Morgunblaðið - 15.11.1997, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997
MORGUNB LAÐIÐ
FRÉTTIR
Tækni og
lífsstíll
í Perlunni
SÝNINGIN Tækni-Lífsstíll ‘97
var opnuð í Perlunni í gær og
stendur hún fram á sunnudag.
A sýningunni, sem tólf fyrir-
tæki á tölvusviðinu standa að,
verða kynntir möguleikar
heimilistölvunnar og Netsins
og er henni ætlað að höfða til
heimila og fjölskyldna.
Blaðamannafélag Islands 100 ára
Fjölmiðlun
á nýrri öld
BLAÐAMANNAFÉLAG íslands fagnar 100 ára afmæli sínu 19. nóvember
næstkomandi með fjölmiðlaviku 17.-22. nóvember. Dagskrá verður á veit-
ingahúsiriu Sóloni íslandusi frá mánudagskvöldi til fímmtudagskvölds en
afmælishátíð verður á Hótel Islandi laugardagskvöldið 22. nóvember.
Morgunblaðið/Þorkell
BJÖRN Bjarnason menntamálaráðherra opnaði
sýningnna Tækni-Lífsstíll ‘97 í Perlunni í gær.
Dagskráin á Sóloni íslandusi
verður fjölbreytt og víða komið við.
17. nóvember verður létt söng- og
sögukvöld. Kór Frjálsrar fjölmiðl-
unar og Starfsmannakór Stöðvar 2
syngja og eldri og yngri félagar
segja frá eftirminniiegum atvikum
úr starfinu.
Amælishátíð á Hótel íslandi
18. nóvember verður umræðu-
fundur á vegum Blaðaljósmynd-
arafélagsins um helstu mál sem
eru efst á baugi hjá ljósmyndurum.
Miðvikudagskvöldið, 19. nóvember,
sem er afmælisdagur Blaðamanna-
félags Islands, verður hátíðardag-
skrá á Sóloni Islandusi. Þar verða
þrír félagar heiðraðir fyrir 40 ára
starf við fjölmiðlun. Einnig verður
lesið úr Fjölmiðlasögu Islands sem
er nú í lokavinrislu. Bókin verður
um 700 blaðsíður í stóru broti og
ríkulega myndskreytt. Guðjón
Friðriksson, höfundur bókarinnar,
fjallar um efni hennar og samsetn-
ingu. Umsjón með myndefni hefur
verið í höndum Ólafs E. Friðriks-
sonar. Sérstök afmælissögunefnd
hefur unnið að þessu verki ásamt
höfundi undir stjórn Bjöms Vignis
Sigurpálssonar ritstjómarfulltrúa.
Fjölmiðlasagan er unnin í sam-
Jjg§j§í§
Morgunblaðið/Rax
HJÁLMAR Jónsson, varaformaður Blaðamannafélags íslands, og Lúð-
vík Geirsson formaður gera grein fyrir dagskrá afmælishátíðar.
vinnu við bókaútgáfuna Iðunni.
Stefnt er að útgáfu bókarinnar
fljótlega upp úr næstu áramótum.
Umræðufundur um framtíð ís-
lenskrar fjölmiðlunar, Fjölmiðlun á
nýrri öld, verður í Hjáleigunni, á
efstu hæð Alþýðuhússins við
Hverfisgötu nk. fimmtudagskvöld
kl. 20.30. Meðal þátttakenda í um-
ræðunni era Páll Magnússon
fréttastjóri, Hallgrímur Thor-
steinsson margmiðlunarfræðingur,
Styrmir Gunnarsson ritstjóri og
Valgerður Jóhannsdóttir frétta-
stjóri.
Afmælishátíð í tilefni af 100 ára
afmæli BI verður á Hótel íslandi
laugardagskvöldið 22. nóvember.
Heiðursgestir verða Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Islands, og frú
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir,
Davíð Oddsson forsætisráðherra
og frú Ástríður Thorarensen. Sér-
stakm- gestur á hátíðinni verður
Jens Linde, forseti IFJ, alþjóða-
sambands blaðamanna. Þá verður
fjöldi annarra erlendra og inn-
lendra gesta. Hátíðarræðu kvöld-
ins flytur Matthías Johannessen
ritstjóri.
Skarfaklettur
Skemmdir á
rafkerfinu
VEL gekk að ná Skarfakletti GK 3
af strandstað við Setberg skammt
sunnan Sandgerðis í fyrrinótt en
trillan strandaði þar laust eftir
kvöldmat á fimmtudagskvöld. Trill-
an sigldi fyrir eigin vélarafli í höfn í
Sandgerði.
