Morgunblaðið - 14.12.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.12.1997, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Sáttahugur í Castro fyrir heim- sókn páfa Fidel Castro Kúbuleiðtogi hefur ákveðið að fleiri katólskum prestum og nunnum skuli heimilað að starfa á eyjunni. Ásgeir Sverr- isson segir frá þessari ákvörðun og undir- búningi fyrir sögulega heimsókn Jóhannes- ar Páls páfa II til Kúbu. Reuters FIDEL Castro ásamt Jóhannesi Páli páfa II í Rómarborg í fyrra. Ca- stro sagði á fundi með þingmönnum frá Rómönsku Ameríku í siðasta mánuði að hann teldi páfa „raunverulegan dýrling". skipti um gervihnetti. Loks hafa fulltrúar Páfagarðs þrýst á stjórnvöld um að tryggja að nauðsynlegum samgöngum verði haldið uppi til þess að þeir sem vilja geti sótt messur páfa. Búist er við að mikill mannfjöldi komi í guðs- þjónustur hans þótt í einhverjum tilfellum verði þær haldnar á virk- um dögum. Vill kirkjan því að stjómvöld lofí að almenningssam- göngur verði skipulagðar í þessum tilgangi svo og að því verði heitið að þeim sem vilja verði gefíð leyfí frá vinnu til að sækja messurnar. Oop- inber fréttastofa Páfagarðs, FIDES, skýrði frá því fyrr í mánuð- inum að stjórnvöld hefðu hótað áð reka úr starfi alla þá sem sæktu guðsþjónustur þessar en þá frétt hefur kirkjan á Kúbu ekki staðfest. Castro kveðst áhugasamur Haft hefur verið eftir ónefndum talsmönnum kirkjunnar að ennþá hafí stjórnvöld á Kúbu einungis gefíð „loðin svör“ við beiðnum þessum. A hinn bóginn mun Cástro hafa lýst yf- ir því á fundi með Joaquín Navarro Valls, talsmanni Páfagarðs, að hann vildi að heimsókn Jóhannesar Páls páfa II „tækist vel“ enda hefði hann „sérlega mikinn áhuga“ á persónu hans. Sjálfur hefur Navarro Valls lýst ánægju með gang viðræðna. Telja kirkjunnar menn að starfsleyf- in prestunum og nunnunum 57 til handa séu til marks um „góðan hug“ stjórnvalda fyrir heimsóknina. STJÓRNVÖLD á Kúbu hafa gefið 57 erlendum nunnum og prestum til viðbótar leyfi til að starfa á eyjunni og hafa þjónar kirkjunnar ekki verið fleiri þar í rúmlega 30 ár. Þessi tilslökun kommúnistastjómarinnar sem Fidel Castro hefur leitt frá árinu 1959 er til komin sökum fyrirhugaðrar heim- sóknar Jóhannesar Páls páfa II til Kúbu í janúarmánuði. Nokkur spenna hefur einkennt undirbúning heimsóknarinnar og enn hefur stjóm Castros ekki orðið við helstu kröfum kirkjunnar í tengslum við hana. Embættismenn katólsku kirkjunn- ar höfðu sett það sem skilyrði fyrir heimsókn páfa, sem standa mun yfir frá 21.-25. janúar, að fleiri erlendum guðsmönnum yrði leyft að starfa í landinu. Nú halda þar til um 500 nunnur og 250 prestar, um helmingur þeirra útlendingar. Nunnumar 29 og prestamir 28, sem nú bætast við, koma írá Spáni, Kólumbíu og Haítí. Þessi ákvörðun stjórnar Castros er til marks um batnandi samskipti ríkisvaldsins og kirkjunnar á Kúbu. Hefur tilkynningu um starfsleyfin kirkjunnar þjónum til handa verið fagnað og þykja þau til þess fallin að greiða fyrir undirbúningi vegna komu páfa. Kommúnistar hafa verið einráðir á Kúbu í tæp 40 ár og fyrir aðeins fáeinum áram hefði slík heim- sókn verið með öllu óhugsandi. 