Morgunblaðið - 13.11.1997, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 13.11.1997, Qupperneq 46
^6 FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 MORGUNB LAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR HINN 10. október sl. birtist grein í Mbl. eftir Ömólf Thorlacius um stöðu starfsnáms í skólakerfinu og bent á ýmsar orsakir þess að hlutur starfsmenntun- ar er jafn rýr og raun ■'S&er vitni. Eg vil hér með þakka Örnólfi þessa ágætu og tíma- bæru grein, taka undir efni hennar og bæta ör- litlu við. Niðurstaða Örnólfs er þessi í stuttu máli: Astæður þess að starfsnám er homreka í framhaldsskólunum em þrjár: Gróin hefð fyrir forgangi bóknáms, afar rýr hlutur verklegs náms og listnáms í gmnnskóla og síðast en ekki síst sú staðreynd að samræmdu prófin beinast eingöngu að mati á bókleg- um þáttum. Þeir sem ekki standast þær kröfur geta sem best farið í >verknám! Samræmt skipbrot Allir þeir sem íylgst hafa með starfi framhaldsskólanna þekkja vel hvemig þetta hefur leikið nemend- ur hér á landi og hversu gífurleg só- un á sér stað, svo ekki sé talað um þau skipbrot sem ótalin ungmenni hljóta á þessari göngu. Það eitt að brottfall í fyrsta bekk framhalds- náms skuli geta verið allt að 50% hlýtur að færa hverjum manni heim sanninn um að hér er eitthvað að. Allstór hluti þessara ungmenna sem fellur í fyrsta bekk reynir aftur við nám, sumir fljótlega, en aðrir mörg- um áram síðar eftir margvíslega reynslu og e.t.v. höfnun. Oft er um að ræða fólk sem hefur góða hæfileika til náms, en var af ýmsum ástæðum ekki tilbúið til þess að standast hið samræmda próf. Þau hefðu mörg hver stað- ist próf sem sniðið væri að áhugasviðum þeirra eða undirbúningi, hvert á sínum tíma. Getum við lært af öðrum? Ömólfur gat þess að hann hefði verið í Ed- inborg fyrir 20 áram og kynnst þar öðram vinnubrögðum og við- horfum til starfsmenntunar en hér ríkja. Daginn sem grein hans birtist í Mbl. var ég í Skotlandi í hópi 12 skólastjórnenda frá Vestfjörðum þar sem við voram að læra margt af Skotum, en þeir standa framarlega á mörgum sviðum skólamála. Meg- intilgangur okkar var að skoða gæðastjórnun og sjálfsmat skóla, en auk þess bar margt fyrir augu og eyra sem kom á óvart, þar af ýmis- legt til eftirbreytni fyrir okkur. Það tvennt sem vakti mesta hrifningu okkar var nákvæmlega það sem Ömólfur talaði um í grein sinni. Nefnilega annars vegar sú mikla áhersla sem Skotar leggja á verk- menntun, jafnt í grunnskólum, framhaldsskólum og á háskólastigi, og jafnræði hennar við hina bók- legu. Þar er notað staðlað eininga- kerfi og ávallt hægt að leggja menntun að jöfnu eftir því hversu langt er náð, hvort heldur er á bók- legu sviði, verklegu eða listrænu. Hins vegar vakti athygli okkar Þess þarf að gæta, segir Pétur Bjarnason, að samræmda prófíð hætti að verða bókleg sía, sem löðrungar stóran hluta nemenda og dæmir þá næstum úr leik. framkvæmd samræmdra prófa við skil grannskóla og framhaldsskóla. Þá skal tekið fram að þar er ekki gjá sem stökkva þarf yfir eins og hér getur verið, heldur hefst hluti framhaldsnámsins í efri hluta grannskólans og heldur síðan áfram í ýmsum skólastofnunum, allt eftir undirbúningi og áhugasviði nem- andans, þannig að fremur er um að ræða samfellu en skil. Eg mun nú leitast við að lýsa þeirri mynd sem okkur var gefin af framkvæmd þessara prófa hjá Skotum. Samræmd próf skosk Á íslandi era samræmd próf í fjórum kjarnagreinum tekin í lok 10. bekkjar. Allir ganga undir sama prófíð, jafnt þótt fyrirfram sé vitað að þeir ráði illa við það. Þetta leiðir til vandræða fyrir stóran hóp nem- endanna. Samkvæmt þeim upplýs- ingum sem okkur vora gefnar um skoskt skólakerfi er þar um að ræða þrenns konar samræmd próf af mis- munandi þyngd og