Morgunblaðið - 10.01.1998, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ
52 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Reykjavíkurmótið í
sveitakeppni 1998
Undankeppni Reykjavíkurmóts-
ins í sveitakeppni 1998 kláraðist
miðvikudagfinn 7. janúar. Spiluð var
raðspilakeppni með 10 spila leikj-
um. Lokastaðan varð:
1. Örn Arnþórsson 307
2. Landsbréf 302
3. Roche 302
4. Samvinnuferðir-Landsýn 300
5. Marvin 289
6. Stilling 286
7. Grandi 265
8. Björgvin Sigurðsson 263
9. Hjálmar S. Pálsson 262
10. nota-bene 251
11. Olís 243
12. EUROCARD 235
13. ÍR-sveitin 231
14. íslenska útflutningsmiðst. 229
14 efstu sveitirnar unnu _sér rétt
til þátttöku í undankeppni íslands-
mótsins í sveitakeppni 1998. 8 efstu
sveitirnar keppa síðan um Reykja-
víkurtitilinn 1998. Efsta sveitin vel-
ur sér andstæðing úr sætum 3-8.
Sveitin sem endaði í 2. sæti velur
sér síðan andstæðing. Þær 4 sem
eftir eru eru settar þannig saman
að efsta sveitin spilar við neðstu
og svo hinar 2 saman. Áður en 8
liða úrslitin hefjast verður efsta
sveitin að velja andstæðing fyrir
sigurvegarann úr sínum leik.
Bridsfélag Akureyrar
BRIDSFÉLAG Akureyrar hóf starf
ársins 1998 með eins kvölds ný-
árstvímenningi með þátttöku 19
para. Úrslit urðu þessi:
Sveinn Pálsson - Bjami Sveinbjörnsson 206
ÖmEinarsson-HörðurSteinbergsson 205
Sverrir Haraldsson - Gunnar Berg 201
ÆvarÁrmannsson-HilmarJakobsson 182
Næsta keppni er Akureyrarmót
í sveitakeppni sem hefst 13. janú-
ar. Spiluð verður forkeppni, allir við
alla, og síðan leika fjórir efstu sveit-
irnar um meistaratitilinn. Sveitirnar
sem ekki komast í úrslitakeppnina
spila um 5. sæti og fleiri.
Tilkynna skal þátttöku til stjórn-
armanna eða keppnisstjóra, Antons
Haraldssonar í síma 461 3497, sem
allra fyrst.
Öllum þeim, er glöddu mig með gjöfum,
skeytum og heimsóknum á hundrað ára af-
mœli mínu þann 13. nóvember síðastliðinn,
sendi ég hjartans þakkir og kveðjur, með ósk
um gœfuríkt ár.
Magdalena Kristjánsdóttir,
Patreksfirði.
Kjartan Gylfason
tannlæknir
Hef hafið störf á tannlæknastofunni í
Hverafold 1-3, Grafarvogi.
Tímapantanir í síma 587 5666.
UTSALA - UTSALA
Halló!
5-50%
afsláttur
Úlpur - ullarjakkar
kápur - pelsar
alpahúfur - hattar
Kíkið inn
Opið sunnudag
kl. 13-17.
\o^ms\ö
Mörkinni 6, simi 588 5518.
Bílastæði við búðarvegginn.
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!
í DAG
VELVAKAIVÐI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Jólakort
AÐALGEIR hafði sam-
band við Velvakanda og
sagði að í fréttum sjón-
varpsins um daginn hefði
verið bent á það að fólk
ætti að eyða jólakortunum
í brennum. En Aðalgeir
vill benda á að það er
margt fólk sem safnar
jólakortum. Hefur Aðal-
geir áhuga á að fólk sendi
honum jólakort í safnið
hans frekar en að brenna
þau. Aðalgeir er í síma
464-1957.