30 ára guðleysi Við lok byltingarinnar árið 1959 voru á eyjunni næstum 800 prestar og um 2.500 nunnur. Kommúnískt guðleysi var síðan innleitt sam- kvæmt tilskipun stjórnvalda árið 1962. Árið eftir voru 130 prestar, helmingur þeirra Kúbanir, reknir úr landi en þá hafði Castro komist að þeirri niðurstöðu að margir þeirra væra á mála hjá bandarísku leyniþjónustunni, CIA. Um 470 prestar til viðbótar neyddust til að yfirgefa eyjuna þegar starfsleyfi þeirra fengust ekki endumýjuð og hið sama átti við um rúmlega 2.000 nunnur. Hinum kirkjuræknu var aldrei beinlínis bannað að iðka trú sína en stjómvöld gerðu þeim erfitt fyrir. Fjöldi kirkna var takmarkaður og hinum trúuðu var bannað að ganga í Kommúnista- flokkinn og þar með mein- að að taka við mikilvægum embættum hjá ríkisvald- _______ inu, sem enn gín yfir öllu á eyjunni. Breyting varð á þessari stefnu ár- ið 1992 er opinbert guðleysi var aflagt. I nóvember í fyrra, skömmu fyrir fund þeirrar Castros og páfa í Rómarborg, var 15 katólskum prest- um og 25 nunnum heimilað að taka til starfa á Kúbu. Aldrei áður frá ár- inu 1959 höfðu svo mörg leyfi verið HOLLUSTAN við Castro látin í ljós í Havana. I messum páfa munu eyjarskeggjar kynnast sjónarmiðum sem em þvert á opinbera stefnu stjómvalda. Reuters Batnandi samskipti rík- is og kirkju veitt á einu ári. Akvörðunin nú fyrir Kúbufor páfa er því enn nýtt „met“ í þessu tilliti. Nú er að finna á Kúbu um 600 kirkjur og þar starfa næstum 80 kat- ólskar trúarreglur. Erkibiskupar kirkjunnar á Kúbu hafa um nokkurt skeið lagt þunga áherslu á að fá fleiri útlendinga þar til starfa. Á hinn bóg- inn eru aðeins um 15% íbúanna virk- ir katólikkar þótt guðleysið hafi formlega verið aflagt en um 11 millj- ónir manna búa á Kúbu. „Raunverulegur dýrlingnr" Kúba er eina spænskumælandi landið sem Jóhannes Páll páfi II hef- ur enn ekki heimsótt. Stjórn Castros telur greinilega að koma hans geti orðið til þess að rjúfa þá einangran, -------- sem Kúba hefur sætt á al- þjóðavettvangi undir for- ustu Bandaríkjamanna. Hápunktm- heimsóknar- ________ innar í janúar verður messa í miðborg Havana og hefur Castro látið þau boð út ganga að hann hyggist sækja hana. Páfi mun messa á nokkram stöðum á eyjunni og gert er ráð fyrir að þeir Castro hittist á meðan hans heilag- leiki dvelst á Kúbu aúk þess sem ákveðinn hefur verið formlegur fundur þeirra 22. janúar. Haft hefur verið eftir Castro að hann telji páfa „raunveralegan dýrling“. Fulltrúar Páfagarðs hafa haldið nokkram sinnum til Kúbu í því skyni að undirbúa komu páfa og hafa hitt Castro sjálfan að máli. Á miðvikudag í liðinni viku kom síðan Raúl Castro, bróðir Kúbuleiðtogans, í „einkaheim- sókn“ í Páfagarð og þótti víst að til- gangurinn væri sá að ganga frá ýms- um atriðum í tengslum við heim- sóknina. Krafíst aðgangs að fjölmiðlum Kirkjunni hefur einkum verið um- hugað um að tryggja aðgang sinn að fjölmiðlum á Kúbu bæði fyrir heim- sóknina og á meðan á henni stendur. Katólska kirkjan gefur að vísu út 12 tímarit og fréttabréf á Kúbu en upp- lagið er lítið og útbreiðslan takmörk- uð. Má til marks um það nefna að stærsta upplagið er 85.000 eintök en þar er um að ræða fréttabréf sem er aðeins ein síða og nefnist Vida Crist- iana. Kirkjuna á Kúbu skortir flest þegar tæki og tól era annars vegar. Sex mánuðir eru nú liðnir frá því að hún fór fram á opinbert leyfí til að kaupa fjórar ljósritunarvélar og hef- ur það enn ekki verið veitt. Kirkjan hefur farið þess á leit við stjómvöld að sendir verði út fræðsluþættir, unnir í Páfagarði, um hans heilagleika og hvers vegna hann vilji sækja Kúbu heim. Tryggt verði og að háttsettir fulltrúar kirkj- unnar fái aðgang að sjónvarpi og út- varpi fyrir heimsóknina. Jafnframt vill kirkjan að fjórar messur