Morgunblaðið - 10.01.1998, Qupperneq 26
\ y 'rl> 'IMAT. .01 JIIIÍ lAdHAr') r/
26 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998
STIGIB k STQKK UM ÁRAMQT
Eg er
hættur að
r eyki a S
Um áramót stíga menn gjarnan á stokk
og strengja heit. Sveinn Guðjónsson
hét því að hætta að reykja, rétt eina
ferðina, og ákvað í þetta skipti að velja
, jákvæðu leiðina“.
Qú-----------
A SEM þessar línur ritar hef-
ur oft haldið því fram að það
sé enginn vandi að hætta að reykja,
enda hefur hann gert það ótal sinn-
um. Vandinn er bara sá að halda
reykbindindið til langframa, sem
reynist oft þrautin þyngri. Þegar
hann svo var að velta þessum hlutum
fyrir sér nú um áramótin rakst hann
á auglýsingu í Morgunblaðinu þar
sem boðið var upp á , jákvæðu leið-
ina til að hætta að reykja“. Hér var
um að ræða námskeið, sem ber yfir-
skriftina Reyklaus að eilífu og sam-
kvæmt auglýsingunni byggist það á
endurforritun hugans í stað hræðslu-
áróðurs eða efnastaðgengla. Þetta
hljómaði vel og greinarhöfundur lét
skrá sig á námskeiðið, sem tekur að-
eins tvö kvöld: Fyrra kvöldið lærir
maður að reykja upp á nýtt, og svo
er „drepið í“ til frambúðar seinna
kvöldið.
Meðjákvæðu hugarfari
Það vakti athygli greinarhöfundar
að þátttakendur á námskeiðinu voru
nær eingöngu konur. Auk hans
höfðu tveir karlar látið skrá sig, en
hvorugur þeirra mætti þegar til átti
að taka. Líklega eru konur bara
staðfastari þegar kemur að því að
standa við mikilvægar ákvarðanir.
Nema þær séu trúaðri á „töfralausn-
ir“, eins og námskeið af þessu tagi
fela oft í sér. Raunar er ekki beint
verið að bjóða upp á slíkar lausnir á
þessu námskeiði, heldur reynt að
byggja upp jákvætt hugarfar gagn-
vart reykbindindinu. „Fíknin er í
huganum, endurforritun hugans er
því nauðsynleg," eins og þar segir.
Leiðbeinandinn, Guðjón Berg-
mann, bauð þátttakendur velkomna
og lagði áherslu á „opinn huga“ og
Jákvæðni", enda stæði árangur og
félli með því að menn færu eftir því
sem lagt væri fyrir á námskeiðinu.
Sjálfur stundaði Guðjón reykingar
um árabil, en er nú hættur.
Það sem mest kom á óvart þetta
fyrra kvöld námskeiðsins var að
menn voru hvattir til að reykja
næstu tvo daga, eða þar til seinna
kvöldið. „Þetta námskeið er bara
MORGUNBLAÐIÐ
SÍÐASTA sígarettan.
Morgunblaðið/Kristinn
undirbúningur fyrir reykbindindið.
Þið komuð tU að undirbúa ykkur, í
samstarfi við mig,“ sagði Guðjón og
leyfði mönnum meira að segja að
fara í „reykpásu".
Ekki fór langur tími í að ræða
skaðsemi tóbaksins, enda námskeið-
ið byggt upp á „endurforritun hug-
ans í stað hræðsluáróðurs". Þó kom
fram að nikótín er harðvirkt fíkniefni
og því eru þeir sem reykja að sönnu
„fíkniefnaneytendur". Þátttakendur
ræddu hins vegar opinskátt um
reykingavenjur sínar, hvenær og
hvernig þeir byrjuðu og af hverju
þeir hefðu komið á námskeiðið.
Flestir komu vegna þess að þeir ótt-
uðust að bíða heilsutjón af völdum
reykinga og einnig höfðu fjárútlát
vegna reykinga sitt að segja. Þátt-
takendur komust að þeirri niður-
stöðu að þeir eyddu um það bil
þremur til fimm klukkustundum í
reykingar á dag. Þeim tíma væri ef-
laust betur varið í eitthvað annað
uppbyggilegra.
Draumlyndi
DRAUMSTAFIR Kristjáns Frfmanns
Mynd/Kristján Kristjánsson
ÚR draumsins egg fæðist hugarflugið.
