Morgunblaðið - 10.01.1998, Side 1
88 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
7. TBL. 86. ÁRG. LAUGARDAGUR10. JANÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Sendinefnd ESB heldur til Alsír
Litlar vonir
um árangur
London, Brussel. Reuters.
LITLAR vonir eru bundnar við að
ferð sendinefndar Evrópusam-
bandsins (ESB) til Alsír muni bera
árangur, vegna takmarkana sem
alsírsk yfirvöld setja starfi nefnd-
arinnar. Hún heldur til Alsír innan
hálfs mánaðar. Mannréttindasam-
tök hafa fagnað fór fulltrúa ESB til
Alsír en falla ekki frá þeirri kröfu
sinni að sendinefnd Sameinuðu
þjóðanna haldi til landsins.
Þetta er í fyrsta sinn sem erlend
sendinefnd fær leyfi alsírskra yfir-
valda til að koma til landsins. Leyf-
ið fékkst með þeim skilyrðum að
sendinefndin kæmi til að „takast á
við hryðjuverk" og að hún kæmi
ekki nálægt rannsókn á
fjöldamorðum í vesturhluta lands-
ins en um 1.000 manns hafa látið
lífið þar á hálfri annarri viku.
Ahmed Attaf, utanríkisráðherra
Alsír, segir „ekkert dularfullt" við
morðin og því sé rannsókn ekki
nauðsynleg.
Nefndarmenn munu einungis
dvelja í höfuðborginni AJgeirsborg
og talið er fullvíst að þeir muni ein-
ungis fá að ræða við stjórnvöld, en
ekki löglega kjöma fulltrúa stjóm-
arandstöðunnar.
Clinton knýr á um
aðgerðir í anda IMF
Mónakó-
skúta fyrst
SKIPVERJAR á skútunni Merit
Cup frá Múnakó með Nýsjálend-
inginn Dalton Grant við stýrið
fögnuðu ærlega er þeir komu
fyrstir í mark á fjórða áfanga
Whitbread-hnattsiglingarinnar,
frá Sydney f Ástralíu til Auckland
á Nýja-Sjálandi. Háðu þeir margra
daga æsispennandi einvígi við
bandaríska skútustjórann Dennis
Conner á skútunni Toshiba alla
leiðina frá Sydney. Kom Conner í
mark rétt á eftir Grant. Framund-
an er erfiðasti áfangi leiðarinnar,
6700 sjómílna sigling lyrir Horn-
höfða til Sao Sebastiao í Brasilíu.
--------------
Karpov
meistari
Washington. Reuters.
VAXANDI áhyggjur em af efna-
hagsástandinu í Asíuríkjum og
ákvað Bill Clinton Bandaríkjafor-
seti í gærkvöldi að senda Lawrence
Summers aðstoðarfjármálaráð-
herra og sveit embættismanna til
Suður-Kóreu, Indónesíu og
Thailands um helgina til þess að
leggja að ráðamönnum að grípa til
efnahagsráðstafana í samræmi við
tillögur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
(IMF). Helstu yfirmenn IMF em á
leið þangað sömu erinda.
IMF hefur boðið ríkjunum
þremur allt að 100 milljarða doll-
ara fyrirgreiðslu, að því tilskildu að
kerfisumbætur og efnahagsráð-
stafanir verði í anda tillagna sjóðs-
ins. Gjaldmiðill ríkjanna stendur
afar veikt á fjármálamörkuðum og
áframhaldandi lækkun á hlutabréf-
um hefur átt sér stað undanfama
daga þar sem ekki hefur tekist að
sannfæra markaðinn um að ríkin
þrjú séu komin fyrir hom og
hugsanlega á leið út úr efnahag-
skreppu. Ræður þar og nokkm að
fjármálafræðingar em efins um að
Indónesíumenn séu viljugir til að
fara að tillögum IMF. Vangaveltur
um að Indónesar kunni að fara
fram á greiðslustöðvun erlendra
skulda héldu fjármálamörkuðum í
Asíu nánast í gíslingu í gær, gjald-
eyrir lækkaði og verð- og hlutabréf
snarféllu einnig.
Clinton forseti ræddi seint í
fyrrakvöld að staðartíma í Was-
hington í 25 mínútur við Suharto
Indónesíuforseta um ástandið og
hvatti hann til þess að gripið yrði til
þeirra efnahagsumbóta og upp-
stokkunar sem IMF hefur lagt til
svo að stuðla mætti að stöðugleika á
fjármálamörkuðum í Asíu og víðar.
Stendur herinn að
baki morðunum?
