Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 31 3.060.QQ0 Ur. ur. Sesamolían gefur hnetukeim af súpunni, en í stað hennar má nota ólífu- eða vínberjakjarnaolíu. Athug- ið að cumin er ekki sama og norrænt kúmen, „caraway seeds“, heldur er cumin fastur liður í austurlenskum mat, ekki síst indverskum og svo norður-afrískum mat og mat frá Miðjarðarhafsbotni. Turmeric er notað á svipuðum slóðum, gefur gul- an og fallegan lit og milt bragð. Ef þið óttist að súpan verði of sterk með söxuðu chili getið þið látið heilt chili sjóða með og fískað það svo upp áður en súpan er sett í kvörnina. Súpan er best sem vetrarsúpa og vermir nota- lega, en hún er einnig góð köld að sumri til. Ef ykkur finnst bragðið að- eins of sætlegt kreistið þá sítrónu eða „lime“ yfir. ____________1 kg gulrætur____________ ___________6 rauðir laukar___________ ____________4 hvítlouksrif___________ 1 rauður chiliávöxtur, gjarnan nýr, annars þurrkaður - hreinsið _____________kjarnann úr_____________ ___________3 cm engiferbiti__________ Vi dl sesamolía eða önnur olía ____________2 tsk cuminfræ___________ ___________Vi tsk fennelfræ__________ ____________1 tsk turmeric___________ ____________1 I kókosmjólk___________ ______________2Vi dl vatn____________ ______salt og grófmalaður pipar______ vænt knippi af fínsöxuðum nýjum kóríanderblöðum 1. Gulrætur, laukur, hvitlaukur og chili er skorið niður. Kryddið er látið stikna í olíunni í um 1 mínútu við há- an hita, áður en lauk og hvítlauk er blandað út í og látið malla við lægri hita í um 4 mínútur. Bætið gulrótun- um út í og látið malla undir loki í um 10 mínútur. Kókosmjólkinni og vatn- inu er hellt yfir og látið sjóða undir loki þar til gulræturnar eru soðnar. 2. Setjið súpuna í kvörn, svo úr verði þykkt mauk. Ef ykkur fínnst súpan of þykk þá þynnið hana með svolitlu vatni, en hún á að vera þykk og ekki þunn. Saltið ögn ef þarf, malið pipar yfír, blandið kóríander saman við og berið súpuna fram rjúkandi. Hún er líka góð upphituð daginn eftir. „Fúsjón" hér og þar Það er fátt eins skemmtilegt og að koma sér og sínum skemmtilega á óvart og það er hægt að gera í eld- húsinu með því að hressa upp á gam- alkunna rétti, til dæmis með því að blása „fúsjón“ lífi í þá. Þegar 17 ára unglingurinn á heimilinu hafði bragðað súkkulaðiköku kryddaða með kanel, negli, stjörnuanís og allrahanda lýsti hann því yfir að héð- an í frá væru ókryddaðar súkkulaði- kökur óáhugaverðar. Sömu viðbót má gera við epla- og perueftirrétti, þar sem þeir voguðu bæta líka við ögn af chili eða láta heilan chili sjóða með, ef þannig er farið að. Einföld tómatsúpa úr soði og tómatmauki öðlast nýtt líf ef þið setj- ið saxaðan nýjan engifer og sítrónu- gresi saman við og bætið kannski rækjum í, ef mikið liggur við. Þar of- an á er ristað kókosmjöl einnig frá- bær viðbót. Þetta eru aðeins smáá- bendingar til að komast á aðra línu í matseldinni. Döðlur með engifer Meðan til eru góðar döðlur að vetrinum, hvort sem er nýjar eða þurrkaðar, þá er tilvalið að búa til sælgæti úr þeim. Takið steinana úr og setjið í þeirra stað þunna sneið af engiferi. Ef þið náið í súrsætt jap- anskt eða tælenskt engifer, engifer- sneiðar í sætu hrísgrjónaediki, er það enn betra. Döðlurnar eru góðar með tei, ekki síst reyktu tei eins og Lapsang soushong, en einnig sem snarl með þurru hvítvíni eða sérríi á undan mat, síður með sætu víni, því döðlurnar eru svo sætar. Þær koma jafnvel reyndustu kokkum á óvart og þar með hefur verið slegið léttilega á „fúsjón“-strengina... •|)N EU? Ori ubjsoa -ijjssij ‘jsj3AQjGA Ejjj0cl OL ujn BjELj 60 EjciA6g-ujoj jjjEj6B6unuo>j njOA jEpiuiGJÁg J>j -J 09SS uin OBJBJ Sdoax juAj jne66Aq ‘uujpAuisjAdsdoax ja jUUjpuAui e jsuisjj -gi. -uEui6jaa pij6u| gj -jnuuo ijœa ujunsj uoq jE6a|UJ9iq jsnyjA jEUjjjjaAs ge |jt ‘ujn jbc( J9J b|í(iuj uuib» ja spuBissng-S uinöaA uiEjjeacu LSLl djoójAjaö esisj e!l?