Morgunblaðið - 18.01.1998, Page 46
46 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
sími 551 1200
Stóra sóiðiS kl. 20.00:
HAMLET — William Shakespeare
8. sýn. í kvöld sun. uppselt — 9. sýn. fös. 23/1 uppselt — 10. sýn. sun. 25/1 nokkur sæti
laus — 11. sýn. fim. 29/1 nokkur sæti laus.
GRANDAVEGUR 7 - Vigdís Grímsdóttir
Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður M. Guðmundsdóttir.
Fim. 22/1 uppselt — lau. 31/1 nokkur sæti laus — fös. 6/2.
FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Hamick
Lau. 24/1 -fös.30/1.
YNDISFRÍÐ OG ÓFRESKJAN - Laurence Boswell
i dag sun. 18/1 kl. 14 — sun. 25/1 kl. 14.
Stfnt i Loftkastalanum kl. 20.00:
LISTAVERKIÐ - Yasmina Reza
Lau. 24/1 -fös. 30/1.
LISTAKLÚBBUR LEIKHÚSKJALLARANS mán. 19/1 kl. 20.30:
Hiti og hamingja: Ingveidur Ýr, mezzóspran syngur við undirleik Gerrit Schuil.
--GJAFAKORT ER GJÖF SEM GLEÐUR-----
Miðasalan eropin mánud.—þriðjud. kl. 13—18, miðvikud.—sunnud. kl. 13—20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
LEIKFELAG J
REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHUSIÐ
Stóra svið kl. 14.00
eftir Frank Baum/John Kane
I dag, sun 18/1, nokkur sæti laus, lau.
24/1, sun. 25/1.
Stóra svið kl. 20.00
FGÐIfR BG SVIIir
eftir Ivan Túrgenjev
4. sýn. fös. 23/1, blá kort,
5. sýn. lau 31/1, gul kort,
6. sýn. fös. 6/2, græn kort.
Stóra svið kl. 20.30
W/
Tónlistög textar Jónasar og
Jóns Múla.
í kvöld sun. 18/1, lau. 24/1,
sun 1/2, fim. 12/2.
Allra síðustu sýningar
Höfuðpaurar sýna á Stóra sviði:
fW%HiTT;
Rm. 22/1 kl. 20.00,
lau. 24/1, kl. 22.30.
Nótt & dagur sýnir á Litla sviði
kl. 20.30:
NTTALA
eftir Hlín Agnarsdóttur
Lau. 24/1.
Aðeins sýnt f janúar.
Miðasalan er opin daglega frá kl.
13—18 og fram að sýningu
sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10
Greiöslukortaþjónusta
Sími 568 8000 fax 568 0383
KalfiLeiifbúsxðH
Vesturgötu 3
„ffiíIHN I DEN“
HLADVARPAIMUM
lau. 24/1 kl. 21.00 laus sæti
fös. 30/1 kl. 21.00 laus sæti
Ath. sýningum fer fækkandí
„Sýningin kom skemmtilega á óvart og
áhorfendur skemmtu sér konunglega".
'Pönnusleiklur korfi m/hurnarsósu
„ iiláljcrjgski/rfrauó m/áslríðusósu „
Miðasala opin fim-lau kl. 18—21
Miðapantanir allan sólarhringinn í
síma 551 9055
BUGSY MALONE
Frumsýning 31. jan. kl. 15 uppselt
2. sýn. 1. feb. kl. 13.30
3. sýn. 1. feb. kl. 16.00
FJÖGUR HJÖRTU
eftir Óiaf Jóhann Ólafsson
6. sýn. í dag kl. 16 uppselt,
7. sýn. í kvöld ki. 20 uppselt
8. sýn. fös. 23. jan kl. 20 uppselt,
9. sýn. sun. 25. jan. kl. 20 uppselt
10. sýn. fim. 29. jan. kl. 20 uppseit
11. sýn. sun. 1. feb. ki. 21 örfá sæti laus
12. sýn. fös. 6. feb. kl. 21 uppselt
13. sýn. fim. 12. feb. kl. 21
ÁSAMA TÍMAAÐÁRI
1au. 31. jan. kl. 21
Síðustu sýningar
LISTAVERKIÐ
lau. 24. jan kl. 20.
VEÐMÁLIÐ
Næstu sýningar verða í janúar_
Loftkastalinn, Seljavegi 2,
Miðasala s. 552 3000, fax 562 6775
Miðasala opin 10-18, helgar 13—20
Leikfélag
Akureyrar
Á fferð með ffrú Paisv
Hjörtum mannanna svipar saman
f Atlanta og á Akureyri
Sýningar á Renniverkstæðinu
á Strandgötu 39.
