Morgunblaðið - 10.01.1998, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
1997 hið besta í útgerðarsögu
Hraðfrystihúss Eskiíjarðar
NÝLIÐIÐ ár reyndist vera hið
besta í útgerðarsögu Hraðfrysti-
húss Eskifjarðar. Heildarafli
þeirra 5 skipa sem félagið gerir út
nam tæplega 127 þúsund tonnum
og aflaverðmætið var rétt tæpur
milljarður eða 984 milljónir króna.
Magnús Bjamason, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Eskifjarðar, segir stjórnendur fyr-
irtækisins mjög ánægða með þessa
niðurstöðu enda séu þetta mestu
tekjur sem útgerðin hafi nokkru
sinni haft.
Hann segir þó ekkert liggja fyrir
BÚR ehf., sameiginlegt innkaupa-
fyrirtæki kaupfélaganna, Nóatúns,
Olíufélagsins, 11/11 búðanna og
fleiri verslana, nær tvöfaldaði um-
svif sín á síðasta ári. Nam heildar-
veltan um 2.065 milljónum króna,
en árið á undan nam veltan um
1.088 milljónum. Er þetta um fjórð-
ungi meiri velta en áætlanir gerðu
ráð fyrir. /
Að sögn Sigurðar Á. Sigurðsson-
ar, framkvæmdastjóra Búrs, voru
samtals 92 smásöluverslanir í föst-
um viðskiptum við Búr á síðasta ári
sem er nokkur fjölgun frá fyrra ári.
Fleiri aðilar sóttust eftir viðskiptum
við Búr á árinu, en ekki verður unnt
að sinna þeim að svo stöddu.
Búr hóf starfsemi sína í ársbyrj-
un 1996 og annast einkum innkaup
hjá innlendum matvælaframleið-
endum og heildsölu, en auk þess
stundar félagið eigin innflutning frá
Evrópu og Bandaríkjunum. Sam-
hliða þessu hefur það haft milli-
göngu um innkaup fyrir umbjóð-
endur sína á ýmiskonar sérvöru frá
Bandaríkjunum sem m.a. hefur ver-
ið seld á tilboðsverði í verslunum.
Þá hefur verið nokkur innflutningur
á ferskum ávöxtum og kjötmeti.
Krónan
styrkist
GENGI krónunnar hefur hækkað
um 0,4% frá áramótum. Þetta er
nokkuð óvenjuleg þróun þar sem
gengi krónunnar hefur yfirleitt
veikst lítillega í janúar.
Að sögn Einars Pálma Sigmunds-
sonar, hjá Viðskiptastofu íslands-
banka, skýrist þessi þróun fyrst og
fremst af því að gjalddagi á endur-
hverfum verðbréfakaupum og því
haldi bankamir í krónur sem leiði
til hærra gengis. Þá hafi fyrirtæki
verið að taka nokkuð af lánum í er-
lendum myntum sem leiði einnig til
styrkingar krónunnar.
Einar Pálmi segist hins vegar bú-
ast við því að krónan muni veikjast
á ný þegar líða taki á mánuðinn. Ef
til sjómannaverkfalls komi muni
gjaldeyrisinnstreymi minnka veru-
lega og hins vegar kunni gengið að
lækka á ný eftir 15. janúar þegar
gjalddagi endurhverfu verðbréfa-
kaupanna sé liðinn.
um heildarafkomu félagsins á ný-
liðnu ári.
Aflahæsta skip Hraðfrystihúss-
ins á síðasta ári var Hólmaborgin
sem sló Islandsmet hvað landað
magn varðaði, að því er segir í
frétt. Heildarafli Hólmaborgarinn-
ar nam 61.500 tonnum af loðnu, síld
og kolmunna á síðastliðnu ári og
var heildaraflaverðmæti skipsins
384 milljónir króna. Hásetahlutur
var rúmar 6 milljónir á árinu.
Jón Kjartansson SU var annað
aflahæsta skip Hraðfrystihússins
með tæplega 40 þúsund tonna afla
Sigurður bendir á að keppinautar
Búrs séu nú með lausa samninga
við sína helstu birgja. Búr hafi ekki
sagt upp sínum samningum en tekið
verði mið af þeim breytingum sem
verða kunni á markaðnum hvað
verðlagningu snertir í viðræðum við
birgja.
Áform um aukin umsvif
Um afkomu fyrirtækisins segir
hann að hagnaður hafi verið af
starfseminni á síðasta ári. „Við er-
um komnir á beina braut og ætlum
okkur miklu meira í framtíðinni. Á
bak við okkur standa aðilar sem
hafa um þriðjungs markaðshlut-
deild á matvörumarkaðnum. Við-
skiptavinir lagersins í Reykjavík
eru með 10-11 milljarða veltu og
þegar aðilar að baki Samlandi á
Akureyri eru taldir með er veltan
meiri en hjá þeim fyrirtækjum sem
standa á bak við Baug.“
Sigurður segir að framundan sé
útvíkkun á starfseminni, bæði með
fjölgun vörutegunda og viðskipta-
vina. Til greina komi að Búr kaupi í
framtíðinni ávexti, grænmeti og
kjötmeti fyrir umbjóðendur sína til
viðbótar við nýlenduvörur.
