Morgunblaðið - 10.01.1998, Side 40
40 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
Leikskólamál í Kópavogi
MIKLAR umræður
hafa orðið á undan-
förnum árum um upp-
byggingu á leikskólum
hér á höfuðborg-
arsvæðinu. Þessar um-
ræður hafa endur-
speglað þá miklu þörf
sem er fyrir þessa
þjónustu sem sveit-
arfélögum er ætlað að
sinna samkvæmt lög-
um um leikskóla. Bæj-
arstjórn Kópavogs hef-
ur lengi haft á stefnu-
skrá að tryggja öllum
börnum sem rétt eiga
á leikskóladvöl, þjón-
ustu við sitt hæfi. Þetta
hefur þó ekki tekist hvað varðar
börn á aldrinum 6 mánaða til 2'h
árs, að öðru leyti hefur tekist að
fylgja eftir þeirri uppbyggingu og
þróun sem verið hefur í bænum.
Fjölgun íbúa hefur hvergi verið
meiri á öllu landinu en í Kópavogi
á síðustu árum og því þurft að
fylgja þessum málum eftir af enn
meiri krafti. Nú er svo komið að
um 98% foreldra sækja um leik-
skóladvöl fyrir börn sín og mikil
aukning er á því að foreldrar vilja
aukinn vistunartíma,
það er 6-9 tíma á dag.
Gera má ráð fyrir að
börn á aldrinum 0-6
ára séu um 9% af
bæjarbúum eða um
1750 börn í Kópavogi
í dag. Það er því ljóst
að halda verður áfram
uppbyggingu á leik-
skólum í Kópavogi á
komandi kjörtímabili
ef halda á í við þessa
þróun.
Nýir leikskólar við
Arnarsmára og í
Lindahverfi
Hinn 7. janúar s.l.
var tekinn í notkun nýr leikskóli,
sem nefndur hefur verið
Arnarsmári. í þessum leikskóla er
gert ráð fyrir 134 börnum sem
skiptast þannig, að 97 eru í 4-6
tíma dvöl og 37 í 8-9 tima dvöl.
Hafin var bygging þessa leikskóla
í apríl 1997 og lauk verktaki sinni
vinnu 5. janúar s.l. Hér er um að
ræða einingahús úr steinsteypu
um 627 fermetra að stærð og
skiptist hann í 4 deildir. Lóð
skólans er sérstaklega vistleg og
skemmtilega frá henni gengið. Við
skólann er gert ráð fyrir að starfi
28 manns í 19,25 stöðugildum.
Leikskólastjóri hefur verið ráðinn
Brynja Björk Kristinsdóttir.
Á vordögum 1998 er gert ráð
Kópavogsbær leggur
áherslu á að hafa upp-
eldismenntað fólk við
störf í leikskólum, segir-
Bragi Michaelsson, og
stefnir að því að öll börn
eigi kost á leikskóladvöl.
fyrir að taka í notkun nýjan leik-
skóla, sem nefndur þefur verið
Dalur, í Lindahverfi. Á þeim leik-
skóla er gert ráð fyrir að verði 136
börn sem skiptast þannig á dvalar-
tíma, að 98 verða í 4-6 tíma dvöl
og 38 í 8-9 tíma dvöl. Við þennan
leikskóla er gert ráð fyrir að starfi
28 manns í 19,25 stöðugildum.
leikskólinn er 616 fermetrar að
stærð og var keyptur af VSÓ verk-
fræðistofunni í alútboði.
Kópavogsbær hefur nú lokið
samningum við Ríkisspítala um að
yfirtaka og leigja leikskólann
Stubbase! sem staðsettur er í landi
Ríkisspítala við Kópavogsbraut.
Með þeim ráðstöfunum bætast við
22 ný rými sem skiptast þannig
að 10 eru 4-6 tímar en 12 8-9 tímar.
Stubbasel verður rekið sem hluti
af leikskólanum Skólatröð.
