Morgunblaðið - 15.11.1997, Side 1
88 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
261. TBL. 85. ÁRG.
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
• •
Oflug herskip Bandarfkjamanna og Breta stefna til Persaflóa
Reuters
Hittust
í London
MADELEINE Albright, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, hitti
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra Israels, í London í
gær. Eftir fundinn sagðist Al-
bright hafa lagt áherslu á að
Israelar leggðu sitt af mörkum
við að leysa þann hnút sem frið-
arferlið fyrir botni Miðjarðar-
hafs er í. Að öðru leyti vildu
leiðtogarnir lítið láta uppi um
innihald viðræðna sinna. AI-
bright, sem er á leið til Qatar
þar sem hún mun sækja efna-
hagsráðstefnu Norður-Afríku-
ríkja og Miðausturlanda, mun
hitta Yasser Arafat, Ieiðtoga
Palestínumanna, í Sviss í dag.
Flóð í
Sómalíu
lagt var til
Osló. Morgunblaðið.
NORÐMENN og Rússar komust í
gær að samkomulagi um kvóta í
Barentshafí sem er um þriðjungi
meiri en ráðgjafanefnd Alþjóðahaf-
rannsóknaráðsins (ICES) hafði lagt
til á fundi sínum fyrir hálfum mán-
uði. Þorskkvóti þjóðanna á næsta
ári verður 694.000 tonn, sem er
140.000 tonnum meira en ráðgjafa-
nefndin lagði til. Peter Angelsen
sjávarútvegsráðherra kvaðst
ánægður með ákvörðunina um kvót-
ana, sagði hana hagstæða sjávarút-
veginum sem hafði búið sig undir
hið versta.
Áður hafði verið gert ráð fyrir um
890.000 tonna heildarkvóta en físki-
fræðingar lögðu til að hann yrði
540.000 tonn. Yfirleitt er farið eftir
tillögum ráðgjafanefndarinnar en
að þessu sinni ákvað norsk-rúss-
neska fiskveiðinefndin að draga úr
ráðlagðri kvótaskerðingu.
Bann við loðnuveiðum
Norðmenn fá 313.000 tonna
kvóta, Rússar 301.000 tonn og
80.000 fara til þriðja lands. Af síð-
astnefnda hlutanum eru 26.160 tonn
til veiða á fiskverndarsvæðinu við
Svalbarða. Hins vegar er farið að
ráðum fískifræðinga hvað varðar
bann við loðnuveiðum á næsta ári.
Angelsen viðurkenndi að 30%
aukning frá ráðlögðum kvóta skap-
aði vissulega óöryggi og norska
náttúruverndarráðið mótmælti
harðlega ákvörðun fiskveiðinefnd-
arinnar, sem það segir brjóta í bága
við loforð ríkisstjórnarinnar. í
stjómarsáttmála hennar segir að
hún muni fara að ráðum fiskifræð-
inga við ákvörðun kvóta.
Bandaríkjaforseti segir
öryggi á 21. öld í húfi
Mun meiri
kvóti en
Reuters
HLIÐI húss Sameinuðu þjóðanna í Irak var læst eftir að vopnaeftirlitsmenn stofnunarinnar yfirgáfu landið.
Genf. Reuters
MIKIL flóð hafa gengið yfir suður-
hluta Sómalíu að undanfórnu og
a.m.k. 1.000 manns farist af völdum
þeirra, samkvæmt upplýsingum
Mannúðarmáladeildar Sameinuðu
þjóðanna (DHA).
Stofnunin segir að helmingi fleiri
hafi farist í flóðunum en áður var
talið og að rúmlega 200.000 manns
séu heimilislaus í kjölfar þeÚTa.
Fréttir hafa borist af fólki sem
hefst við á hæðum og uppi í trjám
en erfitt er að koma fólkinu til
hjálpar þar sem brýr hafa skemmst
og vegir farið í sundur. Þá hafa mat-
arbirgðir eyðilagst og búfénaður
farist. Mannúðarsamtök óttast að
kólera og aðrir sjúkdómar breiðist
út í kjölfarið.
Engin ríkisstjórn hefur verið í
Sómalíu frá því einræðisherranum
Mohamed Siad Barre var steypt af
stóli árið 1991 og gerir það allt
hjálparstarf erfiðara.
Svínabændur reiðir
Kaupmannahöfn. Morgunhlaðið.
POUL Nyrup Rasmussen, forsæt-
isráðherra Dana, lenti í ógöngum
vegna óvarfærinna ummæla á dög-
unum sem honum hefur gengið illa
að koma sér út úr. Hörð orð Nyr-
ups um aðstæður á dönskum svína-
búum kölluðu reiði svínabænda yf-
ir forsætisráðherrann sem neydd-
ist til að viðurkenna að hann hefði
ekki heimsótt svínabú nýlega.
Þetta gaf Uffe Ellemann-Jensen,
formanni Venstre og leiðtoga
stjórnarandstöðunnar, tilefni til að
stríða forsætisráðherranum og
skopteiknarar fjölmiðlanna hafa
ekki látið sitt eftir liggja.
