Morgunblaðið - 13.11.1997, Page 66

Morgunblaðið - 13.11.1997, Page 66
66 FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM ur færöi pur á 3 Blskyldu SKERJ/ 9-18 vlrka daga kl. 10-14 laugardaga. 20% afsláttur eða spennandi kaupauki við kaup á þremur hlutum. POLARTEC itt mesta rval landsins af fleece-fatnaði Ver& frá 4.490.- í daq, fimmtudaq kl. 14-18 Kópavogsapótek Hamraborg 11, sími 554 0102 Morgunblaðið/Árni Sæberg ÁNÆGÐIR kvikmyndageröarmenn; Erlendur Björnsson smiður, Gunnar Páll Ólafsson aðstoðarljósamaður, Guðmundur Magni Ágústsson ljósamaður, Víðir Sigurðsson tökumaður, Hilmir Snær Guðnason leikari, Unnur Eva Arnarsdóttir skrifta, Gunnar B. Guðmundsson og Óskar Þór Axelsson. TVEIR TVEIR nefnist nýtt kvikmyndafyrirtæki í eigu fé- laganna Gunnars B. Guð- mundssonar og Óskars Þórs Axels- sonar. Þeir hafa nýlega lokið tökum á fyrstu stuttmynd fyrirtækisins sem ber nafnið „Á blindflugi" og verður frumsýnd í Háskólabíói í janúar. Þar er Gunnar leikstjóri og handritshöfundur og Óskar Þór framleiðandi. Að eltast við reyk -Um hvað fjallar myndin? Óskar: „Hún fjallar um náunga '.Tm hættir að reykja og erfíðleik- ana bundna því. Hann tekur þessa ákvörðun einn dag, en áreitið í um- hverfínu angrar hann mikið. Hann stenst þetta varla í hálftíma, og þá hefst eltingarleikur hans við það að fá sér að reykja." - Hvernig vannstu handritið, Gunn- ar? Gunnar: „Þegar ég skrifaði hand- ritið reykti ég pakka á dag. Að því loknu fannst mér vanta einhvern brodd í það og ákvað að hætta að 'röykja. Eftir það bættust mörg smáatriði við sem gera myndina fjöllunarefni íslenskrar stuttmyndar sem frumsýnd verður í janúar. Hildur Lofts- dóttir hitti mennina á bakvið myndina og fræddist nánar um verkefnið. skemmtilega. Þau sýna tauga- veiklunina sem ég varð var við eftir að ég hætti. Ég sóttist sérstaklega eftir því að fara á kaffihús með fé- lögunum til að líða eins og aðalsögu- hetjunni. Mörg atriði í myndinni eru því sönn.“ Óskar: „Þetta er reykingamaður sem er með alla ósiðina eins og sóðaskap og fleira. Tóbaksvarnar- nefnd var fús að styrkja okkur því þetta er algjörlega um ógeðið í reykingum." Grá mynd - Var erfitt að fá Hilmi Snæ til að taka að sér aðalhlutverkið? Óskar: „Nei honum fannst hand- ritið svo fyndið að hann kom hlaup- andi. Það má líka alveg segja frá því að Hilmir ber myndina uppi. Hann er eini aðalleikarinn, og svo eru bara aukaleikarar. Myndin stend- ur og fellur með honum.“ Gunnar: „Hann var alveg frá- bær. Sum atriði gat ég ekki ímynd- að mér hvemig kæmu út þegar ég skrifaði þau, en þau voru fullkomn- uð af Hilmi.“ - Hvemig stm eryfir myndinni? GUNNAR segir Hilmari til og Víðir gerir augnablikið ódauðlegt. Kynning á GIVENCHY haust- og vetrarlínunni 1997-1998 Óskar: „Hún er í lit en er öll frekar grá, og umhverfið skítugt og endurspeglar þannig hversu djúpt sokkinn reykingamaður hann er.“ Gunnar: „Stemmningin er frekar taugastrekkjandi. Ekki þannig að myndin sé spennandi hasarmynd heldur eru atriði sem taka á taug- arnar, því það er alltaf eitthvað að pirra náungann. Allt frá samvisk- unni til óheppninnar." Óskar: „Myndin er tekin á Super 16mm fílmu eins og flestar kvik- myndir í dag. Það var rosalega gaman, en um leið er þetta mikið fyrirtæki." Gunnar: „Þegar maður var að gera stuttmyndir á myndband, þá lét maður bara vélina rúlla og stökk svo fram fyrir myndavélina. Það var helst að maður fengi einhvern til að passa vélina svo henni yi’ði ekki stolið meðan maður var að leika!“ Alþjóðleg stuttmynd -Hvað með hljóðrásina? Óskar: „Myndin er tallaus en alls ekki hljóðlaus. Það er mikið af hljóðum og eitthvað af tónlist í henni. Þannig verður hún alþjóðleg, sem var bæði markaðsleg ákvörðun og viss listræn áskorun.“ Gunnar: „Það er oft að þessar myndir eru hálfgerð útvarpsleikrit. Maður þarf ekki að tala svona mik- ið. Það voru sendar þrjár myndir eftir mig á Norræna stuttmyndahá- tíð. Ég sendi samtölin með á blaði en síðan voru myndirnar sýndar á íslensku án texta og enginn skildi neitt. Það er nú eiginlega skemmti- legra að sýna fólki mynd sem það skilur." -Er þessi mynd upphafíð að miklu kvikmyndasamstarfí ykkar á mUli? Óskar: „Já, en þótt við séum með fleiri verkefni á prjónunum þá er mesta púðrið búið að fara í þessa mynd undanfarið. En þetta er hefur verið mikill lærdómur fyrir okkur. Við höfum notað krana og tekið upp áhættuatriði, þannig að núna erum við mjög vel undirbúnir fyrir kom- andi verkefni." Bára Björnsdóttir, snyrtifræðingur, kynnir og leiðbeinir Djúpt sokkínn Allt ógeðið sem fylgir reykingum er um-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.