Morgunblaðið - 14.12.1997, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 14.12.1997, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA ÍDAG * Erindrekar í hugvekju dagsins segir sr. Heimir Steinsson: Reynsla mín af samferða- mönnum í áratuganna rás, segir mér þó, að beinir afneitarar, - svokallaðir guðleys- ingjar, - séu fáir. IÐULEGA hafa menn við mig orð á hugvekjum þeim, sem birtast hér í Morgunblaðinu á helgum dögum. Að jafnaði eru lesendur jákvæðir, og fyrir það þakka ég í þessum rituðum orð- um. Stundum heyri ég ábend- ingar til eftirbreytni. Þannig getur dálítil greinaröð í blaði orðið upphaf samræðna um hugstæð efni. Eftir hugvekjuna, sem birtist á sunnudaginn var, kom vinur minn að máli við mig og sagði: „Hún er vafasöm sú fullyrðing þín, að upp til hópa verði menn trúarlega fullveðja eða „raun- kristnir“, eins og þú kallar það, fyrr eða síðar á lífsferlinum. Sumir verða raunkristnir, hugsanlega allmargir. En flest- ir eru ósnortnir af trúnni alla ævi.“ Hugleiðum þetta litla stund. Ávöxtur lífsreynslu Trúin er sjóður, sem hveijum og einum stendur til boða að rækta með sér. Vissulega er þess kostur að vanrækja trúna, jafnvel afneita henni að fullu. Reynsla mín af samferðamönn- um í áratuganna rás segir mér þó, að beinir afneitarar, svokall- aðir guðleysingjar, séu fáir. Hinir eru fleiri, sem reynast tómlátir um trúna, láta sér fátt um hana fínnast. Allt um það hafa þeir veður af trúnni og vita, að hún er innan seilingar, þegar eftir er leitað. Trúin kviknar meðal annars á vegamótum ævinnar. Algeng- ast er, að hún glæðist í hug- skoti manna sem ávöxtur lífs- reynslu, þegar menn einhverra hluta vegna standa andspænis dýpri ráðgátum tilverunnar. Með nokkrum hætti verður að leita svars við þeim spuming- um, sem þá vakna. Maðurinn væri heillum horfínn, ef trúar- legar lausnir ekki hvörfluðu að honum við slík tækifæri. í hugheimi Svo er margt sinnið sem skinnið, og fjöldi leiða liggur að því marki að glæða trú við hjartarætur einstaklinga. Lest- ur góðra bóka verður ýmsum til uppbyggingar og á sundur- leita vegu. Þessa stundina er Andrés Björnsson að lesa „Að- ventu" Gunnars Gunnarssonar I Útvarpinu alla virka daga. Ævar Kjartansson skírskotaði tíl þessa lestrar nýverið og nefndi lesturinn „andaktina". Sú nafngift var engan veginn út í hött. Sama orð mætti við- hafa um fjölmargt annað í ís- lenzkum bókmenntum. Þá á ég einnig við svonefndar veraldleg- ar bókmenntir, en ekki einungis trúarrit. Ég leyfí mér að vitna í brot úr ljóði eftir Stein Stein- arr, en í 21. hluta Tímans og vatnsins kallast hendingar skáldsins á með þessum hætti: Ég hef búið mér hvílu í hálfluktu auga eilífðarinnar. - - Meðan eilífðin horfir mínum óræða draumi úr auga sínu. Enginn veit nú, hvert Steinn sjálfur stefndi með þessum ljóð- línum. En til íhugunar geta þær orðið kristnum lesanda, sem kunnugur er einingarreynslu einhver nothæfasta trúarjátn- ing, er samin hefur verið á ís- lenzku á 20. öld. Þótt mér þyki umrædd vísu- orð taka öðru fram, eru þau engan veginn neitt einsdæmi. íslenzkar bókmenntir í ljóðum og lausu máli búa yfír aragrúa efnis til uppbyggingar. Líklegt er, að athugull lesandi fínni þar fjölmargt sér til trúarlegs þroska. Tónheimar þjóna ekki síður en orðsins mennt sem uppbygg- ingarefni. Dijúgur hluti tónlist- ar í veröldinni er af trúarlegri rót. Nú á dögum unir vaxandi fjölmenni við tóna, lætur göfg- ast andlega og glæðir trú sína með þeim hætti. Þegar um það er rætt, hve margt það er, sem leiðir mann- inn til trúarþroska, skyldi nátt- úrunnar ríki sízt gleymast. Lækur í íjalli, gras á grundu, blómstur í garði, fjallstindur og andblær himins: Öll slá þessi rök hjartans hörpustrengi með þeim hætti, að trúin fær byr undir