Morgunblaðið - 14.03.1998, Page 1
136 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
61. TBL. 86. ÁRG. LAUGARDAGUR14. MARZ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tvennt fórst í snjó-
flóði á Lofoten
Peysa úr
ull af Dollý
EINRÆKTAÐA ærin Dollý hefur
verið rúin í vísindaskyni og peys-
an sem prjónuð var úr reyfinu
var sýnd á Vísindasafninu í
London í gær. „Verið velkomin á
opnun einhverrar óvenjulegustu
sýningar sem nokkru sinni hefur
verið sett upp,“ sagði John Dur-
ant, aðstoðarframkvæmdastjóri
safnsins, er hann kynnti Holly
Wharton, 13 ára stúlku sem sýndi
peysuna, sem hún hannaði sjálf.
Vísindasafnið gekkst, ásamt
fleirum, fyrir samkeppni um útlit
peysunnar. „Hún er hlý,“ sagði
Wharton um peysuna, sem var
prjónuð í vél í Leedsháskóla.
Reyfið var öllu lengra en venjan
er með ull af ám af kyni Dollýar,
Finn Dorset, en vísindamenn
Reuters
telja að það stafi fyrst og fremst
af því að Dollý hafi notið betra
atlætis en aðrar ær og hafi ekk-
ert með það að gera að hún var
einræktuð.
ROSKIN hjón, Einar og Lilly
Myklebust, fórust í snjóflóði í
Skjelfjorden á Lofoten snemma í
gærmorgun. Flóðið hreif íbúðarhús
þeitra með sér niður í fjöru og
stendur einungis steypt neðri hæð
hússins enn á sínum stað. Aðra
íbúa í Skjelfjorden sakaði ekki, að
því er lögregla á Lofoten tjáði
fréttastofunni NTB.
Snjóflóðið var um 300 metra
breitt og enn er mikil flóðahætta á
svæðinu og í gær var hafist handa
við að flytja íbúa byggðarlagsins á
brott frá hættusvæðum. Mikið
hvassviðri, snjór og lítið skyggni
torveldaði brottflutning og björg-
unarstarf. Lögregla hvatti íbúa alls
staðar á Vestur-Lofoten til að
halda sig innandyra í gær.
Norskur hermaður sem tók þátt
í æfingu í Troms, í Norður-Noregi,
lenti einnig í snjóflóði í gær, en
hann komst af sjálfsdáðum upp úr
flóðinu og sakaði ekki.
Þyrla varð frá
að hverfa
Vegna veðursins í Skjelfjord
varð þyrla, sem nota átti við björg-
unarstarfið, frá að hverfa og var
einvörðungu hægt að sinna starf-
inu af sjó. Mörg minni snjóflóð tor-
velduðu björgunarmönnum að fara
landleiðina til Skjelfjorden, þar
sem búa um 120 manns.
Björgunarmenn vissu ekki í gær
hvort einhverjir íbúanna gætu flutt
aftur til síns heima síðar um dag-
inn. Snjóflóðasérfræðingur frá
Rannsóknastofnun í jarðfræði var
væntanlegur í gær til þess að meta
ástandið.
A sjötta áratugnum fórust tveir í
svipuðu snjóflóði í Skjelfjorden.
Höfðu þeir verið í húsi sem stóð við
hlið hússins sem Myklebusthjónin
voru í er þau fórust í gær.
Zr\t '-W.'-V , .w J <■-., S
RÚSTIR hússins í Skjelfjord sem Myklebusthjónin bjuggu í.
NTB
Norðmenn lýsa vonbrigð-
um með njósnir Rússa
Suður-Kdrea
5,5 millj-
ónir fá
sakar-
uppgjöf
Seoul. Reuters.
FORSETI Suður-Kóreu, Kim Dae-
jung, veitti í gær 5,5 milljónum
manna sakaruppgjöf og þeirra á
meðal voru 74 pólitískir fangar.
Aðrir höfðu verið dæmdir fyrir ým-
is lögbrot, svo sem ölvunarakstur,
og 2.304 þeirra sem voru náðaðir
sátu í fangelsi. „Þetta er víðtæk-
asta sakaruppgjöfin frá stofnun
ríkisins," sagði Park Sang-cheon
dómsmálaráðherra.
Park sagði að markmiðið með
sakaruppgjöfinni væri að skapa
einingu meðal þjóðarinnar og auð-
velda henni að takast á við efna-
hagsþrengingarnar í landinu.
Kim Dae-jung forseti var sjálfur
árum saman í fangelsi á síðasta
áratug fyrir baráttu gegn einræð-
isstjórninni sem var þá við völd.
Mannréttindahreyfingar
óánægðar
Mannréttindahreyfingar höfðu
lagt fast að forsetanum að veita öll-
um pólitískum fóngum landsins
sakaruppgjöf en hann varð ekki við
þeirri beiðni.