VÖRUSALA í báðum verslunum
Fríhaftiarinnar á Keflavíkurflug-
velli var samtals 2.844 milijónir á
árinu 1997 og jókst um tæplega
10% frá árinu á undan. Þar af nam
sala í komuversluninni á neðri hæð
flugstöðvarinnar um 1.231 milljón.
Samtals nam sala á áfengi og tó-
baki 834 milljónum, snyrtivörum
545 milljónum, tækjum 740 milljón-
um, sælgæti 417 milljónum og
ýmsum vörum 308 miHjónum.
Hlutfallslega mest aukning varð í
sölu fatnaðar og íþróttavara, leður-
vara, leikfanga eða samtals 25%.
Sala úra og skartgripa jókst um
22%, sala tækja jókst um 14% og
um 8% 10% aukning varð á tóbaks-.
sölu, en 6% á áfengisölu.
Um nýliðin áramót varð sú
breyting að Fríhöfnin hætti að
selja ýmsar vörur á borð við fatn-
og rúmlega 230 milljóna króna
aflaverðmæti. Hásetahluturinn
nam röskum 3 milljónum króna.
Skipið hefur hins vegar verið í Pól-
landi frá því í september í gagn-
gerri breytingu og endurnýjun en
gert er ráð fyrir að verkinu ljúki í
lok mars.
Þá nam heildarafli Guðrúnar
Þorkelsdóttur tæpum 23 þúsund
tonnum og heildaraflaverðmæti
154 milljónum króna. Heildarafli
Hólmatinds var 2 þúsund tonn og
aflaverðmæti 132 milljónir og loks
nam heildarafli Hólmaness röskum
FLUGLEIÐIR hf. hafa samið við
Toyota umboðið P. Samúelsson
ehf. um kaup á 125 Toyota bif-
reiðum fyrir Bflaleigu Flugleiða.
Verðmæti samningsins er um
160 milljónir króna.
Um er að ræða 83 bfla af
gerðinni Toyota Corolla Lift-
back, 40 Corolla Sedan og tvo
Toyota Hilux Double Cab. Bfl-
arnir verða afhentir á tímabilinu
maí til júlí á þessu ári.
Ný og endurbætt Toyota
Corolla var kynnt síðastliðið
sumar og var staðalbúnaður
bflsins aukinn verulega, að sögn
Bjöms Víglundssonar, markaðs-
stjóra P. Samúelssonar.
Aukin áhersla á
snyrtivörur og
tæki til að vega
upp á móti sam-
keppni
að, úr, skartgripi og íþróttavörur.
Jafnframt var afnuminn einkarétt-
ur Fríhafnarinnar til að selja tæki
og sælgæti því þessar vörur verða
jafnframt á boðstólum hjá íslensk-
um markaði. Fríhöfnin hefur því
nú einungis einkasölu á áfengi, tó-
baki og snyrtivörum.
Guðmundur Vigfússon, skrif-
stofustjóri Fríhafnarinnar, sagði í
samtali við Morgunblaðið að reynt
yrði að vega eitthvað upp á móti
1.200 tonnum, mest af rækju og
var heildaraflaverðmæti 84 milljón-
ir króna.
Magnús segir horfurnar hvað
varðar verðlag sjávarafurða nokk-
uð góðar fyrir þetta ár. Hins vegar
nTd mikil óvissa vegna yfirvofandi
sjómannaverkfalls. Þá séu alltaf
nokkrir óvissuþættir í rekstrinum.
Nú sé t.d. hitastig sjávar óvenju
hátt og óvíst hvaða áhrif það muni
hafa á afla en rækjuveiði hafi verið
minni nú en oft áður. „Við erum
hins vegar bjartsýnir á árið í
heild,“ segir Magnús.
„Bflafloti bflaleigunnar verður
því mun betur búinn en áður og
hún býður nú einnig stærri bfla í
þessum flokki. Toyota Hilux er
einnig í nýrri og endurbættri út-
gáfu og er betur búinn en bíla-
leigan hefur boðið hingað til.
Hafa keypt 900 bíla á undan-
förnum árum
Mjög gott og farsælt við-
skiptasamband hefur myndast á
milli P. Samúelssonar og Flug-
leiða og hafa Toyota bflar
reynst bflaleigunni afar vel.
Flugleiðir hafa keypt tæplega
900 Toyota bfla á sfðastliðnum
árum,“ segir Björn.
samdrætti vegna fækkunar vöru-
flokka með aukinni áherslu á
snyrtivörur og tæki. Meira rými
fengist undir þessa vöruflokka, en
fyrirtækið hefði liðið fyrir pláss-
leysi undanfarin ár.