Eftir að þessar nýju stofnanir
hafa verið teknar í notkun mun
Kópavogsbær reka 12 leikskóla
fyrir 1300 börn. Að auki greiðir
Kópavogsbær með 60-70 börnum
á einkareknum leikskólum. Á kom-
andi vori getur bæjarfélagið mætt
um 78% af þörf fyrir leiksskólarými
barna í Kópavogi þegar með eru
talin þau pláss sem foreldrar nýta
á einkareknum leikskólum og
Kópavogsbær greiðir með.
650 ný rými á átta árum
Frá árinu 1990 þegar núverandi
meirihlutaflokkar, það eru Sjálf-
stæðisflokkur og Framsóknarflokk-
ur, tóku við hafa leikskólarými í
Kópavogi verið tvöfölduð, og á þess-
Bragi
Michaelsson
um tíma verið bætt við 650 nýjum
leikskólarýmum.
Þetta sýnir svo ekki er um að
villast, þann skilning og áhuga sem
þessir flokkar hafa á þessum mála-
flokk.
Það eru skýr skilaboð til þeirra
fjölmörgu bamafjölskyldna sem vilja
og eru að flytjast í Kópavog, að
Kópavogsbær er bær bamanna.
Meirihlutaflokkamir er staðráðinn í
því að halda áfram á þessari braut
og hefur nú veitt fé til hönnunar á
nýjum leikskóla í Lindahverfí. Þá er
í athugun á hvem hátt best verður
leyst með staðsetningu á bygging
fyrir leikskóla í mið og vesturbænum.
Auk þess sem hér hefur verið
getið er búið að endurbyggja gæslu-
velli í eldri hverfum bæjarins, en
þá sækja þau böm sem ekki hafa
fengið leikskólavist.
í fjárhagsáætlun ársins 1998 er
gert ráð fyrir íjárveitingu til að
byggja nýjan gæsluvöll við Lækja-
smára. Á þrjátíu ára afmæli Kópa-
vogsbæjar 1985 var gefin út minnis-
peningur sem á stóð „Kópavogur
er bær barnanna." Ég fullyrði að
aldrei fyrr hefur Kópavogur staðið
nær þessu markmiði. Þessu ber sér-
staklega að fagna, enda era börnin
okkar framtíð þessa Iands.
Höfundur er formaður
skólanefndar Kópavogs.
4
ISLENSKT MAL
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
935. þáttur
VEL stíluð og skilmerkileg
bréf era alltaf kærkomin, og
raunar, ásamt samtölum, líf-
taugar þáttarins. Próf. Þorkell
Jóhannesson skrifar svo
skömmu fyrir áramót:
„Kæri Gísli.
Nú er nýlega lokið ráðstefnu
í Kyoto í Japan um „gróðurhúsa-
lofttegundir“, „gróðurhúsa-
áhrif“ og hitnandi loftslag, sem
bræða kann svo jökla, að við hér
syðra förum í kaf, þótt þið þarna
nyrðra kunnið að komast af án
sundfata. Þetta gróðurhúsa-
kjaftæði er afskaplega hvimleitt
og er væntanlega komið úr
ensku. Samt bregður svo við að
í Time Magazine í dag (22.12.
1997) er vikið að efni ráðstefn-
unnar undir heitinu Globe
warming. í íslensku er til gott
og gilt orð, verming. Mætti því
fyrirbærið ekki heita hnatt-
verming og hlutaðeigandi loft-
tegundir (hnatt)vermandi loft-
tegundir? Ef þetta meiðir þig
ekki á tungunni legg ég til að
reynt verði að koma þessum
heitum á kreik.
Áður en ég sleppi pennanum
get ég ekki stillt mig um að
spyija þig hvert sé andlagið við
að „slá í gegn“. Kristján stór-
söngvari er til dæmis að „slá í
gegn“ út um víðan heim. Hvern,
hvað eða hveija er hann að „slá
í gegn“?“
Umsjónarmaður er ekki vel
fróður um efni fyrri hluta bréfs-
ins. En honum líst vel á orðið
verming. Það er að minnsta
kosti hátíð hjá „gróðurhúsa-
áhrifum".
