Morgunblaðið - 15.11.1997, Page 38

Morgunblaðið - 15.11.1997, Page 38
.J- 38 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR SKOÐUN Enn þegir Sjónvarpið! EINN AF mikilvæg- ari þáttum tónlistar frá upphafi er þögnin. Þögnin markar bæði upphaf og enda tón- verks ásamt því að lita tónlistina með andstæð- um sínum. En þögnin er vandmeðfarin og ekki á færi allra að nota hana rétt. ‘ V Hinn 3. september sl. hafði undirritaður sam- band við Sigurð Val- geirsson, deildarstjóra innlendrar dagskrár- gerðar Ríkissjónvarps- ins, þar sem óskað var eftir því að myndverkið „Samantekt: Þrír heimar í einum“ yrði tekið til sýningar hjá Ríkissjón- varpinu. Eftir að dagskrárstjóri hafði kynnt sér verkið voru ummæli hans á þá leið að „ekki væri hægt að bjóða íslenskum sjónvarpsáhorfendum upp á slíkt „avant-garde“- efni í kvöld- dagskrá Sjónvarpsins". Síðan hefur ítrekað verið óskað ,eftir skriflegri umfjöllun frá dag- 'skrárstjóra Ríkissjónvarpsins vegna þessa erindis. Ekkert svar hefur borist við þeirri beiðni. I framhaldi af þögn dagskrár- stjóra Sjónvarps, sendi undirritaður útvarpsstjóra, framkvæmdastjóra RÚV og útvarpsráði bréf þar sem óskað var eftir að málið fengi faglega umfjöllun hjá stofnuninni. Svarið er sem fyrr: Þögn. Hinn 7. nóv. sl. fjallaði fréttastofa Stöðvar 2 síðan um málið þar sem kom fram hörð gagnrýni frá Hjálm- *'^ri H. Ragnarssyni, forseta Banda- lags íslenskra listamanna, vegna þessa máls, enda er þetta ekki fyrsta erindið frá listamönnum sem fær slíka meðferð hjá Ríkissjónvarpinu. Gagnrýnin beinist fyrst og fremst að almennri stefnu - eða öllu heldur stefnuleysi - Ríkissjón- varpsins í menningar- málum. Fjölmargir listamenn hafa haft samband við ríkisfjöl- miðilinn og boðið fram verk sín, hugmyndir eða starfskrafta sína. Þessum erindum og fyrirspurnum hefur iðu- lega ekki verið svarað á fagmannlegan hátt. Samkvæmt starfs- reglum sínum hefur RQdsútvarpið/Sj ónvarp það hlutverk að efla og stuðla að útbreiðslu menningu þessa lands. Til þessara verkefna hefur stofnunin til umráða umtals- verðar fjárhæðir á ári hverju. íslenskir listamenn í dag eru und- Gagnrýnin beinist fyrst og fremst að almennri stefnu, segir Kjartan Oiafsson - eða öllu heldur stefnuleysi - Ríkissjónvarpsins í menningarmálum. antekningalítið vel menntaðir og eiga rétt á greinargóðri og faglegri umfjöllun um sín verk frá opinberum aðilum sem hafa með listir í landinu að gera. Með skriflegri umfjöllun dag- skrárstjóra Sjónvarps varðandi þær umsóknir sem berast þar inn, gæfist tækifæri tii faglegrar umræðu um menningarstefnu ríkisfjölmiðla. Höfundur er tónskáld. Kjartan Ólafsson sœtír sófar* HÚSGAGNALAGERINN • Smiðjuvegi 9 • Simi 564 1475 * Bylting! Fjölnota byggingaplatan sem allir hafa beðið eftir! WIROC byggingaplatan er fyrir veggi, loft og gólf. VIROC byggingaplatan er eldþolin, vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og hljóðeinangrandi. VIROC byggingaplötuna er hægt að nota úti sem inni. VIROC byggingarplatan er umhverfisvæn. VIROC byggingaplatan er platan sem verkfræðingurinn getur fyrirskrifað nánast blint. Staöalstært: 1200x3000x12 mm. Aðrar þykktir: 8,10,16,19,22,25. 