Morgunblaðið - 10.01.1998, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
KACZYNSKI gengur í fylgd
lögreglumanns út úr dómshús-
inu í Sacramento.
Kaczynski
vill verja
sig sjálfur
Sacramento. Reuters.
THEODORE Kaczynski, sem grun-
aður er um að vera svonefndur
Unabomber, er talinn hafa reynt að
fyrirfara sér í fangaklefa sínum að-
faranótt fimmtudags, skömmu áður
en hann kom öllum á óvart í réttar-
salnum með því að fara fram á að
flytja málsvörn sína sjálfur.
Að sögn lögreglu í Sacramento í
Kalifomíu mætti Kaczynski til rétt-
arins með rautt far á hálsi og ekki í
neinum nærbuxum, og er talið að
hann hafí reynt að nota buxurnar til
að hengja sig. Lou Blanas, aðstoð-
arlögreglustjóri í Sacramento, sagði
á fréttamannafundi að Kaczynskis
væri nú gætt allan sólarhringinn.
Málflutningur átti að hefjast á
fímmtudag, en áður en upphafsræð-
ur voru haldnar tilkynnti einn verj-
enda Kaezynskis, Judy Clarke, að
hann vildi losna við opinbera verj-
endur sína og sjá sjálfur um mál-
flutning. Kaczynski hefur látið í
ljósi andstöðu sína við áætlanir
verjendanna um að sýna fram á að
hann sé „andlega vanheill“ og því
ekki sakhæfur.
Kaczynski er gefið að sök að hafa
orðið tveim að bana og sært aðra
tvo með bögglasprengjum, en alls
er talið að hann hafi staðið að sext-
án slíkum tilræðum frá því 1978.
Verði hann fundinn sekur á hann
dauðadóm yfir höfði sér.
Bráðaskoðun á 211
nýlegum Boeing 737
Washington. Reuters.
BANDARISK flugmálayfirvöld
hafa íyrirskipað að framkvæmd
verði bráðaskoðun á 211 nýlega
smíðuðum Boeing 737-þotum.
í tengslum við rannsókn flug-
málastofnunarinnar (Federal Avi-
ation Agency, FAA) á hrapi Boeing
737-300 farþegaþotu singaporíska
flugfélagsins SilkAir í Indónesíu 19.
desember sl. á að kanna hvort verið
geti að hnoð, sem eiga að festa ytra
byrði hæðarstýranna aftast á vél-
inni við burðargrind stélsins, vanti
eða séu laus. I tilkynningu FAA
segir að í ljós hafi komið að svo virð-
ist að 26 slík hnoð hafi vantað á
SilkAir-vélina, sem fórst skyndilega
í góðu flugveðri yfír sléttlendi með
104 innanborðs.
„Það er hugsanlegt að hnoðin hafi
vantað vegna þess að þau hafi ekki
verið sett í við framleiðslu vélarinn-
ar,“ segir í tilkynningunni. „Ef slík
yfirsjón hefur átt sér stað við gæða-
eftirlit með þessari flugvél er mögu-
legt að hið sama hafi gerzt með vél-
ar sem framleiddar voru um sama
leyti.“
Samkvæmt íyrirmælum FAA
verða þau fiugfélög sem hafa í
rekstri Boeing 737 þotur af undir-
gerðunum 300, 400 og 500, sem
framleiddar voru eftir 20. septem-
ber 1995, að láta fara fram skoðun á
hæðarstýrum þeirra innan sólar-
hrings frá útgáfu tilkynningarinnar
eða í seinasta lagi eftir fimm flug.
En í tilkynningu FAA segir
einnig að enn liggi ekki fyrir neitt
sem tengi orsök slyssins beint við
hnoðin sem voru laus eða vantaði.
í flugflota Flugleiða eru fjórar
Boeing 737-vélar, en þær eru fram-
leiddar 1989 og 1991 og snertir því
skoðunartilskipun FAA þær ekki.
Frá því framleiðsla á Boeing 737
hófst 1967 hefur þessi flugvélar-
gerð verið seld til ílugfélaga um all-
an heim í samtals 2.950 eintökum.
