Morgunblaðið - 13.11.1997, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 13.11.1997, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 43* AÐSENDAR GREINAR Eru norskar kýr lausnin? Tilraunainnflutning- ur á erlendu erfðaefni NU í vikunni gengst fagráð í nautgriparækt fyrir fundaherferð um allt land til að kynna fyrir kúabændum vænt- anlegan tilraunainn- flutning á erlendu erfða- efni til kynbóta á ís- lenska kúastofninum. Flytja skal inn fóstur- vísa úr norska rauða kúakyninu í kýr í Hrísey og ala upp naut af inn- flutta kyninu. Við þeim yrðu sæddar íslenskar kýr og nautin síðan af- kvæmapófuð á sama hátt og íslensk naut. Engar áætlan- ir hafa verið gerðar um að eyða blendingum undan norskum naut- um að lokinni tilraun, ef hún gefur lélega raun. Pað verður því ekki aft- ur snúið, ef tilraunin verður sett af stað. Ábatinn óljós - samt á að flytja inn I forsendum fyrir tilrauninni var þess getið að gera skyldi grein fyrir væntanlegum ávinningi af slíkum innflutningi. Þegar að því kom að meta skyldi ávinninginn voru engir möguleikai’ taldir á að gera það. Hins vegar töldu þeir sem um máhð fjölluðu verulegar vísbendingar til um það að ávinningur yrði af inn- flutningi. Þess vegna var lagt til að afla þekkingar á væntanlegum ábata með tilraunainnflutningi (Bbl. 28/10/97). Það vefst sennilega íyrir fleirum en mér að skilja þessa röksemdafærslu. Kostir á norska kyninu Taldir eru tveir kostir á norska kyninu í gi’einargerðinni (Bbl. 28/10/97) en engir gall- ar nefndir. Kostimir eru nythæðin og spenagerðin. Auk þess hefur komið fram að frumutala í mjólk sé lægri í norskum kúm en íslenskum. Færey- ingar gerðu upp notk- un á þessu kyni árið 1989, eftir 20 ára reynslu. Á þeim 20 árum var færeyska „landnámskvninu" útrýmt með öllu. Ársnyt norsku kúnna var sú sama og í Noregi það ár eða um 6.200 kg. Kýrnar fengu vothey að vild, mis- jafnt að gæðum, og það dugði ekki alltaf til viðhalds. Kýrnar fengu a.m.k. 2.500 kg kjarnfóðurs á mjaltaskeiðinu eða 8 kg á dag, en stundum 10-15 kg og jafnvel meira. Mylkar kýr stóðu inni í fjósi sum- arlangt. Kýr í geldstöðu voru stund- um úti á beit, en þær spilltu landi í vætutíð. Gallar á fslenskum kúm Margir gallar eru tíundaðir á ís- lenskum kúm, svo sem lág nyt, léleg júgur, stórir spenar, tíð júgurbólga, Stefán Aðalsteinsson skapvonska og há frumutala í mjólk. Margir vænta þess að losna við þessa galla með innfluttum stofni. Lítum nánar á þessa galla og nokkra kosti um leið. Kvartað vai’ undan lélegum júgr- um og vondri spenagerð á íslenskum kvígum í tilrauninni í Færeyjum. Þær voiu með 38% lengri og 15% gildari spena en þær norsku. Samt voru allar kvígumar mjólkaðar með mjaltavélum sem voru sniðnar að smáum spenum norsku kúnna. Norskir fræðimenn um mjaltavél- ar og mjaltir telja að stutt og þröng spenahylki geti hafa dregið úr nyt íslensku kvígnanna og aukið á júg- urbólgu. Þetta atriði hefur ekki ver- ið nefnt áður. Mjaltavélar á íslandi í dag eru miðaðar við smáspena kýr. Mætti ekki prófa að skipta yfir í stærri spenahylki á mjaltavélum, áður en skipt er um kúastofn? Júgurbólga og há frumutala í mjólk er frekar talið umhverfis- vandi en erfðagalli. Trassinn heldur við júgurbólgu og hárri frumutölu, óháð því hverrar þjóðar kýrin er. Skapvonska í kúm getur bæði stafað af erfðum og óheppilegri að- búð. „Fé er jafnan fóstra