Morgunblaðið - 13.11.1997, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 13.11.1997, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 5ð Velferð byggð á siðleysi Frá EIsu B. VaIsdóttur: í MORGUNBLAÐINU í gær, 9. nóvember, beindi Bergþóra Sigurð- ardóttir til mín eftirfarandi spurn- ingu: „Finnst Elsu ekki sanngjarnt að allir njóti sem bestrar heilbrigðis- þjónustu óháð efnahag?" Þetta mál væri einfalt að afgreiða með því að svara: „Jú“. Bæði spurningin og svarið eru hins vegar marklaus ef ekki er tekið fram hvernig á að ná þessu göfuga markmiði. Fæði, klæði og húsaskjól Að minnsta kostir þrír þættir í lífi fólks eru mikilvægari en að njóta heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Það er að hafa nóg að borða, fatn- að til að skýla sér og húsnæði til að búa í. Sé þessum þáttum ábóta- vant kemur þjónusta á sviði heil- brigðismála að takmörkuðu gagni. Aldrei heyrist þó talað um að allir eigi að njóta sem bestrar fæðu óháð efnahag, sem bestra klæða eða sem bests húsnæðis. Því síður talar nokkur maður um að til að tryggja þetta verði ríkið að sjá um rekstur og fjármögnun þeirra fyrirtækja sem framleiða mat, föt og reisa hús. Engu að síður erum við örugg- lega flest sammála um að nauðsyn- legt sé að allir njóti þessara líf- gæða. Það sama gildir um heilbrigð- isþjónustu. Það er nauðsynlegt að allir njóti sem bestrar heilbrigðis- þjónustu óháð efnahag en í því felst ekki að sú þjónusta eigi að vera á höndum ríkisins. Kerfið að hruni komið I Morgunblaðinu sama dag var ítarleg úttekt á þeirri heilbrigðis- þjónustu sem íslendingar búa við í dag. Undir fyrirsögninni: „Það hriktir í kerfinu" var sagt frá því hvernig læknar eru að segja upp, sjúkrahúsin að grotna niður og vitnað í talsmenn heilbrigðisstétta sem segja að þjónustan sé að hrynja. I ljósi þessa ásamt löngum biðlistum og lokunum sjúkradeilda, er þetta það sem við köllum að veita „öllum sem besta heilbrigðis- þjónustu óháð efnahag"? Bergþóru er tíðrætt um siðferði í bréfi sínu. Hvar er siðferðið í því að taka skatta af landsmönnum sem veija á til heilbrigðismála og Iáta þessa hörmung í staðinn? Hvar er siðferð- ið í því að taka erlend lán til henda í þá botnlausu hít sem okkar illa starfhæfa heilbrigðiskerfi er og láta börnin okkar borga reikning- inn? Ef við teljum þetta siðlegt, þá er þessi þjóð á alvarlegum villi- götum. Það á við nú sem fyrr: Vont er þeirra ranglæti, verra þeirra réttlæti. Sjúkratryggingar Til að ná hinu göfuga markmiði um sem besta heibrigðisþjónustu handa öllum óháð efnahag þarf að gera grundvallarbreytingar á hinu svokallaða „velferðarkerfi“. Taka þarf upp sjúkratryggingar sem yrðu skyldutryggingar, líkt og brunatryggingar og bifreiðatrygg- ingar eru í dag. Þeir sem eru á einhvern hátt ósjálfbjarga myndi samfélagið að sjálfsögðu sjá um að tryggja, rétt eins og það fæðir, klæðir og hýsir það fólk, sem þann- ig er ástatt um. Þannig komast stjórnmálamenn ekki með puttana í það fjöregg sem heilsa manna er. Þannig verður tenging milli af- kasta og fjárframlaga til heilbrigð- isstofnana í