Oddrún leitar
Gunnars
ODDRÚN hafði samband
við Velvakanda og er hún
að leita að Gunnari Guð-
mundssyni en hann skrif-
aði minningargrein um
Guðnýju Jónsdóttur í
Morgunbiaðið. Gunnar er
beðinn að hringja í Odd-
rúnu í síma 553 5507.
Góð þjónusta vagnstjóra
SVR
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi hún
lýsa yfir ánægju sinni með
þjónustu vagnstjóra leiðar
12 8. janúar. Hún vildi
senda honum þakkir fyrir
frábær liðlegheit og góða
þjónustu.
Laxalýsi
VEGNA fyrirspurnar í
Velvakanda um laxalýsi er
því komið á framfæri að
iaxalýsi fæst hjá Heild-
versluninni Mico, í bláu
húsunum við Suðurlands-
braut.
Tapað/fundið
Gullarmband
týndist
GULLARMBAND týndist
í vesturbænum, líklega á
Ásvallagötu á Þorláks-
messukvöld. Armbandið er
keðja með smáhlekkjum,
og silfúr- og kopardoppum.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 562 5417.
Fundarlaun.
Gleraugu
týndust
EF einhver hefur fundið
gleraugun mín sem ég hef
skilið einhvers staðar eftir,
sennilega á búðarborði
rétt fyrir jólin, er hann
beðinn að hringja í Pálínu í
síma 587 1714. Gleraugun
eru með blágrárri sanser-
aðri umgjörð.
Dýrahald
Hundur í óskilum
á hundahótelinu
á Leirum
LJÓSBRÚNN, íslenskur
hundur er í óskilum á
Hundahótelinu á Leirum.
Þeir sem sakna hans vin-
samlega hafið samband við
Hreiðar í síma 566 8366.
Kettlinga vantar
heimili
TVO kettlinga vantar gott
heimili. Vel upp aldh' og
kassavanir. Uppl. í síma
567 5152.
Kettlingar
fást gefins
TVEIR gulifallegh' kassa-
vanir og hraustir kettling-
ar, fress og læða, fást gef-
ins á gott heimili. Upplýs-
ingar gefur Dýrleif í síma
567 2502.
í óskilum
í Kattholti
UM þessar mundir er
óvenjumikið af óskilakött-
um í Kattholti, þar á meðal
eru þessir kettir. Er fólk
sem saknar katta beðið um
að hafa samband þangað
til að athuga hvort þeirra
köttur sé þar. Síminn í
Kattholti er 567 2909.
HÖGNI HREKKVÍSI
SKAK
lliusjón Murgeir
Pétursson
STAÐAN kom upp í opna
ílokknum í Groningen í des-
ember. Nenashev (2.585),
Úsbekistan, hafði hvítt og
átti leik gegn Mikliail
Gurevich (2.620), sem nú
teflir fyrir Belgíu. Svai'tur
er skiptamun undir, en hef-
ur stiilt upp miklu varnar-
vígi. Úsbekinn fann þó leið í
gegnum varnirnar:
38. Bxg6! _ fxg6 39. Hd7+ _
Kh6 40. Dd2+ _ g5 41. Dc2!
_ Dxf2+ 42. Dxf2 _ Rxf2 43.
hxg5+ _ Kxg5 44. Kxf2 og
með skiptamun yfir vann
hvítur endataflið um síðir.
Gurevich varð að játa sig
sigraðan eftir 78 leiki.
Þetta var mikilvægasti
sigur Nenashevs á mótinu.
Hann sigraði í opna flokkn-
um með 9 v. af 11 möguleg-
um. 2._3. Ehlvest, Eistlandi
og Ibragimov, Rússlandi 8
v., 4._6. Movsesian, Tékk-
landi, Nisipeanu, Rúmeníu
og Tivjakov, Rússlandi 7%
v. o.s.frv.
Skákþing Reykjavíkur
hefst á morgun kl. 14 í fé-
lagsheimili Taflfélags
Reykjavíkur Faxafeni 12.
