Morgunblaðið - 10.01.1998, Síða 28
28 LAUGAKDAGUR 1«. JAKÚAR 'Í998
MORGUNBLAÐIÐ
Dansinn
er lífsstfll
Nýjum straumum í tónlist fylgja
nýir tískudansar. Hér á landi
dvelur nú
danshöfund
urinn Amir E1
Falaki til að I \
sýna og kenna
það nýjasta á
þessu sviði.
Morgunblaðið/Knstinn
DANSMEISTARINN Amir E1 Falaki sýnir listir sínar
og virðist ekki hafa mikið fyrir því. Anna María
og Kolla fylgjast með.
EIÐAR Ástvaldsson giaðbeittur á
svip með sínu fólki.
ANNA María og Amir í afbrigði af „Street Jam“.
E/u.
a'akj.
EG BYRJAÐI að dansa 12
ára og hef dansað í gegnum
lífið síðan,“ sagði Amir E1
Falaki þegar við hittum hann að
máli í Dansskóla Heiðars Ástvalds-
sonar, þar sem hann var að þjálfa
aðstoðardansara sína, þær Kol-
brúnu Jónsdóttur og Onnu Maríu
Ragnarsdóttur, sem báðar eru
nemendur í Dansskóla Heiðars.
Amir er ættaður frá Marokkó,
en er fæddur og uppalinn í
Danmörku. Heiðar kynntist
honum á ráðstefnu danskenn-
ara í Kaupmannahöfn á síð-
asta ári og fékk hann til að
koma hingað og sýna nýjustu
tískudansana og kenna þá
við skólann, en Amir er eft-
irsóttur og getur því aðeins
staldrað við hér á landi í
einn mánuð.
Þótt Amir sé ungur að
árum hefur hann komið
víða við, ferðast vítt og
breitt um Evrópu, sýnt
dansa, kennt og samið
dansa fyrir ýmsa
þekkta skemmtikrafta
svo sem Ace of Base,
Dr. Alban, Jacki Gra-
ham, Cut’n’Move,
Boyzone og Aqua
svo nokkrir séu
KOLLA dansar af innlifun og þau
Anna María og Amir fylgja á eftir.
nefndir. Og það er greinilegt
að hann kann ýmislegt fyrir
sér á þessu sviði. Hann bend-
ir réttilega á að dansinn hald-
ist í hendur við nýjustu
strauma í popptónlist og svo-
kallaðir „götudansar", sem
eigi rætur að rekja til stræta
ýmissa stórborga í Bandaríkj-
unum, séu nú í miklum met-
um hjá unga fólkinu. Þeir
dansar, sem Amir kvaðst
myndu leggja áherslu á við
kennslu sína hér, eru dansar á
borð við Street Jam, New
York Funk, Techno Dance,
Break, Jass Funk og Michael
Jackson’s Steps.
„Þessir dansar veita mönn-
um mikla útrás, sem er nauð-
synlegt í nútímaþjóðfélagi.
Raunar tel ég að dans al-
mennt eigi erindi til allra.
Hann veitir fólki gleði og lífs-
fyllingu og gerir öllum gott.
Hvað mig varðar er dansinn
orðinn partur af sjálfum mér.
Dansinn er minn lífsstíll.“
'etur verið of mikiðjárn íblóðinu?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Er hægt að vera með
of mikið jám í blóðinu? Ef svo er,
hver eru einkennin?
Svar: Já, það er hægt að hafa of
mikið jám í blóðinu og í líkaman-
um. Jám er einn af þeim málm-
um sem em nauðsynlegir fyrir
starfsemi líkamans. Karlmenn
hafa að meðaltali 3,5 g af járni í
líkamanum en konur 2,5 g.
Meirihluti þessa járns er í blóð-
rauðanum og efnahvötum (en-
sýmum) í hinum ýmsu vefjum en
um þriðjungur er bundinn í
birgðum. Á hverjum sólarhring
tapar líkaminn um 1 mg af jámi,
einkum með fmmum sem losna
frá yfirborði húðar og slímhúðar
í meltingarvegi. Þetta járntap
þarf líkaminn að bæta sér upp
með fæðunni. í venjulegu dags-
fæði eru 5-10 mg af járni og af
þeim nýtist þetta eina mg sem
þarf. Nýtingu jáms úr fæðu er
stjórnað þannig að hún uppfylli
þarfimar og er talið að hún
ákvarðist af járnbirgðum líkam-
ans, á einhvern óþekktan hátt.
