Morgunblaðið - 15.11.1997, Side 33

Morgunblaðið - 15.11.1997, Side 33
32 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 33 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. LANSFE OG B Y GGÐ ARÖSKUN FORSÆTISRÁÐHERRA, Davíð Oddsson, lýsti því yfír í umræðum á Alþingi í fyrradag, að til álita kæmi að hætta lánveitingum á vegum Byggðastofnunar um leið og starfsskipulag og hlutverk hennar verður endurskoðað. Miklar breytingar hafa orðið á fjármálamarkaði síðustu árin, sem gera afskipti ríkisins af rekstri fyrirtækja bæði óréttmæt og óþörf. Þá er ljóst, að aðferðir stjórnvalda til að halda jafnvægi í byggð landsins hafa verið gangslitlar. Forsætisráðherra benti á, að vegna eflingar hlutabréfamark- aðar orki tvímælis, að opinberir aðilar stundi áhættusama lána- starfsemi. Fyrir hafi komið, að lán hafi verið afskrifuð um leið og þau hafi verið veitt. Á síðasta ári lánaði stofnunin 1600 milljónir króna og er það hærri upphæð en verið hefur um árabil. Heildarútlán námu 7,6 milljörðum í árslok. Þrátt fyrir lánafyrirgreiðsluna hefur ekki dregið úr brottflutningi af landsbyggðinni. Um þetta sagði Davíð Oddsson m.a.: „Ólíkt því sem margir hafa vænzt hefur betra árferði í efna- hagsmálum undanfarið og bætt staða sjávarútvegs ekki orðið til að draga úr fólksflutningum af landsbyggðinni og síðustu tölur benda til þess, að sá árangur, sem þarna hefur náðst, muni ekki hafa afgerandi áhrif til hins betra. Þessar tölur benda raunar í þveröfuga átt, þ.e. að betra ástand á vinnumark- aði auðveldi fólki flutninga." Óhjákvæmilegt er að taka tillit til reynslu undanfarinna áratuga við mótun nýrra leiða til að viðhalda byggðum lands- ins, þar sem það er hagkvæmt og í samræmi við raunveruleg- an vilja íbúanna. Tilgangslaust er, eins og dæmin sanna, að veita opinbert fé til fyrirtækja í því skyni að halda uppi at- vinnu hafi þau ekki rekstrargrundvöll. Lánafyrirgreiðsla getur aðeins byggst á arðsemi, annars er aðeins lengt í hengingaról- inni. Fjármálamarkaðurinn er hæfari til að meta arðsemi fyrir- tækjanna en opinberir embættismenn. ÖNNUR LÖGMÁL GUÐJÓN Guðmundsson alþingismaður, sem á sæti í stjórn Byggðastofnunar, skrifar grein hér í blaðið í fyrradag og fjallar um ákvörðun stjórnar stofnunarinnar að flytja þróun- arsvið hennar til Sauðárkróks. Guðjón bendir á að Morgunblað- ið hefur bæði mótmælt þessari ákvörðun og ákvörðun umhverf- isráðherra um flutning Landmælinga til Akraness. Hann segir hins vegar hafa kveðið við annan tón hjá blaðinu þegar fyrir lá að þriðjungur af starfsemi Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna mundi flytjast til Akureyrar. Guðjón vitnar í forystu- grein Morgunblaðsins þar sem sagði: „Umsvif Sölumiðstöðvar- innar og Eimskipafélags íslands aukast umtalsvert á Akur- eyri, sem leiðir til aukinnar atvinnu þar. Niðurstaðan er því jákvæð fyrir Akureyringa og það skiptir að sjálfsögðu mestu.“ Guðjón segir að þarna hafi þó verið um að ræða flutning á tvöfalt fleiri störfum frá Reykjavík en samanlagt hjá Landmæl- ingum og Byggðastofnun. „Það virðist því vera stefna Morgun- blaðsins að önnur lögmál gildi um flutning starfa hjá ríkisfyrir- tækjum en einkafyrirtækjum.