32 & 37 mm. Mestalengd: 305 cm. Mestabreidd: 125 cm. fnÖSS ^ L‘r „1 Vimc sem gólfefri \ \ ]Viroc sem Mvöm . 1 . Oi: u i ástúBndaniti Viroc utonhússkJæ&ng Leitið frekari upplýsinga Þ. ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚLA 29,108 ItEYKJAVÍK, 5ÍMI553 8640 / 568 610j nCROPRINT. STIMPILKLUKKUR Sala og þjónusta Otto B. Arnar ehf. ÁRMÚLA 29 • 108 REYKJAVÍK SÍMI 588 4699 • FAX 588 4696 FJÖLMIÐILL Á UNDANHALDI EFTIR mislukkaða atlögu DV að Herbalife á íslandi heldur blaðið áfram að reyna að klóra í bakkann. Síðasta til- raunin var sú aumasta til þessa: skrumskæhng á grein úr tímariti millj- arðamæringsins Stevens Forbes. Til að bæta kjöti á beinin neyddist Jónas Kristjánsson, ritstjóri og einn eigendanna, til að skrifa níðleiðara um Herbalife, þrátt fyrir að ritstjórinn sé sonarson- ur og alnafni frumkvöð- uls náttúrulækninga og fæðubótarefna á Islandi. Því miður hefi ég ekki notið góðs af visku DV síðastliðin 6 ár, en ef umfjöllun blaðsins um Herbalife er mælikvarði á ástandið er þetta ekki fjölmiðill á undanhaldi, heldur helj- arþröm. Herbalife Þrátt íyrir bölbænir DV og For- bes gamla eru allar fregnir af meintum heimilisvanda Herbalife ekki aðeins ýkjur, heldur ósk- hyggja- Fyrir þá sem ekki vita er Her- balife eitt afrekanna í kraftaverka- skrá viðskiptasögu mannkynsins. Ekki einasta framleiðir það bestu heilsuvörur í heimi, heldur kann það vel að vera besta atvinnu- og við- skiptatækifæri sem íslendingum hefur boðist það sem af er öldinni. Nú þegar hefur náðst undraverð- ur árangur á Islandi á örskömmum tíma. Metið á ung íslensk kona, Dagmar Gunnarsdóttir, sem hefur misst 45 kíló. Tugir annarra hafa misst 20 kíló eða meira (þar á meðal ofanritaður), að ekki sé minnst á þá sem hafa sigrast á asthma, ofnæmi, síþreytu, mígreni, háu blóðkólester- óli, háum blóðþrýstingi, sykursýki, svefnleysi svo eitthvað sé nefnt. En þetta er aðeins upphafið. Nú þegar hefur fjöldi Islendinga er- lendis tekið að selja þessar vörur og hafa margir náð ótrúlegum tekjum á örskömmum tíma. Af fyrirtækinu sjálfu er helst að frétta að gangurinn er slíkur að Mark Hughes mun skreyta forsíður æ fleiri tímarita á næstunni þrátt fyrir að í augum þeirra íhaldssöm- ustu í amerískum viðskiptaheimi er markaðsfyrirkomulag fjölþrepa fyr- irtækja enn svo róttækt að það kann að taka áratug í viðbót að öðl- ast fulla viðurkenningu. Fjölþrepa markaðskerfi Herbalife er talið fremst meðal jafningja í flokki fyrirtækja sem kallast fjölþrepa markaðsfyrirtæki. Onnur þekkt fyrirtæki úr þessum hópi era Amway, Excel, Mary Key o.m.fl. Markaðskerfi þessara fyrirtækja eru margvísleg, en þau byggjast öll á því að starfsmenn fá ekki aðeins sölulaun af eigin sölu heldur líka umboðslaun af sölu alls þess fólks sem þeir hafa fengið til liðs við fyr- irtækið (þ.e. fólkið í þrepunum „fyr- ir neðan“). Starfsmenn Herbalife nota sölu- launin til að greiða reikningana sína. Umboðslaunin fjárfesta þeir hins vegar. Þau eru eftirlaunasjóður