Morgunblaðið - 14.12.1997, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997
Sl\ll
l.ausiivfsi {#4
jtsní íií'jui
iJU'jiio'yuy
Dr. Eugene Sands (David Duchovny) er ungur skurðlæknir sem hefur ánetjast
eiturlyfjum og misst lækningarleyfið. Kvöld eitt dregst hann inn í glæpaheim
Raymonds (Timothy Hutton) og hinnar undurfögru Clarire (Angeline Jolie) þegar hann
bjargar lífi manns eftir skotárás á bar, eitthvað sem hann hefði ekki átt að gera.
RF-DCRAVI
FÖTBHUC
aáíir_J
Sjónvarpið ►22.20 Laugarásbíó
hefur verið að sýna áhugaverða
breska mynd um ævi og ástir Oscars
Wildes og nú sýnir sjónvarpið
breska sjónvarpsmynd um einlægan
aðdáanda Wildes, strætisvagnsstjóra
I í Dublin sem stendur fyrir uppfærslu
áhugamanna á umdeildu verki Wild-
es, Salome, og fer að horfast í augu
við bældar kynhvatir sínar, rétt eins
og Wilde þurfti sjálfur að gera.
Myndina Enginn merkismaður (A
Man Of No Importance, 1994) hef ég
ekki séð en Maltin gefur henni ★★!/é
og Martin og Porter ★★★ (af fímm
mögulegum) en þeim ber saman um
I að Albert Finney taki aðalhlutverkið
| þvílíku traustataki að myndin sé
meira en horfunar virði. Leikstjóri
' Sui'i Krishnamma.
Stöð2^21.10 Blóðbaðið á messu
heilags Bartólómeusar árið 1572, að-
dragandi þess og eftirleikur er um-
gjörð frönsku bíómyndarinnar Mar-
got drottning (La Reine Margot,
1994) en í miðjunni eru átök persóna
frá hirð og húgenottum. Patrice
Chéreau leikstjóri þeysir mynd sinni
| áfram á dramatískri gandreið sem er
bæði kaldhæðin, ofbeldisfull og fag-
urlega hönnuð. Leikaramir eru
fyrsta flokks - Isabelle Huppert,
Daniel Auteuil o.fl. o.fl. Skítt með
það þótt persónurnar sem þeir túlka
verði svolítið útundan á gandreið-
inni. ★★★
Stöð 2 ►23.35 „Bonanza fyrir
lengra komna“ kallaði ágætur maður
vestrasápuna Vindar fortfðar
(Legends Of The Fall, 1994). Ant-
hony Hopkins skilai- aldrei þessu
vant afspymu tilgerðarlegum og hlá-
legum leik sem fjölskyldufaðir sem
reynir að halda þremur sonum sín-
um innan girðingar í gleði og sorg.
Myndin er glæsilega tekin og skikk-
anleg skemmtun ef skynsemin fær
hvfld. Leikstjóri Edward Zwick. kfk
Sýn ►23.25 Danny DeVito leik-
stjóri kyndir undir kostulegu skiln-
aðardrama í Rósastriðið (War Of
The Roses, 1989) með sínum spólvit-
lausa myndstfl og þótt gaman og al-
vara fínni ekki dramatískt jafnvægi
er ekki hægt að kvarta yfir leiðind-
um í félagsskap haturselskendanna
Michaels Douglas og Kathleen Turn-
er. Myndin er þó svo löng að í seinni
hlutanum fer áhorfanda að líða eins
og hann sé læstur inni í hjónabands-
helvíti Douglas og Tui-ner og muni
aldrei út komast. ★★'/2
Árni Þórarinsson
HSM pappírstætarar
Leiðandi merki - Margar stærðir
Þýzk gæði - Örugg framleiðsla
Apótekið Skeifan,
Apótek Austurbæjar.
Apótek Vesturbæjar,
□ekurhomið.
Hársýn,
Snyrtívömverslunin Nana,
Keflavíkur Apótek.
Húsavtkur Apótek.
Selfoss Apótek,
ísafjarðar Apótek.
SM90 , Nú kr. 11.997 m/vsk.
Áður jkr. 14.980 m/vsk.
Slýj 125 Nú ikr. 49.577 m/vsk.