stað þess að best reknu sjúkrahúsin séu þau sem gera minnst, eins og það er í dag. Þann- ig skapast hvatning til sjúkrastofn- ana til að laða til sín sjúklinga í stað þess að leita allra leiða til að fækka rúmum og loka deildum. Ef við viljum tryggja raunverulega velferð í þessu landi þurfum við að hafa getu til að efast um að sú leið sem við fylgjum í dag sé sú rétta og hugrekki til að velja nýja braut. Mér þykir miður að geta ekki þakkað góðar kveðjur Berg- þóru að þessu sinni. Ég óska henni hins vegar að sjálfsögðu alls hins besta - og legg til að Ríkisútvarp- ið verði selt. ELSA B. VALSDÓTTIR, læknir og pistlahöfundur á rás 2. LÍMMIÐAPRENT Þegar þig vantar límmiða! Skemmuvegi 14 • 200 Kópavogur Sími: 587 0980 • Fax: 557 4243 Farsími: 898 9500 Lensidælur Sjódælur Brunndælur Spilverk - Sig. Sveinbjörnsson ehf. Skemmuvegi 8, 200 kóp. Sími 544-5600 Fax: 544-5301 Árni og Maus Frá Davíð Haukssyni og Kjartani Vilhjálmssyni: ÍSLENSK tónlistarútgáfa stendur sem hæst um þessar mundir og hefur fjöldinn allur af misgóðum hljómsveitum sent frá sér efni. Morgunblaðið hefur gert flestum ef ekki öllum þessum nýju geisla- diskum góð skil og virðist manni málefnalegt mat þar hafa ráðið ferðinni þótt auðvitað liggi misvel á gagnrýnendum við skriftir. Gagn- rýnendur hafa þegar á heildina er litið sýnt fagmennsku og óhlut- drægni enda þykir okkur tónlistar- gagnrýni Moggans ein sú besta hér á landi. Þess vegna var okkur illilega brugðið þegar við lásum „gagnrýn- ina“ sem nýjasta plata Maus fékk í Morgunblaðinu 4. nóvember sl. Það ber að taka það strax fram að við erum báðir aðdáendur Maus og þess vegna fóru þau vinnubrögð sem við sáum á síðum blaðsins, sem „segist leiða mann að kjarna málsins", mik- ið fyrir bijóstið á okkur. Sunnudeginum áður hafði birst í blaðinu skemmtilegt opnuviðtal við hljómsveitina Maus. Þama eru greini- lega hressir strákar á ferð sem kunna ýmislegt fyrir sér í músík. Hvað um það. Viðtalið var tekið í matarboði heima hjá bassaleikaranum af Árna nokkrum Matthíassyni, æðstapresti tónlistardeildar Morgunblaðsins. í þessu viðtali var komið víða við og kemur fram að Mausarar og Árni eru mestu mátar. Þeir ræddu þarna um heima og geima og var viðtalið hið skemmtilegasta aflestrar. Ekki kemur út Moggi á mánudög- um og viljum við nota tækifærið og skora á ritstjórn blaðsins að bæta úr því hið bráðasta. Nýjasta afurð Mausara, „Lof mér að falla að þínu eyra“, kom út mánu- daginn 3. nóvember og var diskurinn tekinn fyrir hjá gagnrýnendum Morgunblaðsins á þriðjudeginum. Annað eins lof hefur varla birst á prenti í lýðræðisríki og setningar á borð við „Lof mér að falla að þínu eyra er nánast fullkomin plata..." og „... á skilið að seljast í bílförmum" undirstrikuðu aðdáun gagnrýnand- ans á plötunni. Þetta væri kannski ekki svo óeðlilegt ef þarna hefði verið á ferðinni einhver annar en Árni Matthíasson. Maður myndi ætla að þegar gagnrýnandi þekkir viðkomandi listamenn jafn vel og raun ber vitni í tilfelli Árna og Maus- ara sé hann ekki allra manna hæ- fastur til að fjalla á málefnalegan hátt um verk þeirra. Spyija má hvort það sé réttlátt, bæði gagnvart hljómsveitinni og les- endum, að slík vinnubrögð séu við- höfð. Tekur einhver mark á svona gagnrýni? Þjónar hún tilgangi sín- um? Er oflofið kannski háð? Hver veit? Til að æra óstöðugan blasir síðan við þegar maður les umsiagið sem fylgir _ disknum: „Sérstakar þakkir fær Árni Matthíasson.