Morgunblaðið - 18.01.1998, Page 8
8 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ástþór Magnússon, (DV.
Mér er óhætt að nota hólkinn góði. Kristur sagði skýrum orðum: „Ég er ekki
kominn til að boða frið heldur sverð.“
Póstmenn
gagnrýna ferð
til Brussel
Það er
gott að
hugsa í
strætó
ALMENNINGSSAMGÖNGUR
eru þægilegur ferðamáti. Ekki
þarf að eyða tíma í að skafa af
rúðunum á morgnana og heldur
ekki eyða peningum í bensín
eða hafa fyrir því að leita að
bflastæði - vagnstjórinn sér um
að koma farþegum sínum heil-
um á Ieiðarenda.
Og svo gefst líka afbragðs-
gott næði til þess að hugsa í
strætó og spá í lífið og tilver-
una. Þeir virtust a.m.k. njóta
þess, mennirnir tveir sem sátu
fremst í vagni númer 110 þegar
ljósmyndari Morgunblaðsins
kom auga á þá í Lækjargöt-
unni.
STJÓRN Póstmannafélagsins
furðar sig á því að íslandspóstur
hf. skuli að hluta til bera kostnað
af ferð samgöngunefndar Alþing-
is til höfuðstöðva Evrópusam-
bandsins í Brussel. Þetta kemur
fram í yfírlýsingu sem stjómin
hefur sent frá sér.
„Stjórn Póstmannafélagsins
sér ástæðu til að gera mjög al-
varlega athugasemd við fram-
kvæmd þessa. Allt síðastliðið ár
hafa verið í gangi miklar að-
haldsaðgerðir og niðurskurður
innan póstþjónustunnar, aðgerð-
ir sem stjórn félagsins hefur fyr-
ir sitt leyti sýnt skilning og
starfsmenn mátt sætta sig við.
Niðurskurður þessi hefur haft
slæm áhrif og valdið óróleika hjá
starfsmönnum og munu þeir, í
ljósi frétta þessara, eiga erfitt
með að sýna skilning á áfram-
haldandi aðhaldi og niður-
skurði.“
Aiþingi beri kostnaðinn
Stjómin bendir ennfremur á
að það sé í hæsta máta óeðlilegt
að fyrirtækið íslandspóstur hf.
leggi fé til ferðar samgöngu-
nefndar, sem sé nefnd sem eigi
að vera aðhalds- og eftirlitsaðili
með starfsemi fyrirtækisins.
Telji samgöngunefnd þörf á að
kynna sér reglur ESB um rekst-
ur póst- og símaþjónustu eigi Al-
þingi að bera kostnað af því.
.
■ __—.. í 7
Haflíkan prófað fyrir íslenskt hafsvæði
Markmiðid að
geta gefíð skip-
um viðvaranir
JÓN Elvar Wallevik
lauk á liðnu ári meist-
araprófsverkefni í eðl-
isfræðiskor Háskóla Is-
lands sem beindist að
áhrifamestu þáttum í
hreyfingu hafiss. Verkefnið
var unnið undir umsjón
Þórs Jakobssonar aðalleið-
beinanda og meðleiðbein-
andanna Svens Þ. Sigurðs-
sonar dósents og Þorbjörns
Karlssonar prófessors.
- Hvemig er hugmynd-
in að hafíslíkaninu til kom-
in?
„Síðari hluta ársins 1995
fékk svið hafísrannsókna á
Veðurstofu Islands í hend-
ur hafíslíkan frá Kanada
sem varð hvatinn að þessu
meistaraprófsverkefni.
Verkefni mitt var að setja
upp þetta líkan og keyra og
skoða þannig helstu áhrifaþætt-
ina í hreyfingu hafíssins. Eg
byrjaði á því að fara til Noregs í
nám við Öslóarháskóla þar sem
ég dvaldi árið 1996 og tók nám-
skeið í haffræði, veðurfræði og
fræði samfelldra efna. Vinnan við
verkefnið sjálft hófst síðan í febr-
úar árið 1997.“
- Hver er tilgangurinn með
þessu verkefni?
„Hann er sá að gera grein fýrir
helstu áhrifaþáttum í hreyfingu
hafíss við Island og koma með
uppástungur um næstu skref
varðandi notkun líkana við hafís-
spár á Veðurstofunni. Til eru
tvær gerðir hafíslíkana, skamm-
tímalíkön og langtímalíkön. Sú
síðari er veðurfarslegs eðlis þar
sem sóst er eftir langtímaáhrif-
um loftslags og hafs á útbreiðslu,
myndun, eyðingu og hrejrfingu
hafíss yfir yfir tuga til hundraða
ára skeið. Með skammtímalíkani
er leitast er við að reikna stað-
setningu hafíss mun nákvæmar
og um að ræða slíkt líkan í mínu
verkefni.
