Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Bóndinn á Möðrufelli fer fram á þrjár milljónir Morgunblaðið/Kristján Vorhugur í trillukörlum MATTHÍAS Eiðsson, bóndi á Möðrufelli, hefur krafið hrepps- nefnd Eyjafjarðarsveitar um þriggja milljóna króna bætur vegna tjóns sem hann telur sig hafa orðið fyrir í tengslum við kaupin á jörðinni Möðrufelli. Matthías telur sig hafa tapað tveimur milljónum króna vegna þess að sala á mjólkurkvóta hafi ekki getað gengið eftir sl. sumar. Þegar hann svo seldi mjólkurkvót- ann í nóvember, eftir að hann fékk jörðina afhenta, var verðið mun lægra en sl. sumar. Auk þess fer Matthías fram á eina milljón króna, þar sem hreppurinn hafi ekki skil- að jörðinni fyrr en 80 dögum eftir að hann keypti hana. Birgir Þórðarson, oddviti hreppsnefndar, sagði málið ekki hafa verið rætt á fundi nefndarinn- ar í fyrradag, það væri í meðförum lögfræðinga. Hann sagðist þó von- ast til að hægt yrði að ljúka málinu sem fyrst en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um það. „Eg tel að þessi krafa okkar sé Segir bótakröfuna sanngjarna og fara í hart verði ekki orðið við kröfunni mjög sanngjörn og við förum fram á að þeh’ borgi okkur þessar þrjár milljónir og þá er málið úr sög- unni. Við förum fram á að þeir bæti kvótann og greiði fyrir að hafa haft búið í 80 daga. Eg átti jörðina allan þann tíma og þessir menn áttu ekkert með að ráðskast með hana.“ Fer annars með málið í hart Hreppsnefndin hefur óskað eftir því að Matthías rökstyðji kröfu sína og sagði hann að það yrði auð- velt verk. Hann sagði jafnframt að ef hreppsnefndin gengi ekki að þessari kröfu myndi hann hiklaust fara með málið í hart. „Eg held að þeir myndu tapa illa á því og þá mun ég jafnframt fara fram á mun hæm bætur. Þessir menn fóru mjög illa með okkur á allan hátt og mér finnst þeir heldur ekkert hafa verið að flýta sér að ljúka þessu máli.“ Forsaga málsins er sú að Matth- ías og kona hans Hermína Val- garðsdóttir keyptu jörðina Möðru- fell og var skrifað undir kaupsamn- ing hinn 24. júlí á síðasta ári. Jörð- in var seld með bústofni, vélum og framleiðslurétti á um 125 þúsund lítrum af mjólk. Hreppsnefnd hugðist nýta sér forkaupsrétt og ganga inn í kaupin en landbúnaðar- ráðuneytið felldi ákvörðun hrepps- nefndar úr gildi. Málið fór fyrir héraðsdóm og Hæstarétt og unnu Matthías og Hermína málið á báð- um dómstigum. I kjölfarið sam- þykkti hreppsnefnd að afhenda Matthíasi og Hermínu jörðina. Matthías sem stundar hrossabú- skap, seldi Benedikt Hjaltasyni á Hrafnagili mjólkurkvótann og allar kýr og kálfa. Fermingarsýn- ing í Blómavali BLÓMAVAL á Akureyri efnir ásamt fjölda annarra norðlenski-a fyrirtækja til sýningarinnar Fei’m- ing, en öll eiga fyrirtækin það sam- eiginlegt að tengjast fenningum og undirbúningi þeirra á einhvern hátt. Sýningin verður í Blómavali, Hafn- arstræti 26, og stendur hún yfir frá kl. 14 til 16 í dag, laugardag, og á sama tíma á morgun, sunnudag. Hlífarbingó KVENFÉLAGIÐ Hlíf heldur bingó sunnudaginn 15. mars kl. 15 í starfs- mannasal KEA í Sunnuhlíð. Margir góðir vinningar, en aðal- vinningur er örbylgjuofn frá Radionausti. Spjaldið kostar 300 krónur. Að vanda rennur allur ágóði til styrktar barnadeild FSA og eru bæjarbúar hvattir til að fjölmenna og styrkja gott málefni. ÞAÐ er kominn vorhugur í trillu- karlana í Sandgerðisbót á Akur- eyri. Haukur Konráðsson var að vinna við bátinn sinn Yr EA-530 uppi á landi og gera hann kláran fyrir vorið. Hann var að hreinsa gamla málningu af lúkarskapp- GANGNAMANNAKOFI á svo- nefndum Almenningi inn af Garðsái’dal í Eyjafjarðarsveit er fokinn af grunni. Vélsleðamenn, sem voru þar á ferð nýverið og ætl- uðu að koma við í kofanum, fundu hann ekki á svokölluðum Stífluhóli. Við nánari leit fundu sleðamenn- irnir húsið á hliðinni og hafði það skemmst töluvert. Sáu eitt tryppi Gangnakofinn var fyrir tilstuðl- an Aðalbjörns Tryggvasonar og fleiri góðra manna dreginn með jarðýtu fram eftir fyrir 15 árum. Þar gistu gangnamenn yfir nótt og gátu svo hafið smölun strax í bítið á gangnadaginn. Um þriggja tíma reið er fram að Stífluhóli á Al- menningi. anum „og svo verður málað hátt og lágt.