„Að slá í gegn“ er gömul
dönskusletta, heldur hvimleið,
um ágæta frammistöðu, einkum
þegar listamaður vekur mikla
aðdáun og hrifningu. Auðvitað
er ekkert andlag fyrir sögninni
að slá í orðasambandinu „slá
igennem“, og allra síst „slær
listamaðurinn hyllendur sína í
gegn“. Hitt er svo annað mál,
að ekki er auðvelt að fínna gott
íslenskt orðalag sem hefur ná-
kvæmlega sömu merkingu og
„slá í gegn“.
Eru nú lesendur enn sem fyrr
beðnir að spreyta sig, og það í
því hvoru tveggja (ekki ,,báðu“)
sem Þorkell minntist á.
★
Og þá er það bekkjarbróðir
minn, Baldur Ingólfsson, alltaf
jafn-athugull og kröfuharður.
Hann skrifar nú svo:
„Er skömm að nafni íslands?
Það er furðulega algengur
kækur á voru landi að afneita
nafni Islands. Þetta er sérstak-
lega áberandi á bréfsefnum,
bæði opinberra stofnana og ein-
staklinga. Á þeim eru iðulega
upplýsingar af ýmsu tagi, að
sjálfsögðu á íslensku, en þegar
kemur að nafni landsins mætti
halda að það væri ekki til nema
á ensku, Iceland.
Stundum eru nefndar upplýs-
ingar grautur af íslensku og
ensku, jafnvel á bréfsefnum
Háskóla íslands, og oft veður
þetta uppi á bréfsefnum og
umslögum smáfyrirtækja sem
virðast ekki líkleg til að eiga
bréfaskipti við útlönd. Væri ekki
snjallræði fyrir þá sem era raun-
verulega í póstsambandi við
umheiminn að koma sér upp einu
bréfsefni á þeirri tegund út-
lensku sem þeir nota mest og
hafa svo annað, á íslensku, til
að nota innanlands?
Nú er framleitt mikið af póst-
kortum til að selja ferðamönn-
um. Þau eru flest vel prentuð
eftir fallegum ljósmyndum, en
því miður er þeim iðulega spillt
með útjöskuðum frösum á ferða-
skrifstofuensku, ýmist utanum
myndina eða ofaní henni, og
þess vandlega gætt að hvergi
sjáist íslenskt orð sem kynni að
benda til þess að hér sé talað
sérstakt tungumál, svo að maður
tali nú ekki um nafn landsins.
Iceland-dellan veður líka uppi á
minjagripum handa ferðamönn-
um. Gæti ekki verið að þeir seld-
ust fullt eins vel með íslenskri
áletrun sem kynni að vekja for-
vitni?
Ég held að ýími sé til kominn
að sýna nafni íslands meiri sóma
en hingað til, áður en það er um
seinan og nafnið gleymt.
E.s.: Ofanritað minnir á und-
arlega áttavillu í stóru ensk-
íslensku orðabókinni úr forlagi
Arnar og Örlygs. Dæmi: Köln,
n. þýska heitið á Cologne;
Moskva, n. rússneska heitið á
Moscow; Miinchen, n. þýska
heitið á Munich. Hins vegar hef-
ur láðst að taka með uppsláttar-
orðið ísland, n. íslenska heitið á
eyjunni Iceland. Það hefði verið
i samræmi við hin dærnin!"
★
Gjarna vildi ég heyra í fram-
burði sem flestra að orð eins og
máltíð, Island, starfsemi og
stærðfræði séu samsett. Það
orkar til skilningsauka að segja
mál-tíð, ís-land, starf-semi og
stærð-fræði, ekki ?máltíð með
órödduðu 1-i, ?íssland, með
tveimur ess-um, enda þá
skammt í framburðinn ?issland,
ekki ?starsemi með hörðu r-i og
v-hljóðið horfið, eða ?starfræði.
