Morgunblaðið - 14.12.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.12.1997, Blaðsíða 1
120 SÍÐUR B/C/D/E STOFNAÐ 1913 286. TBL. 86. ÁRG. TINA (t.v.) og Nancy Sinatra. Afneita and- látsfregnum Los Angeles. Reuters. NANCY og Tina Sinatra, dætur leikarans Franks Sinatra, komu fram í viðtalsþætti Larrys Kings á CNN-sjónvarpsstöðinni í fyrrakvöld og mótmæltu harðlega sjónvarps- fréttum þess efnis að faðir þeirra væri nær dauða en lífí. Sinatra varð 82 ára á fóstudag og hefur verið máttfarinn frá því hann fékk hjartaáfall í byrjun árs. Honum er hætt við hvers kyns sýk- ingum og því verður hann m.a. að halda sig frá kvefuðu fólki. Hefur hann að mestu verið bundinn við heimili sitt og lóð villunnar í Beverly Hills. Nýlega héldu fjölmiðlar því fram að Sinatra hefði legið banalegu og honum hefðu verið veitt siðustu sakramentin. Umboðsmaður hans vísaði því á bug og fullyrti í vikunni að hann væri við góða heilsu. Undir það tóku dætur hans í sjónvarps- þættinum. ---------------- Láta skoða 747-þotur Washington. Daily Telegraph. BANDARÍSKA loftferðaeftirlitið (FAA) hefur gefið flugrekendum tæplega 1.400 Boeing 747-þotna fyr- irmæli um að láta skoða rafmagns- leiðslur í flugvélunum með tilliti til svörfunar eða núningsskemmda á slithólkum þeirra. Fyrirmælin eru gefin út í fram- haldi af rannsókn á orsökum þess að 230 manns fórust er sprenging í eldsneytistanki grandaði 747-þotu flugfélagsins TWA í fyrra. Talið er að skemmdir í rafleiðslum eða tær- ing í mælitækjum í miðtanki þot- unnar hafi leitt til neistamyndunar er olli sprengingunni. Fyrirmælin, sem ná til 260 flug- véla bandarískra flugrekenda og 1.076 flugvéla utan Bandaríkjanna, skylda flugfélög til að láta skoða bæði rafmagnsvíra úr ryðfríu stáli sem áli. Skoðuninni verður að vera lokið innan 120 daga og síðan verð- ur að endurtaka hana á 20.000 flug- stunda fresti. SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Tómlegt í Lúxor Beitt út frá Fremantle ÞRIÐJI áfangi Whitbread-kapp- siglingarinnar umhverfis jörðina hófst í Fremantle á vesturströnd Ástralíu í gær og var handagang- ur í öskjunni er skúturnar níu tók- ust á um bestu stöðu. Frá Frem- antle sigla skúturnar 4.200 km leið til Sydney á austurströndinni og eru væntanlegar þangað um jól. Þijár skútanna heyja hér einvígi í beitivind og fremst fer sænska skútan Swedish Match. Norsk skúta, Innovation Kværner, hefur heildarforystu í kappsiglingunni sem lýkur á næsta ári í Bretlandi. Reuters Samið um fullt frelsi í fíármálaviðskiptum Genf. Reuters. SAMKOMULAG náðist í fyrrinótt um fúllt frelsi í bankaþjónustu, verð- bréfaviðskiptum og tryggingastarf- semi á vettvangi aðildarríkja Heimsviðskiptastofnunarinnar (WTO). Samkomulagið, sem kemur til framkvæmda í mars 1999, mun opna nýja markaði fyrirtækjum á því sviði viðskipta sem vaxið hefur hrað- ast að undanfömu. Aðildarríki WTO hafa frest til janúarloka 1999 til þess að staðfesta það. Með samkomulag- inu verður rutt úr vegi alþjóðlegum hindmnum sem hamlað hafa vexti í banka-, fjármála- og tryggingavið- skiptum. Renato Ruggiero, forstjóri WTO, sagði samkomulagið eiga eftir að leiða til mikils