Morgunblaðið - 14.12.1997, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 14.12.1997, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Kristinn Björnsson keppir í svigi heimsbikarsins í Sestriere Ólafsfjörður Lillehammer í Noregi Þar býr Kristinn Vetrarólympíuleikarnir Stórsvig 18. feb. Svigkeppni 21. feb. Hinter Tux í Austurríki Nagano í Japan Þar æfir Krístinn með finnska landsliðinu Kitzbuhel í Austurrlki í S-Kóreu @: Schladming í Austurríki Wengen í Sviss Hinter Tux Austurríki er Sestriere á l'talíu ©: Madonna di Campiglio á ítaliu Kranjska Gora í Slóveníu Heimsbikarmót í svigi Heimsbikarmót í svigi 25. janúar 1998 Heimsbikarmót i svigi 10. janúar 1998 Heimsbikarmót i svigi 18. janúar 1998 Heimsbikarmót í svigi 15. des. 1997 Hlakka mikið til KRISTINN Björnsson, skíðakappi frá Ólafsfirði, hefur æft síðustu daga í St. Jakob í Austurríki nteð finnska landslið- inu. Hann hugðist keppa á Evrópubikarmóti í svigi í Obereggen í gær, laugardag og ætlaði eftir það yfir til Ítalíu þar sem hann keppir í heimsbikarmótinu í svigi á mánu- dagskvöld. „Ég hlakka mikið til að keppa í Sestriere. Það hefur gengið mjög vel á æfingum undanfarna daga og ég bíð spenntur eftir mótinu á Ítalíu,“ sagði Kristinn við Morg- unblaðið. Valur B Jónatansson skrífar Kristinn náði sem kunnugt er öðru sæti á fyrsta heimsbikar- mótinu í svigi í Park City í Banda- ríkjunum í síðasta mánuði. Arangur hans þar vakti mikla athygli í skíðaheiminum. Þar sló hann mörgum frægum skíða- köppum við - náði langbesta brautartímanum í síðari umferð. Þar braut hann einnig blað í is- lenskri skíðasögu með því að verða fyrstur Islendinga til að komast á verðlaunapall í heimsbikarmóti. Arangur Kristins þýðir að hann verður ekki aftar en 25. í rásröð- inni í Sestriere, en hann vár með rásnúmer 49 í Park City. Hann getur jafnvel startað enn framar ef einhver forföll verða hjá þeim sem eru ofar en hann á styrkleikalist- anum. Hann þekkir vel brekkumar í Sestriere, enda keppti hann á heimsmeistaramótinu þar fyrir ári. „Brautirnar eru yfírleitt mjög langar í Sestriere, tæp mínúta hver umferð. Brekkan er líka nokkuð brött niður í miðja braut, en síðan flöt í endamarldð. Ég á von á því að það verði gervisnjór í brekkunni og það ætti að henta mér vel því hart skíðafæri á vel við mig,“ sagði Ólafsfírðingurinn. í góðri æfingu Hann sagðist hafa fengið væga flensu þegar hann kom frá Banda- ríkjunum en væri nú búinn að ná sér fullkomlega. „Ég náði þremur æfingadögum í Lillehammer og síðan næ ég þremur hér í Austur- ríki fyrir mótið á Ítalíu. Hér í St. Jakob er mjög góður snjór og við erum með góða aðstöðu til æfinga. Mér hefur gengið vel á æfingum, svipað og var íyrir mótið í Park City. Ég get því ekki annað en ver- ið bjartsýnn.“ Hann sagðist ekki hugsa mikið um heimsbikarmótið í Sestriere, heldur einbeitir sér að æfingunum þessa dagana. En skyldi þessi góði árangur í Park City hafa áhrif á hann í næsta móti? „Nei, það held ég ekki. Ég veit hvað þarf til að ná góðum árangri. Ég geri mér þó ekkert of miklar vonir fyrirfram, Nicholas best BRESKI kylfingurinn Aiison Nieholas hlaut í gær verð- latin frá evrópskum íþrötta- fréttamönnum með golf sem sérgrein. Verðlaunin eru veitt árlega og hlaut Nicholas þau nú fyrir frá- bæra frammistöðu og sigur á Opnu bandarlsku meist- aramöti kvenna. Ryder-lið Evröpu varð í