Morgunblaðið - 10.01.1998, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998
ÚR VERINU
1997 annað þezta
árið í sögu ÍS hf.
Aukinn útflutningur frá Islandi en mik-
ill samdráttur í sölu erlendra afurða
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuters
Gengið í geimnum
ÞRÁ'TT fyrir verulegan samdrátt í
sölu IS á sjávarafurðum á síðasta
ári, varð árið hið næstbezta í sögu
fyrirtækisins. Samdrátturinn varð
fyrst og fremst vegna uppsagnar
samnings ÍS við UTRF á
Kamtsjatka í Rússlandi. Árið 1996
seldi ÍS 62.000 tonn af fiskafurðum
frá Kamtsjatka en aðeins um
18.000 tonn í fyrra. Alls seldi ÍS
128.430 tonn af fiskafurðum að
verðmæti um 17 milljarðar króna á
síðasta ári, en árið áður nam salan
rúmlega 166.000 tonnum að verð-
mæti um 20 milljónir króna. I
magni talið er samdrátturinn nær
23% en 15% mælt í verðmætum.
Útflutningur frá Islandi varð alls
105.000 tonn að verðmæti 14,9
milljarðar. Það er 6,5% aukning í
magni, en tæplega 2% verðmæta-
samdráttur.
Samningi við Rússa sagt upp
„Síðasta ár var í sjálfu sér
ágætt,“ segir Benedikt Sveinsson,
forstjóri IS. „Það er annað stærsta
framleiðsluárið í sögu IS og sölu
okkar frá Islandi. Hins vegar var
þetta ár tímabil mikilla sviptinga og
átaka. Við lentum í þvi að mjög
stórum samningi okkar við Rússa
var sagt upp snemma ársins. Það
fór þvi mikill tími og orka í að gera
þann samning upp, innheimta þá
peninga sem voru útistandandi og
breyta rekstri IS í samræmi við
þessa breytingu. Vegna þessa stóra
samnings vorum við til dæmis
komnir með 120 manns í vinnu til
að sinna þessu verkefni, en við
þurftum síðan að fækka fólki niður
í um 70. Áhrifin á reksturinn urðu
því mikil og að auki átti sainningur-
inn að skila miklum tekjum, sem
ekki varð. Þrátt fyrir þetta eru
tekjur af erlendum verkefnum IS
og dótturfélaga um einn milljarður
króna á siðustu árum, en á móti því
kemur auðvitað kostnaður. Það er
því eftir miklu að slægjast á er-
lendri grundu.
Árið var mjög viðburðaríkt. Við
lendum í þessum samningsrofum,
loðnuvertíð gekk ekki upp hjá okk-
ur frekar en öðrum og á sama tíma
erum við að byggja nýja verk-
smiðju í Bandaríkjunum og endum
svo á því að kaupa glæsilega verk-
smiðju í Frakklandi. Þetta var því
ár mikilla sviptinga.
Ekki gert upp með hagnaði
IS hefur verið rekið með hagnaði
frá upphafi þar til í fyrra. Það ár
verður ekki gert upp með hagnaði.
Það má rekja það til þessara miklu
sviptinga í rekstrinum, en sem
dæmi má nefna að flutningur verk-
smiðjunnar í Bandaríkjunum kost-
aði hundruð milljóna.
Stefnt að 35 milljarða veltu
Útlitið fyrir þetta ár er hins veg-
ar gott. Við höfum byggt upp feikn-
arlega góða aðstöðu. I Reykjavík
erum við í nýju húsnæði og með
nýtt tölvukerfi, og nýjar glæsilegar
verksmiðjur í Bandaríkjunum og
Frakklandi. Við erum með mikið
verkfæri til að ná góðum árangri.
Markaðurinn er góður, verð yfir-
leitt hátt, að Japan undanskildu, og
því erum við bjartsýnir á góðan ár-
angur. Við ætlum okkur að velta
allt að 35 millörðum króna á þessu
ári og verðum með 730 manns í
vinnu í allt. Áætlanir fyrir árið
benda svo til þess að hagnaður
verði af starfseminni á ný. Við er-
um að snúa þessu við á ný.
Öflugt sölukerfl
Við erum með feiknarlega öflugt
sölukerfi. Við erum með betri að-
gang að mörkuðunum en nokkru
sinni fyrr. Við höfum aðgang að
nánast öllum mörkuðum víða um
heiminn. Hvort sem það er smá-
sölumarkaður, veitingahús, heild-
sölumarkaður eða hvað. Markaður-
inn er yfir höfuð sterkur. Það er
aukinn áhugi fyrir sjávarafurðum á
kostnað kjöts. Hollustan er vaxandi
þáttur í umræðunni og ég hef mjög
góða trú á þessu. Hins vegar verð-
ur að þjóna markaðnum mjög vel.