Einstaka maður hefur skrifað
„starffræði“, og er víst þjóðskýr-
ing. Prófið þið bara. Máltíð er
tíðin, þegar mál er að snæða,
ísland er landið sem kennt er
við klaka, starfsemi er dregið
af starf=vinna, og í stærðfræði
fást menn við ýmiskonar stærð-
ir, ekki störf. Höfum framburð-
inn til leiðbeiningar um merking-
una.
★
Getið þið frætt mig um þenn-
an texta:
„Hversu gömul er hún þá, Billi boy,
Billi boy?
Hversu gömul er hún þá, sæti Biili?
Hún er sex sinnum sjö,
tuttugu og átta betur tvö.
Hún er svo ung hún má ekki fara frá
henni mörnrnu."?
★
Hlymrekur handan kvað:
Á Jaðri var vikið frá vissunni,
í Vaðlakrók hiaupið á byssunni
og á Hofstaðavöllum
var með hrópi og sköllum
í skammdegi skriðið á hiyssunni.
Nokkur orð um
verðhækkun
á mjólk
EINS OG fram hefur
komið í fjölmiðium að
undanförnu hækkaði
heildsöluverð á mjólk
og mjólkurvörum hinn
1. janúar sl. á bilinu frá
3 til ríflega 4%. Verð í
smásölu hefur verið
gefið frjálst, svo gera
má ráð fyrir að hækk-
unin fari út í verðlagið.
Eðlilega mælast
verðhækkanir ávallt
illa fyrir hjá fólki og
þá sérstaklega á tímum
stöðugleika_ og lágrar
verðbólgu. í huga fólks
snúast verðhækkanir
yfirleitt um það hvort
þær eru réttmætar eða ekki og
hvað stendur á bak við þær. Hvað
mjólkina varðar hafa orðið veruleg-
ar breytingar á kostnaðarliðum í
Þrátt fyrír allt hefur
raunverð á mjólk og
mjólkurvörum, segir
Guðbjörn Árnason,
lækkað til neytenda
á undanförnum árum
og átt sinn þátt
í bættum hag.
rekstri kúabúa undanfarna mánuði
og það hefur óhjákvæmilega haft
áhrif á verðmyndunina.
Bændur eru sjálfstæðir atvinnu-
rekendur og markmið
þeirra er m.a. að rekst-
ur bús Joeirra skili
hagnaði. Á undanförn-
um árum hefur rekstr-
arafkoma kúabúa ekki
verið viðunandi og þeir
sem starfa við mjólk-
urframleiðsluna hafa
því dregist aftur úr
miðað við flestar aðrar
starfsstéttir sem bera
sambærilega ábyrgð á
rekstri og mæta hlið-
stæðum kröfum.
Ástæða til
að rifja upp
Fram hefur komið
að verð á mjólk hafi hækkað um-
fram verðlagsbreytingar síðustu
mánuði. í því sambandi er ástæða
til að rifja upp hvernig verðþróunin
hefur verið á undanförnum áram.
Á meðfylgjandi mynd má sjá þróun
á verði mjólkur til bænda og útsölu-
verðs á nýmjólk til neytenda á áran-
um 1991 til dagsins í dag. Reiknað
er á föstu verðlagi miðað við vísi-
tölu neysluverðs í desember sl.
Á þessu má sjá að raunverð á
mjólk og mjólkurvöram hefur lækk-
að til neytenda á undanförnum
árum og átt sinn þátt í bættum
hag. Mjólk er drykkur sem á í harðri
samkeppni við aðrar drykkjarvörar.
Mjólk er holl náttúruafurð sem ís-
lenskir bændur vilja og verða að
framleiða á sanngjörnu verði. Von-
andi tekst það í sátt við almenning.
Höfundur er framkvæmdasijóri
Landssambands kúabænda.
Guðbjörn
Árnason