“ Því er fyrst til að svara að Morgunblaðið hefur aldrei lagzt gegn því að starfsemi sumra opinberra stofnana fari fram á landsbyggðinni fremur en í Reykjavík, sé á annað borð hægt að sameina byggðarsjónarmið og markmið um hagkvæmni og gæði þjónustunnar. Blaðið hefur reyndar talið að slíku verði fremur við komið þegar um nýjan rekstur er að ræða, því að flutningum starfsemi fylgir oftast mikill kostnaður og röskun á högum starfsfólks. Það, sem Morgunblaðið hefur einkum gagnrýnt varðandi þær tvær ákvarðanir um flutning opinberra stofnana, sem Guðjón nefnir, eru vinnubrögðin. Vilji starfsfólksins hefur ver- ið hunzaður, ekki hafa verið gerðar athuganir á því hvernig stofnanirnar gætu uppfyllt fagleg markmið sín á nýjum stað og ekki heldur á því hvort reksturinn yrði hagkvæmari á nýja staðnum og flutningskostnaðurinn réttlættist hugsanlega af því. Öðru máli gegnir um aukningu umsvifa tveggja einkafyrir- tækja á Akureyri en flutning ríkisstofnana út á land og athygl- isvert ef þingmaðurinn hefur ekki áttað sig á því sjálfur. í fyrsta lagi er uppbygging opinberrar starfsemi ekki rétt leið til að efla atvinnu. Sé það markmiðið er hætta á að opinber rekstur verði öðrum þræði einhvers konar atvinnubótavinna. Ekki munu byggðir landsins lifa á ríkisrekstri til lengdar og bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Morgunblaðið hafa hvatt til þess að opinberum rekstri verði haldið í skefjum. í öðru lagi er það auðvitað mál eigenda einkafyrirtækja, hvar þeir koma starfseminni fyrir. Ef þeir tapa peningum eru það þeirra peningar. Stjórnmálamenn, sem taka ákvarðanir um að flytja opinberar stofnanir að illa ígrunduðu máli, eru að sólunda peningum skattgreiðenda. FISKVEIÐISTJÓRNUN Á BRETLANDSEYJUM ADENLA II frá Leirvík á Hjaltlandseyjum sem áður hét Pétur Jónsson RE liggur við bryggju. Utgerðarfélög kaupa sameiginlegan kvóta A Hjaltlandseyjum eru sjómenn farnir að grípa til aðgerða til að tryggja viðgang út- gerðar á staðnum. Útgerðarfélaglð óar kaupir kvóta annars staðar til að sjó- menn geti veitt allan ársins hring. Karl Blöndal kynnti sár fyrirkomulag fískveiði- stjórnar á Bretlandi. JOHN Goodlad, fram- kvæmdastjóri Sjómanna- samtaka Hjaltlandseyja, sagði í samtali við Morgun- blaðið að sú stofnun, sem færi með stjómun fiskveiða á staðnum, væri nú farin að kaupa kvóta frá öðrum stöðum á Bretlandi í því skyni að halda lífi í útgerð á staðnum. Goodlad sagði að sér litist ekki á fiskveiðistjórnunai’íyi'irkomulagið á Islandi. Hann vildi koma í veg fyrir að allur kvóti yrði seldur frá Hjaltlandseyjum og fiskurinn hyrfi. Goodlad sagði að svokallað Ut- gerðarfélag Hjaltlandseyja hefði keypt um tvö þúsund tonna kvóta frá árinu 1994: „Á Bretlandi er sam- komulag, sem leyfir Útgerðarfélög- um að vera með kvóta. Okkar félag eru hins vegar það einu á Bretlandi, sem hefur nýtt sér það enn sem komið er. Við gerum okkur gi-ein fyrir því að fiskurinn gæti horfið frá Hjaltlandseyjum og kaupum því veiðileyfi. Það má líkja okkur við einkafyrirtæki, en við forum með kvóta fyrir hönd samfélagsins, við fórum með hann í sameign sjó- manna á