samsetningu. Ekki er bara prófað í kjarnagrein- um heldur í öllum námsgreinum. Heildarniðurstaðan er síðan gefin í einni tölu. Á ensku nefnast þessi próf Standard Grade. Þau skiptast í þrennt, Credit, General og Found- ation. Eg mun ekki reyna að þýða þessi orð, heldur nota ensku heitin. Credit er þyngst og gerir mestar kröfur. Þeir sem þreyta það teljast einnig hafa lokið hinum tveimur. Einkunnatölur gefnar eru 1 eða 2. General er hið almenna próf og þeir sem ljúka því teljast einnig hafa lokið grannprófinu. Einkunnatölur úr þessu prófi era 3 eða 4. Founda- tion er grannpróf sem allir verða að þreyta, þó sbr. ofanskráð. Þeir sem ljúka grannprófinu fá einkunnatöl- urnar 5 og 6. Þeir nemendur sem hafa ekki staðist prófið fá einkunn 7 og vitnisburðinn Course Complet- ed. Þeir sem luku ekki skólanáminu, mættu ekki í próf eða luku ekki öll- um greinum þess fengu vitnisburð- inn No Award. Árið 1996 skiptist árangur nemenda, miðað við fæð- ingarár þannig að 33% fengu 1-2, 42% fengu 3-4, 15% nemenda var með 5-6, 0,4% fengu 7 og 10% luku ekki prófi eða mættu ekki í það. Eftir þeim upplýsingum sem ég hef er þá innan við hálft prósent nemenda með „fall“ á þessu prófi, því þeir sem ekki mættu í próf eða luku því áttu þess kost að taka við- bótamám og þreyta prófið þegar þeir töldust reiðubúnir. Ekki er gerð krafa um það að allir nemend- ur þreyti þetta próf nákvæmlega á sama aldri, auk þess sem innan sama skóla geta þeir haldið áfram námi á margvíslegum námsbrautum að loknu prófi. Verkmenntun Skota I þeim skólum sem við heimsótt- um virtist verk- og listgreinum vera vel sinnt, t.d. fengum við að sjá hönnunar- og síðar smíðaverkefni unglinga, þar sem var að sjá afar vel unnið og fagmannlega. Mikil áhersla er lögð á jafnræði greina. Taka má fram að sama ráðuneyti Skota fer með iðnaðar- og mennta- mál og má vera að það skipti máli. Að loknu Standard prófinu bjóðast mörg stutt starfstengd námskeið. Nemandi sem þarf að hætta við námskeið í miðjum klíðum eða kýs að fara yfir í annað fær metið það nám sem hann hafði lokið við, þó námskeiðinu hafi ekki verið lokið. Möguleiki er á því að nemendi geti verið í starfi að hluta og námi að hluta, t.d. einn til tvo daga í viku. Fyrirtæki senda oft sérhæfða starfsmenn inn í skólana með fræðsluerindi. Með notkun staðlaðra námsein- inga (Modules) telja Skotar sig síð- an geta metið nám og lagt að jöfnu menntun sem viðkomandi hefur hlotið, á hvaða sviði sem hún er. Þannig geta rafiðnarnemi, við- skiptafræðinemi, læknanemi og list- fræðinemi borið sig saman á jafn- ræðisgrandvelli. Engin menntun er talin annarri gildarí. Hér mætti bæta við upplýsingum um gæðaeft- irlitskerfi, sem einkum varða verk- menntaskóla, „virðisauka“ í kennslu og margt fleira. Enn endurbætt menntakerfi (Higher Still) tekur gildi í ágúst 1999 undir kjörorðinu: „Möguleikar fyrir alla“. Plássins vegna verður ekki fjallað um þessi atriði hér. Aukum verkmenntun Hér er settur sá fyrirvari að upp- lýsingar hér að ofan era fengnar úr stuttri heimsókn, en þó studdar op- inberum gögnum. Vel má vera að eitthvað sé rangtúlkað eða missagt. Sé svo bið ég menn að hafa heldur það er sannara reynist. Eg hef kos- ið að koma þessum upplýsingum á framfæri til þess að taka undir það sem Örnólfur Thorlacius segir í grein sinni: Það þarf að auka verk- nám í grannskóla og þess þarf að gæta að samræmda prófið hætti að verða eingöngu bókleg sía, sem löðrangar stóran hluta nemenda og dæmir þá næstum úr leik. Okkur er ekki sæmandi að una því áram sam- an að fall í fyrsta bekk framhalds- skóla sé svo mikið sem raun ber vitni. Aukinn vegur verknáms og opnar leiðir fyrir alla er nauðsyn, bæði í orði og verki. Höfundur er forstöðumaður Skóla- skrifstofu Vestfjarða. Starfsmenntun