Skráning í símum félagsins
5813540 og 5681690 og á
tölvupósti trEmmedia.is.
HVÍTUR leikur og vinnur
Víkverji skrifar...
YFIRLEITT eru þýðingar í Rík-
issjónvarpinu sæmilega vandað-
ar. Það kom Víkverja því á óvart
hversu skelfileg þýðingin var á
brezka þættinum Hjartaskurðlækn-
inum, sem var sýndur á fimmtu-
dagskvöldið. Víkverji taldi á annan
tug slæmra þýðingarmistaka, sem
voru ekki bara ónákvæmni, heldur
breyttu beinlínis merkingu þess,
sem sagt var. Það kom enn meira á
óvart að þýðingarvillumar áttu ekki
fyrst og fremst við um læknisfræði-
leg hugtök, sem þó var nóg af í
þættinum, heldur alls konar fremur
hversdagslegt enskt tungutak. Von-
andi verður þýðingin á þeim þátt-
um, sem eftir eru, heldur vandaðri.
XXX
VÍKVERJI ætlaði að kaupa
benzín í kortasjálfsala á benzín-
stöð Skeljungs við Miklubraut eitt
kvöldið í vikunni. Hann stakk bæði
kreditkortinu og debetkortinu í
sjálfsalann en fékk alltaf sama svar
vélarinnar: „Rangt kort. Takið kort-
ið.“ Samferðamaður Víkverja gerði
tilraun til að stinga sínum kortum í
vélina og áður en yfir lauk höfðu
fjögur greiðslukort verið prófuð, öll
í fullu gildi, en alltaf kom sama
svarið, sem benti til þess að sjálfsal-
inn væri bilaður.
Á sjálfsalanum var tilgreint síma-
númer hjá vaktmanni Skeljungs,
sem tæki við tilkynningum um bil-
anir. Víkverji hringdi í vaktmanninn
úr farsíma sínum, en komst fljótlega
að raun um að sá ágæti maður hafði
í fyrsta lagi takmarkaða hugmynd
um að honum væri ætlað að taka við
tilkynningum um bilanir, í öðru lagi
hafði hann ekki lært einfóldustu at-
riði kurteisi við viðskiptavini og í
þriðja lagi virtist hann ekki geta
móttekið þær upplýsingar að
sjálfsalinn væri bilaður, heldur
reyndi hann statt og stöðugt að
koma því að að sjálfsalinn við Miklu-
braut ætti „alveg örugglega að taka
kort“. Víkverji var orðinn fremur
pirraður í lok símtalsins, ekki sízt
vegna þess að hann hafði ekki tekið
upp símann í eigin þágu - enda datt
honum ekki í hug að bíða þess að
gert yrði við sjálfsalann - heldur til
þess að starfsmenn Skeljungs gætu
kippt málinu í liðinn þannig að aðrir
viðskiptavinir fengju þjónustu.
Sjálfur fór Víkverji bara á aðra
benzínstöð og fyllti á tankinn.
XXX
AF TEIKNINGUM af fyrirhug-
aðri nýbyggingu við Melaskóla
að dæma er útlit hennar í litlu sam-
ræmi við gamla skólahúsið. Segja
má að þetta komi síður að sök, þar
sem ekki er beinlínis um viðbygg-
ingu að ræða, heldur hús sem tengt
verður gamla skólanum með göng-
um. Víkverja er þó spurn af hverju
arkitektar virðast sjaldnast geta
borið virðingu fyrir húsunum, sem
fyrir eru, þegar þeir eru fengnir til
að hanna ný- eða viðbyggingar.
Melaskólinn er eitthvert fallegasta
skólahús borgarinnar og fellur vel
að nálægum byggingum við Haga-
mel, Furumel og Melhaga. Nýbygg-
ingin hefði gjarnan mátt vera í
sama stíl, þannig að jafnvæginu í
einum virðulegasta hluta Mela-
hverfisins værj ekki raskað.