Hreyfíngarnar áætla að 400
samviskufangar séu í landinu en
aðeins 74 þeirra fengu sakarupp-
gjöf. „Við urðum fyrir miklum von-
brigðum með þessa ákvörðun,"
sagði talsmaður mannréttinda-
hreyfíngarinnar Minkahyup og
benti á að helmingi fleiri samvisku-
fangar hefðu verið leystir úr haldi
þegar forveri forsetans, Kim
Young-sam, tók við embættinu
1993.
Meðal þeirra sem verða ekki
leystir úr haldi er Woo Yong-gak,
norður-kóreskur hermaður sem
hefur verið í fangelsi í 40 ár og ekki
viljað afneita kommúnismanum.
Hann hefur verið lengur í fangelsi
en nokkur annar pólitískur fangi í
heiminum.
NORSKIR ráðherrar lýstu í gær
vonbrigðum sínum með njósnastarf-
semi Rússa í Noregi en í fyrradag
var fímm rússneskum sendiráðs-
mönnum vísað úr landi. Sagði Knut
Voilebæk, utanríkisráðherra Nor-
egs, að norska stjórnin hefði lagt sig
fram við að eiga sem best samskipti
við hið lýðræðislega Rússland og
seint viljað trúa þvi, að allt væri enn
í sama farinu og á dögum kalda
stríðsins.
Aud-Inger Aure, dómsmálaráð-
herra Noregs, sagði í gær, að þetta
mál væri það alvarlegasta, sem upp
hefði komið í samskiptum Noregs og
Rússlands frá því að Arne Treholt
var afhjúpaður sem njósnari Rússa.
Lagði hún áherslu á, að í þessu máli
hefði enginn Norðmaður gerst brot-
legur og Svein Lamark, sem „njósn-
aði“ fyrir Rússana, hefði verið norsk-
ur gagnnjósnari.
Kjell Magne Bondevik, forsætis-
ráðherra Noregs, hefur aflýst heim-
sókn sinni til Moskvu í næstu viku
vegna málsins og á þessari stundu
veit enginn hvað verður með fyrir-
hugaða, opinbera heimsókn Haralds
konungs til Rússlands en af henni
átti að verða fyrir mitt þetta ár.
Vollebæk sagðist í gær vona, að
Rússar svöruðu ekki brottrekstrin-
um með því að vísa norskum sendi-
mönnum frá Rússlandi enda hefðu
þeir enga ástæðu til þess. Rússar
hafa hins vegar áskilið sér allan rétt
til að grípa til „viðeigandi ráðstaf-
ana“ en lýsa jafnframt furðu sinni á
því, að heimsókn Bondeviks skuli
hafa verið frestað.
Hinn umdeildi rússneski þingmað-
ur, Vladímír Zhírínovskí, fullyrti í
samtali við 7Y 2 að málið hefði kom-
ið upp vegna stuðnings Norðurland-
anna, þ.á m. Noregs og íslands, við
Eystrasaltsríkin.
Norska ríkisútvarpið skýrði frá
því í gær, að norska stjórnin hefði
ætlað að bíða með brottreksturinn
fram yfír heimsókn Bondeviks en
neyðst til að láta til skarar skríða
vegna þess, að dagblaðið Verdens
Gang hafði komist á snoðir um málið
og ætlaði að segja frá því. Lamark
hafði samband við blaðið að fyrra
bragði og segist ritstjóri þess telja
að hann hafi með þvi viljað tryggja
stöðu sína, sem honum hafi þótt
ótrygg og erfíð.
Lamark bannað
að tjá sig frekar
Forsætisráðuneytið norska hefur
bannað Lamark að tjá sig frekar um
málið og hefur honum verið fyrir-
skipað að fara í hálfs mánaðar leyfi.
Þá lýsti yfirmaður norsku leyniþjón-
ustunnai' því yfír í gær að Lamark
hefði brotið samning sinn við leyni-
þjónustuna með því að leysa frá
skjóðunni við fjölmiðla.
Aðeins tveir Rússanna, sem vísað
var úr landi, eru nú í Noregi en hinir
þrír erlendis. Fá þeir ekki að snúa
aftur til Noregs. Frá stríðslokum
hafa Norðmenn vísað 50 sovéskum
og síðar rússneskum sendiráðs-
mönnum úr landi og voru þeii' flestir
1991, átta talsins. Kom sá brott-
rekstur til vegna upplýsinga frá
Míkhaíl Bútkov, KGB-njósnara, sem
settist að á Vesturlöndum.
Norskir fjölmiðlar hafa það eftir
heimildum, að innan rússneska
sendiráðsins í Osló hafi lengi verið
mikill ágreiningur meðal starfsfólks-
ins. Þótt kalda stríðinu sé lokið,
starfi þar enn menn, sem kunni fátt
annað til verka en að njósna og því
viiji þeir halda áfram. Aðrir séu því
andvígir og leggi áherslu á eðlileg
samskipti við Norðmenn.
■ Þú borgar mér ekki/36