| bjejj ee B uias ‘upiujajod [uo6ug JB H.IS UJBU BÖEjp neq -puiAa jn|Aq pJoqjijA j6ai!sae|6 jeöacj Qe||e>j eed ja piofjui^ujatod 'f t -uossiEtN uu!eaqdiE>|s '£ J ‘!puE|6ug j uieq -uajjoi Blq !uAss6jaa Bueng paui >|a| uueh Z j (t>6 6o oL ‘29 ‘8S6 L) ujnuuis uinjpfj ‘ejnsBjg ‘ J j >|!A|Ba ?JJ J3 6o uossujAÖJofa U!A6jofa '01 eiaieujBABsæo ‘6 n|sAsjBeJB[jBSj-jneJON '8 'S|BdaN 6joqenjoq ja npuBUijB» 'L '(0f6 J-9S8 J) JiJjqpsuie^quiBfa jaug -g ‘SJ9[|jin Ji -09JqjS9J ‘eurnddn uinuun>)9 jb ‘J9>(SJ!a6 jnuj.ug g -jn|!UJ9!s 002! W 0JæJ JBA UB6Es6o|!e!3A>|S!j jBöaq ‘g/6 J 9M? Bjjaqe?Js6aAjnjBA?[s JBA U0SBUJB[a SBjqjjBiN 'f '!l|oi 6o |EABUi9ia 'C 'J!JJ9psjBU!g BJ9d '2 'e!A Jn>|aj !UBOobs 00!U 6o ujnjjojs jb jnjæi ub>|BS ujad ' Juoas MENNING - LISTIR 1. Skipt verður um aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar ís- lands í sumar. Hver læt- ur af störfum og hver tekur við? 2. Leikfélag Akureyr- ar frumsýndi um liðna helgi söngleikinn Söng- vaseið (Sound of Music). Hvaða söngkona fer með aðalhlutverkið, hlutverk barnfóstrunnar? 3. Kunnur listmálari hélt á dögunum sýningu á vatnslitamyndum í húsi við Sigtún sem er þekkt- ara fyrir annað en mynd- listarsýningar. Hvaða hús er þetta og hver er málarinn? SAGA 4. Hver var sjávarút- vegsráðherra þegar fisk- veiðilögsagan var færð út í 200 sjómflur og hvaða ár var það? 5. Spurt er um mann þann er kannaði ísland í leit að heppilegum þing- stað og valdi Þingvelli við Öxará? 6. Islensk kvenréttinda- kona birti blaðagrein í Fjallkonunni 1885, þá fyrstu er birtist á prenti eftir íslenska konu. Hver var þessi brautryðjandi Möðrudals. Hvað heitir þessi leið? ÍÞRÓTTIR 10. íslenskur skíða- maður sigraði í vikunni í stórsvigi á opna norska unglingameistaramótinu og fyrir skömmu náði hann mjög góðum ár- angri í sömu grein á heimsmeistaramóti ung- linga. Hvað heitir piltur- inn og hvaðan er hann? 11. Hvaða þjóð hefur oftast orðið heimsmeistari í knattspyrnu og hve oft? 12. Enski iandsliðsmað- urinn kunni í knatt- spymu, Paul Gascoigne, sem leikur með Rangers í Skotlandi, er orðaður við Crystal Palace í London sem Hermann Hreiðars- son leikur með. Gascoigne hefur leikið með íslensk- um landsliðsmanni - hver var það og með hvaða fé- lagi? Ýmislegt 13. Hver var sá maður „er fjórir gengu fyrir, fól- leitur og skarpleitur og glotti við tönn ...“? 14. Hvað eru potemkín- tjöld og af hverju draga þau nafn sitt? 15. Hver lék Ilsu Lund Laszlo í hinni klassísku kvikmynd Casablanca? Hvað eru potemkíntjöld? 16. Á myndinni eru þrír pýrami'dar við Giza í Eg- yptalandi. Sá fremsti er þeirra stærstur og talinn eitt af „sjö undrum veraldar. Við hvern er hann kenndur og hvenær er talið að hann hafi verið reistur? Hvaða hlutverki þjónuðu pýramfdar í menningu Forn-Egypta? kvennréttindabaráttu á íslandi? LANDAFRÆÐI 7. Spurt er um höfuð- borg, sem stendur í um 1320 metra hæð, skammt frá ármótum Baghmati og Vishnumati, þar sem er fjöldi hindúa- og Búdd- hahofa. Hvað heitir borg- in og í hvaða landi er hún? 8. I hvaða sýslu er Þaralátursfjörður? 9. Aðalfjallvegur einn er í S-Þingeyja- sýslu og N-Múlasýslu, af Sprengisandsleið í Tómasarhaga, um Urriðaháls, yfir Jök- ulsá hjá Upptypping- um, yfir brú á Kreppu, um Grjót og á Austur- landsveg austan Umboösaöilar: Keflavík: Bílar og þjónusta, s: 421 7180 • Akranes: Bílasalan Bílás, s: 431 2622 • Bolungarvík: Blfreiöaverkstæöiö Nonni, s: 456 7440 Sauðárkrókur: Bifreiöaverkstæöiö Áki, s: 453 5141 • Akureyri: Bílaval, s: 462 1705 • Húsavík: Bílaleiga Húsavíkur, s: 464 1888 • Egilsstaðir: Bílasalan Ásinn, s: 471 2022 Hornafjörður: HP & synir, s: 478 1577 • Seffoss: Bílasala Suöurlands, s: 482 3700 • Vestmannaeyjar: Bílaverkstæöi Haröar & Matta, s: 481 2733 SuÖurlandsbraut 14 Söludeild Land Rover: 575 1210 Skiptiborö: 575 1200 bl@bl.is 'tmr Land Rover Discovery er öflugur afburðajeppi meö 122 ha. vél meö túrbínu og millikæli. Skriöstillir, fjarstýrðar samlæsingar, þjófavörn og sæti fyrir 7 er staöalbúnaöur í Discovery. Þú finnur ekki jafn góðan jeppa á jafn góðu verði. S P U R T E R FARÐU ÚT A LAND ROVER
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.