Morgunblaðið - 14.12.1997, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Óskar Gíslason
MIÐBÆRINN á Hvallátrum árið 1948 þar sem Ólöf Hafliðadóttir er fædd og uppalin. Nokkuð til vinstri við
miðja mynd er maður með loðhúfu. Það er Hafliði Halldórsson, og húfan bjargaði sennilega lffi hans þegar
klaka- eða gijótstykki féll í höfuð hans í fjörunni undir Látrabjargi í desember 1947.
Morgunblaðið/Óskar Gíslason
BJÖRGUNARMENNIRNIR voru heiðraðir af Slysavarnafélagi íslands, breskum
stjórnvöldum og vátryggingarfélagi Dhoon.
þennan dag við að undirbúa mót-
töku skipbrotsmanna og björgun-
armanna.
Beið eftir að heyra í pabba
Faðir Ólafar kom heim seint á
sunnudagskvöld ásamt fleirum.
Hún segist muna eftir að hafa
staðið sunnan við Miðbæinn, þar
sem þau áttu heima, og hlustað
eftir honum. „Loksins heyrði ég
röddina hans pabba og ég man vel
hvað mér létti þá.“
Bærinn var fullur af aðkomu-
fólki um nóttina. Ólöf segist ekki
muna hvar hún hafi sjálf sofið. „En
mér er minnisstætt hvemig faðir
minn svaf. Hvert einasta skot í
húsinu var nýtt og búið var um
hann á flatsæng inni í búri. Um
nóttina hafði hann svo mikinn sina-
drátt að hann var við það að missa
meðvitund og svaf mjög lítið. Þrátt
fyrir þetta lagði hann af stað dag-
inn eftir ásamt fleirum til að sækja
þá sem eftir voru á brúninni.“
Fluttist úr deyjandi plássi
Haustið eftir björgunina af
Dhoon fluttist Ólöf frá Hvallátrum
til Reykjavíkur og réðst í vist.
„Þetta var deyjandi pláss. Mögu-
íeikar tii búskapar voru ekki mikl-
ir, þó að í gamia daga hafi þetta
þótt hlunnindajarðir. Það var eftir-
sótt að vera í vinnumennsku í
Hvallátrum þá vegna þess að nóg
var af mat.“
Fram á þriðja áratuginn var sig-
ið eftir eggjum og fugli í Látra-
bjargi og þótti það mikil búbót. En
árið 1926 fórust tveir ungir menn
sem voru að síga f bjarginu, þeir
Ástráður Ólafsson og Kristján Er-
lendsson, bróðir Ásgeirs sem þeg-
ar hefur verið nefndur. Eftir þetta
lagðist bjargsigið að mestu niður.
ÓSKAR Gíslason kvikmyndatökumaður ásamt nokkrum af björgun-
armönnunum. Vinstra megin við Óskar er Ólafur Sveinsson, Sel-
látranesi, þá Bjarni Sigurbjörnsson, Hænuvík, Helgi Elíasson og loks
Þórður Jónsson, Hvallátrum.
Morgunblaðið/Ólöf Hafliðadóttir
LÁTRABJARG. Meðal annars sést til strandstaðar Dhoon. Fjölmörg
önnur skip og bátar hafa farist undir bjarginu og er sennilega aðeins
vitað um sum þeirra.
MYND úr safni Slysavarnafélags íslands.
SÝNISFLUG á Melavellinum árið 1949.
Konurnar gáfu
til þyrlukaupa
SAMA kvöld og fréttir bárust til
Reykjavíkur af björgun mann-
anna af Dhoon höfðu nokkrar ís-
lenskar og breskar konur bú-
settar í bænum komið saman.
Þar barst í tal að þörf væri á því
að Islendingar eignuðust flugvél
sem hentaði til björgunar á sjó
og landi, til dæmis svonefndan
„helicopter". Talið var að slík
vél hefði nokkuð auðveldlega
getað komist til mannanna á
Dhoon. Konurnai- ákváðu strax
að safna í sjóð til flugvélakaupa
og færðu Slysavamafélagi Is-
lands hátt í þúsund krónur að
gjöf. Frá þessu segir í Morgun-
blaðinu í desember 1947.
Hugmyndin um kaup á þyrlu
til björgunarstarfa hafði reynd-
ar kviknað tveimur árum fyrr á
aðalfundi slysavamadeildarinn-
ar Ingólfs í Reykjavík. Þar var
samþykkt áskomn til Slysa-
vamafélagsins um að láta at-
huga möguleika á kaupunum.
