Morgunblaðið - 15.11.1997, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 15.11.1997, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 19 Microsoft kem- ur á fót miðstöð á Indlandi Áfram kreppa í þýzkum bygging- ariðnaði Frankfurt. Reuters. NÚVERANDI atvinnukreppa í byggingariðnaði Þýskalands heldur áfram 1998 og störfum mun fækka um 70.000 á næsta ári að sögn sam- taka vinnuveitenda í þýzkum bygg- ingariðnaði, HDB. Veikleiki í byggingariðnaðinum yfirieitt, lítil fjárfesting og sam- keppni frá illa launuðum erlendum verkamönnum mun leiða til þess að þýskum byggingarverkamönnum mun fækka. Umskipta er heldur ekki að vænta 1999 að sögn HDB. Hins aukna atvinnuleysis í greininni mun að langmestu leyti gæta í austurhluta Þýskalands, þar sem búizt er við að störfum fækki um 40.000. HDB gerir ráð fyrir að fjárfest- ingar í Vestur-Þýzkalandi dragist saman um 4-5% 1998, en fjárfest- ingar í Austur-Þýzkalandi munu minnka um 7-8% á næsta ári. Wilhelm Kuchler, varaforseti HDB, sagði að horfur í geiranum yllu því að varla yrði nokkurt svig- rúm til launahækkana í næstu lotu viðræðna um kaup og kjör við IG Bau, félag byggingarverkamanna, í apríl. ---------------- Kerkorian biarsrvættur MGM Los Angeles. Reuters. AUÐMAÐURINN Kirk Kerkorian eða einhver annar velgerðarmaður kunna að bjarga Metro-Goldwyn- Mayer kvikmyndaverinu vegna dræmra undirtekta sem hlutabréfa- útboð þess hefur fengið. Að sögn talsmanns MGM eru níu milljónir hlutabréfa í boði á 20 doll- ara bréfið. Upphaflega voru 12,5 milljónir í boði og þar sem þeim var fækkað hafa sérfræðingar talað um tak- markaðan áhuga. Ein ástæðan var hins vegar sú að áhrifamesti eignaraðili MGM, Trac- inda Corp. - eign Kerkorians - hét því að kaupa hlutabréf að verðmæti 75 milljónir dollara. Mikilvægur stuðningur Þegar MGM kynnti hlutabréfin fjárfestum var lögð áherzla á kvik- myndasafn fyrirtækisins, þekkt vörumerki og eignarrétt á ofumjósn- aranum James Bond, hinum fræga leynierindreka 007. Sumir sérfræðingar telja að áhugi nýrra fjárfesta á fyrirtækinu stafi fyrst og fremst af stuðningi Kerkor- ians. „Ef Wall Street vill skyndigróða er ég ekki viss um að þetta sé rétta leiðin," sagði sérfræðingur Cruttend- en Roth Inc. „En Kirk hefur lengi verið snillingur í að gera meðeigend- ur sína ríka.“ -----♦ ♦ ♦------ 2 milljónir ítala kaupa í Tel. Italia Róm. Reuters. ÍTALSKA stjórnin segir að hún hafi afiað nærri 12 milljarða dollara með lokasölu hlutabréfa í Telecom Italia og að litlir fjárfestar hafi keypt flest bréfin í mestu einkavæðingu, sem um getur á Ítalíu. Carlo Azeglio Ciampi fjármálaráð- herra sagði að rúmiega tvær milljón- ir ítala hefðu skrifað sig fyrir hluta- bréfum í fimmta stærsta fjarskipta- félagi heims á einni viku þegar um 34% í fyrirtækinu voru seld. Eftir- spurn stofnanafjárfesta var hins veg- ar dræm. Nýju Delhi. Reuters. MICROSOFT hyggst koma á fót hugbúnaðarmiðstöð á Indlandi og verður hún fyrsta meiriháttar mið- stöðin utan Bandaríkjanna að sögn taismanna fyrirtækisins. Stýrikerfi Microsoft er notað í átta af hveijum tíu PC-tölvum í heiminum, en hingað til hefur fyrirtækið framleitt hugbúnað sinn eingöngu í bækistöð sinni í Red- mond í Bandaríkjunum. Microsoft ætlar að setja á lagg- irnar 80 milljóna dollara rannsókn- arstofu í Cambridge háskóla í Bret- landi til að þróa nýja tölvutækni. Miðstöðin á Indlandi verður fyrsta þróunarmiðstöð fyrirtækisins utan Bandaríkjanna. Orlando Ayala, sem fer með utanríkismál Microsoft, sagði að nota mætti Indlandsmiðstöðina til að þróa algerlega nýjan hugbúnað, ef til vill ótengdan fyrra starfí fyrirtækisins. Að hans sögn má vera að starf nýju miðstöðvarinnar verði í litlum stíl í fyrstu, en að lokum kunni hundruð hugbúnaðarfræðinga að starfa við hana. Atkvæðamiklir á S-Indlandi Microsoft hefur látið mikið að sér kveða í fylkinu Andhra Pradesh á Suður-Indlandi, þar sem hleypt hefur verið af stað áætlun um að koma á fót upplýsingatæknigarði til að þróa margmiðlunarhugbún- að. Borgin Bangalore í grannfylkinu Kamataka hefur þegar haslað sér völl sem alþjóðleg hugbúnaðarmið- stöð og atvinnumenn í greininni segja að á Indlandi sé mesta úrval menntaðra hugbúnaðarsérfræð- inga í heiminum. Þijú ár eru síðan Microsoft hóf fjárfestingar á Indlandi. Um 900 hugbúnaðarfræðingar starfa í bækistöðinni í Redmond, þar sem Bill Gates, einn ríkasti maður heims, stjórnar heimsveldi Micro- soft. Gates á 25% hlut í Microsoft og er markaðsverðgildið meira en 23 milljarðar dollara. áj ^felkc elkomin í TILBOÐ Minni Stærri Risastór b. IfeSt ■ - .. JlélAvSR^EVHlN^AK Fræðslufundir kl. 20 - 22 Reykjavík og Akureyri Skreytingameistarar Blómavals skemmta gestum og sýna listir sínar við jólaskreytingar. Munið að skrá þátttöku. Mánudaginn 17.nóv.-þriðjudaginn 18.nóv. og miðvikudaginn 19. nóv. í Reykjavík Skráið þátttöku í sínuv5689070 Akureyri fimmtudaginn 20. nóv. Skráið þátttöku í síma: 461 3200 ítölsk kaffikynning í boði: uivAun Jákdtmdið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.