og samræmdu prófin Pétur Bjarnason SUNNUDAGINN 14. sept. var þáttur á Rás eitt, þar sem fjall- að var um íslenska skólakerfið. Þar var rætt við mæta sérfræð- inga úr skólakerfinu um mikið brottfall nemenda úr framhalds- skólunum. Margt fróð- legt kom fram í þessum þætti. M.a. að líklega megi að hluta til skýra brotthvarf allt of margra nemenda frá námi með því hve skólakerfið sé einlitt. Hefðbundið bóknám er a^ðalleiðin og hefðbund- ið verknám þvi miður ekki fjöl- breytt. Þeir sem hvorki fóta sig í bóknámi, né velja hefðbundnar iðn- greinar eiga ekki margra kosta völ. Þáttur þessi vakti mig enn og aft- ur til umhugsunar um stöðu Hús- stjómarskólans á Hallormsstað. Hér er um að ræða lítinn skóla þar sem fram fer mikil menningarleg starfsemi. Kenndar eru greinar sem era óvíða í boði og alls ekki í því „andrúmslofti" sem skapast hefur í húsinu, umhverfi þess og því mann- lífi sem þrífst í skóginum. Kennslugreinar skólans era aðal- lega matar- og fatagerð. I matar- gerð eru kenndar margar mat- reiðsluaðferðir, bæði nýjar og gaml- ar. Auk þess læra nemendur að um- gangast nýtísku vélar í eldhúsum, leggja á borð, ganga um beina og fræðast um viðurkennda kurteis- ^ríssiði. í hannyrðum er kennt að nanna, sníða og sauma fatnað á sjálfa sig og aðra auk þess sem ýmsar að- ferðir hannyrða era kenndar, bæði hefð- bundnar og nýjar. Bóknámið er takmark- að við greinar sem styðja verklega námið; næringarfræði og ör- verufræði styðja mat- reiðslunámið, efnis- fræði og sniðteikning textílgreinamar. Vöru- fræði og hreinlætis- fræði styðja hvort tveggja. Að loknu námi við Hússtjómarskól- ann búa nemendur yfír þekkingu sem gerir þeim kleift að reka eigið heimili af kunnáttu og með glæsibrag. Þessir nemendur era auk þess eftirsóttir tO starfa hjá hótelum og matsölu- stöðum, því þeir kunna vel til verka og hafa lært að skipuleggja vinnu sína og hugsa sjálfstætt. Þrátt fyrir að hið formlega nám sem fram fer í Hússtjórnarskólan- um á Hallormsstað sé mikils vert tel ég þó ekki síður verðmætt það upp- eldisstarf sem þar fer fram í og ut- an kennslustunda. Skólinn er rek- inn sem heimili 24 nemenda. Þeir sem eiga unglinga vita að það getur verið erfitt að hafa 2 eða 3 unglinga á sama heimilinu, hvað þá 24. Nem- endur koma alls staðar að af land- inu; sumir hafa lokið stúdentsprófi, aðrir koma beint úr grannskóla og enn aðrir hafa velkst um í lífsins ólgusjó og eru misvel famir eftir þann róður. Þessir ólíku einstak- lingar vinna og búa saman í 24 tíma * Eg tel að Hússtjórnar- skólinn á Hallormsstað, segir Helga Hreins- dóttir, sé valkostur sem ekki er nóg af í íslenska skólakerfinu. á sólarhring í 13-15 vikur. Auðvit- að koma upp árekstrar og erfiðleik- ar, en þeir era til þess að sigrast á og verða meiri af. Starfsfólk skólans hefur áralanga reynslu af að vinna með ungu fólki og lag á að vekja virðingu fyrir náunganum. í hóp- vinnu læra nemendur að vinna sam- an. Ekki verður til máltíð ef sá sem eldar aðalréttinn neitar að vera með, sama gildir um salatið eða eft- irréttinn. Ef sá sem á að sjá um morgunverðinn sefur yfir sig bitnar það á hinum, sama gildir um þrif og þvotta. Nemdur læra að treysta hver öðram og sjálfum sér. í Hús- stjórnarskólanum á Hallormsstað falla fáir nemendur á prófi og brott- fall úr skólanum er ekkert, enda skólinn aðeins ein önn í senn. í Hússtjórnarskólanum á Hall- ormsstað er vakin virðing fyrir hefðum, verkum annarra, umhverf- inu og sjálfum sér. Ég tel að Hús- stjómarskólinn á Hallormsstað sé einmitt þess háttar valkostur, sem ekki er nóg af í íslenska skólakerf- inu og sérfræðingamir í fyrrnefnd- um útvarpsþætti ræddu um. En skólinn hefur átt undir högg að sækja. í fyrra kom tilkynning úr menntamálaráðuneyti um að leggja ætti