Félagar í björgunarsveitunum
Sigurvon og Ægi vora á strandstað
og losuðu afla og annað lauslegt úr
bátnum. Hægt var að draga bátinn
út þegar flætt hafði undir hann milli
klukkan 3 og 4. Vél Skarfakletts var
ræst og honum siglt fyrir eigin vél-
arafli til Sandgerðis. Gunnar Þór
Grétarsson skipstjóri sagði skemmd-
irnar aðallega á rafkerfinu þar sem
sjór hefði farið yfir geyma og í töflu.
Félagsmálakönnim Blaðamannafélags íslands
Menntun blaðamanna - skipting eftir kyni
%
40
30
20
10
r~l Karlar
□ Konur
i il I ! 1
Grunn- Versl,- Stúdents- BA/BS MA/MSc Annað Hagnýt Blaðam,-
skóli eða próf eða BEd próf háskóla- fjöl- skóli
iðnskóli próf próf miðlun erlendis
Traust fjölmiðlanna í samfélaginu
____ ■ að áliti biaðamanna
Svarendur gáfu frétta-
miðlunum einkunn
og þeir fengu þessar
meðaleinkunnir
til vina erlendis
Hér er fjallað um þær 23 tegundir hvala
sem sést hafa við íslandsstrendur og helstu
einkennum þeirra lýst í máli og myndum.
Glæsilega myndskreytt og litprentuð.
Fæst á íslensku, ensku 09 þýsku
4>
FORLAGIÐ
I--m. 1 1, mm—“^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■l
Laugavegi 18 • Sfml 515 2500 • Sfðumúla 7 • Sími 510 2500
Anægðir í starfi en
óánægðir með laun
HINN dæmigerði blaðamaður er
miðaldra, búsettur í Reykjavík, er
með háskólapróf og er f föstu starfi
hjá reykvísku dagblaði. Mánaðar-
tekjur hans voru fyrir síðustu
kjarasamninga um 190 þúsund
krónur fyrir rúmlega 50 tíma
vinnuviku og honum líkar vel starf
sitt.
Þetta má m.a. lesa út úr niður-
stöðum könnunar sem Viðhorf ehf.
gerði á kjörum og viðhorfum
blaða- og fréttamanna fyrir Blaða-
mannafélag íslands í tilefni af ald-
arafmæli félagsins. Könnunin birt-
ist í afmælisútgáfu Blaðamannsins,
fréttarits Blaðamannafélags ís-
lands.
Leitað var viðhorfa hjá 467 fé-
lögum í Blaðamannafélagi Islands
og svaraði þriðjungur þeirra
spurningunum. I könnuninni kem-
ur fram að næstum helmingur
blaðamanna er óánægður með laun
sín og er óánægjan mest meðal
kvenna. Fjórir af hverjum fimm
blaðamönnum segja að þeir verði
varir við streitu í starfi. Engu að
síður eru átta af hverjum tíu blaða-
mönnum ánægðir með vinnu sína.
Tæplega 72% töldu ekki nægi-
legt framboð af grunnmenntun fyr-
ir blaðamenn og 84% að ekki væri
nægilegt framboð af endur- og sí-
menntunarnámskeiðum. Engu að
síður höfðu aðeins 40% nýtt sér
endur- og símenntunarnámskeið.
79% svarenda töldu að fjölmiðlar
fylgdu málum ekki nægilega eftir
og kenndu flestir uin tímaskorti, að
mál gleymdust vegna manneklu og
að mál dæju snögglega.
Meirihluti blaðamanna telur að
blaðamcnnska hér á landi sé betri
en hún var fyrir áratug og tveir af
hverjum þremur svarenda telja að
mikill faglegur metnaður sé ríkj-
andi á þeim vinnustað sem þeir
starfa á. Meiri rannsóknarblaða-
mennska og ítarlegar fréttaskýr-
ingar eru efst á óskalista blaða-
manna þegar þeir eru spurðir um
hvað vanti í íslenska fjölmiðla. Þá
leiddi könnunin í ljós að íslenskir
blaðamenn vilja vera aðgangsharð-
ari en þeir eru nú. Tveir af hverj-
um þremur blaðamönnum segja ís-
lenska blaðamenn ekki vera nægi-
Iega aðgangsharða við viðmælend-
ur sína.
►
I
i
I
i
i
I