Morgunblaðið - 10.01.1998, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Taugar Anands
brugðust í lokin
KARPOV brosti sínu breiðasta þegar Anand hafði gefist upp í
seinni skákinni í gær.
SKÁK
ðlympfusafnið f
Lausanne, 1.-9.
janúar 1998
HEIMSMEISTARAMÓT
FIDE
Anatólí Karpov varði heims-
meistaratitil sinn. Hann vann
báðar framlengingarskákirnar í
gær.
KARPOV sigraði í einvíginu
með fimm vinninga, en Anand
hlaut þrjá. Indverjinn fékk óska-
byi'jun í framlengingunni í gær
er hann vann snemma peð í fyrri
skákinni og átti að auki miklu
meiri umhugsunartíma aflögu en
Karpov. En þá gerðist eitthvað
sem erfitt er að útskýra. Anand
lék hverjum afleiknum á fætur
öði-um og lenti í varnarstöðu sem
hann tapaði að lokum. Par með
var eina von hans að jafna metin í
seinni skákinni og fá aðra fram-
lengingu. En baráttuþrek hans
var þá greinilega á þrotum, hann
tefldi skákina mjög illa og Kar-
pov vann örugglega.
Karpov verður því heims-
meistari FIDE næstu tvö árin.
Hann hreppti titilinn fyrst árið
1975 þegar Bobby Fischer varði
hann ekki. Karpov tapaði svo
titlinum til Gary Kasparovs tíu
árum síðar. En árið 1993 klufu
þeir Kasparov og Short sig út úr
FIDE ogstofnuðu eigin atvinnu-
mannasamband PCA. í staðinn
tefldu þeir Karpov og Timman
heimsmeistaraeinvígi FIDE og
þá sigraði Karpov og náði titlin-
um aftur.
Anand fær nú loksins að kasta
mæðinni eftir að hafa setið sam-
fleytt að tafli í heilan mánuð. Til
að komast í einvígið við Karpov
þurfti hann að slá út sex öfluga
stórmeistara á heimsmeistara-
mótinu í Groningen í Hollandi.
Hann fékk svo aðeins tvo daga til
að hvíla sig fyrir viðureignina við
Karpov, sem var alveg óþreyttur.
Vegna þessa mikla aðstöðumunar
er vart hægt að segja að þessi úr-
slit sanni neinn verulegan styrk-
leikamun á þeim tveimur. Miðað
við taflmennsku var sigurinn
verðskuldaður, en forréttindi
heimsmeistarans voru alltof mik-
11. í næstu keppni á að bæta úr
þessu, þá mun Karpov koma
strax inn í aðra umferð og þarf þá
líka að slá sex meistara út í ein-
vígjum til að komast í sjálft
heimsmeistaraeinvígið.
Atskákirnar
í framlengingunni í gær voru
tefldar tvær 25 mínútna skákir,
auk þess sem tíu sekúndum var
bætt við fyrir hvern leik. Fyrri
skákin gekk þannig fyrir sig:
Hvítt: Karpov
Svart: Anand
Réti byijun
1. Rf3 - d5 2. g3 - Rf6 3. Bg2 - c6
4. 0-0 - Bg4 5. d3 - Rbd7 6. Rbd2
- e6 7. e4 - Be7 8. De2 - 0-0 9. h3 -
Bh5 10. Hel - dxe4 11. dxe4 - e5
12. b3 - Dc7 13. Bb2 - Hfe8 14.
Dfl - Had8 15. a3 - b5 16. Bc3 -
Bf8
Staðan er u.þ.b. í jafnvægi.
Karpov átti hér aðeins 10 mínút-
ur eftir, en Anand 23.
17. Rh4 - Rc5 18. Bf3 - Bg6>? 19.
Rxg6 - hxg6 20. Bg2 - a6 21. De2
- Re6 22. Rf3 - Rd7 23. a4! - b4
24. Bb2 - a5 25. c3!? - bxc3 26.
Bxc3 - Hb8 27. Habl - Bb4 28.
Hecl - Bxc3 29. Hxc3 - c5 30.
De3 - Dd6 31. h4 - Rd4 32. Bh3 -
Rb6 33. Hbcl?