Hjaltlandseyjum." Svæðisbundin títgerðarfélög Á Bretlandi eru svæðisbundin Út- gerðarfélög (Prod- ucers’ Organisations eða PO), sem stjórna því með hvaða hætti skip, sem eru í félög- unum, veiða upp í kvót- ann. Útgerðarfélagið á Hjaltlandseyjum hefur keypt skip með veiðileyfum frá öðrum útgerð- arfélögum og síðan selt skipin, en haldið leyfunum. Eftir það fær Út- gerðarfélagið á Hjaltlandseyjum þær aflaheimildir, sem fylgdu veiði- leyfi skipsins. I þeim kvóta, sem keyptur hefur verið, er meðal ann- ars þorskur og ýsa. Sagði Marvin Smith, starfsmaður Sjómannasam- taka Hjaltlandseyja, að stefnan væri að sjómenn þar gætu veitt allan árs- ins hring og bætti við að eina fiski- tegundin, sem í raun skorti, væri ufsi. Sagði hann að mikil ánægja ríkti með þetta kerfi meðal sjó- manna á Hjaltlandseyjum. Stuðst við „girðingar- samkomulagið“ Goodlad sagði að kvótinn hefði verið keyptur í samræmi við „girð- ingarsamkomulagið“, sem svo væri nefnt vegna þess að eftir kaupin hefði sá kvóti í raun verið girtur af og ekki mætti selja hann aftur. „Við ætlum að kaupa meira ef við höfum efni á því,“ sagði Goodlad. „Við ætlum að kaupa eins mikið og við getum. Kvótanum er skipt á milli félaga í samtökunum og einnig er ákvæði þess efnis að gera eigi ungum sjómönnum, sem eru að hefja störf í greininni, kleift að fá kvóta. Við hjálpum því starfandi sjó- mönnum og skiljum eitthvað eftir handa nýliðum." Fleira skiptir máli en hagfræðin Goodlad kvaðst vilja leggja áherslu á að meira skipti máli en hagfræðin þegar fram- seljanlegar veiðiheim- ildir væru annars veg- ar. Líta þyrfti á félags- legu afleiðingarnar. Hann taldi hins vegar að ekki væri hægt að stöðva þróun- ina í átt til framseljanlegra kvóta á Bretlandi, en sjómannasamtök gætu haldið lífi í þeirri hugmynd að fiskurinn í hafinu væri sameign - að enginn eigi hann og allir eigi hann - með því að kaupa kvóta. „Það má einnig orða þetta svo að við séum að nota frjálsa markaðinn til að koma á sameignarformi auð- lindarinnar," sagði Goodlad. „Sá möguleiki er reyndar fyrir hendi að kerfið verði afnumið og samkvæmt núverandi kerfi er kvótinn ekki eign. En hvaða ríkisstjóm mun taka völdin og hafa hugrekki til að breyta kerfi þegar mörg hundruð manns hafa átt kvótaviðskipti samkvæmt því, eytt peningum og tekið lán og áhættu?“ Hann sagði að stjórnvöld hefðu látið kvótann án endurgjalds. „Hér er um að ræða pólitískt grundvallar- atriði,“ sagði hann. „Hér er um að ræða auðlind, sem var sameign allra, en hefur nú verið gefin nokkrum og gert þá mjög ríka. Um þetta er mikil deila.“ Lítil iniðstýring Philip Rodgers, yfirhagfræðingur hjá Sjávarfískframleiðendastofnun- inni í Edinborg á Skotlandi, sagði að dregið hefði verið úr miðstýringu í fiskveiðistjórnunarkerfinu á Bret- landi. Bretar fá kvóta í samræmi við reglur Evrópusambandsins og breska stjórnin deilir honum síðan milli hinna svæðisbundnu Útgerðar- félaga. Afiaheimildir hvers útgerð- arfélags fara eftir veiðireynslu og - sögu veiðiskipa í félaginu undanfar- in þrjú ár. „Það er síðan á valdi Útgerðarfé- laganna að ákveða hvernig kvótan- um verður skipt á milli félaga þess,“ sagði Rodgers. „Sum láta einstök skip hafa kvóta. Önnur hafa nokk- urs konar almenning, sem hægt er að veiða úr þai- til kvótinn er uppur- inn þann mánuðinn og bíða verður fram í næsta mánuð. Síðan eru skip, sem ekki eru í Útgerðarfélagi og þá fá þau kvótann beint frá stjómvöld- um í London.