Ross Young, talsmaður Boeing-
verksmiðjanna í Seattle, sagði í gær
að fyrirtækið fagnaði því að þessar
skoðanir færu fram, þær væru
skynsamlegt skref. Ekki hefðu
borist neinar fregnir af því að hnoð-
in hefðu vantað í þeim vélum sem
búið er að skoða.
í fyrra lentu Boeing-verksmiðj-
urnar í vandræðum vegna skorts á
hlutum til framleiðslunnar, bilana í
samsetningareiningum og skorts á
faglærðum og þjálfuðum verka-
mönnum, þegar þær reyndu að
auka afköst verksmiðjunnar í því
skyni að koma til móts við mikla eft-
irspurn eftir flugvélum. Young
sagði ekkert benda til að þessi
vandræði tengdust SilkAir-slysinu á
nokkurn hátt. „Við efumst ekki hið
minnsta um gæði þeirra flugvéla
sem fara frá verksmiðjunni," sagði
hann.
Neyðarástand í Ottawa
SNJÓKOMA og frostregn settu allt úr skorðum víða í
Quebec og Ontario í Kanada í gær, annan daginn í röð,
og eru tíu dauðsföll rakin til afleiðinga veðursins. f
höfuðborginni Ottawa, þar sem vegfarendur fetuðu
sig áfram í þæfingsfærð undir klakabrynjuðum trjám,
var Iýst yfir neyðarástandi. Hefur slíkt ekki áður verið
gert í borginni. Um þrjár milljónir manna voru í gær
án rafmagns vegna veðursins í fylkjunum tveim og
samkvæmt veðurspá má búast við áframhaldandi
frostregni. Verst er ástandið í Montreal og Ottawa.
Varúðarráðstafanir eru gerðar í Atlantshafsfylkjunum
þvf veðrið færist nú austur.
ESB-ríki brjdta
umhverfislög
Brussel. Reuters.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins hefur hótað
átta aðildarríkjum málsókn
vegna brota á umhverfíslöggjöf
sambandsins.
Framkvæmdastjórnin til-
kynnti í gær að hún hefði misst
þolinmæðina gagnvart Lúxem-
borg og hygðist draga þarlend
stjórnvöld fyrir Evrópudómstól-
inn vegna þess að þau hefðu
ekki virt löggjöf frá 1986 um
meðferð á tilraunadýrum.
Sjö öðrum ríkjum hafa verið
send formleg bréf, þar sem þeim
er gert að hlíta umhverfíslögum
sambandsins eða verða ella
stefnt fyrir dómstólinn.
Bretland hefur ekki framfylgt
ýmiss konar umhverfíslöggjöf á
Gíbraltar. Þar á meðal eru til-
skipanir um hávaða frá flugvél-
um, blýlaust benzlín og mengun
frá sorpbrennsluofnum.
Portúgal hefur ekki fylgt
ESB-reglum um umhverfisbók-
hald og Belgía hefur ekki tryggt
almenningi aðgang að upplýs-
ingum um umhverfísmál.
Þá hefur framkvæmdastjórnin
ákveðið að grípa til aðgerða
gegn Belgíu, Spáni, Portúgal,
Italíu og Hollandi vegna þess að
þessi ríki hafa ekki fylgt reglum
sambandsins um mengun vatns.
Þá verður Frakkland lögsótt
fyrir að horfa framhjá ESB-
reglum um sorpflutninga og eft-
irlit með ózonlaginu.
Blair segir vel-
gengm evrosms
Bretlandi í hag
Tókýó. Reuters.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, sagði í ræðu sem hann hélt yf-
ir japönskum viðskiptajöfrum í
Tókýó í gær að það væri eindregið
Bretlandi í hag að nýja Evrópumynt-
in, evróið, gengi vel, þrátt fyrir að
Bretland hyggist standa utan Efna-
hags- og myntbandalags Evrópu
(EMU) í fyrstu. Blair er í fjögurra
daga heimsókn í Japan og hyggst
meðal annars reyna að sannfæra
japanska kaupsýslumenn um að
Bretland sé áfram vænlegasta ESB-
ríkið til fjárfestinga, þrátt fyi’ir að
það muni ekki nota evróið næstu ár-
in.
