Morgunblaðið - 15.11.1997, Side 22

Morgunblaðið - 15.11.1997, Side 22
22 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 ERLENT MOEGUNBLAÐIÐ Fresta fundi með Tævönum KÍNVERJAR kváðust í gær hafa frestað ráðstefnu sem þeir hugðust halda með Tævönum um hvemig auka mætti efnahags- og viðskiptatengsl landanna. Sökuðu Kínverjar Tævana um að notfæra sér fyrirhugaða ráðstefnu í pólitískum tilgangi. Með þessari ákvörðun Kín- verja dregur enn úr vonum Tævana um að þjóðirnar taki að nýju upp viðræður en Kínverjar slitu þeim árið 1995 vegna Bandaríkjaheimsóknar Lee Teng-hui, forseta Tævans. Skotið á námsmenn AÐ MINNSTA kosti einn maður lét lífið í gær er öryggissveitir skutu á námsmenn í háskólanum í Dili á Austur-Tímor. íbúarnir krefjast sjálfstæðis en Indónes- ar gerðu innrás í Austur-Tímor árið 1975 og innlimuðu. Hafa indónesísk stjórnvöld neitað læknum og starfsmönnum Rauða krossins um leyfi til að komast inn á háskólalóðina og neita því að nokkur hafí látið lífið er skotið var á námsmenn- ina. NATO-kjör í Ungverjalandi ARPHAD Goncz, forseti Ung- verjalands, hvatti landa sína í gærkvöldi til að greiða aðild að Atlantshafsbandalaginu at- kvæði. Gengið verður til þjóðar- atkvæðagreiðslu um málið en stjórnvöld óttast að þrátt fyrir að meirihluti þjóðarinnar sé fylgjandi aðild, greiði minna en helmingur manna á kjörskrá at- kvæði og því verði kosningarnar ógildar. Arftakar Baader-Mein- hof fyrir rétt TVEIR þýskir eðlisfræðinemar, sem kváðust vera arftakar félaga í Baader-Meinhof hryðjuverka- samtökunum, komu í gær fyrir rétt í Dusseldorf en þeir eru ákærðir fyrir morðtilraunir og sprengjutilræði. Nemamir, sem eru þrítugir, eru taldir hafa komið fyrir sprengjum á heimil- um þýskra hægrimanna og í perúska konsúlatinu í borginni á árunum 1994 og 1995. Útför í Albaníu LÍK 52 Albana, sem drukknuðu í mars sl. er þeir hugðust reyna að komast til Italíu, voru 1 gær flutt til Vlore í Albaníu þar sem útfór þeirra fór fram að viðstöddum forsætisráðherrum Italíu og Al- baníu. Mikil reiði braust út er fólkið drukknaði og voru ítalir sakaðir um að hafa sökkt skip- inu. Klestil vill sitja áfram THOMAS Klestil, forseti Aust- urríkis, lýsti því yfir í gær að hann hygðist bjóða sig fram að nýju í forsetakosningunum sem verða í apríl á næsta ári. Kjörtímabil forsetans er 6 ár. Deilt um greiðslur til embættismanna í Kreml fyrir bók um einkavæðingu Tsjúbajs viðurkennir að hafa þegið of mikið fé Moskvu. Reuters. BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, leysti í gær Alexander Kazakov, fyrrverandi einkavæðingar- ráðherra, frá störfum í Kreml og atkvæðamikill stjómarsinni á þinginu sagði að embættismannin- um hefði verið vikið frá vegna þess að hann hefði þegið greiðslu fyrir útgáfu bókar um sögu einkavæðingarinnar í Rússlandi. Fleiri embættis- menn, þeirra á meðal Anatolí Tsjúbajs aðstoðar- forsætisráðherra, þáðu fé íyrir bókina. Tsjúbajs viðurkenndi að greiðslurnar hefðu verið of háar og kvaðst ætla að hlíta úrskurði Jeltsíns, hver sem hann yrði. Talsmaður Jeltsíns vildi ekki skýra frá því hvers vegna forsetinn leysti Kazakov frá störf- um. í tilkynningu frá skrifstofu forsetans, sem var aðeins ein setning, sagði að Kazakov myndi hverfa „til annarra starfa“ sem