líkt,“ segir máltækið. Islenskar kvígur átu meira þurr- hey í tilrauninni í Færeyjum en þær norsku, miðað við lifandi þunga. Dagsnyt kvígnanna í þeirri tilraun, umreiknuð í kg mjólkur á 100 kg lif- andi þunga, var mjög svipuð hjá báðum stofnum. Bestu kýr á Islandi mjólka yfir 10.000 kg á ári, og allmörg bú eru með yfir 6.000 kg meðalnyt. Mætti ekki gera tilraun á íslenskum kúm til að kanna hvað þær geta skilað góðri nyt við bestu aðstæður og aðbúnað, áður en farið er út í innflutning? Einstakir kostir íslenskra kúa íslenskar kýr skera sig úr kúa- kynjum í nágrannalöndunum í gerð tveggja mjólkurpróteina. Endingarqó&ur varalitur Vatnsþolin litakom tryggja einstaka endingu litar á vörum. Bjartar, geislandi varir allan daginn. Fullkomin meSferð varanna „Kjarninn" veitir stöðugan raka og áhrifaríka meðferð. Liturinn helst stöðugur og varirnar eru sléttar og silkimjúkar. Secrel de Rouge Einstök samsetning á varalit sem endist ásanit fullkominni næringu. Hvert er leyndarmálið? fyrsta sinn í varalit: „Rakagefandi kjarninn" umvafinn „litahjúp"... Þessi byltingarkennda tvöfalda samsetning sameinar tindrandi og endingargóðan lit ásamt meðferð fyrir varirnar. Þriggja lita samspilið; Rautt. bleikt og kóral Clarins býður upp á 12 mismunandi liti sem veita flauelsmjúka, matta áferð. CLARINS - P A R I S- Listin að náttúrulegri fegurð Hvernig lítur landbún- aðarráðuneytið á skyldur sínar gagn- vart verndun kúnna? spyr Stefán Aðal- steinsson. Fær inn- flutningur meira vægi en verndunin? Þær hafa mjög háa tíðni á geni sem framleiðir próteinið kappa kasein B, en þetta gen eykur nýt- ingu ostefnis úr mjólkinni við osta- gerð. Þetta gen er í um það bil 95% allra íslenskra kúa, en aðeins í um 10% kúa í rauða norska kyninu. Þær hafa lága tíðni á beta kasein A1 geni, sem getur valdið umhverf- isháðri sykursýki. Tíðnin á þessu varasama geni er um 30% i íslensk- um kúm, en í rauða norska kyninu er tíðnin á því um 50%. Safna mætti mjólk á íslandi úr þeim helmingi kúnna sem ekki bera A1 genið og gera úr henni barna- mjólkurduft sem ekki ylli sykur- sýki. Þá gætu íslenskir bændur far- ið að selja eftirsóttar mjólkurafurð- ir úr landi. Þess má geta að heppilegu genir^. kappa kasein B og beta kasein A2 virðast vera tengd saman á sama litningi í íslenskum kúm. Ef kýrin hefur annað „góða“ genið hefur hún hitt oftast líka. Ábyrgð og skyldur Á Islandi er landbúnaðarráð- herra falin sú ábyrgð að vemda bú- fjárstofna frá útrýmingu þar með talið íslensku kýrnai’. Verði þeim útrýmt munu margir telja það al- varlegt umhverfisslys. Hvernig lítur landbúnaðarráðuneytið á skyldur sínar gagnvart verndun kúnna. Fær'c‘" innflutningur meira vægi en vernd- unin? Það má líka spyrja um hross- in. Myndi ráðuneytið gefa íslensk- um hrossabændum frjálsar hendur til að skipuleggja innflutning á suð- urameríska Pasofino tölthestinum til að blanda honum í íslenska hest- inn í tilraunaskyni? Höfundur er fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Norræna genbank- ans fyrir búfé. Barnainniskór margar gerðir og stærðir Verð kr. 1.490 Smáskór í bláu húsl við Faxafen Sími 568 3919 I dag og á morgun verður sérfræðingur frá CLARINS í versluninni. Fullt of spennandi nýjungum. 10% kynningarafslóttur. Snyrtivöruverslunin Gullbrá Nóatúni 17, sími 562 4217
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.