Nýjar verslanir
Nokkrar nýjar verslanir verða
settar upp í Flugstöðinni á þessu
ári. Þegar hefur verið sett þar á fót
gleraugnaverslun fyrir utan Frí-
höfnina í brottfararsalnum. Þá
mun Sævar Jónsson, eigandi Leon-
ard, opna sérverslanir með úr,
skartgripi og gjafavöru. Flugleiðir
munu opna verslun með dömufatn-
að og skófatnað og Ólafur H. Jóns-
son íþróttavörubúð. íslenskur
markaður hefur síðan fengið heim-
ild til að selja sælgæti, rafmagns-
vörur og herrafatnað.
ESB gríp-
ur inn í
fjarskipta-
deilu y
Brussel. Reuters.
STJÓRN Evrópusambandsins
hefur blandað sér í deilu vegna
fyrirætlana Deutsche Telekom
um að krefja viðskiptavini sína
um greiðslu, ef þeir hagnýta
sér þjónustu annarra símafyr-
irtækja á sama tíma og greinin
er smám saman opnuð fyrir
frjálsri samkeppni.
Karel van Miert samkeppn-
isstjóri sagði að undir venju-
legum kringumstæðum væru
slík gjöld óviðunandi og hann
kvaðst hafa beðið þýzka
símrisann um nánari upplýs-
ingar um fyrirætlunina.
Van Miert segist hins vegar
reiðubúinn að samþykkja
hvers konar „viðunandi lausn“
þýzkra fjarskiptafyrirtækja og
nýrra og óháðra eftirlitsaðila í
greininni í Þýzkalandi.
Þýzk eftirlitsyfirvöld hafa
boðað fund um gjöld þau sem
Telekom hyggst krefjast af
viðskiptavinum, sem vilja not-
færa sér langlínuþjónustu
keppinautanna.
Fyrirhugað gjald nemur 90
mörkum, en við bætast 53
mörk ef viðskiptavinir vilja
halda símnúmerum sínum.
Dómsátt í
máli Texas og
tóbaksrisa?
Dallas. Reuters.
TEXASRÍKI og helztu tó-
baksfyrirtæki Bandaríkjanna
eru þess albúin að hefja mikil
málaferli, en sérfræðingar
telja að deiluaðilar fallist á
dómsátt til að eiga ekki á
hættu að bíða auðmýkjandi
ósigur.
Réttarhöldin fara fram í
Texarkana og er talið að hér sé
um að ræða víðtækasta skaða-
bótamál í sögu Bandaríkjanna.
Texas höfðar mál gegn tóbaks-
fyrirtækjunum vegna kostnað-
ar af opinberri aðstoð við veika
reykingamenn. Ósigur mundi
kosta stóru tóbaksfyrirtækin
allt að 10 milljörðum dollara
og gera að engu vonir þeirra
um að Bandaríkjaþing sam-
þykki nokkurs konar þjóðarátt
í málinu.
368 milljarða dala
greiðsla?
Slík sátt yrði á þá leið að tó-
baksiðnaðurinn kæmist hjá
málaferlum í framtíðinni með
þvi að samþykkja 368,5 millj-
arða dollara eingreiðslu og
takmarkanir á nikótínmagni,
auglýsingum og sölu til barna.
Sigur mundi flýta fyrir því
að þjóðarsátt yrði samþykkt
og vinna gegn því að fleiri ríki
höfðuðu mál gegn iðnaðinum.
Heimildarmenn segja að
frammámenn í iðnaðinum
íhugi lausn í Texas enda muni
það koma í veg fyrir slæmt
umtal meðan þingið fjalli um
deiluna.
Einn lögfræðinga tóbaksiðn-
aðarins segir að undirbúnings-
viðræður urn dómsátt hafi ekki
leitt til ótvíræðrar niðurstöðu.
Annar heimildarmaður
kvaðst búast við samkomulagi,
annaðhvort þegar kviðdómur
yrði valinn (talið er að það
muni taka eina viku) eða
skömmu eftir að vitnaleiðslur
hæfust.
í fyrra náðu tóbaksfyrirtæki
samkomulagi við ríkin Miss-
issippi og Flórída með því að
greiða 14,7 milljarða dollara
alls og samþykkja takmarkan-
ir á auglýsingum.
/H j rrnrNL'' i ,/-,^/^1 ,
Búr ehf., innkaupafyrirtæki Nóatúns, Esso og
kaupfélaganna, með 2 milljarða veltu
Tvöfaldaði
umsvifin á
öðru starfs-
ári sínu
BÍLALEIGA Flugleiða hefur keypt 83 Toyota Corolla Liftback.
Bílaleiga Flugleiða
kaupir 125 Toyota
bifreiðar
Sala Frúiafhárinnar jókst
um 10% á nýliðnu ári