getur þýtt að honum hafi verið vikið frá eða að hann hafi sjálf- ur viljað láta af störfum í Kreml. í tilkynningunni var notað sama orðalag og þegar viðskiptajöfrinum Borís Berezovskí var vikið úr Öryggisráði Rússlands í vikunni sem leið. Akvörðunin er talin geta tengst togstreitu andstæðra fylkinga í Kreml sem reyna að styrkja stöðu sína í von um að geta tryggt sér forsetaembættið þegar Jeltsín lætur af störfum. Kazakov var einkavæðingamáðherra frá janúar til júlí á liðnu ári og hefur verið næstæðsti embættismaður þeirrar deildar forsetaskrifstof- unnar sem fer með tengslin við héraðs- og sveitar- stjórnir. Þótt hann láti nú af störfum í Kreml verður hann áfram stjórnarformaður og aðstoðar- forstjóri gaseinokunarfyrirtækisins Gazprom, sem var áður undir stjórn Viktors Tsjernomyrd- íns forsætisráðherra. Greiðslurnar rannsakaðar Haft var eftir Alexander Shokhín, leiðtoga flokks Tsjernomyrdíns á þinginu, að Kazakov hefði verið vikið frá vegna deilu um greiðslu fyrir útgáfu bókarinnar um einkavæðingu stjórnarinn- ar. Dúman, neðri deild rússneska þingsins, samþykkti á fimmtudag að biðja ríkissaksóknara að rannsaka málið. Haft var eftir Tsjernomyrdín að deilan um einkavæðingarbókina væri „mjög óþægileg fyrir stjórnina“. „Hann lagði áherslu á að hann „ráðgerði nákvæma rannsókn og myndi koma lagi á hlutina“,“ sagði fréttastofan Interfax. Jeltsín hóf herferð gegn spillingu í stjórnkerf- inu fyrr á árinu og hefur gagnrýnt embættismenn fyrir að gegna öðrum störfum utan Kremlar og hætta þannig á hagsmunaárekstra. Runnið undan riíjum Berezovskís? Tsjúbajs sagði að gagnrýnin á bókarsamninginn væri runnin undan rifjum öflugra fjármála- og fjölmiðlafyrirtækja og bætti við að þeim myndi ekki takast að knýja fram breytingar á þeini stefnu stjórnarinnar að eignir ríkisins yrðu seldar á sem hæstu verði. Aðstoðarforsætisráðherrann vísaði augljóslega til Berezovskís og annarra viðskipta- og fjölmiðlajöfra sem studdu Jeltsín í kosningabarátt> unni á liðnu ári en hafa síðan átt í deilum við Tsjúbajs og sakað hann um að ganga erinda keppi- nautar þeirra í einkavæðingai-uppboðum undan- fama mánuði. Tsjúbajs segir að Berezovskí og bandamenn hans séu aðeins argir yfir því að þeir geti ekki leng- ur hagnast á baktjaldamakki um eignir ríkisins. Tsjúbajs hafði hvatt Jeltsín til að víkja Berezov- skí frá en ekki var ljóst í gær hvort einhver fylk- inganna í Kreml hefði beitt sér fyrir brottvikn- ingu Kazakovs. Pressens Bild/Jonas Ekströmer Astrid Lind- gren níræð MIKIÐ var um dýrðir í Svíþjóð í gær í tilefni þess að barnabókahöfundurinn Astrid Lindgren, varð níræð. Mest var um að vera í Vimmerby, fæðingarbæ Lindgren. Göran Persson forsætis- ráðherra hélt ræðu í tilefni dagsins og tók fyrstu skóflustunguna að „bæ Astrid Lindgren". IJmfjöllun var í öllum helstu fjölmiðlum um afmælisbarnið og hvaða þýðingu bækur hennar hefðu haft fyrir les- endur á uppvaxtarárum þeirra. Lindgren frábað sér athygli fjölmiðla á afmælinu, sem hún hélt upp á í faðmi fjölskyldunnar. Hún tók þó Birgittu Dahl þingforseta opnum örmum á miðvikudag sem færði skáldkonunni blóin og staðfestingu þess að gróðursett verði tré fyrir hvern og einn þing- mann á sænska þinginu. ■ Sjá umfjöllun í Lesbók Sendiherrar ESB