Morgunblaðið - 14.12.1997, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.12.1997, Blaðsíða 22
8£ veer aaaMsaaa m HUOAauKViua 22 SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 aiaAuqnuoHOM MORGUNBLAÐIÐ NORRÆNU ríkissjón- varpsstöðvamar hafa lengi unnið saman að dagskrárgerð og skipst á efni, en auk þess hefur verið rætt um samnorræna gervihnattasjón- varpsrás og norrænan gervihnött. Miðlun sjónvarpsefnis á milli land- anna þykir efla samskipti og auka skilning á menningu og tungum þessara frænd- og grannþjóða. Mörgum ofbýður flóð sjónvarps- efnis frá enskumælandi löndum og meðfylgjandi áhrif enskrar tungu sem hellast ekki síður yfír Norður- lönd en aðra heimshluta. Samstarf Norðurlanda á sviði sjónvarps er ekki einungis á menningarlegum grunni, heldur einnig tæknilegum. Á 49. þingi Norðurlandaráðs, í Helsinki í nóvember síðastliðnum bar þessi mál enn á góma. Sigríður Anna Þórðardóttir alþingismaður sat í vinnuhópi Norðurlandanefnd- ar sem samdi tillögu um aukið samstarf á sviði fjölmiðlunar og samþykkt var á þinginu. Tillagan er tvíþætt: Að Norður- landaráð beini því til ríkisstjóma Norðurlanda að þær verji fé tii efl- ingar samstarfi norrænna sjón- varpsstöðva með það fyrir augum að fólk geti séð sjónvarpssendingar grannþjóða og að samvinna milli landa um dagskrárgerð verði aukin verulega. Eins að ríkisstjómir Norðurlanda beiti framkvæði í samskiptum sínum við útvarps- stöðvar í almannaþágu (public service) og norræn dreifíngar- og símafyrirtæki til þess að fundnar verði sameiginlegar norrænar, eða þjóðbundnar, tæknilegar lausnir sem séu samrýmanlegar á Norður- löndunum. Stefnubreyting Sigríður Anna segir að í þessari tillögu felist stefnubreyting frá fyrri hugmyndum. Áður fyrr beindist athyglin að sameiginlegri rás, þar sem blandað væri saman dagskrárefni frá öllum löndunum. Nú er stefnt að því að íbúar hvers lands geti séð sjónvarpsútsending- ar frá hinum löndunum. Vinningshafar í Jólaleik Hard Rock Cafe Geisladískur með Gunna og Felix: Kristjana Zoéga. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes Pétur Jóhann, Meistaravellir 15.107 Reykjavík Fanney G. Skeggjagata 21.105 Reykjavík Þóra Ingólfsdóttir, Sjávargata 32, 230 Njarðvík Hildur Sólmundsdóttir, Súluhólar 8,111 Reykjavík Edda Hreinsdóttir, Vesturás 46,110 Reykjavík Eyrún , Álttamýri 49,108 Reykjavík Bryndís Jónsdóttir, Ugluhólar 8,111 Reykjavík Kristín Eva Jónsdóttir, Blöndubakki 6,109 Reykjavík Krystyna M. Háaleitisbraut 103,108 Reykjavík Helga Pórunn óttarsdóttir, Tjarnarmýri 10, 170 Seltjarnarnesi. Póra Jónsdóttir, Tjarnarmýri 10,170 Seltjarnames Erna Einarsdóttir, Tjarnarmýri 10,170 Seltjarnames Gerður, Tungubakki 16,109 Reykjavík Óskar, Lálandi 14,108 Reykjavík Fanney Gunnarsdóttir, Skeggjagata 21, 105 Reykjavík Glódís Guðmundsdóttir, Vesturberg 144, 111 Reykjavík Sindri Sævarsson, Eiðistorg 17,170 Seltjarnarnes Gréta Morthens, Eiöistorg 17,170 Seltjarnarnes Baldur Pór, Hulduland 7,108 Reykjavík Hildur Vala, Geitland 12,108 Reykjavík Brynja I, Maríubakki 6,109 Reykjavík Arnór, Smáragata 5,101 Reykjavík Auður Stefánsdóttir, Geitland 12,108 Reykjavík Magnús, Skeggjagata 21,105 Reykjavfk Hamborgaraveisia fyrir 4 Elva Arnarsdóttir, Kringlan 27,103 Reykjavík Vinningshalar fá vinninga senda heim! Gunni og Felix koma á Hard Rock kl. 15.00. í dag og skemmta! NORRÆNT ar ár en mánuði. Viðsemjendur sjónvarpsstöðvanna era m.a. sam- tök