Morgunblaðið - 13.11.1997, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 13.11.1997, Blaðsíða 72
 <Q> AS/400 er... ...mest selda fjölnotenda vidskiptatölvan í dag <33> NÝHERJI sxa Fyrstir rneö HP Vectra PC HEWLETT PACKARD Sjáðu meira á www.hp.is MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 6691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Ákærður fyrir ólöglegar veiðar ^Segir landbrot hafa fært land- helgismörkin DÓMSMÁL, þar sem deilt er um hvar íslensku landhelgismörkin liggja, er nú rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands. Skip- stjóri, sem ákærður er fyrir ólögmætar veiðar, ber fyrir sig að vegna landbrots hafí landhelgin ^‘rarst innar en sjókort sýna og því hafí hann verið réttu en ekki röngu megin við veiðamar. Báturinn Sigurfari GK var tek- inn við veiðar á Kötlugrunni í sum- ar og færður til hafnar. Sýslu- maðurinn í Vestmannaeyjum hefur höfðað opinbert mál á hendur skip- stjóranum vegna þess. Málið var flutt og dómtekið í Héraðsdómi Suðurlands í fyrradag. Georg Lárusson, sýslumaður í ^Vestmannaeyjum, sagði við Morg- - ^mhblaðið að skipstjórinn hefði kraf- ist sýknu á þeim forsendum að mikið landbrot hafi raskað land- helgismörkunum frá því að sjókort voru gerð. Staðurinn þar sem hann var að veiðum sé utan þriggja mílna landhelgi eða á línunni, miðað við skekkjumörk staðsetn- ingartækja. Landhelgislínan á að miðast við þrjár mflur frá fjöruborði og sagði sýslumaður að ítarlegar mælingar hefðu verið gerðar af hálfu Land- helgisgæslu og Sjómælinga ríkisins og hefðu gögn um þær verið lagðar fram í réttinum af hálfu ákæruvaldsins. Sjókortið sem aðgerðir Land- helgisgæslunnar byggðust á er frá 1980 en var leiðrétt árið 1995. Dóms er að vænta í málinu á næstu vikum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jólasveinarnir fijótir á sér JAFNVEL þó að enn séu sex vikur til jóla eru útstillingar í verslanagluggum víða farnar að minna á jólahátíðina. Suinum þykir nóg um hversu snemma er af stað farið og virðist sem vinsamleg tilmæli kirkjunnar þjóna á undanförnum árum um að fara sér hægt í þessum efnum liafi ekki náð eyrum verslunarmanna. I versluninni Blómavali vann Margrét Ingólfsdóttir í gær að uppsetningu Jólalands þar sem gefur að líta íjölda hvítskeggjaðra og rauðklæddra jólasveina. Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli krefst lækkunar á verði heita vatnsins Bandarísk stjórnvöld þrýsta á um lægri kyndingarkostnað VARNÆLIÐIÐ á Keflavíkurflugvelli hefur krafizt endurskoðunar á verði heita vatnsins, sem það kaupir af Hitaveitu Suðurnesja. Samkvæmt „ .h.eimildum Morgunblaðsins telja bandarísk stjórnvöld óeðlilegt að varnarliðið greiði hátt í tvöfalt hærra verð fyrir heita vatnið en sveitar- félögin á Suðurnesjum. Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitunnar, segir að ekki komi til greina að varnarliðið fái vatnið á sama verði og aðrir. Varnarliðið stendur undir hartnær helmingi tekna Hitaveitu Suðurnesja, sem í fyrra voru 1,8 milljarðar króna. Samkvæmt samningi um vatns- kaupin, sem síðast var breytt árið 1992, geta aðil- ar krafizt endurskoðunar á vatnsverðinu á fimm ára fresti. Bandaríkjamenn hafa tilkynnt Hita- veitunni að farið verði fram á endurskoðun á verðinu og hefur varnarliðið sent Hitaveitunni spurningar um forsendur verðsins, sem Hitaveit- an hefur nú svarað. Viðræður eru áformaðar á næstunni. Undanfarin ár hafa íslenzk og bandarísk ^^s^órnvöld í sameiningu leitað leiða til að lækka kostnað við rekstur varnarstöðvarinnar á Kefla- víkurflugvelli. I því skyni hefur meðal annars verið starfandi svokölluð kostnaðarlækkunar- nefnd hátt settra embættismanna beggja ríkja. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa full- trúar Bandaríkjanna í nefndinni bent á kynding- arkostnaðinn sem einn þeirra liða, þar sem ná megi fram verulegum sparnaði og að það sé í hæsta máta óeðlilegt að varnarliðið greiði miklu hærra verð fyrir heitt vatn en sveitarfélögin í kring. Leitað fulltingis utanríkis- ráðuneytisins ef ekki semst Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hyggst varnarliðið láta á það reyna í samningum við Hitaveituna hvort veruleg verðlækkun næst fram. Takist það ekki, verður leitað fulltingis ut- anríkisráðuneytisins. Bandarísk stjórnvöld eru reiðubúin að beita talsverðum þrýstingi í málinu. Júlíus Jónsson vill ekki gefa upp hver sé ná- kvæmlega munurinn á verði vatns til varn- arliðsins og almennrí gjaldski-á Hitaveitunnar. Hann segir að í samningnum við varnarliðið sé gert ráð fyrir að verðið miðist við raunkostnað Hitaveitunnar af þjónustunni. „Þeir vita vel að það kemur ekki til greina að þeir fái sama verð og aðrir,“ segir Júlíus. Ótraustur viðskiptavinur Aðspurður um rökin fyrir því að varnarliðið greiði hærra verð nefnir Júlíus að það fái heitara vatn en aðrir, og að sveitarfélögin á Suðurnesjum séu eigendur jarðhitaauðlindarinnar og greiði ekki fyrir afnot af henni með sama hætti og varn- arliðið. „Síðan höfum við sagt þeim að þeir séu óviss og ótraustur viðskiptavinur. Við vitum ekki hvað við höfum þá lengi til að borga niður þær nauðsyn- legu fjárfestingar, sem við þurfum að ráðast í, en við reiknum með að fólkið verði hér áfram,“ segir Júlíus. ,Á þessu ári hefur varnarliðið dregið úr notkun sem nemur allri vatnsnotkun í Garðinum, svo dæmi sé tekið.“ Endurskoðun- armiðstöðin og Hagvangur sameinast ENDURSKOÐUNARMIÐSTÖÐIN Coopers og Lybrand ehf. og Hag- vangur hf. munu sameinast um áramótin og mynda alhliða þjónustu- fyiirtæki fyrir viðskiptalífið. Kveikj- an að sameiningunni er nýleg ákvörðun um samruna helstu sam- starfsaðila þeiira erlendis, fjöl- þjóðafyrirtækjanna Coopers og Ly- brand og Price Waterhouse. Endurskoðunarmiðstöðin Coopers og Lybrand sinnir endurskoðun, reikningsskilum og skattamálum en Hagvangur rekstrar- og markaðs- ráðgjöf og starfsmanna- og ráðning- arþjónustu. Forráðamenn fyrir- tækjanna segja að búast megi við því að starfsmönnum fjölgi í kjölfar sam- einingarinnar. Ársvelta Coopers og Lybrand ehf. er um 220 milljónir króna en velta Hagvangs um 100 milljónir. Sameig- inleg velta fyrirtækjanna verður því um 320 milljónir. ■ Samruni erlendis/B4 Beitir hef- ur veitt 52.000 tonn LOÐNUSKIPIÐ Beitir NK 123 hefur nú aflað rúmlega 52.000 tonna á þessu ári og mun það vera mesti afli hjá einu skipi í ár. Mesti afli skips á einu ári er um 55.000 tonn og því ljóst að „íslandsmetið“ gæti fallið glæðist aflinn. Það er Síldarvinnslan í Neskaupstað sem gerir Beiti út en skipstjórar eru Sigurjón Valdimarsson og Sigurbergur Hauksson. Beitir er um 756 brúttólestir að stærð, smíðaður I Þýzkalandi. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal ÁHÖFN Beitis við komuna til Neskaupstaðar í vikunni. Kjaraviðræðum lækna og ríkisins frestað til þriðjudags Báðir aðilar meta ýmsar hugmyndir SAMNINGANEFNDIR sjúkra- hússlækna og ríkisins sátu á fundi daglangt í gær hjá ríkissáttasemj- ara og var laust eftir kvöldmat ákveðið að fresta viðræðum til næstkomandi þriðjudags. Þórir Einarsson ríkissáttasemj- ari sagði að báðir aðilar hefðu ýmislegt að skoða til næsta fundar sem verður næstkomandi þriðjudag. Deiluaðilar hafa fundað nokkuð stíft að undanfómu og segir sátta- semjari að fullur hugur sé í mönn- um að ná saman. Hugmyndir hafa gengið milli samninganefndanna á síðustu fundum og eru til skoðunar vinnutímafyrirkomulag, launaliðir og fleira. Meðal þess sem ná þarf samkomulagi um er ný skipan á vinnutíma lækna, sérstaklega á löngum vöktum unglækna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.