“ Við teljum mái þetta tónlistardeild Morgunblaðsins til mikils vansa og krefjumst hæfra gagnrýnenda sem treysta sér til að líta ekki á lesendur sem fífl. Varla er það stefna þeirra sem sjá um listaumfjöllun að láta blaðamenn gagnrýna vini sína? Hvernig í ósköpunum fær maður sem greinilega hefur komið að hljómsveitinni og störfum hennar að gagnrýna verk hennar? Sem heilvita lesendum Morgunblaðsins .finnst okkur að okkur vegið og kreíjumst úrbóta. DAVÍÐ HAUKSSON, Stuðlaseli 29, Reykjavík, KJARTAN VILHJÁLMSSON, Hvassaleiti 28, Reykjavík. Adventa og jól -1 hvers er vænst? Laugardaginn 15. nóvember kl. 13- -17. Athyglisvert námskeið þar sem fjallað verður um aðventuna sem tíma til undirbúnings jólanna. Hugmyndir um verkefni og samvinnu. Fyrir foreldra, kennara, leikskólakennara og starfsfólk í kristilegu barnastarfi. Verð kr. 1500. Skráning í síma 588 8899. Biblíuskólinn við Holtaveg Um afstæðishyggju Frá Hafliða J. Ásgrímssyni: KRISTJÁN Kristjánsson lauk fróð- legum greinaflokki í Lesbókinni um póst-módernisma á gagnrýni. Þar var eitt atriði sem ég hnaut um: „Sé því haldið fram að allt sé afstætt er sú staðhæfing líka afstæð og engin ástæða til að trúa henni sem almennum sannindum." Ég er ekki sáttur við þessa rök- semdafærslu. Eitt er algilt og getur ekki verið afstætt en það er dular- fullt. Það er guð. Um hann er ekki hægt að ræða. Það eina sem er ör- ugglega ekki afstætt er ekki hægt Frá Ástu Svavarsdóttur: STUTTU eftir að bijóstakrabba- meinsáróðurinn er genginn yfir þá skellur á ný hrina, barátta gegn leg- hálskrabbameini. Yfirskriftin er: Rjúfum þögnina. Daginn sem ég útskrifaðist úr menntaskóla beið mín bréf. „Nú ert þú orðin tvítug, vinan, gjöra svo vel að mæta í krabbameinsskoðun." Á heillaóskum átti ég von. Burtséð frá prívatpósti mínum, og allra kvenna landsins, þá nægir að horfa á sjón- varpið í u.þ.b. tíu mínútur á dag. Dömubindaauglýsingar, bleyjuaug- lýsingar (leg í lagi) að ónefndum krabbameinsleitar-auglýsingum. Eitt umtalaðasta líffæri heimsins er móð- urlífíð, eitthvað hefur þögnin farið framhjá mér. Krabbamein er ekki eingöngu bundið við konur, í heimi krabbameinsins er af nógu að taka. En höldum okkur við kynbundin krabbamein. Og hér koma stóru frétt- að tala um. Hver maður getur að- eins talað um guð sem sögulegt hugtak sem hann hefur gert að sínu eigin. Það er afstætt því það getur ekki verið án ákveðinnar hefðar og notkun þess lýsir afstöðu notandans til hennar. Svo við segjum: Allt er afstætt. Er þá sú yrðing ekki afstæð? Vissu- lega! En þarmeð er hún ekki ógild og það er hægt að trúa henni sem almennum sannindum. Við erum menn, tímabundinn efnislegur veru- leiki og getum ekki gert þá kröfu að okkar