aftur til Irans Teheran. Reuters. ELLEFU sendiherrar aðildarríkja Evrópusambandsins, ESB, héldu aftur til Teheran, höfuðborgar Irans í gær, að sögn íranska ríkisútvarps- ins. Sendiherrarnir höfðu verið fjar- verandi í rúmlega hálft ár, þar sem þeir voru kallaðir heim í kjölfar milli- ríkjadeilu milli Irans og Þýzkalands, sem kviknaði þegar dómstólar í Berlín komust að þeirri niðurstöðu að rúðamenn í Teheran hefðu fyrir- skipað morð á þremur kúrdískum flóttamönnum frá íran. Háttsettur klerkur í Teheran lýsti því yfir í útvarpi að samkomulag Iransstjórnar við ESB-ríkin sannaði að Bandaríkjastjórn hefði mistekizt að spilla sambandinu milli írans og E vrópuþj óðanna. Sagt vai- að sendiherrar Grikk- lands, Svíþjóðar, Belgíu, Finnlands, Ítalíu, Spánar, Hollands, Austurrík- is, Danmerkur og Irlands auk næstráðanda eftir sendiherra Bret- lands sem og sendiherra Sviss, sem ekki er í ESB, hefðu komið til Teher- an í gærmorgun. Tekið var fram að þýzki sendiherrann kæmi síðar í mánuðinum ásamt þeim franska. Vollebæk fundar með framkvæmdastjórn ESB Biður um nýjar viðræður um heilbrigðiseftirlit KNUT Vollebæk, utanríkis- ráðherra Noregs, óskaði í gær eftir því við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) í Bruss- el að teknar yrðu upp á ný samn- ingaviðræður um hluta samkomu- lags Noregs og ESB um afnám heilbrigðiseftirlits með matvælum á landamærum. Að sögn Aftenposten staðfesti norska utanríkis- ráðuneytið að þetta yrði rætt á fundi Vollebæks og Hans van den Broek, sem fer með utanríkismál í framkvæmdastjórninni. Island og Noregur hafa samið við Evrópusambandið um að heil- brigðiseftirlit með matvælum á landamærum verði afnumið innan Evrópska efnahagssvæðisins, en í staðinn taki löndin tvö að sér heil- brigðiseftirlit með matvörum, sem fluttar eru inn til svæðisins frá þriðju ríkjum. Samningur Islands nær eingöngu til sjávarafurða en samningur Noregs bæði til sjávar- afurða og landbúnaðai’vara. Samn- ingamir hafa enn ekki tekið gildi, þar sem ESB hefur ekki afgreitt þá formlega. Áhyggjur af salmonellusmiti í kjúklingum Það er vegna landbúnaðarþáttar- ins, sem Norðmenn vilja nýjar viðræður. Norðmenn hafa áhyggjur af að eftirlit með afurðastöðvum í Evrópusambandinu sé ófullnægj- andi og nefna því til stuðnings að nýlega hafi verið flutt inn til Svíþjóðar sending af frönskum kjúklingum, þar sem 80% vörunnar reyndust smituð af salmonella. Norska ríkisstjórnin telur að í samningnum þurfi að vera heimildir til að stöðva slíkan innflutning. Evrópusambandið hefur lítinn áhuga á nýjum viðræðum enda eru samningarnir við ísland og Noreg flóknir og langan tíma tók að ná þeim saman. Að sögn Aftenposten hafa fulltrúar ESB minnt Noreg á að núverandi samningur sé Noregi svo hagstæður að ekki sé víst að sum ESB-ríki eða Evrópuþingið samþykki hann, hvað þá verði hon- um breytt enn frekar. Norskir fiskútflytjendur hafa miklar áhyggjur af málinu, enda þýðir samningurinn að norskar og íslenzkar sjávarafurðir undirgang- ast ekki dýrt og tímafrekt heil- brigðiseftirlit í ESB. Halldór Asgrímsson utanríkisráðheiTa sagði í Morgunblaðinu í gær að það væri „óbærilegt" fyrir ísland, þyi’ftu viðræður að hefjast á nýjan leik.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.