Áður 'kr! 55.899 m/vsk.
SlflS86 Nú kr. 87.079 m/vsk.
Áður kr. 106.468 m/vsk.
j. Astvhldsson hf.
SWphoki 33,105 Reykjavík, sími 533 3535
mvndbönd
Konungar hringsins
(When We Were Kings) kkk
Stórskemmtileg heimildarmynd
um viðureign Mohammeds Alis og
Georges Foremans í Zaire 1974.
Mohammed Ali er óborganlegur og
ættu allir að sjá þessa mynd bara
til að sjá hann.
Paradísarvegurinn
(Paradise Road) kkk
Mjög öflug stríðsmynd sem greinir
frá hópi kvenna sem settar eru í
fangabúðir Japana í seinni heims-
styrjöldinni. Framúrskarandi leik-
ur og leikstjóm halda þessari mynd
vel fyrir ofan meðallag.
Fimmta frumefnið
(The Fifth Element) ★★★‘/2
Stórskemmtilegt framtíðarástar-
ævintýri sem er bæði frumlegt og
spennandi, en þó sérstaklega vel út
lítandi.
Móðir mín
(Mother) kkk
Yndisleg lítil gamanmynd frá leik-
stjóranum og leikaranum AJbert
Brooks. Samleikur hans og Debbie
Reynolds er ógleymanlegur.
Við ljósaskipti
(In the Gloaming)* kkk
Ein af bestu myndum þessa árs.
Tilfínningalegt ferðalag ungs
manns inn í dauðann meðan hann
endurnýjar kynni sín við fjölskyld-
una. Glenn Close er stórkostleg í
hlutverki móðurinnar.
Kaldahvíla
(Cold Comfort Farmþk'k'A
Lítil bresk mynd sem býður af sér
góðan þokka með furðulegum
húmor og undarlegum uppákomum.
Glóðir
(The Spitfire Grillþk-kVz
Falleg glamúrlaus mynd um konur
sem taka höndum saman í lífsbar-
áttunni. Einstaklega fallega unnin
og fín tilbreyting frá ofbeldinu.
Lygari, lygari.
(Liar Liarjkrk'A
Mynd um Iögfræðing sem verður
að hætta að Ijúga í einn dag því
sonur hans óskaði þess þegar hann
MAX óskar sér að pabbi hans
hætti að ljúga og hvað gerist þá?
Sjáðu myndina „Lygari, lygari".
blés á kertin á afínælistertunni.
Ein besta mynd Jims Carreys síð-
an Ace Ventura I, enda fær Carrey
öllu að ráða sjálfur.
Leiftrið: Fyrsti hluti.
(The Shininglk-k-k
Þetta er uppbyggingin að óhugnað-
inum sem á sér stað á Hótel Sjón-
arhóli. Stephen Weber er mjög
góður í hlutverki Jacks Torrance,
sem Jack Nicholson gerði ódauð-
legt fyrir nokkrum árum.
Leiftrið: Annar hluti.
Óhugnaðurinn á hótel Sjónarhóli
heldur áfram. Það er margt gott
sem þessi sjónvarpsútgáfa af skáld-
sögu Stephen King hefur fram að
færa samt skortir hana töluverða
hugmyndaauðgi í kvikmyndatöku
og tónlist. Weber er bestur í hlut-
verki Jacks.
| Fleece peysur
Trefoil bolir
Æfingagallar
Bamagallar
íþróttaskór
Töskur og úlpur
ISPORTHUS
1 REYKJAVÍKUR
Laugavegi 44 - Stmi 562 2477
ALVORIIBIO! mpolby
STAFRÆNT stærsta tjaldid meo
HLJÓÐKERFl í 1 LJ X
ÖLLUM SÖLUM!
ImS auðveld brað
íreskvr iurmiK npjr á silt besto. Ujipsvvitlo broskra gomoomymía beídur
liram með „Shooring fisti'' og er búin cð geio bod mjijg gott ó BretiomS.
Ekkj missa «f pessart. ftábarr táolist «mfa siimu oðtlor ej sw imt
samseínmgo foniistar i „Trotisjjoíting
VAlWB ^
Hasar og spenna fra uppbati tii enda
adidas
HJ j % ¥ ð
i V/ •‘ 1 i