efnahagsvaxtar og þróunar um heim allan og Leon Brittan, sem fer með viðskiptamál í framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins (ESB), sagði gífurlega mikilvægt skref til frjálsræðis í hag- kerfi heimsins hafa verið stigið. Bill Clinton Bandaríkjaforseti fagnaði sömuleiðis og sagði að sam- komulagið ætti eftir að leiða til mik- ils vaxtar fjármálaviðskipta. Lúxor. Daily Telegraph. DAPURLEGT er um að litast í Lúxor, borg merkra fomminja, í Eg- yptalandi. A þessum tíma er ferða- mannastraumurinn jafnan í hámarki og iðandi mannlíf í Lúxor en nú em götur auðar, veitingahúsin standa tóm og skemmtiskip bundin við bryggju. I kjölfar fjöldamorðs íslamskra ofsatrúarmanna á 58 útlendum ferða- mönnum í Lúxor í síðasta mánuði hef- ur verulega dregið úr ferðamanna- straumi til Egyptalands. Blóð fómar- lambanna hefur verið máð af gólfum og veggjum musteránna en áhrifin verða ekki þvegin burt. Flugvélar fljúga nær tómar og farþegum ríkis- flugfélagsins EgyptAir hefur fækkað um 72%. Aðeins 18% nýting er á hót- elum á landsvísu og undanfarið hefur hún verið aðeins 10% í Lúxor, þ.e. níu af hverjum 10 herbergjum hafa staðið tóm. Hótelhölduram hefur verið ráð- lagt að lækka gistingu um 50% í þeirri von að snúa megi þróuninni við. Ahrifanna gætir hvarvetna. Fyrir tilræðið í Lúxor komu rúmlega 4.000 manns á degi hveijum að pýramídun- um við Kaíró en hefúr nú fækkað í um 800 á dag. Sérfræðingar spá því að tekjur Egypta af ferðamönnum muni á næsta ári lækka úr um 3,5 milijörð- um dollara, sem þær hafa verið að jafiiaði á ári, í 1,5 milljarða dollara. Verða áður að taka sig á í mannréttindamálum Lúxemborg. Reuters. LEIÐTOGAR Evrópusambandsríkjanna (ESB) voru sagðir hafa náð samkomulagi síðdegis í gær um að bjóða Tyrkjum ásamt 10 ríkjum Mið- og Austur-Evrópu auk Kýpur til aðildarviðræðna að sambandinu á næsta ári, eftir að Grikkir féllu frá andstöðu sinni við það. Deilan um Tyrki varpaði skugga á leiðtogafundinn þar sem leysa tókst deilu um nýjan samstarfsvettvang um málefni Eftiahags- og myntbandalags Evr- ópu (EMU), svonefnt Evró-X ráð. í orðalagi samkomulags leiðtog- anna um almenn skilyrði, sem ríki verða að uppfylla til þess að formleg- ar aðildarviðræður verði við þau hafnar, er meðal annars kveðið á um að ríki sem boðið verður til ráðstefnu um stækkun ESB 30. mars nk. verði að virða lögsögu Alþjóðadómstólsins í Haag um lausn ágreiningsefna og önnur grundvallargildi ESB, m.a. um öryggi, frið og virðingu fyrir fullveldi annarra ríkja. Að lokinni ráðstefnunni í mars hefjast formlegar aðildarviðræður í apríl við Ungverjaland, Pólland, Tékkland, Eistland, Slóveníu og Kýpur. Jafnframt hétu leiðtogamir að hraða undirbúningi fullra við- ræðna við Búlgaríu, Rúmeníu, Slóvakíu, Litháen og Lettland. Tyrkir, sem sóst hafa eftir aðild í 35 ár, hafa verið útilokaðir frá form- legum aðildarviðræðum að ESB vegna mannréttindamála. Utlit er fyrir að umsókn þeirra fái hæga af- greiðslu af þeim sökum. ESB býður Tyrkjum til aðildarviðræðna Nýbúar ö0DuQ[iLíQ0mm(i][? Afreksverk deyjandi byggðar Stendur og fellur með starfsmönnunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.