heimilisins. Og þessi umboðslaun eru engir smáaurar. Þannig eru t.d. fleiri milljónerar (fólk með yfir milljón dali í árslaun) í Herbalife en nokkru öðru fyrirtæki á jörðinni eða um 250 alls, auk þúsunda til viðbót- ar sem flokkast undir stórefnafólk. Fyrir kvikmyndagerðarmann er ekki ónýtt að vera skyndilega kominn í persónuleg kynni við urmul milljónamær- inga. Þar sem Her- balife var stofnað hér í Los Angeles eru þeir yfir þrjátíu talsins bara á þessu svæði. Auk þess eru milijóna- mæringar Herbalife ólíkir öðrum auðkýf- ingum. Þeir hafa unn- ið sig upp með því að tengjast öðru fólki og eru því oftast alþýð- legri og jákvæðari en gerist og gengur. Vinkona okkar Mar- grétar, Chris Carley að nafni, er ágætt dæmi um þennan harðsnúna hóp. Fyrir aðeins þremur árum var hún venjulegur starfsmaður hjá Boeing-flugvélaverksmiðjunum í Því miður hefí ég ekki notið góðs af visku DV síðastliðin 6 ár, segir Jón Ottar Ragnarsson, en ef umfjöllun blaðsins um Herbalife er mæli- kvarði á ástandið er þetta ekki fjölmiðill á undanhaldi, heldur heljarþröm. Seattle þar sem hún vann fyrir lús- arlaun. Fyrir nokkrum vikum var hún stödd á viðskiptaþingi, þar sem var saman komið fjölmargt háttsettra stjórnenda amerískra risafyrir- tækja, mest karlmenn. Skyndilega fóru þeir að deila um hver hefði besta vinnuveitandann. Deildar- stjóri hjá Disney nefndi sem dæmi um stórhug yfirmannsins að hann lokaði Disneylandi dagpart til að leyfa starfsfólkinu að skemmta sér... frítt!! Maður úti í sal sagði að þetta væri ekki neitt því bónusar Microsoft væru engu líkir. Hann hefði til dæmis fengið bæði Cadillac og Rolexúr að gjöf fyrir áratuga störf. Chris Carley hlustaði á og sagði að þetta væri ekkert. Mark Hughes hefði tekið stærsta skemmtiferðaskip heims á leigu svo starfsfólk Herbalife gæti siglt um Karíbahafið. Þegar karlmönnunum fannst lítið til koma sýndi hún þeim demants- hring og demantsskreytt Cartierúr sem hún hafði fengið að gjöf frá fyr- irtækinu. Mönnunum fannst þetta ágætt en ekkert einsdæmi. Þá bætti hún við að laun hennar eftir aðeins þrjú ár hefðu verið 140 milljónir ísl. kr. á árinu 1996, þar af 35 milljónir í bónus. Þegar hópurinn heyrði þetta stóðu þeir upp allir sem einn og klöppuðu. Gamlir og nýir peningar Chris Carley er dæmigerð fyrir hina nýju stétt milljónamæringa Herbalife. Hún var svo fátæk þegar hún byrjaði störf að hún þurfti að fá lánaða 78 dali (um 5.000 íslenskar krónur) til þess að geta gerst dreif- ingaraðili. I dag býr hún í höll hér úti á Malibu og þarf aldrei framar að dýfa hendi í kalt vatn. Er það ekki slæmt fyrir konu sem hefur aðeins Jón Óttar Ragnarsson barnaskólamenntun og hafði engin þau tengsl eða bakgrunn sem til þessa voru talin forsenda fyrir frama í bandarísku viðskiptalífi. Milljarðamæringurinn Steven Forbes - sem hatar fjölþrepafyrir- tæki - er einn þeirra sem erfðu all- an sinn auð. Þessi silfurskeiðar- drengur lítur á milljqrðamæringinn Mark Hughes - sem vann sig upp úr ræsinu á eigin spýtur - sem boð- flennu við allsnægtaborð kapítal- ismans. Skýringin er auðfundin. í