Það þýðir ekkert að henda í hann
hverju sem er. Það verður stöðugt
að koma fram með meira unnar
vörur og betur settar fram. Það
þarf alltaf að breyta og búa til nýtt.
Það þarf að hafa fyrir þessu öllu, en
með réttum vinnubrögðu og að-
stöðu eins og við höfum byggt upp
er útlitið feiknarlega gott. Við
hlökkum til að takast á við verkefn-
in.
Aðgangur að mörkuðum dýr-
mætur
Mér finnst oft skorta á það í um-
ræðunni um sjávarútvegsmál hvað
þessi aðgangur að mörkuðunum er
geipilega verðmætur. Menn eru
kannski að meta fyrirtæki éins og
IS sem hefur óhemjuaðgang að
mörkuðum á svipuðu verði og eitt
lítið framleiðslufyrirtæki á Islandi.
Ég er viss um það þetta á eftir að
breytast, fyrst meta menn aðgang
að auðlindinni og kvótann til verðs
svo meta menn aðgang að mörkuð-
um,“ segir Benedikt.
RÚSSNESKI geimfarinn Pavel
Vinogradov fyrir utan geim-
stöðina Mír í gær þar sem hann
var að athuga leka í einu af
HÁTT hlutfall ávaxta og
grænmetis í fæðu og lágt
hlutfall af rauðu kjöti og
áfengi, ásamt reglulegri líkams-
rækt og mátulegri líkamsþyngd,
getur dregið verulega úr hættunni
á mörgum tegundum krabbameins.
Þeir sem sinna rannsóknum á þess-
um sjúkdómi segja nú að besta
vörnin sé einmitt sú að fyrirbyggja
hann og hefur þarna orðið breyting
á áherslum frá þvi 1971 er Richard
Nixon, þáverandi Bandaríkjafor-
seti, lýsti yfir stríði gegn krabba-
meini og allt kapp var lagt á að
finna lækningu.
Þrátt fyrir að miklar framfarir
hafi orðið í meðferð krabbameins
og dánartíðni af völdum krabba-
meins í kviðarholi hafi lækkað hef-
ur lítil breyting orðið er varðar
brjóstakrabbamein í konum eldri
en 55 ára og blöðruhálskirtil-
skrabbamein í karlmönnum.
Dauðsfollum af völdum krabba-
meins hætti ekki að fjölga í Banda-
ríkjunum fyrr en 1991.
Bandaríska krabbameinsrann-
sóknarstofnunin (AICR) birti ný-
lega leiðbeiningar um fæðuval,
byggðar á niðurstöðum 4.500 rann-
sókna. Bandaríska krabbameinsfé-
lagið áætlar að eitt af hverjum
þremur dauðsfóllum af völdum
krabbameins megi rekja til áhrifa
fæðu.
Ymislegt bendir til þess að græn-
meti geti minnkað hættu á krabba-
meini í ristli og endaþarmi vegna
eitureyðandi sambanda sem í þeim
eru eða vegna trefjainnihalds.
Hreyfing virðist minnka hættu á
ristilkrabba með því að örva iðra-
hreyfingu, sem dregui’ úr þeim
tíma sem saur, og þau eiturefni sem
í honum eru, situr í ristlinum.
Flestar vísindarannsóknir benda
til þess að lítil áfengisneysla og hátt
hlutfall grænmetis í fæðu séu þeir
þættir sem líklegastir eru til að
hylkjum stöðvarinnar.
Vinogradov og Anatoíj Solovjov,
leiðangursstjóri, luku öllum
þeim verkum sem áætluð voru í
í nýjasta hefti Harvard
Health Letter, sem
gefíð er út af lækna-
deild Harvard-háskóla,
kemur meðal annars
fram að lítil áfengis-
neysla og hátt hlutfall
grænmetis í fæðu virð-
ist draga úr hættu á
brjóstakrabbameini.
draga úr hættu á brjóstakrabba-
meini. Fjöldi rannsókna bendir til
að því meira áfengis sem kona
neytir því hættara sé henni við að
fá brjóstakrabba. Ekki er að fullu
ljóst hvert orsakasamhengið er, en
sumir vísindamenn telja að áfengi
kunni að hefta frumulagfæringar-
virkni í brjóstvef, en einnig er
hugsanlegt að áfengi auki magn
estrógenhormóns, sem talið er að
kunni að ýta undir æxlisvöxt í
brjóstum.
Þá bendir ýmislegt til þess að
neysla ávaxta og grænmetis kunni
að minnka hættu á brjóstakrabba.