páfa á Kúbu verði sýndar í sjónvarpi þar í beinni útsendingu. Útiguðsþjónustur Þá hafði verið gert ráð fyrir að 13 útiguðsþjónustur færa fram í desem- ber í Havana til að „undirbúa 1 úbönsku þjóðina" undir það sem í vændum væri. Stjórnvöld hafa þrá- ast við að veita nauðsynleg leyfi og gert allan undirbúning erfiðari en ella með takmörkunum af ýmsum toga auk þess sem treglega hefur gengið að semja um messustaðina. Nokkrar útimessur hafa þó verið haldnar í þessum mánuði og í nóv- ember. --------- Kirkjunnar menn hafa einnig haft áhyggjur af að- stöðu þeirra fréttamanna sem fylgja munu páfa til Kúbu. Vitað er að grannt verður fylgst með heimsókninni víða um heim enda um merk tímamót að ræða og er gert ráð fyrir að alls komi um 3.000 fulltrúar erlendra fjölmiðla til landsins. Margir telja að yfirvöld muni ekki ráða við að taka á móti þessum fjölda auk þess sem ástæða þykir til að óttast að Castro banni að fram fari frá Kúbu eftirlitslaus sam- „Loðin svör“ við kröfum kirkjunnar „Drög að samkomuIagi“ Emilio Arranguren, framkvæmda- stjóri biskuparáðs Kúbu, sagði í lið- inni viku að stjórnvöld teldu sig að- eins getað heitið um helmingi þeirra bifreiða, sem taldar væra nauðsyn- legar til að þeir sem vildu gætu sótt fjórar útimessur páfa en áætlað er að allt að ein og hálf milljón manna hyggist taka þátt í þeim. Hann sagði „drög að samkomulagi" liggja fyrii' varðandi aðrar kröfur kirkjunnar um aðgang að kúbönskum fjölmiðlum. Þau svör bærust að enn væri „verið að meta“ beiðni um að heimilda- myndfr um páfa og kfrkjuna yrðu sýndar í sjónvarpi fyrir heimsókn- ina. Hvað beinar útsendingar varð- aði segðu embættismenn nú að „erfitt yrði“ að koma fyrir tveimur messum að morgni fimmtudags og fóstudags (þ.e. 22. og 23. janúar) „þar eð kúbanska ríkissjónvarpið sendir aldrei út að morgni dags.“ Varðandi messur á laugardeginum og sunnudeginum „gæti verið“ að þær yrðu sýndar í beinni útsendingu. Blöð og tímarit kommúnistastjórnar- innar hafa aftur á móti birt greinar um hans heilagleika á síðustu vikum. Jólin verði endurvakin Loks er ótalin sú von kirkjunnar manna á Kúbu að jóladagur, 25. des- ember, verði á ný gerður að opinber- um hátíðardegi. Páfi fór fram á þetta er þeir Castro funduðu í Páfagarði í fyrra og hafa vonir vaknað um að jóladagur verði á ný gerður að frídegi í tengslum við heimsóknina. Jólin vora afnumin á Kúbu árið 1969 er Castro sagði að mönnum bæri frekar að einbeita sér að sykurupp- skerunni. Að sögn Jaime Ortega, erkibiskups í Havana, hefur ekkert „áþreifanlegt" komið fram sem gefur til kynna að þessu verði breytt. Or- tega hefur hvatt eyjarskeggja til að halda jólin hátíðleg „með sínum hætti“ og segist telja að heimsókn páfa hafi þegar skilað miklum ár- angri því svigrúm manna til að iðka trú sína hafi verið aukið á Kúbu. Útlagar auka þrýstinginn Engum dylst að undirtónar þessar- ar heimsóknar páfa til Kúbu verða stórpólitískir. Það svigrúm sem skap- ast munu stjómvöld á Kúbu sem og fjendur þeirra reyna að nýta sér til fullnustu. Þannig liggur enn ekki fyrir hvort ríkis- stjómin heimilar útlögum sem hyggjast koma sjóleiðina frá Bandaríkjunum að taka land á eyj- unni. För þessa skipuleggur ráð erki- biskupa í Miami og hefur Bandaríkja- stjóm ákveðið að veita þeim sérstaka undanþágu frá gildandi banni á ferð- um til Kúbu í því skyni, að sögn, að þeir geti sótt messur páfa í sínu gamla heimalandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.