Morgunblaðið - 10.01.1998, Síða 50
50 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og Jenni
Ljóska
Smáfólk
MT DAP SAY5 U)E CAN'TAFFORDTOKEEP PUYIN6 YOU NEW SDPPER DISHE5., HE 5AY5 HE MAY HAVe TO REM0RT6A6E 0UR HOU5E AND HIS BAR8ER 5H0P...
I DONTKNOW..
HE MAY JU5T
0E JOKIN6..
Pabbi minn segir að við höf- Hann segir að við gætum
um ekki efni á að kaupa sí- þurft að veðsetja húsið okk-
feilt nýjan og nýjan dall ar og rakarastofuna
handa þér ... hans...
Ég veit ekki...
kannski er hann bara
að gera að gamni
sínu ...
Ég get ekki hlegið á
meðan ég er að éta ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hver er guð
vors lands?
Frá Nils Gíslasyni:
BRÁTT stendur til að halda upp á
aldamót. Þar á meðal annars að
minnast þess að 1000 ár eru liðin
frá kristnitöku á íslandi. Mig lang-
ar til að biðja þig, lesandi góður, að
hugleiða með mér hvað þessi orð
segja. Ég bið þig að beita við það
þeim eiginleikum sem við metum
mest, svo sem réttsýni, heiðar-
leika, sanngirni og tillitssemi.
Kristnitaka framkvæmd með
lagaboði vafðist ekki fyrir heiðnum
mönnum. Þeir voru aldir upp við
siði og athafnir og byggðu á þátt-
töku manna í athöfnunum en
gerðu engar kröfur til andlegrar
afstöðu þeirra.
Að vera kristinn er að trúa.
Trúa á þann Guð skapara og Jesú
Krist, þann frelsara sem Orð Guðs
Biblían kynnir okkur. Að verða
kristinn byggist á að heyra boð-
skapinn um Guð skapara, Jesú
Krist og Heilagan Anda, og leyfa
honum að hafa áhrif á hjarta sitt.
Þessi boðskapur vekur iðrun og
afturhvarf til trúar á frelsi fyrir
fórn Jesú Krists.
Það er því augljóst að lögboðin
kristnitaka heillar þjóðar er fráleit
og sú hugsun sem að baki liggur
lýsir augljósum misskilningi á því
hvað kristin trú stendur fyrir.
Með þessu er ég ekki að dæma,
eða gera lítið úr þeim sem stóðu að
þessari stjómvaldsákvörðun. Þeir
voru að gera það sem þeir töldu
rétt og var í samræmi við menn-
ingu þeirra og reynslu.
En nú höfum við eignast Orð
Guðs á eigin tungumáli og getum
sjálf lesið og lært hver áætlun
Guðs er og hver vilji hans er með
manninn (hið hreina fagra og full-
komna).
Ég legg því til að Þjóðkirkjan
með nýkjörinn biskup sem leiðtoga
geri „kristnitökuna" að veruleika
með því að bjóða þjóðinni að end-
urnýja sáttmála sinn við Drottin
Guð. Það sem þarf að gerast er að
biskup, prestar og aðrir fulltrúar
þjóðkirkjunnar þurfa að boða þjóð-
inni fagnaðarerindið eins og það er
sett fram í Biblíunni. Slík boðun er
frábrugðin því sem þjóðin hefur
áður fengið að reyna.
Við „kristnitökuna" var hótað
ofbeldi og við svonefnda siðbót var
beitt ofbeldi og aftökum og var það
þáttur í pólitískum hrossakaupum
Dana sem notuðu upplausn kirkj-
unnar sem tæki til að efla völd sín.
Það er því tími til kominn fyrir
þjóðina að fá að kynnast boðun
biblíulegrar kristinnar trúar sem
ekki er notuð í pólitískum tilgangi
heldur til að boða allt fagnaðarer-
indi Jesú Krists. Ég þekki marga
presta sem þyrstir í að geta gefið
sig að þvi að boða lifandi trú.
Flestir þeirra hafa einmitt lært til
prests með þá hugsjón í hjarta.
Það ætti því að vera auðvelt að
nýta köllun þeirra kirkjunni til
blessunar.
Því er nauðsynlegt að halda öfl-
ug námskeið þar sem prestar sem
hafa lifandi trúarreynslu og köllun
geta frætt aðra presta og starfs-
menn safnaðanna og jafnframt
frætt þjóðina um það hvemig bibl-
íuleg trú greiðir mönnum veg á
lífsleiðinni. Með núverandi
menntakerfi og fjölmiðlum gæti
þetta komist á, á þeim tíma sem
við höfum til aldamóta.
Það er réttlætismál að þjóðinni
sé gefið tækifæri til að kynnast lif-
andi kirkju sem tekur afstöðu til
allra þátta mannlífsins. Sú kirkja
er ekki dæmandi kirkja og ekki
stofnun, heldur sá hópur safnaða
sem stendur að boðun og samfé-
lagi kristinnar kirkju.
Hlutverk kirkjunnar er það að
kynna fyrir öllum sem heyra vilja
hver sé vilji fóðurins og hvert lög-
mál hans er. Hann sendi okkur son
sinn og gaf hann sem lausnargjald
fyrir syndir okkar meðan við enn
vorum syndarinnar böm. Hann
gefur þeim sem trúa Heilagan
Anda til að gefa þeim skilning á
Orði sínu og kraft til að ganga veg-
inn sem liggur til eilífs lífs.
Ég skora á alla að gefa sjálfum
sér og öðmm tækifæri til að taka
persónulega afstöðu til kristinnar
trúar eftir að hafa fengið að læra
um og kynnnast henni af eigin
raun.
Guð blessi þig.
NILS GÍSLASON,
Berghóli 2,601 Akureyri.
Nokkur orð til Olafs
*
Olafssonar landlæknis
Frá Ásgeiri Valdimarssyni Long:
ÞÚ viðurkennir að íslensk lög séu
nú daglega brotin á sjúkrahúsum
landsins. (Sjónvarp 6.1. 1998). Þar
sem þessi lögbrot hafa augljóslega
viðgengist nokkuð lengi, án þess að
dómsvaldið hafi gripið inn í, langar
mig til þess að benda þér á að séu
lög brotin ber að hegna þeim seku
og refsa þeim á viðeigandi hátt.
Einnig vil ég benda þeim sem sömu
lög hafa verið brotin á, að neyta
réttar síns og krefja viðeigandi
stofnanir um bætur. Landlæknis-
embættið hefir vafalaust færa lög-
menn á sínum snærum, en er ekki
tími til kominn að vekja þá til dáða
og freista þess að koma lögum yfir
ALLA sem íslensk lög brjóta?
ÁSGEIR VALDIMARSSON
LONG, vélfræðingur og elli-
lífeyrisþegi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.