Morgunblaðið - 10.01.1998, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Útsala útsala
ÚTSÖLUR eru hafnar í mörgum
verslunum. I dag, laugardag, er
langur laugardagur við Laugaveg
og margar búðir hyggjast af því
tilefni byija með útsölu og aðrar,
sem þegar eru byijaðar, veita jafn-
vel aukaafslátt í dag.
í Kringlunni byijuðu margar
búðir með útsölu sfðastliðinn
fimmtudag og þar hefúr verið
margt um manninn.
Mikill afsláttur
af þykkum
vetrarflíkum
Kaupmönnum ber saman um að
mikið hafi verið að gera fyrir jólin
en benda á að sökum frábærs veð-
urfars það sem af er vetri sé nokk-
uð til af hlýjum vetrarfatnaði, úlp-
um, kápum, þykkum peysum og
kuldaskóm og líklega verði hægt
að gera hagstæð kaup á slíkum
flfkum á útsölunum.
Pljótt á litið virðist afsláttur
svipaður og undanfarin ár, algengt
er að verslanir bjóði frá 30% og
upp í 70% afslátt. Margir lækka
síðan verðið enn frekar þegar á
líður.
MorgiuiblaðiMtristinn Ingvarsson
ÞAÐ er langur laugardagur í dag á Laugaveginum og í tilefni dagsins veita sumar verslanir aukaafslátt.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
SYSTURNAR Sigurbjörg og Kristín Hallgrímsdætur voru á út-
sölurölti í Kringlunni í vikunni og Egill Kristjánsson sat í kerrunni
sinni og sýndi mikla þolinmæði. Þær voru aðallega að leita að barna-
fötum og höfðu þegar fjárfest í íþróttaskóm á börnin á 99 krónur. Þá
var spariskyrta komin í poka og ýmislegt fleira. Sigurbjörg og Krist-
ín voru sammála um að þær eyddu ekki í óþarfa á útsölum, einungis
fatnað sem börnin og þær þyrftu á að halda.
[terkds
Dæmi um ríkulegan staðalbúnað Daihatsu Terios:
• Vökvastýri
Tveir líknarbelgir
Rafknúnar rúður og speglar
Utvarp og segulband
1 Samlœsing
' Tregðulcesing
Beinskiptur 5 gíra kostar hann aðeins: 1.648.00
Sjálfskiptur: 1.768.000 kr.
BRIMB0RG
FAXAFENI 8 • 515 7010
Umboð:
Brimborg-Þórshamar Bllasala Keflavikur
Tryggvabraut 5 Hafnargötu 90
Akureyri Reykjanesbæ
slmi 462 2700 slml 421 4444
Þetta er akkurat
bíll fyrir mig. Sjálfskiptur,
sparneytinn, léttur og lipur.
Svo er hann lika
v fjórhjóladrifinn! >
□AIHATSU
TERIOS
ARGERÐ
1998