Morgunblaðið - 15.11.1997, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 15. NOVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Mikill meiri-
hluti hlynntur
átakinu
AKUREYRI
*
Aform sveitarstjórnar Gerðahrepps um reyklaust sveitarfélag árið 2001 fær jákvæðar viðtökur
Keflavík - „Markmið okkar er að ná
samstöðu með félagasamtökum,
fyrirtækjum og öllum íbúum sveit-
arfélagsins að taka höndum saman
og vinna að því takmarki að gera
Garðinn reyklausan árið 2001,“
sagði Sigurður Jónsson, sveitar-
stjóri Gerðahrepps, við kynningu á
átakinu „Reyklaus Gerðahreppur
árið 2001“, í Garði í vikunni.
Sigurður sagði að Þórður Marels-
son, starfsmaður hreppsins í íþrótta-
og æskulýðsmálum, hefði komið með
þessa hugmynd sem hefði strax
fengið jákvæðar móttökur. í fram-
haldi hefði farið fram skoðanakönn-
un meðal íbúa um hvort þeir væru
hlynntir að taka höndum saman og
vinna að slíku átaki og hefði niður-
staðan verið sú að 72% svarenda
væru hlynnt átakinu.
Sigurður sagði að menn hefðu þá
þegar farið að vinna að undirbún-
ingi og fengið tóbaksvarnarnefnd til
liðs við sig. I framhaldi af því hefði
Morgunblaðið/ Eyjólfur M. Guðmundsson
SJONVARPSLOFTNET á þaki
húss í Vogum.
Flóð og
fjara ráða
móttöku
örbylgju-
sendinga
Vogum - Samband sveitarfélaga á
Suðurnesjum lét gera mælingar á
sjónvarps- og útvarpsmerkjum á
Suðurnesjum 16.-17. október síð-
astliðinn. Niðurstaða mæiinganna
sýnir að víða á Suðumesjum er
styrkur þessara merkja í eða undir
lágmarki. Víða þarf að nota mörg og
stór loftnet með mikilli mögnun til
að ná merkjunum.
í Vogum er málum þannig háttað
að íbúar þurfa á tveimur loftnetum
að halda til að geta horft á Ríkis-
sjónvarpið á endurvarpa á
Vogastapa, og Stöð 2 og Sýn sæmi-
lega frá Reykjavík.
í móttöku á örbylgjusendingu
verður að taka tillit til þess hvort sé
flóð eða fjara. Einnig eru skilyrðin
mjög slæm í sléttum sjó og sólskini.
Varðandi styrk á sendingu á endur-
varpi frá vatnstanki í Keflavík á það
sama við um hann, ef skilyrðin á
móttöku eru slæm, skilar hann
slæmu sjónvarpsmerki.
Æskilegt væri til dæmis, segir í
skýrslunni, að Stöð 2 og Sýn myndu
setja upp endurvarpa hjá endur-
varpa RUV á Vogastapa þannig að
bæjarbúar þyrftu aðeins eitt loftnet
fyrir ofantaldar sjónvarpsstöðvar.
Til að bæta móttöku á merki frá
Fjölvarpinu þyrfti íslenska útvarps-
félagið til dæmis að senda merkið í
gegnum ljósleiðara til endurvarpans
á vatnstankinum í Keflavík.
verið haldinn fundur með fulltrúum
tóbaksvamarnefndar, með aðilum
frá félagasamtökum, skóla, vinnu-
eftirliti og fleirum nýverið þar sem
fjallað var um skaðsemi reykinga og
gerð grein fyrir væntanlegu átaki.
Þar hefði komið fram mjög jákvæð
viðhorf allra aðila til að ráðast í
verkefnið sem síðan hefði verið
samþykkt í sveitarstjórn. „Við
neyðum engan til að hætta að
reykja. Það breytir engu þótt við
setjum lög þar um eða sveitarstjóm
samþykki einhver boð og bönn,
enda tilgangurinn ekki sá með
þessu átaki. Við viljum fá íbúa sveit-
arfélagsins með okkur á jákvæðu
nótunum til að huga að þessum mál-
um. Við viljum að sveitarfélag okk-
ar hafi forystu meðal annarra sveit-
arfélaga til að ná þessu markmiði.
Næstu skref okkar era að leita á
formlegan hátt til félagasamtaka,
fyrirtækja, stofnana og allra íbúa í
Garðinum að taka nú höndum sam-
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
FRÁ kynningu á átakinu í vikunni. F.v.: Þorvarður Örnólfsson, formaður tóbaksvarnarnefndar, Sveinn Ö.
Steinarsson, Edvin Jónsson, Jón Berg Reynisson, Sigurður Jónsson sveitarstjóri og Þórður Marelsson. Fyrir
aftan er Þorgrímur Þráinsson, framkvæmdastjóri tóbaksvarnarnefndar.
an til að vinna að þessu verkefni,“
sagði Sigurður Jónsson ennfremur.
