef alla tíð verið mjög lánsam- ur í minni útgerð og er bjartsýnn á, að vel muni ganga,“ sagði Pétur Stefánsson útgerðarmaður en fyrir viku fagnaði hann komu nýs Péturs Jónssonar, fimmta skipsins með því nafni í hans eigu. Er skipið búið til rækjuveiða og sérstaklega styrkt til að vinna í ís. Er þykkasta stálið í því 30 mm. „Þetta er raunar sjöunda skipið með þessu nafni því að faðir minn og föðurbróðir létu smíða það fyrsta 1947. Var það 51 tonn og eitt af Svíþjóðarbátunum svokölluðu. Skírðu þeir skipið eftir föður sínum og föðurafa mínum og þeir áttu síð- an annað með sama nafni,“ segir Pétur. Pétur Jónsson, sá fjórði í röðinni í eigu Péturs, var seldur til Húsavík- ur en vegna nýja skipsins þurfti að úrelda allt að 14 skip og báta. Tóku kaupendumir að sér úreldinguna á móti Pétri. í nýja skipinu er unnt að vinna 55 tonn af rækju á sólar- hring en Pétur segir, að skipið sé einnig búið til að vera með flotvörpu ef áhugi yrði á að fara í einhvern uppsjávarfisk. Pétur Jónsson var smíðaður í Noregi, 2.139 brúttótonn sam- kvæmt nýju mælingunni, með 5.000 hestafla aðalvél, sem er 3.690 kw. Skipið er tæplega 64 metra langt og rúmlega 13 metrar á lengd. Var kaupverðið um 1.173 millj. íslenskra króna. 1.650 millj. á rúmlega þremur árum Pétur Jónsson fyrri, sem seldur var til Húsavikur, er ekki nema rúmlega þriggja ára gamalt skip og ekki er laust við, að sumir furði sig á því, að Pétri Stefánssyni skuli hafa fundist tími til kominn að fá nýtt skip. „Það var nú ekki eingöngu gert bara til að breyta um skip, að í þetta var ráðist," segir Pétur. „Við fengum mjög gott tilboð í þessa nýsmíði frá Noregi og hún hefur gengið mjög vel og svo hafa aðrir þættir komið inn í þetta viðskipta- legs eðlis. Það var ekki af því, að ég væri óánægður með hitt skipið. Ég hef alla tíð verið mjög lánsamur í minni útgerð og get nefnt það, að síðastliðin þtjú ár höfum við fiskað fyrir 1.650 milljónir króna." Keyptu Eldeyna 1972 Útgerðarsaga Péturs Stefánsson- ar hófst árið 1972 en þá keypti hann ásamt bróður sínum 300 tonna skip, Eldey, í Keflavík. Fékk það nafnið Pétur Jónsson, sá fyrsti í hans eigu. Gerðu þeir það út saman til 1984. Þá skildi leiðir en Pétur var áfram með skipið. 1979 hafði Pétur keypt Loft Baldvinsson frá Dalvík og 1987 keypti hann nýtt skip frá Ullstenvik í Noregi. Var það selt til Hjaltlandseyja í febrúar 1994 vegna kaupanna á skipinu, sem nú hefur verið selt til Húsavík- ur. „Við vorum mest í loðnu eftir 1972, í síldinni í Norðursjó og á netum á vetuma. Skipið, sem við fengum 1987, var útbúið til loðnu- og rækjuveiða og við fórum þrisvar sinnum á því á loðnu en síðan ein- göngu verið í rækjunni," segir Pétur. Pétur Jónsson RE er með 4.000 tonna kvóta í þorskígildum og þar af 3.000 tonn í rækjunni. Hitt er þorskur og ýmsar tegundir. Hlutur skipsins á Flæmingjagrunni er 300 tonn og gekk vel að taka hann í sumar. Sami mannskapur í áhöfn Péturs Jónssonar eru 20 menn, flestir þeir sömu og voru á síðasta skipi, og segir Pétur, að margir hafi verið lengi með honum, miklir ágætismenn. Segist hann vera bjartsýnn á framtíðina enda hafi heildarkvótinn í rækjunni aldrei verið meiri en nú eða 75.000 tonn. Vilia Smugxina opna RÚSSAR eru andvígir hugmyndum um að loka Smugunni í Barentshafi og skipta henni á milli þeirra og Norðmanna. Kom þetta fram á fundi rússneskra sérfræðinga í ýmsum greinum í Múrmansk nýlega. Norðmenn og Rússar hafa með sér samning um jafnan aðgang að fiskveiðum í Smugunni en hann rennur út árið 2003. Norðmenn vilja hins vegar loka Smugunni með ein- hverjum ráðum til að koma í veg fyrir veiðar erlendra ríkja, meðal annars íslendinga, og hafa sett fram hugmyndir um, að þeir og Rússar skipti henni með sér til helminga. Rússar eru andvígir þessu og benda á, að verði Smugunni skipt, muni fiskafli þeirra minnka um 22.000 tonn. Er ástæðan sú, að við skiptinguna myndu næstum öll mið- in innan Smugunnar lenda innan norskrar lögsögu. Morgunblaðið/Kristinn PÉTUR Stefánsson í brúnni á Pétri Jónssyni, fimmta skipinu með því nafni í hans eigu og því sjöunda frá upphafi. ITILEFN1150 ARA AFMÆLIS SIEMENS NÚ í ÁR bjóðum við í nóvemberýmis Siemens heimilistæki á sérstöku afmælisverði meðan birgðir endast. Þú lendir sannarlega í afmælisveislu ef þú kemur til okkar eða umboðsmanna okkar og kaupir þértæki. Gríptu gæsina meðan hún gefst! Siemens í 150 ár SIEMENS UMBOÐSMENN OKKAR Á LANDSBYGGÐINNI ERU: Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs Snæfellsbær: Blómsturvellir Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson Stykkishólmur: Skipavík Búöardalur: Ásubúö ísafjörður: Póllinn Hvammstangi: Skjanni Sauðérkrókur: Rafsjá Siglufjörður: Torgiö Akurevri: Ljósgjafinn Húsavík: Öryggi Vopnafjörður: Raimagnsv. Árna M. Neskaupstaður: Rafalda Reyðarfjörður: Rafvólaverkst. Árna E. Egilsstaðir: Sveinn Guömundsson Breiðdalsvík: Stefán N. Stefénsson Höfn í Hornafirði: Króm og hvitt Vík í Mýrdal: Klakkur Vestmannaeyjar: Tréverk Hvolsvöllur: Rafmagnsverkst. KR Hella: Gilsá Grindavík: Rafborg Garður: Raftækjav. Sig Ingvarss. Keflavík: Ljósboginn Hafnarfjörður: Rafbúö Skúla, Álfaskeiöi SMITH & NORLAND Nóatúni 4 • Sími 5113000 www.tv.is/sminor www.taeknival•is Kynntu þér sýninguna á heimasíðu Tæknivals:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.