,Af gildum efnahagslegum ástæð-
um mun Bretland ekki taka upp
sameiginlega gjaldmiðilinn 1. janúar
1999. Hagsveiflan hjá okkur er ekki
sú sama og hjá samstarfsríkjum okk-
ar í ESB. Eins og er þurfa vextir í
Bretlandi að vera talsvert hæm en í
Frakklandi og Þýzkalandi," sagði
Blair. ,Að ganga í BMU núna myndi
hafa í fór með sér rangar efnahags-
legar ákvarðanir fyrir heilbrigði og
stöðugleika hagkerfisins."
Efnahagsaðstæður of ólíkar
Blair sagði að enn væru efnahags-
aðstæður í Bretlandi of ólíkar því,
sem gerðist á meginlandinu. Aður en
Bretland gengi í EMU þyrfti að
samlaga efnahagslífið því, sem gerð-
ist í öðrum ESB-ríkjum, tryggja
stöðugleika og undirbúa upptöku
evrósins.
„Hvernig sem fer er það eindregið
Bretlandi í hag að sameiginlegi
gjaldmiðillinn gangi vel. Við munum
gera okkar bezta til að tryggja að
hann gangi vel. Og að sjálfsögðu
verðum við að undirbúa okkur fyrir
gildistöku evrósins, hvað sem ger-
ist,“ sagði Blair.
Brown
sagður
ósáttur
GORDON Brown, fjármálaráð-
herra Bretlands, telur að Tony
Blair, forsætisráðherra, hafi
rofið sáttmála þeirra í millum
um að Blair myndi láta Brown
eftir leiðtogaembættið í Verka-
mannaflokknum kæmi til leið-
togakjörs. Er þessu haldið
fram í ævisögu Browns sem
gefin verður út á næstunni.
Ævisagan er rituð af blaða-
manninum Paul Routledge,
sem segir hana ritaða í fullri
samvinnu við ráðherrann.
Brown er sagður hafa verið
sannfærður um að hann hefði
unnið Blair í leiðtogakjöri, en
ákveðið að hugsa fyrst um heill
fiokksins og draga framboð sitt
til baka er sér hafi orðið ljóst
að Blair var ákveðinn í að halda
framboði sínu til streitu.
Tvær F-16
þotur farast
BANDARÍSKI flugherinn af-
lýsti öllu æfingaflugi í gær eft-
ir að F-16 orrustuþota fórst á
æfingaflugi í Utah á fimmtu-
dag. Flugmaðurinn komst lífs
af. Þetta var í annað skipti á
tveim dögum sem þota af
þessari gerð fórst, en á mið-
vikudag rákust tvær F-16 þot-
ur á í æfingaflugi og fórst önn-
ur en flugmanni hinnar tókst
að lenda. Flugmaður þotunnar
sem fórst komst af.
Rutan lentur
TILRAUN tveggja Banda-
ríkjamanna til að verða fyrstir
til að fljúga umhverfis jörðina í
loftbelg hlaut snöggan endi að-
eins tveim tímum eftir að hún
hófst í Albuquerque í New
Mexico-ríki í gær. Leki kom að
belgnum og neyddust flug-
mennirnir, Dick Rutan og Dave
Melton, til að finna lendingar-
stað í skyndi.
Svíum rænt í
Rússlandi
TVEIM sænskum starfsmönn-
um hjálparsamtaka var rænt í
Suður-Rússlandi, að því er
sænska sendiráðið í Moskvu
greindi frá í gær. Rússneska
fréttastofan Ítar-Tass greindi
frá því að fólkinu hefði verið
rænt í Dagestanhéraði,
skammt frá Tsjetsjníu.
Sýndarástvinur
RAIN LAI horfir á „ástina
sína“ á leikja- og skemmtisam-
komunni í Hong Kong í gær.
„Eigendur" þessa nýja tækis,
„sýndarástvinarins", þurfa að
fara á fjörurnar við það, færa
því blóm og konfekt og skrifa
ástarbréf til að vinna „ást“
þess og „kærleikspunkta“. Ef
vel gengur getur „eigandan-
um“ hlotnast „sýndarkoss" og
jafnvel „sýndarhjónaband".