“ Allur kvótinn í pott Marvin Smith lýsti skiptingu kvóta Útgerðarfélags- ins á Hjaltlandseyjum þannig: „Allur sá kvóti, sem hefur verið gefinn skipum í Útgerðarfé- laginu er settur í pott, þar sem einnig er að finna keypta kvótann. Síðan er mánaðarlegur kvóti tilkynntur þannig að hver bát- ur megi til dæmis veiða tvö hundruð kör af þorski, tíu kör af einhverri annarri tegund og svo framvegis. Bátar, sem hafa gengið í félagið, en hafa ekki nógu mikinn kvóta, geta haldið áfram að veiða upp að þessu marki vegna þess að við höfum keypt þessi veiðileyfi." Hagfi-æðingurinn Rodgers sagði að eins og sakir stæðu gætu ein- staka útgerðir ekki keypt kvóta, þótt hann teldi að slík viðskipti ættu sér stað bak við tjöldin. Að hans sögn voru Útgerðarfé- lögin sett á fót að áeggjan Evrópu- sambandsins. I þeim væru bæði sjó- menn og útgerðarfélög. Félögin hefðu í upphafi átt að stjórna sölu, markaðssetningu og dreifingu og tryggja gæði. „Eiginlega hafa þau ekki gert það á Bretlandi," sagði Rodgers. „Þau hafa að mestu leyti fengist við að deila kvótanum. Ög þau hafa ekki jafnað löndun fisks í samræmi við þarfir uppboðsmarkaðarins." Hann sagði að munurinn á Út- gerðarfélögunum og beinum hags- munasamtökum á borð við sjó- mannasamtök og samtök útgerðar- manna væri að þau fyrrnefndu út- deildu kvótanum, en þau síðar- nefndu beittu þiýstingi til að fá hann aukinn. Hins vegar sköruðust Útgerðarfélög og hagsmunasamtök oft talsvert, sérstaklega á fámenn- um stöðum á borð við Hjaltlandseyjar þar sem sömu menn væru við stjórnvölinn á báð- um vígstöðvum. Vill forðast for- dæmið frá íslandi Goodlad kvaðst hafa komið nokkrum sinnum til Islands og því hafa kynnt sér fiskveiðistjórnun hér. „Fordæmið frá íslandi er nokkuð sem við þyrftum að kappkosta að forðast á Hjaltlandseyjum," sagði hann. „Mér skilst reyndar að ís- lenska fiskveiðistjórnunarkerfið með framseljanlegum aflaheimild- um hafi gengið vel frá sjónarmiði hagfræðinnar. Mér skilst að veið- arnar séu nú mjög arðvænlegar, ríkisstjórnin hafi nokkuð miklar skatttekjur af atvinnugreininni og flestir hagfræðingar myndu segja að árangurinn hafi verið mjög góð- ur.“ Hann nefndi að Ragnar Árnason, prófessor í fiskihagfræði, hefði kom- ið til Hjaltlandseyja og sagt að hug- myndin um framseljanlega kvóta væri til fyrirmyndar. Hins vegar hefði Goodlad rætt við starfssystk- ini á íslandi og ýmsa, sem hefðu komið til íslands, og fengið aðra mynd af ástandinu. „Mér skilst að kerfið hafi haft al- varlegar félagslegar afleiðingar," sagði hann. „Margir sjómenn, sem átt hafi velgengni að fagna, hafi flutt úr þorpunum til Reykjavíkur og mér var jafnvel sagt að margir þeirra, sem best hefði gengið hefðu yfirgefið Island og byggju nú á Flórída. Eg er einfaldlega að segja að við þurfum að fara varlega vegna félagslegi’a afleiðinga framseljan- legra kvóta.