Karpov átti nú tæpar fimm
mínútur og lætur Anand snúa á
sig. 33. Rd2! var nauðsynlegt til
að valda hrókinn á bl og c4 reit-
inn. Reyndar átti hann að leika
32. Bfl! eða 32. Rd2! í leiknum á
undan og stendur þá betur vegna
traustari peðastöðu.
33. - c4! 34. bxc4 - Rxa4 35. c5 -
De7 36. Ha3 - Rxc5 37. Hac3 -
Rcb3 38. Hc7 - Df6 39. Hlc3
Frá og með þessari stöðu
stendur hver silkihúfan upp af
annarri hjá Anand. Eins og þeir
Jóhann Hjartarson og Leifur Jó-
steinsson bentu undnrituðum á
er besti leikur svarts hér 39. - a4!
Pað er mjög rökréttur leikur sem
viðheldur spennunni. 40. Rg5 má
þá svara með 40. - a3! og svartur
vinnur og litlu betra er 40. Bd7 -
Rxf3+ 41. Dxf3 - Dxf3 42. Hxfö -
He7! með unnu endatafli.
39. - Rxf3+? 40. Dxf3 - a4?
Miðað við það að Karpov átti
hér aðeins þrjár mínútur eftii' en
Anand tíu, er taflmennska Ind-
verjans furðulega slök. Hann á
ennþá peði meira og vinnings-
möguleika eftir 40. - Rd4!
41. Dxf6 - gxf6 42. Bd7 - Rd4?
Hér átti svartur að leika 42. -
He7 og taka jafntefli.
43. Bxe8 - Re2+ 44. Kg2 - Rxc3
45. Bxf7+ - Kf8 46. Bxg6 - Rb5
47. Hf7+ - Kg8 48. Hxf6 - Ha8
49. h5! - a3 50. h6 - a2 51. Bf7+ -
Kh7 52. Bxa2 - Hxa2 53. g4
Karpov hefur nú fengið þrjú
peð fyrir mann og stendur betur
að vígi.
53. - Rc3 54. g5 - Rxe4 55. Hf7+
55. - Kg6??
Hræðilegur afleikur. Ennþá
var möguleiki að halda skákinni
með því að leika 55. - Kg8 56. g6 -
Ha8! 57. He7 (Svartur nær upp
fræðilegri jafnteflisstöðu eftir 57.
h7+ - Kh8 58. g7+ - Kxh7 59.
Hf8 - Kxg7 60. Hxa8 - Kf6 þótt
hann sé skiptamun undir) 57. -
Rf6! Og svartur á möguleika á
jafntefli, því t.d. 58. Hxe5 er vel
svarað með 58. - Rg4. Nú rennur
hvíta h peðið beint upp í borð.
56. Hg7+ - Kf5 57. h7 - Hxf2+
58. Kgl - Kg4 59. h8D - Kg3 60.
He7 - Hg2+ 61. Kfl - Rd2+ 62.
Kel - Kg2 og Anand gaf skákina.
Það var greinilegt að Indverj-
inn náði ekki að jafna sig á þeim
fáu mínútum sem liðu þangað til
seinni skákin hófst. Það var ekki
heil brú í taflmennsku hans og
hann fórnaði strax tveimur peð-
um fyi'h' litlar eða engar bætur:
Hvítt: Anand
Svart: Karpov
Drottningarpeðsbyrjun
1. d4 - d5 2. Bg5 - h6 3. Bh4 - c6
4. Rf3 - Db6 5. b3 - Bf5 6. e3 -
Rd7 7. Bd3 - Bxd3 8. Dxd3 - e6 9.
c4 - Re7 10. c5?! - Da5+ 11. Rc3 -
b6 12. b4? - Dxb4 13. 0-0 - Rf5 14.
Hfcl - bxc5 15. Habl - c4 16. Dc2
- Da5 17. Hb7 - Da6 18. Hcbl -
Bd6 19. e4 - Rxh4 20. Rxh4 - Hb8
21. Hxb8+ - Bxb8 22. exd5 - cxd5
23. Rg6 - fxg6 24. Dxg6+ - Kd8
25. Dxg7 - He8 26. Dxh6 - Da5
27. Dg5+ - Kc8 28. Dg6 - Hf8 29.
Hcl - Db6 30. Re2 - e5 31. Dh5 -
Df6 32. Hfl - Hh8 og hvítur gafst
upp.
