Morgunblaðið - 14.12.1997, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.12.1997, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 39 - undtrbúnii^ — gerbaksWI matreið^lö^rii Qjafakprt i I I í i I ! i >mumrauosnamsKeio ~ ítöisk matreiðsia - erminjpSi^sÉnriar ■natn tiatu erminaggior rökusRreytinga iskináfisk^í •nín M gj /illib á ég að páskalambið ~ ^iiiiDraoanamsKeid — tiSkínamsKðio -- matreicisia rym1 hvermg á ég að utbua mína veisiu — biómaskreytingar alambið — galdurinn víð griilið — klakaski 'snámskeið — villibrá 'isk rnaii erm* 'M m rla fermir kuskre keið - ina 40n veislu galdurinn við grillið - f»murbrauðsnámskeið — villibráðanám irærustupör — (töisk matreiðsia — hvern indirbúningur fermingaveislunnar ~ pási rerbakstur — ^treið^la fyrir kgnur — sm kétiá - wátréidsiá fyn1 k^rustuþöi fermingatoiíáW^^^^-búnÍngur ^kstur karla tingar á rður eið útbúa Idurinn eið Jsla unnar| wr fyrii aKf-SÍiH®' ?lermingaborðið skurður — kökuskreytingar ið matreiðslai maður og fengið hafði hjartaáfall. Systir Elísabet hjúkraði prestinum og vakti alls yfir honum í 20 næt- ur. Þótt útlitið hefði verið álitið slæmt náði hann sér svo vel að hægt var að flytja hann heim í sína sókn. Systrunum þótti þetta teikn, því sr. Þorkell hafði nýlega fjallað lofsamlega í ræðu og riti um Þorlák helga Þórhallsson Skálholtsbiskup og verið jákvæðari í garð kaþólskra en flestir aðrir þjóðkirkjuprestar: „Það var einkennileg tilviljun, að kaþólsk reglusystir skyldi annast einmitt þennan mann. Það var hann sem fyrir um það bil ári hélt mjög fallega ræðu um kaþólska biskupinn Þorlák, sem er víst eini dýrlingur íslands. Sögubók um siðaskiptatím- ann sem hann gaf út er líka sögð bera með sér áhrif af kaþólskum sið. Það væri vissulega æskilegt að Guð færði bráðum einhveijum góð- um sálum skilning á hinni sönnu trú.“ Landakotsskóli Hrifning birtist oft á Landakots- skólanum í sömu skrifum og hann var gagnrýndur. Þegar „heldra fólk“ í Reykjavík var aðvarað í Verði ljós! tímariti sr. Jóns Helga- sonar, prestaskólakennara og síðar biskups árið 1901 um hættuna á að senda börn í trúboðsskóla í Landakoti, var sagt að foreldrar gerðu þessi mistök vegna gæða skólans. Þama kom fram hvert aðhald Landakotsskólinn var að Barnaskóla Reykjavíkur, eitt raun- hæfasta ráðið til að stöðva straum- inn í Landakot var að mati höfund- ar greinarinnar að bæta Barnaskól- ann svo „að hann standi þessum kaþólska skóla jafnfætis ..." Önn- ur björgunarleið var að stofna sér- stakan „æðri barnaskóla" einkum fyrir dætur „heldri manna.“ Og svo þótti þetta mikilvægt af trúarorsök- um, að þjóðernissjónarmiðinu var varpað fyrir róða, því að ef engin íslensk kona fyndist sem stæðist St. Jósefssystrum snúning í tungu- mála- og hannyrðakennslu ....... hví getum vér þá eigi eins vel feng- ið kenslukonu evangelisk- lút- erskrar trúar frá Danmörku, eins og kaþólskar nunnur?" Við borðum ekki gras! Mataræðið á St. Jósefsspítala í Landakoti var nokkur nýjung á ís- landi. í heimalöndum systranna var jurtafæði stór hluti af mataræðinu og þær höfðu stóra matjurtagarða við sjúkrahúsin í Reykjavík og Hafnarfirði. Þær unnu sjálfar lengi eldhússtörfm og fæðið sem boðið var upp á samræmdist ekki fyllilega íslenskum hefðum, þær notuðu t.d. ekki súrsaðan mat, siginn eða kæst- an. Þótt mannlíf og tækni tæki mikl- um framförum á fyrstu áratugum aldarinnar var ísland árið 1920 enn þá mjög frábrugðið því sem fólk í nágrannalöndum bjó við. Systir María Delphine kom til íslands það ár: „Það voru mikil viðbrigði frá því sem ég áður hafði vanizt. Engir skógar og ekkert hér í kring nema túnið. — Mataræðið var einnig allt öðru vísi. Ég hafði vanizt græn- meti og ávöxtum, en hér var lítið slíkt að fá. Þegar sjúklingunum var borið salat hristu þeir höfuðið og sögðu — „við borðum ekki gras.