augum bandarískrar yfirstéttar - eins og hinnar evrópsku - flokkast gamlir peningar undir menningu á meðan nýir peningar era álitnir skítugir. Menn á borð við Mark Hughes - sem býr í einni dýrastu höll Kali- forníu með 27 þjóna - eru í augum Forbes ekkert annað en nýríkir uppskafningar. Staðreyndirnar segja annað. Mark Hughes stofnaði Herbalife eftir að móðir hans dó úr ofskömmt- un megrunarlyfja sem hún fékk hjá heimilislækni. Eftir því sem best verður séð er markmið hans í lífinu aðeins eitt: að forða öðram frá því að sæta sömu örlögum og móðir hans. Mark Hughes er einlægasti mað- ur sem ég hef kynnst. Og hann er jafnframt besti fyrirtækjastjórn- andi sem ég hef haft spurnir af. En það er ekki ástæðan fyrir því að ég er í Herbalife, heldur hitt að þetta fyrirtæki er leið fyrir mig til að hrinda mínum eigin draumum í framkvæmd. En þótt Mark Hughes sé drengur góður þýðir það ekki að hann geti ekki beitt hörku. Því miður era ekki allir sem vilja starfa fyrir Herbalife englar með vængi og á síðasta ári þurfti hann að losa sig við alls 1.680 dreifíngaraðila sem höfðu brotið hinar ströngu siðareglur fyrirtækis- ins. I þessum hópi voru m.a. tveir hópar í Rússlandi sem rannsókn leiddi í ljós að tengdust mafíunni þar í landi. Segir sig sjálft að ekkert af þessu fólki, og allra síst rúss- neska mafían, ber Herbalife vel söguna. Markaðskerfi nýrrar aklar Fjölþrepafyrirtæki eru það sem koma skal. Framtíðarfræðingar eru yfirleitt á einu máli um að eftir 20 ár eða svo muni meira en helmingur af allri sölu á varningi til heima- brúks fara fram í heimahúsum í gegnum vini og kunningja. Astæðan er m.a. sú að æ fleiri eru orðnir þreyttir á því að eiginmaður- inn og eiginkonan halda í morg- unsárið út á hraðbrautina hvort á sinn vinnustað og skilja börnin eftir í reiðileysi heima þar sem þau verða í vaxandi mæli slæmum félagsskap, jafnvel glæpagengjum og eiturlyfj- um, að bráð. Sem dæmi um þessa þróun má nefna að á árinu 1996 nam allur kostnaður Bandaríkjanna við her- afla og hergagnaframleiðslu um 250 milljörðum dala. Til samanburðar var heildarvelta heimilisiðnaðar af öllu tagi nær tvöfalt meiri eða 427 milljarðar! Enn merkilegra var þó hitt að heilbrigðiskostnaður á þessu sama ári var um 1.000 milljarðar Banda- ríkjadala eða 4 sinnum meiri en samanlagður kostnaður við her og hérgögn!! En þetta er ekkert bandarískt einsdæmi. Hvert sem litið er, era þjóðir heims að kikna undir geig- vænlegum kostnaði við heilbrigðis- þjónustu. Ástæðan er einfaldlega sú að 99% allra fyrirtækja á þessu sviði sérhæfa sig í að lækna sjúk- dóma. Ekki Herbalife. Herbalife er for- ystuafl meðal lítils en vaxandi hóps fyrirtækja sem einblína á einu lausnina sem til er á þessum vanda: fyrirbyggjandi læknisfræði. Þó ekki sé nema af þeirri ástæðu einni sam- an er fyrirtækið ekki á undanhaldi heldur í þvílíkri uppsveiflu að fá dæmi eru um annað eins. Sigurganga Herbalife Á síðasta ári var heildarvelta Herbalife um 1,2 milljarðar dala (jókst úr um 2 milljónum dala stof-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.