Málinu var hreyft öðm hverju
á næstu áram, en verulegur
skriður komst ekki á það fyrr en
með fmmkvæði kvennanna.
Næstu tvö árin söfnuðust á
þriðja hundrað þúsund krónur í
flugvélakaupasj óðinn.
Islendingar vora snemma á
ferðinni í þessum málum, því
fjöldaframleiðsla á þyrlum til al-
mennra nota hafði ekki hafist
fyrr en árið 1946. Fyrsta not-
hæfa þyrlan hafði verið smíðuð
á miðjum fjórða áratugnum í
Þýskalandi.
Þyrla fengin að láni
í júní 1949 var fyrsta þyrlan
fengin til landsins í tilrauna-
skyni. Að því stóð íyrirtækið
Elding Trading Óompany.
Slysavamafélag Islands og
Landhelgisgæslan höfðu umsjón
með tilraunafluginu en ríkis-
sjóður greiddi kostnaðinn.
Þyrlan var fengin að láni frá
Bell-flugvélaverksmiðjunum í
Bandaríkjunum og var tveggja
manna af gerðinni Bell 47, en
það var fyrsta þyrlutegundin
sem fengið hafði almennt flug-
leyfi.
Breskur flugmaður, Youell að
nafni, og bandarískur flugvirki
að nafni Finch, komu með þyrl-
unni og vai' þeim meðal annars
ætlað að kenna Islendingum
meðferð hennar. Tveir flug-
menn og tveir flugvirkjar Flug-
félags Islands nutu leiðsagnar
þeirra næstu þrjá mánuðina
meðan þyrlan vai- hér á landi.
Meðal þeirra fyrstu sem
flugu með vélinni hér við land
vora Eysteinn Jónsson flug-
málaráherra og Jóhann Þ. Jós-
efsson fjármálaráðherra. „Mér
er nær að álíta að við höfum
verið viðstödd mjög merkan at-
burð,“ sagði Eysteinn um til-
raunaflug þyrlunnar og lýsti yf-
ir trú sinni á notagildi þyrlna
hér á landi.
Ekki varð þó úr því að þyrlan
væri keypt. Samkvæmt upplýs-
ingum Einars Amalds, sem er
að skrifa sögu Slysavamafélags-
ins, hafði félagið lýst sig reiðu-
búið til að leggja fram fé til
þess, gegn því að ríkið kostaði
reksturinn. En málið dagaði
tvisvar uppi á Alþingi og erfið-
leikar vora við að fá gjaldeyris-
leyfi.
Það var ekki fýrr en sextán
áram síðar að úr þyrlukaupum
varð. Til þess var meðal annars
notaður sjóðurinn sem stofnað-
ur var í kjölfar björgunarinnar
við Látrabjarg.
Fram á sjötta ára-
tuginn vora fjórir opn-
ir vélbátar gerðir út
frá Hvallátram. Árið
1955 vora tveir eftir.
„Þá um haustið fóra
allir hásetamir á bát-
unum í nám til
Reykjavíkur. Þar á
meðal vora tveir synir
Þórðar Jónssonar og
tveir til þrír aðrir ung-
ir menn,“ segir Krist-
inn Guðmundsson,
fóstursonur Ásgeirs
Erlendssonar.
Ásgeir hafði lífsvið-
urværi sitt af vita-
vörslu og búskap, en
við vitavarðarstarfinu
tók hann af foður sínum og gegndi
í fjöratíu ár, til ársins 1990. Á
Látram var einnig veðurathugun-
arstöð, en hún hefur nú verið flutt
til Breiðuvíkur.
Sumarhúsabyggð
hefur nú risið á Hval-
látram og era það
einkum afkomendur
síðustu kynslóðar
Látramanna sem hafa
endurbyggt eldri hús
eða reist ný.
Kristinn Guð-
mundsson og Hrafn-
kell, sonur Þórðar
Jónssonar, halda uppi
merki eldri lífshátta
og nytja Látrabjarg-
ið. Þeir fara á slöngu-
bát undir bjargið og
sækja sér egg sem
síðan era seld í Hag-
kaupum í Reykjavík.
Þótt þeir félagar
sígi ekki hefur sá siður heldur ekki
alveg dáið út. Björgunarsveitar-
menn á Patreksfirði síga í bjargið
og tína egg á hverju ári með leyfi
landeigenda.
ALBERT Stirzaker,
einn skipbrotsmanna
af Dhoon, sem gisti í
Miðbænum.
I