Morgunblaðið - 13.11.1997, Síða 58

Morgunblaðið - 13.11.1997, Síða 58
Uí58 FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ gltarganMafeifc BRÉF TTL BLAÐSINS Tommi og Jenni Ferdinand Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Dulmál biblíunnar Frá Jóni Brynjólfssyni: Rúnar Kristjánsson, Skaga- strönd, birtir í Morgunblaðinu 3. október þýðingu sína á kynningar- orðum bókarinnar „The Bible Code“ eftir Michael Droshnin og hvetur menn í hógværum orðum til að kynna sér bókina. Þórarinn Árni Eiríksson, stærðfræðingur, ritar í Morgunblaðið 10. okt. and- mæli gegn bókinni og því dulmáli, sem hún íjallar um. Um þessi and- mæli ætla ég að skrifa mínar at- hugasemdir. Ályktun Þórarins Þórarinn birtir orðrétt úr kynn- ingarorðum bókarinnar: „Dulmálið var leyst af ísraelskum stærðfræð- ingi, sem kynnti niðurstöður sínar í þekktu vísindariti. Þær hafa síðan verið staðfestar af kunnum stærð- fræðingum víða um heim.“ „Drosnin átti líka viðtöl við sér- fræðinga í Bandaríkjunum og víðar og eyddi mörgum vikum í rann- sóknir með hinum heimskunna stærðfræðingi dr. Eliahu Rips, sem fyrstur uppgötvaði dulmálið. Hann hitti líka stærðfræðinga við Harv- ard- og Yale-háskólana og hebr- eska háskólann." Síðan segir Þórarinn: „Af ofan- greindum tilvitnunum mætti draga þá ályktun, að málflutningur Drosnins væri í samræmi við álit allra helstu stærðfræðinga heims.“ Þetta er afar einkennileg álykt- un, því þetta er rökvilla, sem kall- ast „óleyfileg alhæfing“, vegna þess að í þessum greinum, sem Þórarinn vitnar í, er þessa alhæf- ingu alls ekki að finna og ekki efni í hana. „Kunnir stærðfræðingar víða um heim“ er ekki það sama og „allir helstu stærðfræðingar heims“. Alhæfingin er röng, og hún er Þórarins. Af þessum ástæð- um verður Þórarinn einn að eiga sínar rökvillur fyrir sig og getur látið vera að reyna að troða þeim upp á aðra með blaðaskrifum og níða niður mjög góða bók um mjög athyglisverða rannsókn á heilagri ritningu. Þórarinn hefur sennilega hvoruga bókina lesið. Umsögn Sternbergs Þórarinn vitnar í athugasemdir Shlomo Sternbergs prófessors í stærðfræði við Harvardsháskóla í sinni eigin lauslegu þýðingu. Þar er að fínna álíka rangfærslur. Þar segir: „The Bible Code eftir Mich- ael Drosnin byggir á blekkingu, sem tveir ísraelsmenn, E. Rips og D. Witztum, halda fram. Þeir full- yrða, að skilaboð um framtíðina séu falin í hebreskum texta Bibl- íunnar . .. “ Þessi fullyrðing er röng, vegna þess að á kápusíðu bókarinnar stendur: „No one yet knows if the Bible code accurately foretells what is yet to come.“ í ágætri þýðingu Rúnars: „Enginn veit enn, hvort Biblíu-dulmálið seg- ir okkur nákvæmlega, hvað á eftir að gerast." Nú verður maður að gera ráð fýrir því, að kynningarorð á kápusíðu séu í samræmi við inni- hald bókarinnar. Þessi fullyrðing Þórarins og Sternbergs er því röng. ísraelsmennirnir fullyrða ekkert um „falin skilaboð um framtíðina". Ef rétt er með farið, fer Stem- berg með ranga fullyrðingu, sem hann eignar Israelsmönnunum, og brigslar þeim svo um blekkingu vegna þeirrar fullyrðingar. Þessu til staðfestingasr má vitna í bókina á bls. 130, en þar stendur; „If the Bible code is right, nuclear terr- aorists may trigger the next World War.“ „Ef Biblíu-dulmálið er rétt, kunna ofbeldismenn kjamorku að koma af stað næstu heimsstyrj- öld.“ Þetta er skilyrðing en ekki fullyrðing. ísraelsmennirnir full- yrða ekki, að dulmálið sé rétt. Þeir eru að leita sannleikans. Með bókinni gefur Drosnin lesandanum færi á að taka þátt í þeirri leit. Svona rangfærslur eiga helst ekki að koma frá stærðfræðingum. JÓN BRYNJÓLFSSON verkfræðingur, Bárugötu 20, Reykjavík. Smáfólk 'AMP THE AP05TLE PAUL E5CAPEP WHEN HIS FRIENP5 LOWEREP H|M OVERTHE WALLIN A BASKET.." WHY PO YOU SUPP05E HE HAPTOPO THAT? HE PR0BABLY 60TTIREP0F ► SI6NIN6 , AUT06RAPH5 „Og postulinn Páll flúði þegar vinir hans létu hann siga yfir ; veginn í körfu ... “ Af hveiju heldurðu að hann hafi orðið að gera það? Hann hefur líklega verið orðinn þreyttur á því að gefa eiginhand- aráritanir. Engir aldamótavírusar Frá Friðrik Skúlasyni: í TILEFNI af nýlegri frétt í blað- inu sem bar yfirskriftina „Ekki flogið um aldamót?" vil ég koma til skila eftirfarandi athugasemd- um: Sagt var: „ ... ef aldamóta- tölvuvírasar ógna flugöryggi... “ Hér virðist um frekar leiðinlegan misskilning að ræða. Tölvuvírasar era vandamál sem auðvelt er að losna við með aðstoð þar til gerðra forrita. Það vandamál sem hér er hins vegar átt við (2000-vandamál- ið) hefur nákvæmlega ekkert með tölvuvírasa að gera. Að nefna vír- usa í þessu samhengi getur valdið alvarlegum misskilningi, því hætt er við að tölvunotendur dragi þá ályktun að þetta vandamál sé álíka auðleysanlegt og það að vírusa- hreinsa tölvur, en því fer fjarri. 2000-valdamálið stafar í flestum tilvikum af illa skrifuðum hugbún- aði, sem túlkar „2000“ sem „1900“, þar sem hann geymir ein- ungis tvo síðustu stafi ártalsins. Það er ekki ljóst hversu alvarlegt þetta vandamál er hér á íslandi, en bankakerfið mun væntanlega vera nokkuð vel undir það búið. Hvort svo er um ýmis þau stærri fýrirtæki, sem nota sérskrifaðan hugbúnað er allt annað mál, sem vissulega væri þess virði að fjalla um það í „alvöra" frétt. Ofangreind fyrirsögn er ákaf- lega villandi, þar sem hún stuðlar að því að viðhalda þeim útbreidda misskilningi að aldamótin séu um áramótin 1999/2000, þegar hið rétta er að þau eru ári síðar. FRIÐRIK SKÚLASON frisk@complex.is FRIÐRIK SKÚLASON, tölvuveirufræðingur og áhugamaður um 2000-vandamálið frisk@complex.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtinsrar teliast sambvkkia betta. ef ekki fvleir fvrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.