skólann undir Menntaskólann á Egilsstöðum. Milli Menntaskólans og Hússtjórnarskólans hefur lengi verið náin samvinna en ekki hefur verið vilji til samrana. Skólanefndir beggja skólanna lögðust gegn sam- einingu. Þessi ákvörðun skólanefnd- anna fékk mikinn stuðning á Aust- urlandi og nánast frá öllum lands- hornum bárast áskoranir um að Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað stæði með reisn hér eftir sem hingað til. Menntamálaráðherra ákvað að veita skólanum fé til áframhaldandi rekstrar að sinni, en að kanna skuli hvort gnmdvöllur sé fyrir að reka skólann sem sjálfseignarstofnun. I samtölum skólayfirvalda Hús- stjórnarskólans við starfsmenn í menntamálaráðuneyti hafa komið fram þær skoðanir að skólinn sé óhagkvæm rekstrareining. Hins vegar má færa rök fyrir því gagn- stæða, að Hússtjórnarskólinn sé hagkvæm eining: Námshópar eru nánast samkvæmt viðmiðunartölum ráðuneytis, sem er 12 nemendur í verklegum áfóngum og 25 í bókleg- um. Nemendur taka margar eining- ar á meðan þeir era í skólanum, allt að 26 á önn, enda er ekki auðvelt að sækja sjoppur, bíóferðir, ballett, tónskóla eða annað það sem ungt fólk velur að gera í tómstundum og kvöldin eru því gjarnan notuð til náms. Til samanburðar tekur með- alnemandi í bóknámi 17 einingar á önn. Eins og fram kom hér að fram- an er ekkert brottfall og lítið um fall á prófum, þannig að hagkvæmni náms er mikil við Hússtjórnarskól- ann. Kennslan er alldýr á hvern nemanda, en hagkvæm á hverja staðna námseiningu. Verklegt nám er dýrara en bóklegt-nám og kostn- aður við kennslu í Hússtjórnarskól- anum á Hallormsstað er raunkostn- aður fyrir slíkar greinar. Rekstrarkostnaður húsnæðis Hússtjórnarskólans hefur að mati heimamanna ekki verið hár. Nánast allt húsnæðið er tvínýtt, annars vegar sem heimavist og heimili nemenda og hins vegar sem kennslurými. Heimavistarherberg- in era þó undanskilin. Eldhúsið er kennslueldhús á kennslutíma, en ut- an kennslu er það mötuneytiseld- hús, þar sem nemendur sjá sjálfir um að framreiða allar máltíðir með örlítilli aðstoð um helgar. Setustof- an, „Höllin" svokölluð, er bæði setu- stofa nemenda og anddyri skólans, auk þess að þjóna sem hátíðasalur skólans og ósjaldan breiða nemend- ur úr efnum á gólfin þar til að máta snið á dúk. Kennslustofan er notuð á kvöldin til vinnu og vefstofan líka. Þvottahús, língeymsla og ræstiað- staða era notuð bæði til kennslu og fyrir heimavist. Allt efni til rekstrar heimavistar og mötuneytis er kost- að af nemendum sjálfum, enda er maturinn hluti af kennsluefninu, og ræstiefnin einnig. Augljóst er að meira húsnæði þarf fyrir hvern nemanda í verklegu námi en bók- legu. Eini þátturinn sem er dýr er gæsla, en allsendis er óhæft að láta 24 unglinga eina um að gæta hver annars og hússins næturlangt, hvað þá um helgar. í hnotskum má segja að auðvitað kostar rekstur Hússtjómarskólans á Hallormsstað peninga. Hins vegar er ekki um íburð eða braðl að ræða, heldur raunkostnað og fyrir þennan kostnað fæst úrvalsvara. Það er í lagi að borga meira fyrir betri vöra. Skóli sem kostar minna á hvem inn- ritaðan nemanda, en hátt í helming- urinn af nemendunum flosnar upp og lýkur ekki prófi, er dýrari en skóli sem skilar ánægðum nemendum, sem hafa staðist þau markmið sem þeir sjálfir og skólinn setur þeim. I þeirri vinnu sem framundan er, þ.e. að kanna framtíðarmöguleika Hússtjómarskólans á Hallormsstað sem sjálfseignarstofnunar mun væntanlega reyna á hvort stuðn- ingsaðilar á Austfjörðum og annars staðar á landinu vilja kaupa góða vöra. Höfundur er formaður skólanefndar Hússtjómarskólans á Hallormsstað. Hússtjdrnarskólinn á Hallormsstað -Týndur hlekk- ur í íslenska skólakerfínu Helga Hreinsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.