Morgunblaðið - 15.11.1997, Qupperneq 56
Í6 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
HELGARMYNDIR SJÓNVARPSSTÖÐVANNA
sjónvarpið ►21.15 Seinni hluti
JEngum aðtreysta (Kidnapped, 1996)
sem byggð er á ævintýrasögu Roberts
ixiuis Stevensons undir stjórn Ivans
Passer.
Sjónvarpið ►23.10 - Sjá umijöllun
í ramma.
Stöð 2 ►13.15 Ungir krakkar,
gamlir aðdáendur frá árdögum sjón-
varpsins og ættingjar íslenskra tvíbura
í aukahlutverkum gætu haft gaman
af að sjá Steinaldarmennina (The
Flintstones, 1994) leikna útgáfu af
teiknimyndasyrpunni. Leikhópurinn er
vel skipaður - John Goodman sem
Fred Flintstone er bestur - en mynd-
ina skortir geggjaðan sjarma teikni-
myndanna. Leikstjóri Brian Levant.
★ ★
Stöð 2 ►21.15 Hinn mikilúðlegi og
geðþekki leikari Robbie Coltrane
(Cracker) fer með aðalhlutverkið í
bresku myndinni Á útfallinu (Ebb
Tide, 1996) sem fjallar um þijá labba-
kúta sem ráða sig á skip í hafnarbæ
á Tahiti snemma á öldinni til að kom-
ast í kampavínsfarm þess en fá í stað-
inn að vita hvar Davíð keypti ölið.
Lofar góðu en umsagnir liggja ekki
fyrir.
Stöð 2 ►23.05 Grínhrollvekjan
Blóðsuga í Brooklyn (Vampireln
Brooklyn, 1996) telst ekki til verstu
bömmera Eddies Murphy en heldur
■' ekki til afreka. Vanur maður í hroll-
vekjugerð, Wes Craven, leikstýrir og
ræður mun betur við tæknibrelluhroð-
ann en gamansemina. Murphy á sína
spretti sem blóðsuga í ætisleit í Brook-
lyn, ★ ★
Stöð 2 ► 0.50 Tim Burton leikstjóri
hlífír kollega sínum Edward D. Wood
jr. heitnum, sem nefndur hefur verið
versti leikstjóri sögunnar, við gagn-
rýninni skoðun í Ed Wood (1994).
Hann sleppir honum við alkóhólismann
og klámframleiðsluna sem settu svip
á líf hans undir lokin og einbeitir sér
að vináttusambandi Woods við hina
öldnu hrollvekjustjörnu Bela Lugosi.
Báðar þessar persónur eru fallega
túlkaðar af Johnny Depp og Martin
Landau. Þetta er góð mynd, minnis-
varði um mann sem rústaði með eigin
myndum mælikvarðanum á góðar
myndir. ★ ★ ★
Stöð 2 ^2 .55 Það má hafa ofurlítið
frumstætt gaman af Vélhjólagenginu
(Dirt Gang, 1972) klaufalega gerðri
lýsingu á mótorhjólaruddum, ofbeldi
þeirra og uppáferðum. Leikstjórinn
Jerry Jameson hefur síðan af eðlileg-
um ástæðum haldið sig mestanpart á
þykkum ís bandarískrar sjónvarps-
framleiðslu. ★*/2
Sýn ►21.00 Rómeó-ogJúlíusaga
úr stórborginni um ástir pars af kín-
verskum og ítölskum uppruna sem
hafa blóðugar afleiðingar er viðfangs-
efni Kínversku stúlkunnar (China
Girl, 1987). Abel Ferrara leikstjóri er
þekktur að óvenjulegum og málamiðl-
unarlausum ofbeldismyndum og er
bestur þar; hann er ekki eins næmur
á ástarsöguna og harmrænar lyktir
hennar. ★ ★
Árni Þórarinsson
Hljómsveitin Saga Klass
Hljómsveitin Saga Klass og söngvararnir
Sigrún Eva Ármannsdóttir og
Reynir Guðmundsson sjá um kraftmikla
og góða danstónlist frá kl. 23.30
Frönsk og fjörug skemmtidagskrá
í Súlnasal.
