Morgunblaðið - 15.11.1997, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Samkeppnisráð segir tilboð Pósts og síma hf. og FÍB fela í
sér misnotkun á markaðsráðandi stöðu
Póstur og sími dreg-
ur tilboð sitt til baka
Meira en
7% hækkun
á soðningu
FISKUR, nýr og frosinn, hefur
hækkað um 7,2% að meðaltali frá
því í mars síðastliðnum á sama
tíma og neysluverðsvísitalan hef-
ur hækkað um 1,8%. Raunar hef-
ur nýi fiskurinn hækkað meira en
þetta og frosni fiskurinn minna.
Þar með hefur gengið til baka
lækkun sem varð á neyslufiski á
tveimur árum þar á undan, en á
árunum 1995 og 1996 lækkaði nýr
og frosinn fiskur um 6,9% að með-
altali.
Fiskur í neysluverðs- vísitölu 1997 Mars '97=100
1131 Fiskur, nýr og frosin i 1 IU 107,2 105 /9102,3
1 T 1132 spltaður, Fiskur, reyktur - 1UU o.fl.
i I 1 1 1 1 J FMAMJ t 1 1 Á S C 95 i ) N
Sama þróun í stórmörkuðum
og fiskbúðum
Uf Sama verðþróun virðist hafa átt
sér stað í stórmörkuðum og fisk-
búðum í ár því enginn sjáanlegur
munur er á verðþróuninni sam-
kvæmt upplýsingum Hagstofunn-
ar. Saltaður, reyktur og þurrkaður
fiskur hefur hækkað um 2,3% frá
því í mars og skelfiskur um 3,8% á
sama tíma. Meðaltalshækkun á
fiski í vísitölu neysluverðs er 4,6%
þetta tímabil.
Ef hins vegar litið er til verðþró-
unar á neyslufiski á árunum 1995
og 1996 kemur fram að fiskur
lækkaði í verði bæði árin, ef undan
er skilinn saltaður, þurrkaður og
reyktur fiskur sem hækkaði um
1,8% að meðaltali. Unnar fiskvör-
ur, þ.e.a.s. tilbúnir fiskréttir ýmiss
konar, lækkuðu um 3,1% og nýr og
frosinn fiskur lækkaði um 6,9%
þetta tímabil. Meðaltalslækkunin á
tímabilinu var 4,3%.
PÓSTUR og sími hf. hefur dregið
til baka tilboð á farsímum og af-
notagjöldum á farsímum til félags-
manna í Félagi íslenskra bifreiða-
eigenda í kjölfar þeirrar niðurstöðu
samkeppnisráðs að tilboðið feli í
sér misnotkun á markaðsráðandi
stöðu Pósts og síma hf. sem hafi
skaðleg áhrif á samkeppni. Sam-
keppnisráð bannar Pósti og síma
hf. að bjóða það sem felst i tilboð-
inu með þeim skilmálum og kjörum
sem kynnt hafa verið.
Guðmundur Björnsson, forstjóri
Pósts og síma hf., hefur tilkynnt
Samkeppnisstofnun að Póstur og
sími hf. muni í framhaldi af niður-
stöðu samkeppnisráðs endurskoða
þær forsendur sem verðlagning á
farsímaþjónustunni miðaðist við í
tilboðinu og þess muni verða gætt
við útreikningana að ekki verði
með nokkru móti talið að um óeðli-
lega verðlagningu sé að ræða.
Fallið til að hindra aðgang
keppinauta að markaðnum
I ákvörðun samkeppnisráðs segir
að tilboð Pþsts og síma hf. tO félags-
manna í FIB sé til þess fallið að við-
halda eða efla markaðsráðandi
stöðu Pósts og síma hf. og hrekja
keppinauta út af markaðnum eða
hindra aðgang nýrra að honum, en
þess sé að vænta að nýtt fyrirtæki
hasli sér völl í farsímaþjónustu
snemma á næsta ári. Hefur sam-
keppnisráð úrskurðað að ákvæði
sem skuldbindur þá sem þegar hafa
keypt farsíma samkvæmt tOboðinu
til að skipta aðeins við farsímakerfi
Pósts og síma hf. næstu tvö árin sé
ógilt þar sem með því verði mark-
aðssókn hins nýja fyrirtækis settar
skorður þennan tíma.
FIB grunlaust um
að lög væru brotin
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda, segir að félagið hafi
verið algerlega grunlaust um að til-
boð það sem félagsmönnum bauðst
frá Pósti og síma hf. bryti í bága
við samkeppnislög, en tilboðið átti
að standa til mánaðamóta.