höfundarréttarhafa, lista- manna og dreifenda sjónvarpsefn- is. Pétur sagði að dreifingu dag- skráa norrænu sjónvarpsstöðvanna fylgdi nokkur kostnaður, m.a. við gervihnetti, en hann ætti ekki að vera óyfirstíganlegur. Ekki væri vitað um hvað’ kostaði að nota Cantat-3 ljósleiðarann til þessarar dreifingar. „Þarna er um að ræða margar rásir. I fyrstu umferð myndum við hugsa um aðalrás danska sjón- varpsins, norska sjónvarpsins og tvær meginrásir sænska útvarps- ins,“ sagði Pétur. „Það er afskap- lega eðlilegt viðfangsefni fyrir Rík- isútvarpið að dreifa norrænu sjón- varpsstöðvunum hér.“ Stafrænn staðall Samstarf norrænna ríkisút- varpsstöðva er margra áratuga gamalt. Nú er að hefjast nýr kafli í þessu samstarfi því norrænu ríkis- stöðvarnar, nokkur símafélög og dreifingarfyrirtæki, þar á meðal Póstur og sími hf., hafa sett sér það takmark að búa til nýjan staðal fyrir stafrænar útvarps- og sjón- varpssendingar. Að sögn Péturs Guðfinnssonar útvarpsstjóra var þetta ákveðið á fundi fulltráa þess- ara aðila 5. nóvember sl. í Oðinsvé- um. „Um tíma leit út fyrir að Norð- urlöndin færa í tvær mismunandi áttir í þeim efnum, en við það að ná saman um staðal myndast einn stór markaður og samskipti á þessu sviði milli landanna verða auðveldari,“ sagði Pétur. í fréttatilkynningu frá fundinum í Oðinsvéum segir að sjónvarpsfé- lög og símafélög á Norðurlöndum, sem dreifa útvarps- og sjónvarps- efni um senda á jörðu niðri, kapal- kerfi og gervihnetti, hafi ákveðið að vinna að því að semja sam- ræmdan staðal og leikreglur fyrir frekara samstarf um dreifingu stafræns sjónvarps. Þessi eining er sögð mikilvægur áfangi í norrænu samstarfi á þessu sviði og staðfesta þann vilja að þeir möguleikar sem felast í stafrænni sjónvarpstækni verði hagnýttir. Jafnhliða skapist forsendur til að norrænir sjón- varpsáhorfendur geti horft á dag- skrár frá nágrannalöndum. Hagsmunir neytenda era lagðir til grandvallar þessu starfi. Menn gefa sér að það sé í þágu neytenda að breytingin frá hliðrænu sjón- varpi yfir í stafrænt verði sem auð- veldust, um leið og þeir öðlist sem mest frelsi til að velja á milli óiíkra rása, þjónustumöguleika og dreifi- kerfa. Reynt verður að stytta eins og mögulegt er þann tíma sem hlið- rænar og stafrænar sendingar verða samhliða. Ætlunin er að notendur geti not- að sama móttökubúnað til að taka við öllum stafrænum útsendingum og þjónustum á Norðurlöndum, þannig geti eitt viðtæki numið út- sendingar um kapal, frá sendi á jörðu niðri, gervihnöttum og um stafrænar símalínur (ADSL). Stefnt er að því að samkomulag náist á næsta ári um aðgangskerfi, það er læsibúnað og myndlykla. Næsta vetur stendur til að fram- „Það var mjög mikil eining um þessa breyttu afstöðu," sagði Sig- ríður Anna. „Við lögðum áherslu á nokkur atriði: Að hægt verði að horfa á útsendingar norrænu sjón- varpsstöðvanna um öll Norðurlönd, að áfram verði staðinn vörður um ríkissjónvarpsstöðvamar sem reknar eru í al- mannaþágu (public service). Eins að lögð verði áhersla á gæði við dagskrárgerð. Það er að- alatriðið að framleiða gott efni, annars vill fólk ekki horfa á það.