7. sýn. í dag sun. 18. jan. kl. 16.00
8. sýn. lau. 24. jan. kl. 20.30
Miðasölusími 462 1400
leikfélag Kópavogs sýnir 3 einþáttunga e. Tsjekhov
MEÐKVEÐJU FKÁYALTA
jrælsóð þrenna...' Guðbr. Gíslas. Mbl.
Aukasýningar:
sun. 18. jan. kL20
lau. 24. jan. kl. 20
lau. 31. jan. kl. 20
Sýnt í Hjéleigu, Félagsheimili Kópavog:
Miðasala 554-1985 (allan sólarhringinn
Miðaverð aðeins kr. 1,000
- kjarni málsins!
Sídasti
jYBærinn
r
J^alnum
Vesturgata 11, Hafnarfiröi.
Míöasalan opin milli 16-19 alla daga
nema sun. Miöapantanir í síma:
555 0553. Sýningar hefjast kl. 14
Forsýning mið. 21/1 kl. 13,
uppselt
Fim. 22/1 kl. 13, uppselt
Fös. 23/1 kl. 18, uppselt
Frumsýn. 24/1 kl. 14 uppselt
2. sýn. sun. 25/1 kl. 14
nokkur sæti laus
3. sýn. lau. 31/1 kl. 14
4. sýn. sun. 1/2 kl. 14.
Hafnarfjaráirleikhiisió
HERMÓÐUR
OG HÁÐVÖR
FÓLK í FRÉTTUM
LYNN Carlin og Audra Lindley í „Taking Off“. JACK Nicholson bregður á leik í Gaukshreiðrinu.
MILOS FORMAN
GAUKSHREIÐRIÐ - ONE
FLEW OBER THE COCKOO’S
NEST, (‘75)
★★★★
Ein af bestu myndum allra tíma
segir sögu smákrimma (Jack
Nicholson) sem álítur að hann geti
losnað við fangelsisdóm ef hann er
vistaður á geðsjúkrahúsi. Þar mætir
hann ofjarli sínum, yfirhjúkrunar-
konunni, (Louise Fletcher). Hún
kann tökin á að gera menn að lög-
gildum vanvitum þegar hún sér að
þeir geta ógnað veldi hennar. Á yf-
irborðinu sjáum við hvemig hinn
frjálsi andi er kæfður innan veggja
sjúkrahússins. Forman hefur sjálf-
sagt haft örlög heimalandsins í
huga, sem þá var í jámgreipum
Sovét. Það má túlka aðstaaðumar á
marga vegu. Hvaða leið sem er far-
in er myndin óendanlega áhrifamik-
il. Lengi vel er hún óborganleg
gamanmynd, síðan tekur gamanið
að grána og lokakaflinn þegar búið
er að brjóta McMurphy niður, laga
hann að kerfinu, er nánast óbæri-
legur. Það leggst allt á eitt, enda
var myndin sú fyrsta í fjóra áratugi
til að fá 4, reyndar 5, eftirsóttustu
Oskarsverðlaunin; fyrir leikstjórn,
bestan leik í aðalhlutverkum og
besta mynd ársins. Þau fimmtu fyr-
ir handritið. Aukaleikaramir era
einnig hver öðmm betri. Mynd sem
allir verða að sjá.
TAKING OFF, (‘71)
★ ★★>/2
Fyrsta mynd Formans í Vestur-
heimi er ekkert sérlega þekkt, engu
að síður bráðfyndin skoðun gestsins
á hinum sérstaka tíðaranda sem
ríkti á Vesturlöndum við lok sjö-
unda áratugarins og íramá þann
áttunda. Kenndur við blóm, hippa
og dóp. Þeir Forman og handrits-
höfundurinn Buck Henry, sem
einnig fer með eitt aðalhlutverkið,
gera honum eftirminnileg skil í
skoplegri, einfaldri frásögn um kyn-
slóðabilið - sem hefur líklega aldrei
verið stærra. Aðalpersónumar era
foreldrar (Henry og Lynn Carlin)
stúlku sem strokið hefur að heiman.
I öngum sínum reyna þau að setja
sig í spor hinnar uppreisnargjörnu
æsku blómatímans með þeim ár-
angri að spurningin er hver sé
vandamálið.
AMADEUS, (‘84)
★★★%
Reisn og fall Wolfgangs Ama-
deusar Mozart (Tom Hulce) og
þáttur kollega hans og öfundai--
manns, Salieri (F. Murray Abra-
hams) í því mikla sjónarspili og
eymakonfekti, er umfjöllunarefni
þessarar margverðlaunuðu, sann-
sögulegu myndar. Einstaklega vel
heppnuð sem búningamynd og
drama, tónlistin fær vitaskuld mikið
rúm og að henni hlúð á allan hátt.
Abrahams stendur uppúr sem hinn
slægvitri Salieri, ásamt búninga-
hönnuðunum, tónlistarapptöku-
stjómm og Forman, sem hefur gott
tak á öllum þáttum þessarar til-
komumiklu og margbrotnu myndar.