1.300 reyklausir vinnustaðir
Þorvarður Ömólfsson, formaður
tóbaksvamamefndar, sagði að
margt hefði áunnist á undanfómum
árum og nú væri vitað um 1.300
reyklausa vinnustaði. Hann sagði að
áætlað væri að um 300 íslendingar
dæju árlega vegna afleiðinga af
notkun tóbaks. Ljóst væri að tó-
baksframleiðendur væm afar snjall-
ir í áróðri sínum og því mætti á eng-
an hátt slaka á kynningu á áhrifum
og skaðsemi tóbaksreykinga. í
Garði eru þrjár verslanir sem selja
tóbak og kom fram að þegar hefði
ein þeirra sett tóbakið „undir borð“
þannig að viðskiptavinurinn sæi
ekki að tóbak væri til sölu.
Olafsvíkurkirkja 30 ára
þann 19. nóvember
Ólafsvík - Hin nýtískulega Ólafsvíkurkirkja á 30 ára
vígsluafmæli þann 19. nóvember nk. Af því tilefni verð-
ur hátíðarmessa í kirkjunni þann 16. nóvember kl.
14.00. Þar mun biskup Islands, herra Ólafur Skúlason,
prédika, en sóknarpresturinn, sr. Friðrik J. Hjartar
þjóna fyrir altari. Kirkjukórinn syngur undir stjóm
organistans Kjartans Eggertssonar, en Veronika Oster-
hammer syngur einsöng.
Að messu lokinni verður boðið til kirkjukaffis í Fé-
lagsheimilinu á Klifi, en þar verður einnig komið fyrir
sýningu á ljósmyndum og skjölum er varða byggingu og
sögu kirkjunnar. Fyrrverandi sóknarprestum, sóknar-
prestum prófastsdæmisins og sóknarnefndarformönn-
um safnaðanna í Snæfellsbæ hefur verið boðið sérstak-
lega til þessarar hátíðarmessu, en allir eru að sjálfsögðu
velkomnir að gleðjast með söfnuðinum af þessu tilefni.
Tónleikar kirkjukórsins
Á sjálfan afmælisdaginn, miðvikudaginn 19. nóvember,
mun kirkjukór Ólafsvíkurkirkju halda sérstaka tónleika í
kirkjunm með fjölbreyttu efni í tilefni þessara tímamóta.
Þar koma einnig fram Bamakór Gmnnskólans í Ólafsvík,
kennarar tónlistarskólanna, einsöngvari og fl.
Morgunblaðið/Gísli Wíum
ÖLAFSVÍKURKIRKJA.
V estmannaeyjar
Minning
látinna í
Landakirkju
Morgunblaðið/Ágúst
FRÁ kennsluaðstöðunni í hársnyrtideild Verkmenntaskólans.
Hársnyrtideild
formlega opnuð
Neskaupstað - Nú á dögunum var
hársnyrtideild Verkmenntaskóla
Austurlands formlega opnuð og
kyunt.
Hársnyrtideildin við skólann tók
til starfa í haust og eru 12 nem-
eudur víðsvegar af Austurlandi við
nám í deildinni og komust færri að
en vildu.
Töluverður fjöldi gesta var við-
staddur þegar Helga Steinsson
skólameistari opnaði hársnyrti-
deildina formlega og þáðu þeir
veitingar í boði skólans.
Reykjanesbær semur um stætisvagna
Samningur
gerður við SBK
til ársins 2002
Keflavík- Reykjanesbær und-
irritaði nýlega verksamning við
Sérleyfisbifreiðir Keflavíkur
h.f. um rekstur almennings-
vagna í bæjarfélaginu til ársins
2002. Að sögn Ellerts Eiríks-
sonar var hér um að ræða stað-
festing á samkomulagi sem gert
var um síðustu áramót. Um
væri að ræða samning til 6 ára
að upphæð tæplega 42 milljónir
á ári.
Sérleyfisbifreiðum Keflavík-
ur var nýlega breytt í hlutafé-
lag sem er að 90% í eigu bæjar-
ins. Ellert sagði að almennings-
vagnar ækju á þrem leiðum í
Keflavík og Njarðvík frá því kl.
6.40 á morgnanna til klukkan
24.00 virka daga auk ferða til
Hafna. Ellert sagði að ákveðið
væri að rekstur almennings-
vagna yrði boðinn út að 6 árum
liðnum þegar samningurinn við
SBK h.f. rynni út. Við þetta
tækifæri var einnig gengið frá
kaupsamningi og afsali að
Hafnargötu 12 til SBK h.f. þar
sem starfsemi fyrirtækisins er
til húsa.
Á ÁRI hverju er haldin sérstök
athöfn í Landakirkju sem ber
heitið minning látinna. Þar eru
nöfn allra, sem jarðsungnir hafa
verið frá kirkjunni á liðnu ári,
lesin upp við altarið og syrgjend-
um gefst kostur á að ganga fram
og kveikja lifandi ljós í minningu
ástvina sinna.
1 kynningu segir: „Þessi stund
hefur ætíð verið fjölsótt og inni-
haldsrík og hvetjum við sem flesta
syrgjendur til að koma. Einnig er
vakin athygli á því að vilji einhver
að nafn látins ástvinar, sem ekki
var jarðsunginn frá kirkjunni á
liðnu ári, verði nefnt við altarið
tökum við prestarnir fúslega við
slíkum beiðnum."
Athöfnin verður haldin á mið-
vikudagskvöldið kl. 20.30.