Morgunblaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÁÐU ÞÉR MIÐA FYRIR K L. 20.20
AÐSENDAR GREINAR
Umhverfisreikning-
ur á Rafmagnsveitu
Reykjavíkur
ÞAÐ kom berlega í
ljós við undirbúning að
lagningu svokallaðrar
Nesjavallalínu frá raf-
orkuvirkjun Hitaveitu
Reykjavíkur á Nesja-
völlum að aðveitustöð
Rafmagnsveitu
Reykjavíkur við
Korpu, að gerbreytt
viðhorf til umhverfís-
mála auka stórkostlega
allan kostnað við slíka
mannvirkjagerð. Sam-
tals verður Rafmagns-
veita Reykjavíkur að
greiða aukalega um-
hverfisreikning að upp-
hæð tæplega 56 millj.
króna vegna breytinga á legu lín-
unnar og tafa, sem hlutust vegna
umhverfismats. Hér er um það háa
upphæð að ræða, að ástæða er til að
staldra við.
Viðræður við sveitarfélögin
Skýrsla Rafmagnsveitu Reykja-
víkur um umhverfisáhrif Nesja-
vallalínu var lögð fyrir Skipulag rík-
isins hinn 26. mars 1997 til af-
greiðslu. Áður en skýrslan var lögð
fram hafði tekist samkomulag við
Grafningshrepp og Mosfellsbæ um
línuleiðina frá orkuveri Hitaveitu
Reykjavíkur á Nesjavöllum að að-
veitustöð Rafmagnsveitu Reykja-
víkur við Korpu. Þetta samkomulag
náðist að undangengnum viðræðum
við fulltrúa sveitarfélaganna sem
hófst í september 1996. Svar frá
Grafningshreppi barst með bréfi
dagsettu 12. desember 1996 og nið-
urstaða frá Mosfellsbæ með bréfi
dagsettu 15. maí 1997. Niðurstaða
ar sú að Nesjavallalína verður lögð í
jörð á 2,4 kílómetra kafla frá Nesja-
vallavirkjun að Selskleif. Þar tekur
loftlína við, 15,6 kílómetrar að
lengd, niður að eyðibýlinu Bringum
við Mosfellsbringur, en þaðan niður
Mosfellsdal að Korpu verður lagður
jarðstrengur, 13,1 kílómetri að
lengd.
Breytinga krafíst
I viðræðum við Mosfellsbæ var
þess krafist að legu línunnar yrði
breytt frá því sem upphaflega var
ráðgert, þar sem línan kemur ofan af
Mosfellsheiði. Samkomulag varð um
að lengja jarðstrenginn efst í Mos-
fellsdal um 2,8 kílómetra og stytta
loftlínuna um 2,2 kílómetra með
endamastur iínunnar staðsett við Br-
ingur. Kostnaður við Nesjavallalín-
una mun hækka um 40,3 milljónir
króna með þessari breytingu. Skipu-
lag ííkisins auglýsti umhverfismat á
íramkvæmdum við Nesjavallah'nu 30.
maí 1997 með fresti til að gera at-
hugasemdir til 4. júlí. Skipulagsstjóri
ríldsins felldi úrskurð í matsmálinu
23. júlí, þar sem fallist er á lagningu
Nesjavallalínu eins og henni er lýst í
matsskýrslunni sem og lagningu
vegaslóða.
Hagstætt tilboð
Samkvæmt ákvæðum laga var
jafnframt veittur frestur til 29.
ágúst til að kæra úrskurð skipulags-
stjóra til umhverfisráðherra. Kæra
TI1J3CÐ
£jéðmyndaatofa
(junwcviA Jnyimwióóonart
Sudurveri, sími 553 4852
barst frá Náttúru-
verndarsamtökum ís-
lands dagsett 28. ágúst.
Urskurður ráðherra
var kveðinn upp 23.
október síðastliðinn,
þar sem staðfest er að
úrskurður skipulags-
stjóra frá 23. júlí skuli
standa óbreyttur. Með-
an á umhverfismatinu
stóð fór fram útboð á
slóðagerðarjarðvinnu
og undirstöðum fyrir
Nesjavallalínu. Hinn 29.
júlí ákvað borgarráð að
taka tilboði Ellerts
Skúlasonar hf. í verk
þetta að fjárhæð 45,7
milljónir króna, en kostnaðaráætlun
nam 65,5 milljónum króna og var
tilboðið 69,8% af áætlun, miðað við
að verkið yrði unnið á tímabilinu frá
Rafmagnsveita
Reykjavíkur verður að
greiða 56 m.kr. um-
hverfisreikning, segir
Alfreð Þorsteinsson,
vegna breytinga og
tafa, sem hlutust vegna
umhverfísmats.
6. ágúst til 28. nóvember næstkom-
andi.
Kostnaður eykst um 56
millj. kr.
Skipulag ríkisins ráðlagði Raf-
magnsveitu Reykjavíkur eindregið
að hefja ekki framkvæmdir við línu-
lögnina fyrir en endanleg niður-
staða úr umhverfismati lægi fyrir.
Verkið gat því ekki hafist á tilsett-
um tíma, 6. ágúst, og var gengið til
samninga við verktakann um
breyttan verktíma, þannig að verkið
verður unnið frá því í byrjun nóv-
ember til desemberloka 1997 og frá
því í apríl til júnfloka 1998. Vegna
breytinga á verkinu frá hausti yfir á
vetur og vor og bótum fyrir seinkun
framkvæmda hækkar kostnaður við
þetta verk um 15,6 milljónir króna.
Kostnaður við Nesjavallalínu hækk-
ar því samtals um 55,9 milljónir
króna vegna breytinga á línustæði
við Mosfellsbringur og tafa á verki
við slóðagerð og undirstöður og
verður því heildarkostnaður Nesja-
vallalínu með þessum breytingum
415 milljónir.
Endurspeglar átök
Erfitt er að leggja mat á hvort
þær breytingar sem gerðar voiu á
línunni séu 55,9 milljóna króna
virði, en þessi kostnaðarauki endur-
speglar þau miklu átök sem eiga sér
stað vegna breyttra viðhorfa í um-
hverfismálum hin síðari ár. Spyrja
má hvort áhugamenn um umhverf-
isvernd fari ekki fullgeyst í mál-
flutningi sínum eða þeir sem undfr-
búa framkvæmdir við virkjanir séu
nógu varkárir. Hér verður að fara
bil beggja að sjálfsögðu, því hvorki
verða framfarir stöðvaðar né látið
af sanngjörnum kröfum um um-
hverfisvernd. Það er því ástæða að
hvetja til þess að báðir aðilar hugsi
sinn gang vel og komi í veg fyrir
óþarfa kostnað. Sem betur fer er
áætlaður heildarkostnaður við
Nesjavallalínu töluvert innan við
kostnaðaráætlun þrátt fyrir þessar
breytingar eða 415 milljónir.
Rafmagnsveitan sleppur fyrir
horn í þessu máli, því að kostnaðar-
'áætlunin hljóðaði upp á rúmar 460
millj. króna, en það eru hagstæð til-
boð í aðra þætti, sem lækka heildar-
kostnaðinn.
Alfreð
Þorsteinsson
i
Höfundur er borgarfulltníi.