Sæbjörn Valdimarsson
TVEIR af þremur gagnrýnendum
Morgunblaðsins völdu Málið gegn
Larry Flynt - The People vs Larry
Flynt, (‘96), eina af 10 bestu mynd-
um ársins sem var að líða. Það var
ekki til að slæva ánægjuna að hún
var einnig myndin sem kom stór-
Ieikstjóranum Milos Forman aftur
inná landakort þeirra bestu.
Forman er af tékknesku bergi
brotinn, fæddur 1932 í nágrenni
Prag. Foreldrar hans, faðirinn af
gyðingaættum, móðirin mótmæl-
andi, báru beinin í útrýmingarbúð-
um nasista. Snemma á sjötta ára-
tugnum lauk hann kvikmyndanámi
við listaháskólann í Prag og varð
strax notadrjúgur á því sviði. Gerði
nokkrar eftirtektarverðar stutt-
myndir og lék í myndum vina sinna
uns hann lauk sinni fyrstu, löngu
mynd, Konkurs, 1963. Á þessum ár-
um fór andrúmsloftið hlýnandi í
Tékkóslóvakíu og mikil gróska í
listalífi, ekki síst kvikmyndagerð.
Þriðja mynd leikstjórans, Svarti
Pétur - Cemý Petr, (63), fór víða og
hlaut mikið lof. Það var hinsvegar
sú næsta . Ástir Ijósku - Lásky
jedné plavovlásky/The Loves of a
Blonde, (‘65), sem vakti athygli um-
heimsins á þessum unga leikstjóra
sem þótti góður sögumaður með
Sígild myndbönd
skopskynið í lagi. Dansleikur
brunavarðanna - Horímá panen-
ko/The Fireman’s Ball, (68), veitti
honum alþjóðlega viðurkenningu.
Enn ríkti vor í Prag og skopast
Forman óspart undir rós að sov-
ésku stríðsherrrunum. Sem reynd-
ust takmarkaðir húmoristar. Mynd-
in hans Formans um dansleik þar
sem brunaverðimir missa stjómma
á eldinum, endurspeglaði óbeit
landa hans á stjómmálaástandinu.
Gagnrýnisraddimar gerðust æ há-
værari uns sovéski járnhællinn
hófst hátt á loft og buldi á tékk-
nesku þjóðinni með fúllum þunga.
Það tók hana siðan önnur tuttugu
ár að losna endanlega undan farg-
inu og verða fijáls þjóð að nýju.
Sovéska setuliðið varð þess vald-
andi að fijáls hugsun tæpast
skrimti. Hvergi skjól í landinu
nema neðanjarðar, þar sem menn
einsog Václav Havel voru með
menninguna í gjörgæslu. Forman
flúði land ásamt fjölda góðra kvik-
myndagerðarmanna; Vilmos Zsig-
mond, Laszlo Kovacs, Ivan Passer,
Miroslav Ondricek, ofl. Ádeilan
dulbúna, Dansleikur bmnavarð-
anna, er ein af bestu myndum
Formans, bæði hún og Ástir Ijósku
eru til hér á leigum og eru góður
kostur.
Forman var fljótur að komast í
gang í Hollywood, gerði 6 myndir
fyrir bandaríska aðila á árunum
1971 (Taking Ofí) til 1984, (Ama-
deus). Þá var röðin komin að
Valmont, (‘89), rislágri útgáfú
Formans af Les Liaisons Danger-
euses, svo miklu slakari en mynd
Stephens Frears, sem þá hafði far-
ið sigurför um heiminn, að Form-
an tók sér sjö ára hvfld.
Margir héldu að dagar hans sem
leikstjóri væru taldir, en þá kemur
þessi fína mynd um klámkónginn
Flynt og nú eru aðdáendur hans í
sjöunda himni. Maðurinn sem
gerði Gaukshreiðrið, eina bestu
mynd samtímans, er aftur kominn
á strik. Forman er með tvær
myndir í smíðum sem á að frum-
sýna í ár. Man on the Moon, sem er
rómantísk gamanmynd með ungu
stjömunum Natalie Portman,
Thora Birch og Brad Renfro, og
The Little Black Book, með Danny
De Vito. Eftir gamalkunnugt
handbragð hans á Málinu gegn
Larry Flynt, ætti öllum að vera
óhætt að hlakka til...
>ia sendingu
ÍgéM&' °t
:'áWæai°g
Uyon»n9a_
Seljum einnig sófasett, hornsófa, svefnsófa,
borðstofuhúsgögn o.fl. með miklum afslætti.
Val húsqögn
Ármúla 8-108 Reykjavik
Hjáokkureru
Vlsa-og
Euroraðsamnlngar
ávísun á staðgrelðslu
Sími581-2275'568-5375» Fax568-5275