“ Haukur reiknar með að selja á flot eftir veiðistoppið upp úr miðjum apríl en hann má aðeins stunda handfæraveiðar og hefur leyfi til að veiða í 40 daga á þessu fiskveiðiári. Sleðamennirnir sáu einnig eitt tryppi skammt frá Stífluhóli og virtist það vera þokkalega á sig komið. Hugmyndin var að fara ríð- andi til að sækja tryppið en það gæti reynst erfiðleikum bundið sem stendur vegna nýrrar reglu- gerðar frá landbúnaðarráðuneyt- inu. Þar segir m.a. að allur flutn- ingur hrossa milli hesthúsa, lög- býla og landshluta sé bannaður. Reglugerðin er gefin út vegna vegna þess að upp er komin smit- andi hitasótt í hrossum. Sænsk barnamynd MYNDASÝNING fyrir börn verður á vegum Norræna fé- lagsins á Akureyri í dag, laug- ardaginn 14. mars og hefst hún kl. 11 fyrir hádegi. Sýnd verður sænsk barnamynd á Amtsbókasafninu á Akureyri. Gilfélags- fundur ALMENNUR félagsfundur Gilfélagsins verður haldinn í Deiglunni í dag, laugardaginn 14. mars, kl. 14. Umræðuefni fundarins er framtíðarverkefni Gilfélagsins. AKSJÓIM Laugardagur 14. mars hÁTTIID 17’00 ►Helgarpottur- Pfl I I Un inn Umræðuþáttur með innskotum úr bæjarlífinu. Sunnudagur 15. mars hÁTTIID 17 00 ►Helgarpottur- PHI IUK inn Umræðuþáttur með innskotum úr bæjarlífinu. (e) Mánudagur 16. mars bfFTTID 20 00 ►si°nvarPs- PfLlllll kringlan - Akureyri 21.00 ►HelgarpotturinnUmræðu- þáttur með innskotum úr bæjarlífinu. (e) 22.00 ►Dagskrárlok Messur á Akureyri Sjá blaðsíðu 39 Til sölu er verslun og gisti- heimili ásamt veitingastað. Um er að ræða 96 m2 verslun í fulium rekstri, veitinga- sal með bar, skyndibitastað og 8 herbergja gistingu með tveimur snyrtingum. Veitingasalirnir og eldhús eru samtals um 283 m2 og gistirýmið um 200 m2, einnig er í húsinu um 130 m2 íbúð sem bæta má við gistirýmið. Húsnæðið stendur á lóð sem skipulögð er sem verslunar- og þjónustu- svæði. Allar nánari upplýsingar fást í síma 4644117 eða á kvöldin og um helgar í síma 4644164, Kristján. Mývatn ehf. Hús til sölu á Akureyri Þórunnarstræti 81, einbýli Glæsilegt einbýlishús sem stendur stutt frá Menntaskólanum á Ak- ureyri. Húsið telur 7 herbergi og innbyggðan bílskúr mjög rúmgóð- an. Séríbúð með 2 herbergi á neðri hæð. Á efri hæð eru 3 svefn- herbergi, stórar stofur og bókaherbergi. Rúmgott eldhús og búr innaf því og baðherbergi. Á neðri hæð er auk íbúðarinnar rúmgott sjónvarpshol, geymsla, með glugga, hægt að nota sem herbergi og rúmgott þvottahús. Aðalforstofan er með innangegnt f inn- byggðan bílskúr. Lóðin er mjög fallega gróin og þrennar svalir eru á húsinu. Húsið er vel staðsett. E. hæð 3 herbergi, stofur, eldhús, búr og baðherbergi. N. hæð 4 herbergi, sjónvarpshol, þvottahús, fa.STKKíMSvTa\ geymsla og baðherb. _ IJYGGI) r BRGKXIIGOTII \ Slmar 462 1744, 462 1820 Sölumenn: Agústa Ólafsdóttir og Björn Guðmundsson. Fax 462 7746 Bæjarmálafundur Bæjarmálafundur verður haldinn mánudaginn 16. mars kl. 20.30 í Kaupangi. Bæjarmálafundir eru öllum opnir. Bæjarmálaráð Sjálfstæðisflokksins. ?Akureyrarbær auglýsir tillögu að aðalskipulagi Akureyrar 1998-2018 Akureyrarbær auglýsir hér með, skv. 18. gr. laga nr. 73/1997, tillögu að aðalskipulagi Akureyrar 1998-2018. Hlutverk aðalskipulags er að marka stefnu um þróun byggðar, landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi og umhvertismál. Tillagan, uppdrættir og greinargerð, liggur frammi til sýn- is á Bæjarskrifstofu Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, í 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til mánu- dagsins 27. apríl 1998 þannig að þeir sem þess óska geti kynnt sér hana. Starfsmenn skipulagsdeiidar Akur- eyrarbæjar svara fyrirspurnum ef einhverjar eru. Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er bent á að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skilað í síðasta lagi kl. 16.00 þann 27. apríl 1998 til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar. Hver sá sem ekki ger- ir athugasemdir við tillöguna innan frests telst samþykk- ur henni. Á auglýsingatímanum verða haldnir 3 kynningarfundir um mismunandi þætti tillögunnar og verða þeir auglýstir sérstaklega. Skipulagsstjóri Akureyrarbæjar. Gangnakofi fauk af grunni Eyjafjarðarsveit./Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.