“ Goodlad sagði í grein, sem birtist nýlega í tímaritinu Shetland Fishing News, að vandinn væri ekki sá að þessi fjárfesting gæti gert sjómenn eða útgerðarfyrirtæki vellauðug, heldur að þessi kynslóð sjómanna gæti selt kvóta sinn með þeim af- leiðingum að staður á borð við Hjaltlandseyjar yrði kvótalaus og forsendur fyrir sjávarútvegi og fisk- verkun þar brystu. Óttast alþjóðleg viðskipti „Kvótinn gæti færst til innan Bretlands eða Evrópu," sagði Goodlad. „Norðmenn, Hollendingar eða Is- lendingar gætu keypt kvótann af Hjaltlend- ingum. Hér má kvótinn enn ekki fara út fyrir Bretland, en eignarhaldið getur ver- ið á reiki og ég nefni að eitt helsta sjávarútvegsfyrirtækið í Aberdeen er nú í eigu íslensks fyrirtækis. Með frjálsum kvótaviðskiptum er sjávar- útvegur að fá mjög alþjóðlegt yfir- bragð. Ég óttast að sú kynslóð, sem nú er við lýði, selji kvótann og þá verði enginn fiskur eftir á Hjaltlandseyjum." -4- Notum frjálsan markað til að mynda sameign Ætlum að kaupa eins mikinn kvóta og við getum Hjálparsveit skáta flytur í nýtt 1.200 fermetra hús á Ártúnshöfða „ Morgunblaðið/Árni Sæberg INGIMAR Olafsson, Einar Hrafnkell Haraldsson og Víðir Reynisson fyrir framan nýtt 1.200 fermetra hús Hjálparsveitar skáta í Reykjavík. Gjörbyltir aðstöðu til nám- skeiðshalds og þjálfunar HJÁLPARSVEIT skáta í Reykjavík hefur verið í viðbragðsstöðu í áratugi, enda ein elsta starfandi björgunarsveit landsins. Skátar tóku að sér leiðbeiningar og hjálparstörf á Alþingishátíðinni á Þingvöllum ár- ið 1930 og þar þurfti m.a. að gera stórleit að litlum dreng, sem fannst heill á húfi á bökkum Almannagjár. Þessi reynsla kveikti áhuga skát- anna á slíku hjálparstarfi og vakti athygli fáliðaðrar lögi-eglunnar í Reykjavík, sem leitaði oft til skát- anna. Hjálparsveitin var stofnuð formlega árið 1932 og eitt fyrsta verkefni hennar var stórleit að barni í Reykjavík, sem fannst heilu og höldnu í kartöflugeymslu, þai* sem það hafði sofið um nóttina. Björgun og aðstoð Nú eru um 110 fullgildir félagar í Hjálparsveit skáta í Reykjavík og á sveitin aðild að Landsbjörg, Lands- sambandi björgunarsveita. Innan sveitarinnar stai’fa nokkrir sérhæfð- ir flokkar, auk almennra flokka. Til- gangur sveitarinnar er sem fyrr að vinna að björgun manna og veita hvers konar aðstoð í neyðartilfellum, auk þess sem sveitinni er ætlað að taka þátt í skipulögðu almanna- varnastarfi. Hjálparstarfi skátanna fylgir ým- iss konar búnaður og farartæki og þeir hafa verið iðnir við að halda námskeið fyrir sveitarmenn og aðra. Aðstaða Hjálparsveitarinnar hefur hins vegar ekki ætíð verið sem best Ætti að gera störf í útkalli markvissari „Undanfarin átta ár höfum við verið með félagsstarfið á einum stað, við Snorrabraut, en tæki og tól í geymslu við Tangarhöfða," segir Ingimar Olafsson sveitarforingi. „Núna höfum við hins vegar reist sérhannað hús, sem gjörbyltir allri aðstöðu okkar til þjálfunar og nám- skeiðshalds. Aðstaðan ætti jafn- framt að gera störf okkar í útkalli markvissari. Hérna koma sveitar- menn beint inn í búningsherbergi á jarðhæð, þaðan fara þeir inn í tækja- herbergi, grípa með sér það sem þeir þurfa og fara beint inn í bíla- geymsluna." I