Morgunblaðið - 15.11.1997, Síða 2

Morgunblaðið - 15.11.1997, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Metró-vél FÍ Bilun í rofa við kompás „LÍTILL rofi við kompás annarrar nýju Metró-vélarinnar bilaði og þar sem við áttum hann ekki á lager þurftum við að senda eftir honum til Bandaríkjanna. Þetta er mjög smá- vægileg bilun og vélin verður von- andi komin í gagnið á ný á sunnu- dag eða mánudag,“ sagði Páll Hall- dórsson, framkvæmdastjóri Flugfé- lags íslands, í samtali við Morgun- blaðið. Lið KA í handbolta karla flaug frá Akureyri til Keflavíkur í gær- morgun, en þaðan fór liðið til Kaup- mannahafnar og er lokaáfanginn Zagreb í Króatíu, þar sem liðið keppir á sunnudag. Til stóð að Metró-vélin yrði notuð milli Akur- eyrar og Keflavíkur, en bilunin í henni kom upp á fimmtudag. Páll sagði að bilunin í Metró-vél- inni hefði ekki tafið for KA-manna, því Flugfélagið hefði sent Twin Ott- er vél í hennar stað. „Ferð KA var hins vegar flýtt lítillega vegna þessa. Svo vonumst við til að fá varahlutinn um helgina og á meðan vélin er ónothæf leysum við það með öðrum vélum.“ FRETTIR Samkeppnisráð telur að kókódrykkir eigi að vera í sama þrepi virðisaukaskatts Sama hvort vatnið kemur úr kú eða krana SAMKEPPNISRÁÐ hefur beint þeim ein- dregnu tilmælum til fjármálaráðuneytisins að tollflokkun kókódrykkjarins Jibbí, sem Sól hf. framleiðir og ber 24,5% virðisaukaskatt, verði endurskoðuð með það að markmiði að gjald- skylda virðisaukaskattsins verði með sama hætti og gildir fyrir hliðstæðar vörur, svo sem MS kókómjólk, sem ber 14% virðisaukaskatt. Samkeppnisstofnun barst erindi frá Sól hf. 16. október síðastliðinn þar sem óskað var eftir áliti stofnunarinnar á þeim úrskurði fjármála- ráðuneytisins að kókódrykkurinn Jibbí skuli bera 24,5% virðisaukaskatt, en helstu sam- keppnisvörur Jibbí, sem eru MS kókómjólk og innflutt Nesquick kókómjólk, bera 14% virðis- aukaskatt. Fram kemur í erindinu að Jibbí er ís- lensk afurð sem búin er til úr íslensku undan- rennudufti, smjöri, vatni og fleiri efnum. Toll- stjórinn í Reykjavík hafi ákvarðað að innihaldið sé innan við 75% mjólkurafurðir og því lendi varan í tollflokki þar sem vörugjald sé 8 kr. á lítra og virðisaukaskatturinn 24,5%. í framhaldi af ákvörðun tollstjórans óskaði Sól hf. eftir því við fjármálaráðuneytið að ákvörðun tollstjóra yrði endurskoðuð og gjöld ákvörðuð þannig að höfð verði að leiðarljósi hin almenna regla um að sams konar vörur beri sambærileg vörugjöld og virðisaukaskatt, og vísaði Sól hf. þai- til MS kókómjólkur. Ráðu- neytið gaf hins vegar þá skýringu að mismunur væri á gjaldskyldu drykkjanna vegna þess að MS kókómjólkin teldist vera úr mjólkurafurðum en kókódrykkurinn Jibbí ekki. Nánast sömu efni í drykkjunum í áliti samkeppnisráðs kemur fram að kókó- drykkurinn Jibbí sé framleiddur úr undan- rennudufti, smjöri og vatni auk fleiri efna, og samkvæmt efnagreiningu sem framkvæmd hafi verið hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins séu nánast sömu efni í Jibbí og MS kókó- mjójk. „í framleiðslu Sólai- hf. eru prótein og fita I § i 4,9% og vatn 83,4%. í framleiðslu MS eru prótein og fita 4,2% og vatn 85,6%. Helsti mun- urinn á þessum vörum virðist vera sá að vatnið í MS kókómjólkinni kemur úr kúnni, en hjá Sól hf. er vatninu bætt í vöruna í framleiðslunni,11 segir í álitinu. Bent er á að markmið samkeppnislaga sé að efla virka samkeppni í viðskiptum og vinna þar með að hagkvæmri nýtingu framleiðsluþátta þjóðfélagsins. Þessu markmiði skuli náð, m.a. með því að efla virka samkeppni í viðskiptum, vinna gegn samkeppnishömlum og auðvelda að- gang nýrra keppinauta að markaðnum, en mis- munandi gjaldskylda virðisaukaskatts af sam- keppnisvörum dragi úr samkeppni og sé til þess fallin að útiloka aðila frá markaðnum. „Vara sem ber hærri virðisaukaskatt verður dýrari til neytandans, og samkeppnisstaða henn- ar því lakari. Þær tvær vörutegundir sem hér er um rætt eru að mati samkeppnisráðs hliðstæðar og ættu því að vera í sama þrepi virðisauka- skatts," segir í áliti samkeppnisráðs. I I Morgunblaðið/RAX Tyrft á Seltjarnarnesi ÞEIR voru kátir í góða veðrinu þessir ungu menn sem bæði lítið og lágt er það drjúg spilda sem þeir eru að Ijósmyndari hitti í gær á norðanverðu Seltjarnarnes- tyrfa þessa dagana, eða um þtjú þúsund fermetra inu. Jafnvel þó að segi í kvæðinu að Seltjarnarnesið sé svæði. Aðalfundur HÍK ræðir siðareglur fyrir kennara Kennara ber að nota fremur lof en ávítur „KENNARA ber að nota fremur lof en ávítur og sé hvoru tveggja beitt af sanngirni. Honum ber að gæta þess að álasa nemanda aldrei fyrir hæfileikaskort," segir m.a. í drögum að siðareglum fyrir kenn- ara, sem unnin hafa verið sameig- inlega af Hinu íslenska kennarafé- lagi og Kennarasambandi íslands. Drögin að siðareglum kennara liggja fyrir aðalfundi HIK, sem fylgiskjal með tillögu um stofnun nýs kennarafélags fyrir alla grunn- og framhaldsskólakennara. í drögunum er m.a. að finna eft- irfarandi siðareglur: „Kennara ber að hafa hagsmuni nemenda að leið- arljósi, efla sjálfsmynd þeirra og sýna hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.