Ýmislegt getur þó haft áhrif á
nýtingu jáms úr fæðunni og má
þar nefna að trefjaefni og te
minnka nýtingu en C-vítamín
eykur hana. Of mikið getur orðið
af járni í líkamanum eftir þremur
leiðum; þeir sem fá mikið af blóð-
gjöfúm vegna sjúkdóma, þeir
sem taka inn óhóflegt magn af
járni og þeir sem hafa ættgengan
sjúkdóm sem verður til þess að
óeðlilega mikið af jámi nýtist úr
fæðunni. Það síðasttalda
(hemochromatosis) er algengast
og þar er um að ræða víkjandi
erfðagalla (vegna stökkbreyting-
ar) sem er talinn þjá um 24 millj-
ónir manna í heiminum. Þessi
sjúkdómur er mun sjaldgæfari
meðal kvenna en karla og má
Járn
í blóði
leiða líkur að því að það stafi af
mánaðarlegum tíðablæðingum
sem losa líkamann við dálítið
magn af járni. Sjúkdómurinn
kemur venjulega ekki í Ijós fyrr
en komið er á miðjan aldur enda
getur tekið marga áratugi að
safna því magni af járni sem þarf
til að gefa einkenni. Líkaminn á
engan mótleik við aukinni nýt-
ingu járns úr fæðunni vegna þess
að engin góð útskilnaðarleið er
til. Eitt af þvi erfiða við þennan
sjúkdóm er að lengi vel gefur
hann engin einkenni og þegar
þau koma gerist það mjög hægt,
á mörgum árum eða áratugum.
Fyrstu einkennin geta verið sí-
felld þreyta og slappleiki og síð-
an sykursýki, gráleit húð,
minnkuð kynhvöt, tíðateppa, verk-
ir og bólga í liðum en að lokum
geta skemmdir í lifur og hjarta
dregið sjúklinginn til dauða. Önn-
ur einkenni geta komið fram og
má þar nefna ýmis geðræn vanda-
mál, hárlos, kuldatilfinningu og
tíðar sýkingar. Hætta á krabba-
meini eykst, m.a. krabbameini í
lifur. Þekkt eru nokkur dæmi um
sjúklinga sem höfðu svo mikið
jám í líkamanum að þeir settu í
gang málmleitartæki við vopnaleit
á flugvöllum. Ef ekkert er að gert
eða ef meðferð hefst of seint deyr
sjúklingurinn. Mikilvægt er að
greina sjúkdóminn og hefja með-
ferð áður en varanlegar líffæra-
skemmdir verða. Greina má sjúk-
dóminn með blóðmælingum og
lifrarsýni eða mergsýni en einnig
er komin á markað mæliaðferð til
að finna hverjir eru með erfðagall-
ann sem veldur honum. Með því
móti er hægt að greina sjúkdóm-
inn mun fyrr en áður var mögu-
legt. Meðferðin er aðallega fólgin í
blóðtökum til að losa líkamann við
jám. í byrjun er oft tekinn hálfur
lítri af blóði 1-2 sinnum í viku en
þegar viðunandi árangri hefur
verið náð er oftast nægjanlegt að
taka sjúklingnum blóð á 2-4
mánaða frésti. Sumir þola illa
svona blóðtökur og þá má grípa til
lyfs (deferoxamíns) sem eykur út-
skilnað jáms í þvagi en er talinn
heldur lakari kostur. Horfumar
era góðar ef meðferðin hefst nógu
fljótt.
9Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt lækninn um það sem þeim ligg-
ur á bjarta. Tekið er á móti spurning-
um á virkum dögum milli klukkan 10
og 17 í síma 569 1100 og bréfum eða
símbréfum merkt: Vikulok, Fax:
569 1222.