Margeir Pétursson
Daði Örn Jónsson
Tillaga að fyrirkomulagi brunavarna í Hvalfjarðargöngum liggur fyrir
Geng-ið lengra en
gert var ráð fyrir
Morgunblaðið/Golli
TILLAGA Fossvirkis að fyrir-
komulagi brunavama í Hvalfjarð-
argöngum liggur fyrir og er nú til
skoðunar hjá Vegagerðinni og
verkfræðistofunni Hniti, sem er
eftirlitsaðili með verkinu fyrir
hönd verkkaupans, Spalar. I samn-
ingi Spalar og ríkisins um gerð
ganganna er kveðið á um að bruna-
vamir í göngunum skuli byggjast á
norskum stöðlum fyrir brunavarnir
í veggöngum og að sögn Gísla
Gíslasonar, stjómarformanns Spal-
ar, er ætlunin að ganga heldur
lengra í öryggismálunum en
norsku staðlarnir gera ráð fyrir.
Gísli segir málið í réttum farvegi
og unnið í góðri sátt Spalar, Foss-
virkis, Vegagerðarinnar og Brana-
málastofnunar ríkisins. Bergsteinn
Gizurarson branamálastjóri telur
málið á réttri leið eftir að félags-
málaráðuneytið úrskurðaði á sl.
sumri að Branamálastofnun hefði
eftirlitsskyldu í göngunum, en
fram að því hefðu Vegagerðin og
samgönguráðuneytið hafnað því að
stofnunin hefði eftirlitsskylduna.
Bergsteinn vísar einnig til lög-
fræðilegs álits Magnúsar Thorodd-
sen hæstaréttarlögmanns, sem
kemst að þeirri niðurstöðu að eftir-
litsskyldan sé Branamálastofnun-
ar.
Fossvirki sér um tæknilega
útfærslu
Spölur hefur notið ráðgjafar
breska ráðgjafarfyrirtækisins Atk-
ins og norska fyrirtækisins O.T.
Blindheim varðandi branavarnir í
göngunum en það hefur verið á
hendi verktakans, Fossvirkis, að
sjá um tæknilega útfærslu á hönn-
un branavamanna. Jóhann
Kröyer, yfirverkfræðingur hjá
Fossvirki, segir að samkvæmt
norsku stöðlunum verði sérstök
neyðarútskot með 500 metra milli-
bili í göngunum og þrjú stór snún-
ingsútskot fyrir stóra flutningabíla
með jöfnu millibili. Þá verða neyð-
arsímar með 500 metra millibili og
slökkvitæki með 250 metra milli-
bili, sem tengd verða við tollstöðina
að norðanverðu, sem er mönnuð
allan sólarhringinn. Um leið og
slökkvitæki er tekið niður inni í
göngunum berast um það boð í toll-
stöðina, þar sem strax verður hægt
að gera viðeigandi ráðstafanir.
Ekki víst að umferð bfla með
eldfiman farm verði leyfð
Þá segir Jóhann að auk þess að
fullnægja norsku stöðlunum verði
t.d. lýsing í göngunum aukin og
neyðarlýsing einnig, auk þess sem
fleiri viftur verði settar upp, svo
hægt verði að snúa við loftstraumi í
göngunum ef brani verður þar. Þá
verði einnig gerðar ráðstafanir
þannig að hægt verði að hlusta á
útvarp niðri í göngunum og að lög-
regla geti í neyðartilvikum komið
inn á útvarpið með áríðandi orð-
sendingar. Fjórar spennistöðvar
verða fyrir göngin, sem skipt er í
fjögur svæði, þannig að ef rafmagn
dettur út á einni stöð, t.d. vegna
umferðarslyss, verða hinar þrjár
áfram inni.
Hvað varðar umferð bíla með
eldfiman eða hættulegan farm um
göngin, segir Gísli Gíslason að enn
sé ekki ákveðið hvernig henni verði
hagað eða hvort hún verði yfirleitt
leyfð. Verði hún leyfð muni hún
þurfa að lúta mjög ströngum regl-
um en allt eins geti verið að hún
verði alfarið bönnuð.