Án þess að tiltekin efni hafi verið
einangruð sem áhrifamesta vörnin
virðist margt benda til þess að vöm
sé í jurtaefnum sem er að finna í
bæði ávöxtum og grænmeti. Vís-
indamenn við læknadeild John
Hopkins-háskóla í Baltimore
komust nýlega að því að spergilkál
(broccoli) inniheldur efni sem virð-
ist flýta virkni ensíma sem hefta
eiturverkan.
Vísbendingar um að fita í fæðu
hafi áhrif á brjóstakrabbamein eru
ekki eins sterkar og niðurstöður
rannsókna stangast á. Margar
þessari geimgöngu og tók það
þá einungis þrjár klukkustundir
í stað sex sem áætlaðar höfðu
verið.
rannsóknir benda til að offita auki
hættu á brjóstakrabba verulega hjá
konum eftir tíðahvörf og kann það
að skýrast af því að of feitar konur
hafa yfirleitt meira af estrógeni.
Sama ástæða kann að vera fyrir því
að offita er talin tengjast krabba-
meini í legslímhúð.
Engar sterkar visbendingar eru
um að fæðuval geti dregið úr hættu
á krabbameini í blöðruhálskirtli.
Takmarkaðar rannsóknir virðast
þó benda til þess að fiturík fæða,
sérstaklega rautt kjöt, geti aukið
hættu á slíku krabbameini. Aðrar
rannsóknir hafa gefið til kynna að
mikil neysla grænmetis kunni að
draga úr hættunni. Til dæmis hafa
fundist vísbendingar um að efnið
sem ljær tómötum rauðan lit kunni
að minnka líkurnar.
Bandarískar og evrópskar rann-
sóknir benda til að þetta efni,
lykófen, dragi einnig úr hættu á
hjartasjúkdómum. Hátt hlutfall
ávaxta og grænmetis í fæðu virðist
líka minnka hættuna á lungna-
krabbameini, sem er helsta dánar-
orsök bæði kvenna og karla i
Bandaríkjunum. Þessi áhrif má að
líkindum rekja til virkni jurtaefna
sem ekki hafa enn verið tilgreind.
í Harvard Health Letter er bent
á að vísbendingar um tengsl matar-
æðis og krabbameins séu flestar
fengnar með athugunum á hópum
fólks þar sem rannsökuð séu tengsl
milli krabbameinsmynsturs og
neyslumynsturs. Til dæmis kunni
sá hópur kvenna sem drekki mest
áfengi að hafa hæsta tíðni krabba-
meins, en þetta sanni ekki að áfengi
valdi í raun krabbameini. Ef þær
konur sem rannsakaðar eru þjást
líka af offitu getur það verið ástæða
krabbameinsins, en ekki áfengis-
neyslan. Þess vegna séu leiðbein-
ingar til neytenda byggðar á niður-
stöðum sem allra flestra rann-
sókna.
Afurðasala og söluverðmæti íslenskra sjávarafurða hf. árið 1997 og samanburður við árið 1996
pjly
FRYSTAR AFURÐ FRÁ ÍSLANDI MAGN Breyt' IR 1 tonnum mini VERÐMÆTI Brpvt í milljónum kr. miiii'
1997 1996 ára 1997 1996 ára
Freðfiskur 25.669 27.990 -8,3% 6.971 7.345 -5,1%
Aðrar frystar afurðir 43.664 43.876 -0,5% 6.123 6.603 -7,3%
Fryst samtals: 69.333 71.866 -3,5% 13.094 13.948 -6,1% |
AÐRAR AFURÐIR FRÁ ÍSLANDI
Ferskar afurðir 22 80 -72,5% 6 36 -83,3%
Saltað 57 64 -10,9% 15 18 -16,7%
Mjöl 35.595 26.593 +33,9% 1.780 1.166 +52,7%
Annað frá ísl. samt.: 35.674 26.737 +33,4% 1.801 1.220 +47,6% |
jfÚtflutt frá Isl. samt.: 105.007 98.603 +6,5% 14.895 15.168 -1,8%J
ERLENDAR AFURÐIR
Fryst frá Kamchatka 15.705 56.110 -72,0% Mjöl frá Kamchatka 2.067 6.025 -65,7% Frá Namibíu 3.944 5.453 -27,7% Af erlendum skipum 1.707 140 1.198 3.717 -67,8% 91 241 -62,2% 628 863 -27,2% 193 15
Erl. afurðir samtals: 23.423 67.728 -65,4% 2.110 4.836 -56,4% |
ISALAÍSALLS: 128.430 166.331 -22,8% 17.005 20.004 -15,0% |
Áherslur í baráttunni við krabbamein hafa breyst
og er nú allt kapp lagt á forvarnir
Sterkar vísbendingar um
jákvæð áhrif grænmetis