ÞAÐ er sagt um menn sem liggja
uppi í sófa löngum stundum og
stara út í loftið, að þeir séu sveim-
hugar. Að þeir sem hanga úti í
náttúrunni og stara í svörðinn lon
og don séu draumlyndir og þeir
sem uni sér við ævintýr og óræð-
an skáldskap séu skýjaglópar.
Þessi hugtök lýsa vel fordómum
Islendinga í garð skapandi hugs-
unar og andlegs þankagangs.
Fordómum sem eru skiljanlegir
þegar fortíð, sem var brauðstrit
frá vöggu til grafar, er höfð í huga,
en ekki í dag á öld upplýsingar,
þar sem andleg verðmæti vega æ
þyngra á vogarskálum gjaldeyris-
tekna. Þessi pokaháttur landans
hefur hamlað eðlilegri þróun hugs-
unar og verið fótakefli á hugarflug
sem er ein af undirstöðum skap-
andi huga.
Draumamir hafa þó alltaf haldið
sínu striki og verið mörgum skap-
andi manninum huggun harmi
gegn á tímum sinnuleysis og hald-
ið lífí í frjórri hugsun þeirra. Þar
má nefna þjóðskáldið Jónas sem
með lund síns dreymandi hugar
náði í umfangi himinsins að höndla
þá stjörnu er blikar um ókomna
tíð.
Ástarstjömu
yfir Hraundranga
skýla næturský;
hló hún á himni,
hryggur þráir
sveinn í djúpum dali.
Veiteg, hvarvonöll
og veröld mín
glædd er guðs loga.
Hlekki brýt eg hugar
og heilum mér
fleygi faðm þinn í.
Sökkviegmérogséeg
í sáiu þér
oglífiþínulifi;
andartak sérhvert,
sem ann þér guð,
finn eg í heitu hjarta.
Að láta sig dreyma vakandi er
mikilvægur grunnur fyrir drauma
svefnsins, að næra vakandi huga
draumlyndum hugsunum, ljóðræn-
um pælingum og sjónrænum
„fantasíum" ævintýrsins að vera til.
Uppgötva það smáa í því stóra og
hið stóra í því smáa, skoða tilveruna
með augum bamsins, eyrum hjart-
ans og tilfínningu draumsins, því:
„Hinir dreymandi og óskandi halda
á hinu fíngerðara efni lífsins í hönd-
um sér.“ (Franz Kafka.)
Tveir draumar
frá „Ósk“
Ég var í útilegu með manninum
mínum og dóttur, þegar mig
dreymdi að ég væri úti á fallegu
engi. Þá kom vinnufélagi minn til
mín brosandi og fór að spjalla. Ég
var í fallega grænni dragt, pilsi og
jakka. Hún sagði að sig langaði í
svona dragt eins og ég var í og það
gekk eftir, skyndilega var hún
komin með eins dragt uppá hand-
legginn og var að búa sig undir að
fara í hana.
Seinni draumur:
Ég var á heimili foreldra minna
og það voru að koma jól. Ég fór að
tala við mömmu (mér fannst hún
lifandi í draumnum en hún dó fyrir
tíu árum). Ég spurði hvað hana
langaði að fá í jólagjöf. Hún svar-
aði að sig langaði í nýja þvottavél,
því hin væri ónýt. Mér fannst ég og
bróðir minn aðgæta gömlu vélina,
sem mér fannst lítil og full af
óhreinum þvotti. Inni í stofu sátu
systir mín, dóttir hennar og vinnu-
félagi minn úr hinum draumnum
og dóttir hennar, þær voru að
gæða sér á konfekti. Ég fór að
reikna út hvað ný vél kostaði; ef
við fímm systkinin gæfum 6 þús-
und á mann, væri það 30 þúsund í
útborgun og svo gætu þau greitt 5
þúsund á mánuði. Ég bar þetta
undir systur mína sem samþykkti
ráðagerðina.
Ráðning
Fyrri draumurinn vísar til þeirr-
ar hjartahlýju (úti á engi í faUegri
náttúru) og orku (græna dragtin/
grænt er orka) sem þú berð með
þér og getur nýtt til aðstoðar öðr-
um. Þessi hlýi hugur þinn getur
gert kraftaverk og lyft Grettistök-
um fyrir annarra hönd ef þú kærir
þig um. I þessum draumi er gefíð í
skyn að þú getir klætt vinnufélaga