bílageymslu Hjálparsveitarinnar eru þrír fjallabílar til fólksflutninga, snjótroðari og vörubíll til flutninga á beltatækjum. Að auki eru þar Hjálparsveit skáta í Reykjavík tekur nýtt og glæsilegt 1.200 fermetra hús í notkun í dag. Bygging hússins, sem stendur við Malar- höfða 6, hófst í maí í fyrra og er það nú nær fullbúið. Hjálparsveitarmenn segja húsið gjörbylta aðstöðu sveitarinnar, sem varð 65 ára fyrr á árinu. HJÁLPARSVEITIN á æfingu í Þórsmörk 1956. Frá vinstri: Stefán Kjart- ansson sveitarforingi, Þorsteinn Hjaltason, Haraldur Sigurðsson, Þór Guðmundsson, Angantýr Vilhjálmsson, Björn Ásgeirsson, Jón Stcfánsson, Ingólfur Pedersen og Valur Jóhannsson. Bíllinn er „Græna Maja“, fyrsti farkostur sveitarinnar, af gerðinni Dodge Carriol árgerð 1941. Á FJÖLLUM árið 1972. Bfilinn er Dodge Weapon árgerð 1953, sem skát- ar eignuðust árið 1970 og seldu þremur árum síðar. Á þessum árum voru dekkin minni en tíðkast á fjallatröllum nútímans og látið nægja að skclla keðjunum undir. vélsleðar og ýmis minni búnaður. Víðir Reynisson, framkvæmda- stjóri Hjálparsveitarinnar, segir að nýja húsið kosti 60 milljónir króna. - „Við fjármögnum kaupin með ýms- um hætti, til dæmis sölu eigna, styrk frá Reykjavíkurborg og Landsbjörg og stuðningi fyrirtækja. Þá höfum við einnig þurft að taka lán. Kostn- aðurinn við húsið er um 50 þúsund krónur á fermetra, sem er með því allra lægsta sem þekkist þegar um hrátt iðnaðarhúsnæði er að ræða, hvað þá innréttað hús sem þetta.“ Skátar ætla ekki að missa fótanna vegna húsbyggingarinnar. „Við er- um með ákaflega stífan fjárhags- ramma og reiknum með að húsið og lóðin verði ekki komið í alveg endan- lega mynd fyrr en eftir 2-3 ár,“ seg- ir Ingimar. „Núna er húsið hins veg- ar tilbúið fyrir vetrarstarfið." \ Einar Hrafnkell Haraldsson, sem sæti á í byggingamefnd, segir að byggingai-máti Garðasmiðjunnar sf., aðalverktakans við byggingu húss- ins, hafi gert kleift að halda bygging- arkostnaði niðri. „Húsið er stálgrind- ai'hús og ef þörf krefur getum við breytt því án þess að kosta miklu til.“ Sjálfboðastarf til fjáröflunar Félagar í Hjálparsveitinni hafa verið iðnir við sjálfboðaliðastarf, til að fjármagna byggingu nýja hússins og starfsemi sveitarinnar. Hjálparsveit- in er löngu þekkt fyrir flugeldasölu fyrir áramótin og er hún mikilvæg . tekjulind. Þá rekur sveitin Skátabúð- ina við Snorrabraut, sem varð 50 ára nú í haust. Af öðrum fjáröflunum má nefna öryggisgæslu á Laugardalsvelli og sjúkragæslu í almenningshlaupum eins og Krabbameinshlaupinu og Reykjavíkurmaraþoni. Hjálparsveitarmenn segja að staðsetning hússins vestan í Ártúns- höfðanum skipti miklu. Sveitin sé oft kölluð til aðstoðar í óveðrum og þá sé hentugt að hafa allan búnað ná- lægt nýjustu hverfunum. Húsið liggi einnig mjög vel við helstu umferðar- r æðum út úr bænum. Vígsla kl. 16 í dag Hjálparsveitarmenn fjölmenna áreiðanlega til vígslu nýja hússins kl. 16 í dag. Ingibjörg Sóliún Gísla- dóttir opnar húsið formlega, en reiknað er með um 300 gestum, skátum, forsvarsmönnum lögreglu, slökkviliðs og annarra hjálparsveita.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.