“ — A þeim tíma fengust heldur engin blóm. Ég minnist þess, að við feng- um þau send frá Noregi t.d. fyrir páska til að skreyta kirkjuna, svo ræktuðum við nú heiimikið sjálfar hérna í gluggunum okkar.“ Dr. Bjarni Jónsson minntist þess að þegar hann var í fæði á Landa- kotsspítala 1937 hefði honum þótt þar veislumatur á hverjum degi. Eins og fleiri heyrði hann hann að nokkuð var kvartað yfir fæðinu, þó fremur þegar leið á. Hann benti á að daggjöld ríkisins hefðu verið hærri að tiltölu áður fyrr og sparn- aðurinn gæti hafa komið niður á matnum. Hitt er þó jafnlíklegt að sjúkling- ar hafi verið mishrifnir af fæðinu hjá systrunum þar eð það var frá- brugðið því sem þeir voru vanir og meira í ætt við hefðir á meginland- inu. Sumir voru hæstánægðir, kom- ust þarna í fyrsta sinn í kynni við grænmetis- og heilsufæði, en öðrum þótti kosturinn lítill og Vondur. Með aukinni þekkingu Islendinga og kynnum af öðrum þjóðum átti mat- aræði þeirra sjálfra hins vegar eftir að breytast á næstu áratugum og færast í áttina að því sem systurn- ar buðu upp á. En því má ekki gleyma að þúsundir sjúklinga og starfsfólks báru þekkinguna og smekkinn úr eldhúsum systranna með sér út á heimilin í landinu. Systurnar voru að þessu leyti með- al frumheija á mikilvægu svæði næringarfræði og matargerðarlist- ar á Islandi. í Hafnarfirði Fyrsta skóflustunga að St. Jós- efsspítala í Hafnarfirði var tekin 9. maí 1925 og í sama mánuði lagð- ur hornsteinn að spítalanum. Reisu- gildi var haldið 26. sept. 1925 en 4. feb. 1926 byijað að kynda húsið. Viðunandi varmi dreifðist um allt með svo góðum árangri, sagði í skýrslu á frönsku, „að hann fær mann til að gleyma því að maður sé á ís-landi“ („pays de glace“). Systir Viktoria príorinna í Landa- koti hafði umsjón með byggingu spítalans af hálfu reglunnar 1925—26. Hún kom öðru hvoru suðureftir ásamt öðrum systrum til að fylgjast með framkvæmdum. Ferðuðust þær oftast á hestbaki og höfðu í fyrstu skiptin næturstað í gistihúsi, því naumast var hægt að komast fram og til baka sama dag- inn. Miðvikudaginn 15. júlí 1926 hófu St. Jósefssystur svo búsetu í eigin húsi { Hafnarfirði. Þann dag kom systir Viktoría með kennslu- systrunum þremur í Landakoti, sem voru í sumarleyfi frá kennslu og áttu að standsetja það nauðsynleg- asta í byggingunni. Dagsetningin helgaðist af því að systrunum hafði verið tjáð að þennan dag mundu iðnaðarmenn leggja síðustu hönd á verkið, þótt það gengi ekki eftir. Síðdegis blessaði sr. Meulenberg svefnherbergi systranna og flutti bæn: „Blessa þú Drottinn, almáttugi Guð, þennan stað, svo að á honum megi ríkja heilbrigði, skírlífí, sigur, dyggð, auðmýkt, gæska og mildi, uppfylling iögmálsins og þakkir til Guðs Föður, Sonar og Heilags anda, og að þessi blessun hvíli yfír þessum stað og íbúum hans núna og um alla framtíð. Amen.“ Systurnar útbjuggu í samfélags- herbergi klausturhlutans í húsinu litla kapellu, því kirkjan var enn ekki tilbúin. Þær töldu sig óumræði- lega heppnar og hamingjusamar. Samkvæmt skilningi kaþólskra er Jesús Kristur sjálfur í altarissakra- mentinu. Helgaðar hostíur eru að staðaldri í kaþólskum kirkjum og kapellum, sem eru því heimiii Krists, en hins vegar fátítt að fólk fái að búa í guðshúsi. Fyrsta verk systranna á nýja staðnum var hins vegar að „ ... undirbúa bráða- birgðahúsnæði fyrir kæran Frelsara okkar, þar eð ekki var enn hægt að taka kirkjuna í notkun. Kl. sjö að kvöldi var búið að breyta samfé- lagsherbergi systranna í fagra, litla kapellu og við hlökkuðum til þess að næsta dag mundi Jesús búa undir sama þaki og við.