Nokkur borð laus.
Raggi Bjarna og Stefán Jökulsson
alltaf hressir á Mímisbar
-þín saga/
List lág
marks-
leiksins
HARRISON Ford, eitthvert
mesta stórstirni bandarískrar
kvikmyndagerðar mörg undan-
farin ár, virðist hafa gengið í
háskóla Clints Eastwoods í lág-
marksleik þar sem helsta
úrlausnarefnið er að fýla grön
með elegans. Ford er fremur
stífur leikari, bestur þegar hann
gerir sem minnst en brakar í
honum þegar hann rembist við
að leika meira. Það má merkilegt
heita hversu lengi honum hefur
tekist að halda velli, jafn þröngt
og leikrænt svigrúm hans er. En
Ford hefur útlitið með sér, yfir
honum er samanbitin reisn og
siðferðisstyrkur hinnar sönnu
bandarísku hetju, ekki ósvipað
og hjá Gary heitnum Cooper.
Hann vakti fyrst á sér einhverja
athygli í American Graffíti hjá
George Lucas sem svo innsiglaði
frægð Fords með Stjörnustríðs-
þríleiknum.
Harrison Ford fékk fyi-stu Óskarstilnefningu sína
fyrir túlkun á löggu sem vernda á vitni að morði, ung-
an dreng úr lokuðu samfélagi Amishfólks í @l:Vitn-
inu (Witness, 1985, Sjónvarpið^ kl. 23.10). Hér nýtur
hann vandaðrar leikstjórnar Ástralans Peters Weir
KELLY McGillis, Lukas Haas og Harrison Ford í Vitninu.
sem einnig stýrði honum í Moskítóströndinni ári
síðar. Vitnið er ágæt afþreying, einkar fagmannleg
spennumynd með rómantísku ívafí, en hvorki heil-
steypt né sérlega eftirminnileg, fyrir utan glettilega
vel unnið ástaratriði við undirleik lagsins Wonderful
World. ★★★
ÖLAPUR Darri, ó.afía Hröno-og ÞrSstur í Lisubakarfl.
20 þúsund á Perlur og svín
►GESTIR á sjösýningu Perlna og
svína fengu óvæntan glaðning á
miðvikudag þegar 20 þúsundasta
gestinn bar að garði. Af því tilefni
sló íslenska kvikmyndasamsteyp-
an, sem er framleiðandi myndar-
innar, upp veislu og bauð gestum
að gæða sér á dýrindis bakkelsi í
anda Perlna og svína, en myndin
gerist að stórum hluta í Lísu-bak-
aríi. Kvikmyndin Perlur og svín í
leiksljórn Oskars Jónassonar seg-
ir á gamansaman hátt frá hjónun-
um Lísu og Finnboga sem kaupa
gamalt og niðurnítt bakarí og
ætla sér stóra hluti. Margt fer á
annan veg en gert er ráð fyrir í
upphafi og misdularfullt fólk
kemur við sögu; Rússar í
Löduleit, stórbakarar og smá-
krimmar. I Reykjavík lifir maður-
inn á pylsubrauði einu saman og
færibandabakaríin standa á
brauðfótum þegar þau Lísa og
Finnbogi opna nýtt bakarí.
Islendingar hafa tekið þessari
nýju stórmynd sem fjallar um gull
og græna snúða opnum örmum og
er hún orðin mest sótta mynd árs-
ins.
-cT
Danshúsið
^ 'O'
Artún
X
Vagnhöfða 11. S: 567 4090, 898 4160 Fax: 567 4092
Stórdansleikur
Harmónikufélag Reykjavíkur er með
stórdansleik í kvöld.
Allir velkomnir.
Húsið verður opnað kl. 22.00