“ „Kennara ber að hafa jafnrétti allra nemenda að leiðarljósi í skólastarfi." „Kenn- ara ber að gæta trúnaðar við nem- endur og virða þann trúnað sem nemendur sýna honum.“ „Kennara ber að gæta þagmælsku um einka- mál nemenda og forráðamanna þeirra sem hann fær vitneskju um í starfi. Þó er kennurum heimilt að veita samstarfsaðilum upplýsingar telji hann það til góðs fyrir nem- endur.“ Siðanefnd getur veitt áminningar Gert er ráð fyrir að sett verði á fót siðanefnd kennarafélaganna sem geti áminnt kennara sem bijóta þessar reglur, teljist brotið sannað. Geta foreldrafélög við skóla, nemendafélög, stjómendur skóla, skólaskrifstofur, bama- vemdaryfirvöld og stéttarfélög kennara skotið málum til siða- nefndarinnar. Nemendur, foreldr- ar og kennarar geta því aðeins vís- að málum til nefndarinnar að þeir hafi áður reynt að leysa sín mál hjá ofangreindum aðilum. í greinargerð sem íylgir siða- regludrögunum kemur fram að vinna við skrásetningu siðareglna kennara hefur staðið yfir allt frá árinu 1991, m.a. hjá samstarfshópi úr skólamálahópum kennarafélag- anna og var einnig leitað ráðgjafar siðfræðinga og lögfræðinga við mótun reglnanna. ■ Tillaga/12 Ákærðir fyrir manndráp og rán » 25 ÁRA tvíburabræðrum, Ólafi Hannesi og Sigurði Júlíusi Hálfdán- arsonum, var í gær birt ákæra fyrir að hafa orðið Lárusi Ágústi Lárus- syni að bana í Heiðmörk aðfaranótt fimmtudagsins 2. október sl. í ákæranni er bræðrunum gefið að sök að hafa í félagi ráðið mann- inum bana með hrottafengnum hætti. Sigurður Júlíus er ákærður fyrir að hafa látið 13 kg steinhnull- ung falla a.m.k. tvívegis í höfuð hans þar sem hann lá varnarlaus og Ólafur Hannes fyrir að lemja og sparka margsinnis í höfuð hans. Þá era þeir ákærðir fyrir að hafa ekið bifreiðinni, með Ólaf Hannes undir stýri, tvívegis yfir líkama og höfuð mannsins. Við þessa aðfór náðu bræðurnir peningaveski mannsins, MORGUNBLAÐINU í dag fylgir Lesbók Morgunblaðs- ins - menning/listir/þjóðfræði. Meðal efnis í blaðinu er grein um hinn ástsæla bamabóka- höfund Astrid Lindgren í til- efni af níræðisafmæli hennar, grein eftir Ara Trausta Guð- mundsson jarðeðlisfræðing um hálendið og viðtal við breska konu sem var fyrsti flautuleikari Sinfóníuhljóm- sveitar íslands íyrir liðlega þremur áratugum. Þá er í Lesbók viðtal við einn af kunnari söfnurum Bandaríkj- anna. sem í voru 8 þúsund krónur, og |l höfðu á brott með sér. Fyrir hönd ekkju Lárasar Ágústs og þriggja sona þeirra var gerð sú krafa fyrir dómi að bræð- urnir verði dæmdir til að greiða skaðabætur á grundvelli skaða- bótalaga, samtals tæpai' 9 milljónir króna. Mál ákæravaldsins gegn bræðr- ^ unum vai’ þingfest í Héraðsdómi h. Reykjaness í gær. Aðalmeðferð þess hefst 28. nóvember og fer 0 Gunnar Aðalsteinsson héraðsdóm- ari með málið. Af hálfu ákæravaldsins var farið fram á framlengingu gæsluvarð- halds bræðranna og er ljóst að þeir munu sæta gæslu þar til dómur fell- ur. Fíkni- * efm í Kópavogi TVÖ ungmenni voru tekin með fíkniefni í Kópavogi í fyrrinótt. Lög- reglan stöðvaði bíl vegna umferðar- eftirlits og vaknaði þá grunur um að J þau gætu verið með fíkniefni sem h reyndist á rökum reistur. Rannsóknadeild lögreglunnar 1 hefur málið til meðferðar og voru ungmennin í haldi fram eftir gær- deginum meðan mál þeirra var rannsakað. Lítils háttar af am- fetamíni fannst í sokk í fórum ung- mennanna og taldist málið í gær að mestu upplýst og var þeim sleppt í framhaldi af því. --------------- Akureyri Hestur lenti á bíl BÍLL skemmdist nokkuð þegar hestur lenti á honum skammt norð- an við Akureyri í gærkvöldi. | Að sögn lögreglu sveigði öku- maður bílsins út af þegar hann sá hestinn á veginum. Svo virðist sem | hesturinn hafi fælst, hlaupið á eftir bílnum og lent á honum. Hestinn sakaði ekki en nokkrar skemmdir urðu á bílnum. I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.