“ Siðmenningarbyltingin Frumreynslu sína af mörgu því, sem með tímanum varð hluti af almennri siðvenju, öðlaðist stór hluti þjóðarinnar á fyrstu áratugum aldarinnar hjá St. Jósefssystrum á Landakotsspítala. Siðmenningar- bylting þeirra náði ekki bara til sjúklinga, lækna, starfsmanna og fólks í heimsóknum heldur fréttist af henni um land allt. Alls horfðu 18.236 sjúklingar í kringum sig í Landakoti fram að opnun Landspítalans 1930. Á bak við hluta af innlagnartölunni eru endurkomur sömu sjúklinga, en það breytir því ekki að allhátt hlutfall þjóðarinnar skynjaði vissa hlið á nútímanum upphaflega hjá St. Jósefssystrum. Þarna kynntist margur íslendingurinn í fyrsta sinn nútímalegum húsakynnum, baðker- um og vatnssalernum, líkama sín- um ólúsugum, hreinum fatnaði og rúmklæðum, hnífapörum, regluleg- um og hollum máltíðum, jurtafæði og stofublómarækt, nákvæmni eftir- klukku, vísindastarfsemi tækniald- ar, jafnvel nýjum sálmalögum. Nánast engin önnur sambærileg reynsluveröld var aðgengileg al- þýðu í Reykjavík, að Franska spítal- anum frátöldum. Almenn sjúkrahús á landsbyggðinni voru mun minni og flestar meiriháttar aðgerðir voru framkvæmdar hjá St. Jósefssystr- um. Meiri hluti sjúklinganna fram- an af kom utan af landi og nær allir læknar sem fóru þar til starfa fengu ákveðið uppeldi á spítalanum. Mun færri höfðu eigin reynslu af innlögnum og heimsóknum í ein- angrunarstöðvarnar, Laugames- spítalann (frá 1898), geðsjúkrahús- ið að Kleppi (frá 1907), berklahælið á Vífílsstöðum (frá 1910) og aðrar stofnanir sem síðar komu til sögu, þar sem aðbúnaður var um margt af svipuðum gæðastaðli og í Landa- koti. Þótt St. Jósefsspítali í Hafnar- firði kæmi ekki til sögunnar fyrr en 1926 þarf ekki að efast um að vist þar hefur einnig verið mörgum harla nýstárlegur lífsstíll. Systir Gabriella 1996 Þegar rætt er við systur Gabri- ellu 92 ára að aldri á hvíldarheimil- inu í Garðabæ er hún spengileg, sporlétt og glettin, svarar viðstöðu- laust og hlær við öðru hvoru. Minnið er gott. — Hver fannst þér aðalviðbrigðin þegar þú komst frá Danmörku til Islands? — Mér fannst gott að koma hing- að, en ég skildi samt ekki neitt, það var það versta. — En spítalinn, var hann ólíkur því sem þú hafðir vanist? — Ja-á, það var meiri fátækt hér ennþá, ekki jafn fínt og í Danmörku. — Fannst þér þetta þá erfíðara hér? — Nei, mér fannst þetta gott. Systumar sem unnu með mér vorij^ ánægðar líka. — Var skurðstofa hér ólík því sem var í Danmörku? — Ja, sem sagt, það var meiri fátækt hér, það var ekki eins mikið til og í Danmörku. — En vinnan, var hún svipuð? — Jú. — Var það öðmvísi vinna með íslenskum læknum heldur en dönsk- um? — Nei, mér fannst það nógu gott. Með mér störfuðu fleiri íslendingar en læknarnir, ein íslensk St. Jósefs- systir og ein íslensk hjúkrunarkona. — Hvemig fannst þér vistarver- urnar sem systumar höfðu hér? — Mjög góðar. — Þú ert svo jákvæð ... — ... ég hef alltaf verið ánægð. ST. JÓSEFSSYSTUR við bænahald í kapellu sinni í vesturálmu St. Jósefsspítala í Landakoti. Daglegar og reglulegar fyrirbænir voru fastir liðir í starfi þeirra og í kapelluna sóttu þær flestar guðsþjónustur nema á sunnudögum og hátíðum er þær fóru yfir götuna í Kristskirkju. í GRAFREITNUM að kórbaki Kristskirkju í Landakoti hvíla 35 St. Jósefssystur sem störfuðu hér á landi. Á flestum legsteinunum eru aðeins þau systranöfn sem þær tóku sér er þær unnu reglu- heit, en ekki skírnar- og fjölskyldunöfn. Hlutdelld St. Jósefssystra í þjónustu almennra sjúkrahúsa á íslandi 100-] 90 80 % sjúkllnga — % legudaga Sem hundraöshluti af heildarþjónustunni 70 ÓHT 1997 / Heimildir: Heilbrigöisskýrslur 60 50 \ 40 ■ ?M 30 | \ - 20 j?|| $i 10 ■ n 1$ 1903 1910 1915 1920 1925 1930 1933 1940 1945 1950 1955 1900 1965 1970 1975 1960 1965 1967 SYSTURNAR voru vanar garðstígum og gangstéttum í heimalönd- um sínum og þótti gönguferðir í íslensku umhverfi hressileg ævintýri. Myndin er tekin á fjórða áratugnum og á hvalshræinu standa, f.v., leiksystirin Remberta og slæðusysturnar Adriene, Ágústína príorinna í Hafnarfirði, Viktoría príorinna í Reykjavík, Clementía eldri, Febronia og Cyrilla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.