báða vængi. Menn bera kennsl á einingu sína við allífið og fyllast djúpri lotningu. „Hann er dáinn fyrir alla“ Raunkristinn einstaklingur hlýtur að ala með sér þá von, að sérhver maður leiti sér um síðir staðar í nánarfaðmi al- máttugs Guðs. Þetta vitum vér, að er þóknanlegt „frelsara vor- um Guði, sem vill að allir menn verði hólpnir og komist til þekk- ingar á sannleikanum", eins og segir í fyrra Tímóteusarbréfí (1. Tím. 2:3-4), en hliðstæð orð getur víðar að líta í Heilagri ritningu. Jesús Kristur kvaðst sjálfur vera kominn í heiminn „til þess að láta líf sitt til lausn- argjalds fyrir marga“ (Mark. 10:45), en Páll postuli víkur þeim orðum við og segir: „Og hann er dáinn fyrir alla, til þess að þeir, sem lifa, lifí ekki fram- ar sjálfum sér, heldur honum, sem fyrir þá er dáinn og uppris- inn“ (2. Kor. 5:15). Það er mikill viðburður í lífí kristins manns, er hann full- vaxta glöggvar sig á skírnarnáð sinni og fyrir heilagan anda eignast trú á Jesúm Krist sem persónulegan frelsara sinn. En þar með er honum líka falið það verkefni gagnvart bræðrum sín- um og systrum að styðja þau öll áleiðis til Guðs eða eins og postulinn einnig segir á síðast greindum stað. „Vér erum því erindrekar Krists“ (2. Kor. 5:20). Vonin um sáluhjálp öllum til handa knýr oss tíl að ganga erinda frelsarans og leiða aðra menn að krossi Krists. Hina fjölmörgu í öðrum heimshlut- um, sem aldrei heyra Drottins getið, felum vér órannsakan- legri mildi hins algóða Guðs, en staða þeirra í alverunni væri vissulega efni í aðra hugvekju við hentugleika. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Meiri umfjöllun um miðbæinn MIG langar að þakka Samúel T. Péturssyni fyrir mjög gott innlegg í um- ræðu um uppbyggingu miðbæjarins. Vonandi verður þetta bréf hans til þess að auka umræðu um þetta mál og æskilegt væri að fleiri, sem hafa áhuga á málinu, tjái sig um það. Sá hugsunargangur, að hafa miðbæinn sem eins- konar Árbæjarsafn þar sem engu má breyta, er að ganga af verslun í mið- bænum dauðri. Lesandi. Óréttlæti með próftíma MÉR finnst fáránlegt að það skuli þurfa að tíma- setja próf þannig að fjöldi manns nái ekki að ljúka prófi á tilskildum tíma. Þetta segir ekkert um þekkingu nemenda því sumir eru fljótari að skrifa og hugsa en aðrir. Mér finnst að fólk eigi að fá þann tíma sem það þarf til að ljúka prófi. Auðvitað þarf að setja einhver tíma- mörk en þau ættu að minnsta kosti að vera það rúm að flestir nái að Ijúka prófinu. Mér finnst alls ekki sanngjamt að fella menn á mætingu. Sumir lesa ut- anskóla og það er alveg hróplegt óréttlæti að menn sem ná prófi falli á mæt- ingu. Valborg Böðvarsdóttir. Ábending til foreldra í Garðabæ BORIÐ hefur á því að stálpaðir unglingar í Garðabæ hafi verið að kasta eggjum í hús hjá fólki í Holtsbúð. Er það eindregin ábending til for- eldra í hverfinu að þeir ræði þetta við böm sín. Ibúi við Holtsbúð. Poki tekinn í misgripum í flugi frá Dublin ÞORBJÖRG hafði sam- band við Velvakanda og sagðist hún hafa verið að koma heim frá Dublin mánudagskvöldið 8. des. Geymdi hún poka merkt- um Dublinar-fríhöfn í hólf- inu fyrir ofan sætið sitt. Það virðist sem einhver hafi tekið hennar poka í misgripum og skilið sinn eftir. Biður hún þann sem ruglaðist á pokum um að hafa samband við sig í síma 552 3893. Dýrahald Týndur köttur PATTARALEGUR, svart- ur og hvítur högni, með ljósbláa ómerkta ól, týndist frá Sogavegi 202, þriðju- daginn 9. desember. Hafi einhver orðið ferða hans var er hann beðinn að hringja í síma 553 7578. Tapað/fundið Slæða týndist ÞESSI litskrúðuga slæða týndist í miðbæ Reykjavík- ur fyrr á árinu einhvers staðar á leiðinni frá Mokka og um nálægar verslunar- götur. Slæðan er persónuleg eign, en myndin með slæð- unni var