sannindi séu gild fyrir allt, alls staðar og á öllum tímum. Ég er irnar: Karlmenn eiga líka svoleiðis. Krabbamein í blöðruhálskirtli er bundið karlmönnum og er álíka al- gengt og leghálskrabbamein. Og læknisskoðunin er mjög einföld, eng- in sýni, engar strokur: „Just bend over,“ í leiðinni er hægt að athuga hvort endaþarmskrabbamein hafí tekið sér bólfestu. Tvær flugur í einu höggi. En aldrei sjást neinar sjón- varpsauglýsingar sem hvetja karl- menn í krabbamemsskoðun, aldrei fá þeir neinn póst. Á meðan konumar mæta í sína reglubundnu skoðun eru karlamir bornir til grafar hljóðalaust. Seint mun ég mæla því í móti að konur séu dýrmætari einstakl- ingar en karlar. En okkur þykir vænt um suma þeirra og vildum gjarna halda þeim eins lengi og unnt er. Af hveiju ekki að bjarga lífi þeirra líka? ÁSTA SVAVARSDÓTTIR, Gnoðarvogi 34, Reykjavík. ekki að gera þá kröfu til yrðingarinn- ar: Allt er afstætt. Það gerir sá sem telur hana falla um sjálfa sig: Það em algild sannindi að allt sé afstætt. Þetta er mótsögn. En það þarf ekki að vera ógilt að segja: Það em afstæð sannindi að allt sé afstætt. Það er misskilningur að halda að ef eitthvað er afstætt sé ekki hægt sannreyna það. Að allt sé afstætt geta verið almenn sannindi ef það er satt í máli sérhvers manns. Sumt er satt fyrir öllum mönnum. Vegna gerðar sinnar trúir hver því sem verkar sann- færandi á hann og getur ekki annað. Sannleikur okkar byggir á gerð okk- ar og við leiðum hann fram með rök- um. En við emm ekki að öllu leyti eins. Afstæðishyggja gerir ráð fyrir að tvö gagnstæð sjónarmið geti bæði verið rétt en slíkt getur aðeins gerst að sjónarmiðin hafí verið leidd fram eftir gerólíkum leiðum eða staða aðil- anna gagnvart ágreiningsefninu sé gagnstæð. Við getum aðeins talað um það sem við hugsum og það sem gæti virst algilt svarar bara til þess hve áþekk okkar hugsun er eða hve sam- skiptaformið nær að lýsa henni vel. Ekki er hægt að skilgreina neitt hugtak án skírskotunar til gerðar þeirra sem nota það. Til dæmis er talan 1 sem mannsheilinn lítur á sem heila tölu og byggist á sammann- legri skynjun okkar á einingum. En hún getur líka verið rauntala. Skilningur á hugtakinu hugsun þarf ekki að fela í sér að allt sem er satt fyrir menn sé einnig satt fyrir það sem hugsar. Samkvæmt því ætti guð ekki að geta hugsað nema vera í skorður mannlegrar greindar settur. Því tel ég að fram kunni að koma vél sem getur hugsað án þess að vera mannleg og almenn sannindi okkar eigi ekki endilega við um hana. HAFLIÐIJ. ÁSGRÍMSSON líffræðingur og netbúi hafjasrhi.hi.is hafjoh@islandia.is Rjúfum þögnina - karlar fá líka krabbamein Ókeypis lögfræðiaðstoð í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012. Orator, félag laganema # • • • • • • • • • / •• sœtir sofar* HÚSGAGNALAGERINN « • Smiðjuvegi 9 • Simi 564 1475 * kr. 1.790 Stærðir 21-36 Litir: Rautt/blátt kr. 1.690 Stærðir 25-36 Litir:E kr. 1.920 Stærðir 23-32 Litir: Rautt/blátt Póstsendum samdægurs SKOUERSLIIN KÓPAVOGS HAMRABORG • SÍMI5541754
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.