Margir evrópskir stjórnmála-
menn og stjórnmálaskýrendur
telja að útilokað sé að friður komist
á í Alsír nema Islömsku frelsisfylk-
ingunni (FIS) verði leyfð þátttaka í
stjómmálum að nýju, en blóðbaðið
hófst árið 1992 er stjómvöld af-
lýstu einni umferð þingkosninga til
að koma í veg fyrir sigur FIS, sem
flokkurinn var talinn eiga vísan.
FIS hvatti í kjölfarið til baráttu
gegn stjómvöldum og hafa þau
kennt íslömskum hryðjuverka-
mönnum um öldu ofbeldis sem
kostað hefur um 65.000 manns lífið.
Hins vegar hafa heyrst fullyrðing-
ar um að sérsveitir hersins hafi
staðið að baki hluta morðanna til
að veikja stöðu heittrúarmanna.
Útiloka ónafngreindir fulltrúar
ESB ekki að þessar fullyrðingar
séu á rökum reistar.
Lausanne. Reuters.
ANATOLI Karpov varði heims-
meistaratign sína í skák í gær er
hann bar sigurorð af indverska skák-
meistaranum Viswanathan Anand í
einvígi þeirra um heimsmeistaratitil
FIDE, Alþjóðaskáksambandsins.
Karpov gjörsigraði Anand í tveim-
ur atskákum, sem háðar voru í gær
eftir að þeir höfðu orðið jafnir í sex
skáka einvígi. Hlýtur Karpov 1,4
milljónir dollara, jafnvirði 100 millj-
óna króna, fyrir sigurinn. Líklegt er
talið að komið verði í kring einvígi
hans og Garrís Kasparovs, sem sagði
sig úr lögum við FIDE 1993 og
stofnaði atvinnumannasamtökin
PCA, sem nú eru dauð.
Reuters
■ Taugar Anands/12
MO Mowlam strunsar milli álma í Maze-fangelsinu, ásamt embættismönnum, frá einum fundi til annars með norður-írskum hryðjuverkamönnum.
Chirac gagnrýnir Jospin
París. Reuters.
JACQUES Chirac Frakklandsfor-
seti gagnrýndi í gær áform stjórnar
Lionels Jospins forsætisráðherra
og áform hennar um að skapa
350.000 ungmennum atvinnu.
Chirae sagði það ekki kunna
góðri lukku að stýra að ætla að
breyta atvinnuleysisskrám með því
að skapa „sýndarstörf" á kostnað
ríkissjóðs. Það hlyti að kalla á
aukna skattheimtu, ofsköttun, sem
virka myndi sem kverkatak á efna-
hagslífið og atvinnustarfsemi.
Fremur ætti að stuðla að vexti lítilla
og meðalstórra fyrii-tækja svo þau
geti bætt við sig vinnuafli.
Stjórn Jospins hefur sætt harðri
gagnrýni undanfarið fyrir að standa
ekki við kosningaheit sín um að lina
atvinnuleysið. Það hefur aldrei
mælst jafn mikið, eða 12,4%, sem
þýðir að 3,1 milljón manna sé án
vinnu. Þriðjungur þeirra hefur verið
atvinnulaus lengur en ár.
Liðsmenn samtakanna „Stöndum
saman gegn atvinnuleysi" (AC) hafa
hertekið atvinnumálaskrifstofur um
land allt. Verður aðgerðunum ekki
hætt vegna óánægju AC með boð-
aðar aðgerðir stjómar Jospins. For-
sætisráðherrann sagðist myndu
stofna neyðarhjálparsjóð með millj-
arðs franka stofnframlagi til hjálpar
þeim verst settu. Hafnaði Jospin
kröfum AC um tafarlausa hækkun
atvinnuleysisbóta og jólabónus.
Gagnlegir fundir með
hryðiuverkamönnum
Belfast. Reuters.
MO Mowlam, írlandsmálaráðherra
bresku stjórnarinnar, átti í gær við-
ræður við hryðjuverkamenn í
Maze-fangelsinu á Norður-Irlandi
til þess að freista þess að fá þá til
að lýsa stuðningi við friðarumleit-
amir með aðild allra aðila deilunn-
ar þar í landi.
Mowlam dvaldi í þijár stundir í
fangelsinu og sagði að því loknu, að
viðræður, sem hún átti annars veg-
ar við liðsmenn hryðjuverkasveita
sem vilja að Norður-írland verði
áfram hluti af breska konungdæm-
inu og hins vegar við liðsmenn
frska lýðveldishersins (IRA) og
klofningssamtaka hans, hefðu verið
„gagnlegar".
„Eg veit ekki hvort þær bera ár-
angur,“ sagði Mowlam sem afhenti
föjngunum viðræðuskjal í 15 liðum.
„Ég hef reynt mitt besta til þess að
sannfæra þá um að viðræður væru
eina leiðin til að binda enda á átök
og finna friðsamlega lausn deilunn-
ar,“ sagði hún.