Morgunblaðið - 15.11.1997, Side 29

Morgunblaðið - 15.11.1997, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 29 ÍMH m hropa: „Yahooo . Svo kemur hið eigin- lega frumspor, grapewine-sporið" svo- kallaða, sem er ein- hvem veginn aft- urábak og út á hlið og svo koll af kolli. Snörurn- ar þurfa hins vegar að læra meira en frum- sporið, því fyrir- hugað er að setja tónlistina af nýju plötunni á svið, þar sem Jóhann Óm semur öll sporin. „Jói hefur verið með okk- ur í þessu alveg frá upphafi og að- stoðaði okkur við að velja lögin á fyrri plötuna," segja Snörurnar og greinilegt að þær hafa mikið dálæti á danskennaranum sínum. Hann virðist líka öllum hnútum kunnugur í þessari amerísku fótmennt og steðjar um gólfið eins og innfæddur Texasbúi. Og þegar „kúreki norðursins" hverfur af sjónar- „VÆRI ekki sniðugra að þú hefðir buxurnar yfir stígvélunum? Þetta er dálítið púkalegt svona. a «^»fstiTekid’ sviðinu em Snöramar og danskennarinn komin í hrókasamræður um næstu spor og skref á brautinni sem framundan er til að „fylgja eftir plötunni", eins og það er kallað á fagmálinu. frá þér), breytt samskipti (horfir í spegilinn) og meiri gæði (það birtir yfir andliti þínu). Draumur „Móra“ Ég var að hjóla á reiðhjóli með einhverri stelpu. Skyndilega ákvað ég að stytta leið okkar gegnum stórt hótel. Þarna var allt mjög glæsilegt, þannig að maður greip andann á lofti. Hátt til lofts, bjart og marmari á gólfum. Allt í einu vorum við komin með hjólin inn í stóra lyftu með mikilli lofthæð, hún var á hægri ferð niður. Ég leit upp og yfir lyftunni var hvolfþak úr fléttuðu stáli, ég var agndofa yfir dýrðinni. Ég vildi komast út, skildi hjólið eftir, hoppaði upp og tók kollhnís út. Ég sá konu í móttökunni og fór á stökki niður hvítan hringstiga úr steini um eina hæð. Þar hitti ég stelpuna, hjólið hennar var skemmt en mitt heilt. Svo héldum við áfram og ætluðum með lest (metró) út af hótelinu. Þá var hins vegar komin löng röð af fólki í sömu erindagjörðum en við fórum ekki í hana vegna hjólanna. Mér fannst óréttlátt að starfsfólk hótelsins hefði ekki forgang í röð- ina en slíkt V.I.P. kerfi var ekki þarna. Allt í einu vorum við komn- ar út og héldum áfram að hjóla. Ráðning Draumurinn lýsir í myndblikum hugrenningum (þú) þínum og löng- unum (stelpan), óróa og óþreyju með hvað hlutirnir gangi seint og óvissu með réttmæti gerða þinna á hverjum tíma. Hótelið er mennta- setur (hátt til lofts, bjart og mar- mari á gólfum) sem þú virðist sækja nú (inni á hjólinu) og vera mjög ánægð (greip andann á lofti) með og sátt við á fyrstu önnum (lyftan), en er frá líður þveiT áhug- inn (lyftan niður) og löngun til að taka upp gamlan þráð (hoppa upp í loftið og út) sækir á, svo þig langar mest að hætta og fara (hjólað að metró lest til að komast út). I þessu brambolti (á stökki niður hring- stiga) með tilfinningar, langanir og getu virðist þú (hluti af starfsólki hússins) sjá nýjan flöt (V.I.P. kerfi) á náminu þar sem hugur (lyftan) og hönd (fléttaða hvolfþakið úr málmi á lyftunni) sameinast og þú heldur róleg áfram (heldur áfram að hjóla). •Þeir lesendur sem vilja fá drauma si'na birta og ráðna sendi þá með fullu n:ifni, fæðingardegi og ári ásamt heimilisfangi og dulncfni til birtingar til: Draumstafir Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavfk Það verður sprell og spenna í Kringlunni um helgina! Þar verður hægt að vinna ótal vinninga í lukkuhjóli Samvimiuferða -Landsýnar og Hagkaups. Frábærar vinningslikur á ferð til Las Vegas, borgarinnar sem aldrei sefur og 10.000 kr. vöruúttekt hjá Hagkaupi. Allir fá vimiing! Lægsti vinningurinn er 500 króna úttekt hjá Hagkaupi eða Samvinnuferðum -Landsýn. Þú leggur þúsund krónur undir og þá getur gæfan komið þér all leiðina til Las Vegas. Allur ágóði af lukkuhjólinu rennur til Flakkferða Jafningjafræðslunnar sem eru vímuefnalausar ævintýra- og skemmtiferðir ungs fólks. Hjólið fer að snúast kl. 11 fyrir framan Hagkaup á annarri hæð í Kringlunni í dag og á morgun og ekki hætt íýrr en allir vinningarnir hafa klárast! -ferðir án vímuefna! NfjPtjgfaslfÞ SaiM/inniiferiiir-Laiiilsýii HVfTA HÚSID / SÍA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.