Líkanið reiknar nokkra daga
fram í tímann og markmiðið með
þessari gerð er að geta gefíð
skipum á leið um hafíssvæði við-
eigandi viðvaranir. Hér á Norð-
ur-Atlantshafi þar sem Austur-
Grænlandsstraumurinn er ekki
langt undan getur samspil óhag-
stæðra vinda, hafstrauma og
annarra þátta leitt til aðstreymis
hafíss að Islandi. Oft kemur fyrir
að siglingaleiðin um Horn er
ófær vegna þessa og kostur að
geta sagt fyrir um slíkt áður en
skip leggja úr höfn.“
- Hvemig hefur verið lagt
mat á hreyfíngar hafíss til þessa?
„Hingað til hafa hafíshorfur
verið ákvarðaðar samkvæmt
upplýsingum um ísjaðarinn á til-
teknum tíma og reynt að meta
hreyfingu hans næstu daga með
því að skoða veðurspá og taka til-
lit til meðalhafstrauma á svæðinu
og reynsla og tilfinning því í
stóru hlutverki. Galli slíkra að-
ferða er sá að ná- ------------
kvæmni minnkar hratt
með spátímalengd.“
- Hvað er ólíkt með
aðstæðum á hafsvæð-
um við Kanada og Is
Jón Elvar Wallevik
► JÓN Elvar Wallevik fæddist
í Reykjavík árið 1968. Hann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum við Sund árið 1988
og BS-prófi frá eðlisfræðiskor
Háskóla fslands árið 1994. Jón
Elvar starfaði síðan á Veður-
stofu fsiands, meðal annars við
hafísrannsóknir, og hóf meist-
aranám við Háskólann árið
1995. Hann varði meistararit-
gerð sína um hafíslíkan fyrir
íslensk hafsvæði hinn 18. des-
ember á liðnu ári og er á leið í
doktorsnám í Þrándheimi í
byggingaverkfræði.
land og þar með hegðun hafíss-
ins?
„Talsverður munur er á ís-
lenska og kanadíska hafsvæðinu
og aðrir þættir sem leggja þarf
til grundvallar hér. í Kanada er
ísinn er meira og minna sam-
frosta meðan aðstæður hér eru
mótaðar af tímaháðum haf-
straumum. Golfstraumurinn
kemur með hlýjan sjó að sunnan
og við fáum hingað ískalt vatn
frá Norður-íshafi svo dæmi séu
tekin. Hreyfingin er því miklu
meiri, bæði í hafinu og veðurfari
sem hefur áhrif á aðstæður.
Stöðugleikinn er meiri í Kanada
og meðal annars gert ráð fyrir
því í líkaninu að vaxtarhraði haf-
íssins sé sá sami, sem ekki gildir
hér. Það þarf því að taka annað
með í reikninginn."
- Getur þú nefnt dæmi?
„Einn þátturinn er aflfræðileg
víxlverkun milli hafíssagna. Þeg-
ar ég varði ritgerðina gerði ég til
útskýringar á því ferli líkingu við
forsýningu í bíó þar sem fjöldi
áhorfenda reynir að ganga sam-
tímis gegnum litlar dyr. Ahorf-
andi einhvers staðar í miðjunni
vill komast beint áfram að hurð-
inni, óhindrað, en getur það ekki
því allir hinir ýta á hann. Leiðin
liggur því í nokkurs konar lykkju
að dyrunum sem tekur lengri
tíma en eftir beinni línu. Þessi
þáttur er mjög mikilvægur á
kanadísku hafsvæði þar sem ís-
inn er yfírleitt þykkari. Við Is-
land er hann ekki svo mikilvæg-
ur því ísinn er á miklu opnara
svæði hér og leikur meira laus-
um hala.“
- Hverjar eru helstu niður-
stöðurnar?
„Sem fyiT segir er íyrrgreind
aflfræðileg víxlverkun ekki eins
------------------- mikilvægur þáttur hér
Tók dæmi af sem einfaldar notkun
áhorfendum á hafísslíkans fyi-ir ís;
forsýningu f bíó lenskar aðstæður. í
——öðru lagi þyrfti að
leggja til grundvallar
tímaháða hafstrauma sem reikn-
aðir væru út frá öðru líkani en ég
hafði ekki aðgang að slíku og
þurfti því að styðjast við meðal-
talsstrauma. Við þurfum að fá
hingað hafstraumslíkan líka og
helst að byggja það á íslenskum
aðstæðum, líkt og gert hefur ver-
ið fyrir hafíslíkanið."
Morgunblaðið/Kristínn