Runólfur sagði að FIB tengdist
málinu eingöngu vegna þess að það
hefði verið að leita eftir hagkvæm-
um tilboðum í þessum efnum íyrir
félagsmenn.
Pósti/10
w Breytt umhverf! í
mj ólkurframleiðslu
Dregið verði
tír opinberri
verðlagningu
SJÖMANNANEFND leggur til í
skýrslu til landbúnaðarráðherra, að
verðlagning á nautakjöti verði gefin
frjáls eigi síðar en 1. september 1998
og að heildsöluverð á mjólkurafurð-
um verði gefið frjálst eigi síðar en
um mitt ár 2001. Þá leggur nefndin
til breytingar á kvótakerfinu.
Nefndin leggur ekki til breytingar
á beingreiðslum ríkisins og vill að
þær verði áfram sem nemi 47,1% af
lágmarksverði mjólkur. Nefndin tel-
ur hins vegar að bændur hafi varið
of miklum fjármunum á síðustu ár-
um í að kaupa kvóta og því sé nauð-
synlegt að gera ráðstafanir til að
lækka kvótaverð. Talið er að bændur
hafi á árunum 1991-1996 varið
tveimur milljörðum króna tO kaupa á
kvóta. Leggur nefndin til að viðskipti
með kvóta fari fram í gegnum kvóta-
markað sem Framleiðsluráð land-
búnaðarins sjái um. Þá vill nefndin
að bændur sem framleiða umfram
leyfilegt framleiðslumark verði að
kosta útflutning á henni sjálfir, en
—‘jafnframt að umframíramleiðslan
leiði til hækkunar á kvóta næsta ár.
Með sama hætti lækki kvóti hjá þeim
sem ekki framleiða upp í kvóta. Um
þessa tillögu er bullandi ágreiningur
mOli bænda og landbúnaðarráðu-
neytisins og þess vegna segir í
nefndarálitinu að gera skuli úttekt á
þessari leið.
Lækka þarf verð á kvóta
Landbúnaðarráðherra sagði að
með því að fara þessa leiði yrði
hægt að hafa áhrif á kvótaverð. Með
ákveðnum fyrirvörum mætti líta á
’ -®lpessa tillögu sem fyrsta skrefið í þá
átt að afnema kvótakerfi í mjólkur-
framleiðslu. Björn Arnórsson, hag-
fræðingur BSRB og fulltrúi í
sjömannanefnd, sagði að þetta
myndi stuðla að því að mjólkur-
framleiðslan færðist á þau svæði
þar sem hagstæðast væri að fram-
leiða mjólk.
Tveir milljarðar/12
Morgunblaðið/Sig. Fannar
KYRRT frostveður var og snjór yfir öllu þegar Geysir bærði á sér í gær,
flestum viðstöddum að óvörum. Gosið stóð í um 15 mínútur.
Fimmtíu kg af sápu „duttu“ ofan í Geysi
GEYSIR í Haukadal gaus í gær, en
þá stóð yfir aðalfundur Ferða-
málasamtaka Suðurlands á Hótel
Geysi. Fundarmönnum var gert
viðvart um að einhver óróleiki
væri í Geysi og fóru út á hvera-
svæðið en auk þeirra voru staddir
nokkrir bandarískir ferðamenn
sem voru ekki síður himinlifandi
yfir því að sjá hinn aldna hver
lifna. Gísli Einarsson, oddviti Bisk-
upstungnahrepps, játti því í sam-
tali við fréttaritara Morgunblaðs-
ins að heimamenn hefðu hjálpað til
við gosið með því að fjarlægja tvo
sandpoka sem verið hefðu ofan í
hvernum, auk þess sem ein fimm-
tíu kíló af sápu hefðu „dottið“ ofan
í hann. Gísli sagði þetta gert í mót-
mælaskyni við Náttúruvernd ríkis-
ins, en Tungnamenn væru orðnir
langþreyttir á að bíða eftir
ákvörðun þaðan um málefni Geys-
is. Aðalheiður Jóhannsdóttir, for-
stjóri Náttúruverndar ríkisins,
hafði ekki heyrt af gosinu þegar
Morgunblaðið hafði samband við
hana síðdegis í gær og vildi því lít-
ið tjá sig um það en sagði að málið
yrði skoðað.
Hálkuóhöpp
í borginni
SVO virðist sem vegfarendur á
götum höfuðborgarinnar hafi
ekki allir verið búnir að átta sig
á hálkunni í gær, því frá hádegi
og þar til á ellefta tímanum í
gærkvöldi var tilkynnt um alls
13 árekstra til lögreglunnar í
Reykjavík. Að sögn lögreglu
varð eignatjón nokkurt en ekki
teljandi meiðsl á fólki.