“ Sigríður Anna sagði að nefndin hefði einnig lagt áherslu á að möguleikar nútímatækni yrðu not- aðir til þess að ná því markmiði að allir íbúar Norðurlanda gætu séð norrænu stöðvamar. í framtíðinni mun stafræn tækni við útsendingar taka við af hliðrænni og lagði nefndin áherslu á að kostnaður við þá breytingu kæmi ekki niður á dagskrárgerð, hvorki innan hvers lands né í samstarfsverkefnum. Þá hvatti nefndin til þess að Norðurlöndin sameinuðust um staðal fyrir móttöku- tækni. Einkum á þetta við um móttökubúnað fyrir gervihnattasjón- varp. „Nútímatækni gerir að verkum að loks- ins verður hægt að gera þann draum að veraleika að við sjáum sjónvarp hvert annars,“ sagði Sigríður Anna. „Margir Sví- ar, Norðmenn og Danir sjá nú þegar sjónvarpsútsendingar frá grannþjóðunum. Eg er viss um að aðgerðir á þessu sviði geta styrkt tungumálaskilning á milli landa. Tæknin gerir kleift að senda efnið Norðurlanda- þjóðir geti séð sjónvarp hver annarrar frá nágrönnunum um kapalkerfi til allra landsmanna viðkomandi landa. Dreifing um gervihnetti til annarra landa en þessara er ekki inni í samningnum. Að þessum samningum óbreyttum má t.d. RUV ekki taka við dagskrám þess- ara norrænu stöðva og endurvarpa þeim. „Til þess að koma okkur inn í myndina þyrfti að fara í gegnum þetta samninga- ferli allt aftur,“ sagði Pét- ur. En telur Pétur að ályktun Norð- urlandaráðs ýti á að samningarnir við rétthafa verðir endurskoðaðir? „Það dregur ekki úr því,“ sagði Pétur. „En það tók mörg ár á sín- um tíma að ná þessum samning- um.“ Pétur sagði að af fenginni reynslu mætti ráða að samninga- viðræður af þessu tagi tækju frek- leiðendur búnaðar fái í hendur staðal fyrir búnað sem reiknað er með að komist í framleiðslu 1998-99. Jón Þóroddur Jónsson, fram- kvæmdastjóri Þjónustusviðs fjar- skipta hjá Pósti og síma hf., hefur tekið þátt í þessu starfi fyrir hönd P&3. „Það sem Norðurlöndin era að gera er að reyna að ýta undir að það verði til alheimsstaðall á þessu sviði,“ sagði Jón Þórodd- ur. „I dag era hinir og þessir að framleiða og þróa stafrænan læsibún- að, en hafa ekki komið sér saman um einn staðal. Norðurlöndin ætla að gera líkt og þau gerðu með GSM símakerfið, að ýta í gang stöðlunarvinnu sem nær fótfestu á Norðurlöndum, teygir sig yfir Evr- ópu og helst allan heiminn. Upp- ranalega hugmyndin að GSM varð einmitt til í samnorrænu starfi." Norrænn staðall fyrir stafrænt sjónvarp SJONVARP AFTUR Á DAGSKRÁ út textað, bæði á viðkomandi þjóð- tungu og með þýðingu á ýmsum tungum sem áhorfandi getur valið um. Möguieikamir virðast vera nær ótæmandi og það í sjálfu sér er ákaflega spennandi. Þess vegna finnst mér raunhæft að vænta þess að meira komi út úr þessu nú en hingað til.“ ísland utangátta Pétur Guðfinnsson útvarpsstjóri sagðist vona að sá dagur kæmi að mögulegt yrði að framkvæma til- lögu Norðurlandanefndar um dreifingu dagskráa norænu sjón- varpsstöðvanna um öll Norðurlönd. Hann sagði samninga sjónvarps- stöðva fjögurra Norðurlanda við rétthafa efnis þannig að Finnar, Norðmenn, Svíar og Danir geti hverjir leitt sjónvarp annarra á milli þessara fjögurra landa með kapalsjónvarpsstöðvum. Forsenda þess er að útsendingar jarðsenda í þessum löndum sáust innan landamæra nágrannalandanna. Þannig gátu þeir sem bjuggu næst landamæram séð sjónvarp ná- grannaþjóða. Síðan var samið um að dreifa mætti þessum sendingum I norrænu samstarfí hefur lengi verið rætt um miðlun sjónvarpsefnis á milli Norður- landa. Guðni Einarsson kynnti sér nýlega stefnubreytingu í norrænu sjónvarpssam- starfí og áform um samstarf við stafræna sjónvarpstækni. Jón Þóroddur Jónsson. Sigríður Anna Þórðardóttir. Pétur Guðfinnsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.