á filmu sem talið var að hefði glatast í fram- köllun en kom fram fyrir skömmu. Fundarlaunum er heitið þeim sem hefur fundið slæðuna. Vinsamlegast hringið í síma 557 3333. Morgunblaðið/ Ásdís. VIGFÚS Jón Vigfússon þriggja ára heilsar sveinka. Víkveiji skrifar... STUNDAGLAS ársins 1997 tæmist senn. Það er hálf önnur vika til jóla. Hálf þriðja til loka ársins, sem þar með hverfur í ald- anna skaut. Stytztu dagar ársins fara í hönd. Að viku liðinni er skammdegið mest. Það er samt ekki hægt tala um dimma desemberdaga. Skraut- Ijós, sem spanna allt litrófið, lýsa upp hús og hverfí, bæi og byggðir. Og vonandi nær Jólabarnið, sem er ljós heimsins, inn í hjörtu okkar og.hugi. Islendingar leggjast ekki í neins konar vetrarhíði deyfðar og doða í skammdeginu. Allt er reyndar á hraðferð. Allir í ati og önnum. Ann- ríki þessara desemberdaga er slíkt að það reynir til hins ýtrasta á taugaþanþol fólks, bæði á heimilum og á vinnustöðum, einkum þeim er tengjast ,jólavertíðinni“. Gauragangurinn er reyndar um of, varlega orðað. Menn þurfa að halda hugarró sinni; láta aðgát og hyggindi ráða ferð í jólaundirbún- ingi. Annað kemur ekki heim og saman við tilefni hátíðarinnar. Og jólin eru alltof dýrmæt til að sökkva þeim í angurgapahátt. XXX AÐ ÆTTI ekki að teljast til forréttinda að fá að móta eig- in framtíð. Þó búa milljónir manna við það að fá engu ráðið um líf sitt og hamingju. Þetta fólk býr við ör- birgð og óréttlæti, fólk, sem vegna aldagamalla venja og fordóma fær aldrei notið hæfíleika sinna né vinnu. Þar eru konur í meirihluta." Það er Vígdís Finnbogadóttir, fyrr- verandi forseti lýðveldisins íslands, sem þannig kemst að orði í „Margt smátt", fréttabréfí Hjálparstofnunar kirlq'unnar. Og hún bætir við: „Þar sem konur njóta heilsu- gæzlu, fræðslu og Qárráða hefur náðst árangur í baráttu við örbirgð og dregið hefur úr offjölgunar- vanda. Smálán til eigin atvinnu- reksturs, fræðsla um getnaðarvarn- ir og hreint vatn stuðla hvert um sig að bættum kjörum kvenna. Þær hafa reynzt skilvísir lánþegar og ávaxtað pund sitt vel. Konur eru farvegur breyttra tíma, ekki þægir þiggjendur. Á því leikur enginn vafí að baráttan er þeirra og landa þeirra og að hindrunum er smám saman rutt úr vegi. Við eigum þess kost að létta konum þriðja heimsins lífíð. Með hnitmiðaðri aðstoð getum við létt af þeim oki daglegs amst- urs svo þær geti í auknum mæli snúið sér að þátttöku í samfélaginu og farið að njóta ávaxta vinnu sinn- ar.“ xxx IGDÍS Finnbogadóttir er í þessum orðum að hvetja fólk til stuðnings við Hjálparstofnun kirkjunnar: „Ég tek því heilshugar undir markmið jólasöfnunar Hjálp- arstofnunar kirkjunnar að veita konum frelsi til að velja, velja fót- festu, velja öryggi, velja sér fram- tíð.“ Karlar geta tekið undir þessi orð, ekkert síður en konur. Þeir gera það í nafni réttlætis, í nafni mæðra, eiginkvenna, systra og dætra. Þeir gera það ekki síður í nafni áa okk- ar, sem þraukuðu við harðindi og kröpp kjör - og án teljandi mögu- leika til að njóta eigin hæfileika - á myrkum öldum íslands sögu. xxx SÉRHVER íslendingur ætti sjálfviljugur og með glöðum huga að setja Hjálparstofnun kirkj- unnar á jólagjafalista sinn. Við skulum í þessu sambandi muna eftir því að það skiptir máli inn í hvaða umhverfi, hvaða þjóð- skipulag, hvaða Qölskyldu barn fæðist. Barn, sem fæðist á íslandi, fæðist til annars og betra lífs, ann- arra og meiri möguleika en bam í fátækum og frumstæðum löndum þriðja heimsins. Börn vestrænnar velferðar skulda, að mati Víkveija, hjálparstofnunun, sem sinna þriðja heiminum, velferðarskatt. Hjálpar- stofnun kirkjunnar kemur þeim skatti, skattinum til „minnsta bróð- urins“, tryggilega til skila.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.