Dönsk svínabú eru alltaf að
verða stærri og stærri, enda eru
lög og reglur hagstæðari fyrir um-
fangsmikil svínabú en minni
rekstrareiningar. Svend Auken
umhverfisráðherra er ósáttur við
þessa þróun og vill athuga hvort
mengunarreglugerðir og dýi’a-
vernd geti spornað við gífurlegri
mengun frá búunum og slæmum
aðbúnaði svínanna. Forsætisráð-
herra blandaði sér í þessa umræðu
í sjónvarpsviðtali þar sem lýsingar
hans á óhrjálegum aðstæðum
bentu til að hann væri rétt að
koma úr heimsókn í danska svína-
stiu.
En það er jafnvarasamt iyrir
danskan ráðherra að níðast á land-
búnaði og það væri fyrir íslenskan
starfsbróður að tala illa um sjávai'-
útveg, enda brugðust hagsmuna-
samtök landbúnaðarins hart við
ummælunum og í ljós kom að for-
sætisráðherrann hafði vart stigið
fæti í danskt svínabú síðan hann
Nyrup
tók við embætti 1993. Þetta var
óspart rætt i fjölmiðlum og m.a.
var ráðherrann gagnrýndur fyrir
að sinna svo slælega þessari lykil-
búgrein Dana.
Eftir nokkurra daga umhugsun
reyndi Nyrup að snúa vörn í sókn
og sagði að ekki skipti máli hvenær
heimsóknin hefði verið farin þar
sem lýsingin væri rétt. Fjölmiðlar í
Danmörku hafa nú ályktað sem svo
að það hafi verið einhvern tíma á
síðasta áratug, sem hann heimsótti
svínabú síðast.
íraskir ráðamenn hafa sýnt áhuga á viðræðum
við öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að því gefnu
að Bandaríkjamenn taki ekki þátt í þeim. Ráðið,
sem hefur lýst sig andvígt hernaðaraðgerðum,
hefur hins vegar neitað að ræða við íraska ráða-
menn þar til þeir hafi gengið að kröfum stofnun-
arinnar.
Rétt ákvörðun
Richard Butler, yfirmaður vopnaeftirlits SÞ,
sem hefur verið gagnrýndur fyrir að senda alla
eftirlitsmenn SÞ frá Irak, sagði í viðtali við
CNN-sjónvarpsstöðina í gærkvöldi að hann teldi
það hafa verið hárrétta ákvörðun. Ella hefði hann
verið að ganga erinda Saddams.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, sem enn segist vonast eftir stefnu-
breytingu hjá Irökum, sagði í gær að það væri al-
gerlega óviðunandi að nota konur og böm í varn-
arskyni. Þá sagðist hann telja að tveir næstu sól-
arhringar myndu ráða úrslitum.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti lagði á það
áherslu í gærkvöldi að reynt yrði með öllum ráð-
um að fá Saddam Hussein til að virða vopnahlés-
sáttmála Persaflóastríðsins, mestu skipti að
hindra Iraka í að koma sér upp gereyðingarvopn-
um. Iraksforseti hefði þegar gerst sekur um að
nota efnavopn gegn óvinum sínum og eigin þjóð.
„Þetta er ekki endurtekning á Persaflóastríðinu.
Málið snýst um öryggi á 21. öldinni og við verð-
um að koma fram af einurð til að tryggja að vilji
þjóða heims nái fram að ganga,“ sagði Clinton.
Símafundi Clintons og Tonys Blairs, forsætis-
ráðherra Breta, sem fram átti að fara um málið i
gærkvöldi var frestað og þykir það benda til þess
að ekki verði strax gripið til aðgerða. Blair sagði í
gær að Saddam myndi gera „hræðileg mistök" ef
hann héldi áfram að ögra umheiminum.
Bent hefur verið á að ekki sé líklegt að aðgerð-
ir hefjist fyrr en að lokinni efnahagsráðstefnu
Norðuc-Afríkuríkja og Miðausturlanda sem fram
fer í Qatar nú um helgina. Ráðstefnunni, sem
m.a. verður sótt af Madeleine Albright, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, lýkur á þriðjudag.
Washington. Reuters
BANDARÍKJASTJÓRN sendi í gær flugmóður-
skipið George Washington áleiðis til Persaflóa.
Skipið verður viku á leiðinni og um borð eru 50
F-14 og F-18 þotur auk 20 annarra flugvéla. Ann-
að bandarískt flugmóðurskip, Nimitz, er á svæð-
inu auk þess sem breska flugmóðurskipið In-
vincible er á leið til Gíbraltar þar sem það verður
í viðbragðsstöðu. 16 herskip að auki eru á
Persaflóa.
Embættismenn í bandaríska varnarmálaráðu-
neytinu, er ekki vildu láta nafns síns getið, sögðu
að íhugað væri að senda F-117 torséðar orrustu-
þotur til Persaflóa ásamt öðrum herflugvélum.
Bandaríkjamenn hafa einnig aukið viðbúnað sinn
í herstöðvum í Tyrklandi og hert flugeftirlit yfir
Norður-Irak.
Spenna hefur fanð sívaxandi í samskiptum
ríkjanna frá því Irakar vísuðu bandarískum
vopnaeftirlitsmönnum úr landi fyrr í vikunni.
I Irak hafa óbreyttir borgarar safnast saman
við höll Saddams Husseins forseta og aðrar
stjórnarbyggingar, leiðtogum sínum til verndar.
Norðmenn og Rússar
ákveða þorskkvóta