öðru sæti og Colin Montgomerie í því þriðja. reyni bara að gera mitt besta. Keppnin er hörð og það má ekkert út af bregða. Skíðakeppni er nú einu sinni þannig að ein smávægi- leg mistök geta kostað dýrmætar sekúndur,“ sagði skíðakappinn. Næst í Madonna Eftir mótið í Sestriere færir Kristinn sig til Madonna di Campiglio, sem er í norðurhluta Italíu. Þar fer þriðja svigmótið fram að kvöldi 22. desember. Síðan verður gert hlé á keppninni fram yfir áramót. Fyrsta mótið á nýju ári verður í Kranjska Gora í Sló- veníu 4. janúar. AIls eru níu heims- bikarmót í svigi á keppnistímabil- inu, auk vetrarólympíuleikanna sem fram fara í Nagano í Japan í febrúar. KRISTINN BJömsson kepplr f svlgl helmsblkarslns f Sestriere á ítalfu á mánudagskvöld. Æflngar hafa genglð vel og hann er bjartsýnn. KRISTINN BJORNSSON OG KEPPNIN A HEIMSBIKARMOTUNUM I SVIGI í VETUR 0) Crans Montana í Sviss Heimsbikarmot i svigi 15. mars 1998 Heimsbikarmót í svigi 1. mars 1998 Ætla að stækka Highbury Forráðamenn Arsenal ætla að stækka hinn fomfræga völl liðsins, Highbury. Völlurinn tekur nú 38.500 í sæti, en við stækkun á völl- urinn að taka 50 þúsund áhorfendur. Hig- hbury hefur þau sérkenni, að hann er inn í miðju úbúðarhverfi - Islington í Norður- London, og eru íbúðarhús allt í kringum völl- inn. Austurhluti vallarins er friðlýstur, nýbúið er að byggja upp áhorfendastæðin norðan megin við völlinn, þar sem hörðustu stuðn- ingsmenn Arsenal mæta til leiks. Fyrir tíu ár- um var suðurhluti vallarins endurnýjaður og byggt það hús, sem hefur að geyma mörg stór herbergi fyrir fyrirmenn, til að horfa leiki. Rætt er um að gera breytingar þar á og stækka vesturstúku vallarins. Til að stækka áhorfendastúkuna til vesturs verður að rífa niður 25 íbúarhús. Arsenal mun aldrei flytja sig um set, eins og mörg félög á Englandi hafa gert er þau hafa byggt upp nýja leikvelli. Highbury er hjarta Islington - þar í hverfi snýst allt um Arsenal. Rúmlega hundrað íbúar við göturnar sem umliggja Highbury voru með mótmæli á fyrir- hugaðri stækkun vallarins í fyrrinótt. Helstu rökin voru að með stækkun myndi umferðin um hverfið aukast. Það eru haldlítil rök, því að það munar ekki svo mikið um tólf þúsund manns - annan hvern laugardag í Islington. Zidane segir Man. Utd. besta liðið FRANSKI landsliðsmaðurinn Zinedibe Zida- ne, sem leikur með Juventus, hrósar liði Manchester Utd. og segir það besta liðið í Evrópu. Zidane vitnar til gengi liðsins í riðla- keppninni í meistaradeild Evrópu, en átta lið eru eftir í keppninni. United er efst á blaði hjá veðbönkum í London yfir líklega sigurvegara. Röðin á liðunum átta sem eftir eru, er þannig: Man. Utd. 5-2, Juventus 11-4, Real Madrid 5- 1, Bayem Múnchen 6-1, Dortmund 9-1, Dyna- mo Kiev 12-1, Mónakó 14-1, Leverkusen 16-1. Argentínu- merin á ferð og flugi ARGENTÍNUMENN ætla að undirbúa sig mjög vel fyrir heimsmeistarakeppnina í Frakklandi næsta sumar. Þeir ætla að leika níu landsleiki og alla á útivöllum - þrjá í febr- úar, þrjá í apríl og þrjá í maí. Tveir leildr eru þegar dagsettir - gegn Ítalíu 25. febrúar og Brasilíu 29. apríl. Ai'gentínumönnum hefur verið boðið að taka þátt í fjögurra liða móti í Marokkó, en Belgíumenn og Frakkar hafa einnig fengið boð. Þá er ljóst að Argentínu- menn taki heimboði frá Hollandi og Tékklandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.